Alþýðublaðið - 08.06.1947, Síða 2
ALÞÝÐIJBLABÍÐ
Súnnudagur 8. júní 1947,
Dr. Richard Beck fimmtugur
PRÓFESSOR RICHARD
EECK kom hingað til íslands
1944 sem fulltrúi Vestur-
íslendinga á lýðveldishátíð-
inni. Hann fó.r allvíða um
landið, og var honum alls
staðar fagnað með kostum
og kynium — og ekki ein-
göngu vegna hess, að hann
var boðberi og fulltrúi ís-
lenzkra karla og kvenna
vestan hafs, heldur lika fyrir
það, hve framkoma hans var
með miklum glæsibrag, en
ium leið mótuð hjartanlegri
og látlausri alúð. Mönnum
þótti mikið koma til mælsku
hans og háttvísi, og þá voru
allir, sem til hans leituðu
fregna af ættingjum eða vin-
um vestra — eða æsktu þess,
að bann reyndi að hafa upp
á skyldmennum þeirra í
Vesturheimi, hrifnir af lip-
urð hans og velvild. Þess
vegna er óhætt að^ fullyrða,
að ærið margir af íslending-
(um hérna megin hafsins
hefðu viljað eiga þess kost að
þrýsta hönd hans á morgun,
en þá er hann fimmtugur.
Sumarið 1944, þegar pró-
fessor Beck var hér heima,
skrifaði ég um ævi hans og
störf langa grein í Alþýðu-
‘blaðið, og mun ég þess vegna
ekki í þetta sinn skýra svo
ýtarlega frá starfsferli hans
sem annars hefði verið á-
tsíæða til, heldur stikla á
steinum nokkurra höfuðat-
riða.
Prófessor Richard Beck er
fæddur á Svínaskálastekk í
Reyðarfirði 9. júní 1897. For-
eldrar hans voru Hans Beck,
óðalsbóndi, og kona hans Vig-
fússína Vigfússdóttir.
Richard Beck var snemma
frískur og ötull. Hann var
sjónæmur á allt, sem hann
átti að !læra, en einnig var
hann mjög duglegur og kapp-
samur við hvers konar vinnu,
sem hann annars unnið gat
fyrir æskusakir. Hugur hans
hneigðist snemma til sjósókn-
ar, því að þar gat kappið
notio sín með skjótum og
sýnilegum árangri. Strax á
unglingsárum sínum varð
Beck bátsformaður og reynd-
ist aflasæll og djarfur sjó-
sóknari. Og vel er mér kunn-
ugt um, að fyrir þrem árum
var hann vel fiskinn, þvý að
þegar hann var á leið til ísa-
fjarðar á varðbátnum Óðni
siorðan frá Hólmavík og að
ósk hans var numið staðar á
grunnmiðum milli Kögurs
og Straumness, þá dró hann
á örskammri stund 10 þorska,
og má segja, að frá fjalla-
tindum tií fiskimiða hafi
flest fand viljað vera honum
iað- skapi. Og svo var hann
hress og glaður yfir veiðinni,
að vart mundi- hann hafa
verið hýrari yfirlitum, þó að
hann hefði verið að færa
þjóð sinni sigur í kappræð-
um við ameríska ræðugarpa.
Dr. Richard Beck.
Richard Beck tók stúdents-
próf árið 1920, og skömmu
síðar fór hann til Vestur-
heims. Hann varð Master of
Arts frá Co'rnell-háskóla í
Ithaca í New York ríki árið
1924 og dr. phil. við sama
háskóla tveimur árum seinna.
Síðan varð hann fljótlega
prófessor í Norðurlandamál-
um og bókmenntum við rík-
isháskólann í Grand For-ks i
Norður-Dakota ríki, en í því
ríki býr allmargt íslendinga
— og þar er fjöldi Norð-
manna •— og einnig margir
Danir og Svíar. Árið 1925
kvæntist Richard Beck Bertu
Samson hjúkrunarkonu, dótt-
ur Jóns J. Samson, lögreglu-
þjóns í Winnipeg í Kanada.
Prófessor Beck er slikur
dugnaðar- og afkastamaður,
að það má heita rneð fullum
ólíkindum. Hann g.egnir all-
tímafreku kennslustarfi við
ríkisháskólann, og hann hef-
ur um langt skeið verið einn
af fremstu forvígismönnum
íslenzku þjóðræknishreyf-
ingarinnar í Vesturheimi,
Frá 1933—1940 var hann
varaforseti Þjóðræknisfélags-
ins, og frá 1940—1945 forseti
þess. Þá hefur hann verið
forseti og varaforseti Norð-
urlanda - fræðafélagsins i
Bandaríkjunum og er enn í
stjórn þess, og einnig forseti
Leifs Eiríkssonar félagsins
og formaður Þjóðræknisfé-
lags Norðmanna í Grand
Forks. Hann starfaði í ótal
nefndum á stríðsárunum til
styrktar Norðmönnum og
Dönum, var formaður mót-
tökunefndar, er norskt stór-
menni var í heimsóknum o. s.
frv. ■ Hann hefur flutt mörg
hundruð ræður og fyrirlestra
á íslenzku, norsku og ensku
um íslenzk og norsk menn-
ingar- og þ.jóðernismál og þá
ekki sízt um bókmenntir ís-
lendinga. Um lýðveldishátíð-
ina og stofnun lýðveldis á
íslandi hefur hann haldið 40
fyrirlestra, ýmist á íslenzku,
ensku eða norsku. Margt af
ræðum sínum hefur hann
flutt í útvarp í Kanada — og
þó einkum í Bandaríkjunum.
Hef ég séð fjölmörg ummæli
norskra og enskra blaða um
starfsemi hans, og er óhætt
að segja, að norsku blöðin
hossi honum enn meira en
nokkurn tíma þau islenzku,
og hafa þau þó ekki vanþakk-
að honum störf hans. Hann
hefur og hlotið auk íslenzkra
heiðursmerkja norsk og
dönsk — meðal annars Frels-
isorðu Danmerkur fyrir starf
semi í landsnefnd í Banda-
ríkjunum, sem vann til
styrkingar málstað Dana á
styrjaldarárunum. Hann er
og heiðursfélagi í ýmsum fé-
lögum í Kanada og U.S.A.
Prófessor Beck hefur skrifað
fjölmargar ritgerðir í tímarit
og blöð á íslenzku, norsku og'
ensku, og þá einkanlega um
íslenzkar bókmenntir, en einn-
ig um bókmenntir Norð-
manna, Dana og Svía, og gat
ég um margt af þessum rit-
gerðum hans í grein minni
1944, en af því, sem hann hef-
ur síðan skrifað, á ensku, vil
ég nefna æviágrip helztu ís-
lenzkra rithöfunda, birt í safn-
riti um heimsbókmenntir, er
út ikom í New York haustið
1946 (Encyclopedia of Litera-
ture) og ritgerð í The Ameri-
can Scandinavian Review um
íslenzkai’ bókmenntir á síðustu
árum. Þá vil ég' minna á ljóða-
safnið Icelandic Lyrics, sem út
kom 1930, með ljóðum á ís-
lenzku og ensku eftir 30 fs-
lenzk skáld, en prófessor Beck
safnaði ljóðunum, skrifaði for-
máia fyrir bókinni og smágrein
ar um höfundana og auk þessa
margar skýringar. Einnig sá
hann um útgáfu á Icelandic
Poems and Stories, er út komu
1943, og ritaði framan við ljóð
in og sögurnar yfirlitsgrein um
íslenzkar bókmenntir. Líka
skrifaði hann grein um hvern
höfund — en þeir eru 29. Þá
hefur komið út eftir Beck
ljóðasafn á ensku, og er hann
heiðursfélag'i í skáldafélagi
Mi^vesturlandsins1 í Bandaríkj-
unum. Á íslenzku hefur hann
birt eitt kvæðasafn, og í ráði
er, að bráðlega verði gefið út
hér á landi úrval ljóða hans,
gamalla og nýrra. Prófessor
Beck er ritstjóri Almanafcs O.
Thorgrímssonar og' Tímarits
þjóðræknisfélagsins. Hann hef-
ur séð um útgáfu á.ýmsum rit-
um á íslenzku, og má þar
nefna heildarútgáfuna af
kvæðum og kviðlingum Káins
og Ijóðum séra Jónasar A..Sig-
urðssonar, en þau komu út
1946.
Prófessor Richard Beck hef-
ur tekið afbrigðavel á móti Is-
lendingum, sem á ferð hafa
verið vestra, og víst mun f.yr-
irgreiðsla hans fyrir Karlakóri
Reykjavíkur í fyrra ekki hafa
verið nein ómynd. Er ekki of
mikið sagt, þó að svo sé að
orði komizt, að prófessor Beck
sé sífellt á verði um það, hvar
Norrænf sfúdenfamót
í Finnlandi
r
I
• í ÁGÚSTMÁNUÐI í sum-
ar verður haldið norrænt
stúdentamót í Finnlandi.
Hefst það í Abo þann 14. ág.,
en síðan verður haldið til
Helsingfors, og mun mótið
standa yfir í nokkra dag.
Ef einhverjir stúdentar,
ungir eða gamlir, kynnu að
eiga ferð um þessar slóð;r,
væri æskilegt, að þeir gætu
komið þar fram fyrir hönd ís
lenzkra stúdenta. Alls hefur
íslenzkum stúdentum vcrið
boðið að senda 20 fulltrúa,
en vegna erfiðlefika á far-
kosti og gjaldeyrisfátækt, er
ekki heppilegt að hvetja
menn til slíkrar farar án
annarra erindagjörða. '
Þeir, sem hafa í hyggju að
dveljast í Finnlandi eða ná-
grenni um þessar múndir,
eru beðnir að gera stúdenta
ráði aðvart í síma 5959 (kl.
5—7 alla virka daga nema
laugardaga), ef þeir vildu
vera viðstaddir á móti þessu.
Frá stúdentaráði.
Minningarspjold
Jóns Baldvinssonar forseta
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Alþýðuflokksins.
Skrifstofu Sjómannafélags
Rvíkur. Skrifst. V. K. F.
Framsókn, Alþýðubrauðg.,
Lvg. 61 og í verzl. Valdimars
Long, Hafnarfirði.
og hvernig hann megi verða
fóstui^örð sinni til gagns og
sóma — og íslenzkum mönn-
um að liði, og auk þess rækir
hann svo frændsemi við Norð-
menn, að þeir meta starf hans
sem væri hann einn af Noregs
beztu isonum vestan hafs.
Sem maður og félagi er pró-
fessor Beck hinn glaðasti og
skemmtilegasti, því að fjör
hans, líísþróttur og löngun til
að gera hverjum þeim vel, sem
nokkurs góðs er maklegur, er
allt með eindæmum.
Enn er h&nn ungur maður,
maður með óbilað starfsþrek
og lífsfjör, og er sízt að efa, að
hann finni verkefni, sem hann
fái úr leyst, þjóð sinni, vestan
hafs og austan, til þurftar og
heiðurs, og hrókur fagnaðar
og stoð góðra samtaka mun
hann verða hér eftir sem hing-
að til.
Vinir hans og gamlir félag-
ar hér heima, fjölmargt
manna, sem hitti hann hér sem
fulltrúa Vestur-íslendinga —
og raunar þjóðin öll biður hon-
um og fjölskyldu hans bless-
unar á fimmtugsafmælinu,
þakkar það, sena liðið er, og
óskar honum, að hann megi
verða allra karla elztur í Vest-
urvegi.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Minningarspjöld Barna-
spífalasjóðs Hringsins
eru afgreidd 1
Verzlun
Augustu SvendseUs
Aðalstræti 12 og í
Bókabúð Austurbæjar,
Laugavegi 34.
Kaupum tuskur
Baldursgötu 30.
GOTl
ÚR
ER GÓÐ EIGN
6d8I. 6íslaso<i
Úrsmiður, Laugaveg 63,
Baldvin Jónsson
hdl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Vesturg. 17. Sími 5545.
Munið Tivoli.
tii cló Cjrœoa landldt■ c=Lecjcjic
Tf •'i
ókerf t cJLand^rœoóLiiójoö.
SLifitofa J<(appardí$ 29