Alþýðublaðið - 06.06.1947, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 06.06.1947, Blaðsíða 1
Veðurhorfiír: Breyíileg áíí og hægviðri; sums staðar smáskúrir. AI|>ýðubIaðiS vantar börn til að bera út blaðið í nokkur hverfi í bænum, sími 4900. Veit ekki hægri höndin hvað sú vinsfri er að gera? HANNES STEPHENSEN, varaíormaður Dagsbrúnar og einn a'f fulltrúum komm- únista í bæ.iarstiórn, stóð upp á bæ.iarstiórnarfundi í gær og bar fram tillögu þess efnis, að bærinn hverfi frá veniu sinni og skipi nefnd til þess að sem.ia við Dags- brún án tillits til samning- anna við hina atvinnurekend urna. Borgarstióri upp.lýsti þá, að hann hefði rætt við for- mann Dagsbrúnar, og hefði sá algerlega fallizt á, að rétt væri að bærinn héldi þeirri ven.iu, að semia ekki fyrr en samningar við atvinnurek- endur væru langt komnir. Þrátt fyrir það, að formaður félagsins féllist á þetta, kæmi varaformaðurinn nú fram með gagnstæða tillögu. Það var ekki furða, þótt Jón Axel spyrði: „Veit ekki hægri höndin hvað sú vinstri er að gera?“ BEVIN var meðal þeirra, sem áttu að fá sprengjubréf- dn frá Ítalíu. Scotland Yard fann þó bréfin, áður en ráð- herrann reif þau upp. Brezk- ir lögreglumenn erú nú komnir til Milano til að rannsaka málið. Stern, óaldarflokkurinn í Palestínu, hefur viðurkennt, að hann hafi sent bréfin. 180 farþegar með Droitningunni héSan í gærkveidi Hvert farrými upp- pantað fram í októ ber. DRONNING ALEXANDR- INE fór héðan klukkan 10' í gærkvöldi áleiðis til Fær- eyja og Kaupmannahafnar. Með skipinu fóru héðan 180 farþegar; meðal þeirra voru sænsku handknattleiksmenn irnir. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur fengið hjá skrifstofu Sameinaða gufu- skip^félagsins, er hvert far- rými héðan með Drottning- unni upp-pantað fram i októ- ber í haust, en að utan og hingað fram í september. XXVII. Föstudagur 6. júlí 1947 122. tbl. Umtalsefniðs Kommúnistar ætla að reka Dagsbrún xit í pólitískt verkfall. Forustugrein: ÞaS, sem er í húfi. Truman og Austin ÞAÐ ER EKKERT EFAMÁL LENGUR, að það er ætlun kommúnista að fyrirskipa Dagsbrúnarmönn um að beim forspurðum, að hefja pólitískt verkfall ’gegn núverandi ríkisstjórn um næstu helgi. Eru kaup- kröfur kommúnista í sambandi við það ekkert annað en tálbeita til þess að blekkja Dagsbrúnarmenn út í verkafllið. Tilgangur þess er að torvelda störf ríkis- stjórnarinnar, eyði-leggja væntanlegan árangur af dýrtíðarráðstöfunum hennar og, ef unnt væri, að steypa stjóminni. En þó að það tækist ekki, myndi slíkt verkfall hafa hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir þjóðina í heild og þó ekki eins alvarlegar fyrir neina stétt hennar og verkalýð- inn sjálfan. Það er vitað, að atvinnuvegirnir þola ekki neina verulega hækkun á framleiðslukostnaði, ef hægt á að vera að selia afurðir okkar erlendis. Ný kauphækkun- aralda nú með eftirfarandi nýju dýrtíðarflóði myndi því kalla hrun yfir atvinnuvegi þjóðarinnar og atvinnuleysi og neyð yfir verkalýðinn. Fjölda Dagsbrúnarmanna og annarra verkamanna er þetta fullkomlega Ijóst. Við allsherjaratkvæðagreiðslu í Dagsbrún á dögunum fengu kommúnistar ekki nema rúmlega 900 af 3000 félags- mönnum til þess að greiða atkvæði með uppsögn samn inga; og á Dagsbrúnarfund- inum nokkru seinna, þar sem kaupkröfur kommúnista voru tii umræðu, mættu ekki nema 200 manns. og þar af fengust ekki nema rúmlega 100 til að greiða atkvæði með kröfum kommúnista. Við hvorugt tækifærið fór hin kommúnistíska stjórn fé lagsins fram á ineitt umboð til þess að fara með félagið út í verkfall. Og þó ætlar hún nú, án frekari skoðana- könnunar eða atkvæða- greiðslu í félaginu, að lýsa yfir verkfalli um helgina. Þetta ábyrgðarlausa, póli- tíska verkfallsbrölt kommún ista í Dagsbrún vekur megna andúð verkalýðsfélaganna úti um allt land. Verkalýðsfélagið Bald- ur á Isafirði, Verkalýðsfé- lag Vestmannaeyja, Verka íýðsfélag Akraness, Verka lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Verkalýðsfé- lag Eyrarbakka, Verkalýðs félag Óláfsfjarðar, Verka- lýðsfélagið Árvakr.r á Eskifirði, Verkalýðsfélagið Skjöldur á Flateyri og Verkalýðsfélagið Víkingur í Vík í Mýrdal liafa opin- berlega vítt þetta verk- fallsbrölt og neitað að eiga nokkurn þátt í því. Þau telja það fullkomið á- byrgðarleysi að hefja á þess stundu nýja kaupstreitu til þess að torvelda eða eyði- leiggja allan vænlegan árang ur af dýrtiðarráðstöfunum ríkisstiórnarinnar, sem vitað er, að atvinnuvegir þjóðar- innar standa nú og falla með. Þau vilja styðja allar ráðstaf anir ríkisstjórnarinnar til þess að tryggja áframhald- andi atvinnu og þær kjara- bætur, sem verkalýðurinn hefur fengið á undanförnum árum, og telja það réttilega ábyrgðarlausa misnotkun á verkalýðsfélagsskapnum að ota honum út í pólitísk verk föll, þeim til hindrunar. En kommúnistar eru ekki að hugsa um það, þótt þeir fórni hagsmunum verkalýðs- ins og steypi honum út i at- vinnuleysi og eymd með hinu pólitiska verkfallsbrölti sínu. í blindu hatri sínu á núverandi ríkisstjórn hafa þeir aðeins eitt áhugamál — að steypa henni frá völdum, þó að það þýddi s\jórnleysi í landinu og nýtt óviðráðan- legt dýrtíðarflóð, sem myndi innan skamms leggja at- vinnulíf þjóðarinnar í rústir og skola burt. öllum kjara- bótum, er verkalýðurinn hef ur fengið á undanförnum ár- um. Þess er að vænta, að fyrir því verði að minnsta kosti séð, þó að kommúnistum muni ekki vera það ljúft, að Dagsbrúnarmenn fái sjálfir að segja til um það við alls- herjaratkvæðagreiðslu í fé- laginu, hvort þeir vilja vera með í slíku verkfallsævin- Hér sjást þeir saman Truman forseti og Warren Austin, fulltrúi Bandaríkjanna í öryggisráðinu. Grefírissi þeirra^ serrs jarfísettlr verSa á Akureyri, fer frain s dag. í GÆR fór fram minxiingarathöfn í Akureyrarkirkju um fólk það, sem fórst í flugslysinu fyrra fimmtudag og flutt verður til Reykjavíkur til greftrunar. Hófst athöfnin klukkan 4 síðdegis og var kirkjan fagurlega skreytt og fjöldi manns hlýddi á minningarathöfnina. í dag klukkan 1 eftir hádegi fer fram útför þeirra, sem jarðsettir verða á Akureyri, en tvær konur verða jarðsettar annars staðar. Búðum var lokað á Akur- eyri í gær klukkan 3 og fán- ar voru dregnir í há'lfa stöng í bænum. Athöfnin hófst með því að leikið var á kirkjuorgelið lagið ,,Ave Maria“ eftir Schubert, þá söng kirkjukórinn sálm, undir stjórn Björgvins Guð- mundssonar, en þar á eftir flutti sóknarpresturinn, séra Pétur Sigurgeirsson, bæn, og blessaði yfir kisturnar. Því næst var leikin aria eftir Hándel og fiðlusóla lék Theodór Andersen hljóm- sveitarstjóri; þá var sunginn sálmur og Theodór Ander- sen lék kvöldbæn eftir Björg vin Guðmundsson. Þá voru kisturnar bornar úr kirkju, en þær voru 11, með 13 líkum. — Lík barna þeirra Tryggva Jóhannsson- ar og konu hans voru lögð 1 kisturnar með þeim. Kistu Garðars Þorsteins- soÚar alþingismanns, hófu úr kirkju menn úr Sjálfstæð isfél. Ak., en hinar kisturnar báru úr kirkju meðlimir í Karlakórnum Geysi. Voru kisturnar settar á 11 bíla og síðan haldið til skips. Fjöldi fólks hafði safnast saman við götur þær sem farið var um týri kommúnista; því að eng ir eiga meira á hættu í því en þeir. og kirkjan var troðfull út úr dyrum. Frá kirkju til skips lék Lúðrasveit Akureyrar sorgarlög undir stjórn Finn- boga Jónssonar og lék lúðra sveitin bar til kisturnar höfðu verið hafnar um borð í varðskipið Ægi, en þá söng karlakórinn Geysir sálminn „Hærra, minn guð, til þín“, öll erindin. Yfirmenn á Ægi stóðu heiðursvörð á þilfari skipsins. Um leið og kórinn söng síðasta versið leysti Framhald á 2. síðu. Brifish Council býður Gylfa Þ. Gíslasyni til Englands GYLFI Þ. GÍSLASON al- þingismaður er nýlega far- inn til Englands í boði Brit- ish Council, og mun hann dveljast þar fram í byrjun júlímánaðar. Mun hann aðal lega dveljast við brezka há- skóla og kynna sér brezka hagfræði. Gylfi mun vera fimmti ís- lendingurinn, sem British Council býður í slíka kynnis för til Bretlands. Hinir f.jór ir eru Sigurður Nordal próf., Páll ísólfsson, Björn Bjarna son og Helgi Elíasson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.