Alþýðublaðið - 11.06.1947, Side 8
Kosning alþingis-
manns fyrir Vesfur-
Skaffafelissýslu
ákveðín 13, júlí
KOSNING ALÞINGIS-
MANNS fyrir Vestur-Skafta
fellssýslu í stað Gísla Sveins
sonar, sem skipaður hefur
verið sendiherra íslands í
Oslo frá og með 1. júlí, hefur
nú verið ákveðin 13. júlí.
Framboðum skal hafa ver
ið skifað, eins og lög standa
til, fjórum vikum fyrir kjör
dag; en samkvæmt auglýs-
'ingu frá dómsmálaráðuneyt
inu um kosninguna, skulu
aðrir frestir styttir þannig,
að kjörskrár séu lagðar fram
einnig fjórum vikum fyrir
kjördag og þurfi ekki að
liggja frammi nema tvær vik
ur; skal og kærufrestur stytt
ur niður í tvær vikur.
34 flugfarþegar hér
fvo daga
I
34 FLUGFARÞEGAR og
flugmenn dvöldust hér fyrir
nokkrum dögum tæpa tvo
sólarhringa, vegna smávegis
bilunar á einni af Air France
Constellation flugvélunum.
Flugvélin lenti á Keflavíkur
ílugvellinum, og tók þá nokkr
ar klukkustundir að útvega
bíl frá Reykjavík eftir að út
séð varð, að flugvélin yrði að
vera hér um hríð.
Það var heldur erfitt að
gera tveggja sólahringa dvöl
þessarra Frakka ánægjulega
og reyndi fulltrúi franska
ílugfélagsins fyrst að koma
þeim burt frá eyðimörkinni
við Keflavíkurvöllinn. Þeim
var komið fyrir á Hótel
Winston, eina staðnum, sem
hafði gistirúm. Strax og til
Reykjavíkur kom leizt
Frökkunum betur á sig, og
þegar flugfélagið bauð þeim
í ferð til Þingvalla, breyttist
viðhorf þeirra til landsins
fljótlega, og áður en þeir
fóru sögðu þeir allir að þeir
hefðu ekki séð eftir þessum
tveim dögum á íslandi.
Hekluferð Alþýðu-
flokksfélagsins
ALÞÝÐUFLOKKSFÉ-
LAG REYKJAVÍKUR fer
skemmtiférð til Heklu
næstkomandi laugardag,
og verða farseðlar seldir
á skrifstofu félagsins á
fimmtudag og föstudag og
eru allir flokksmenn, sem
hafa áhuga á að taka þátt
í ferðinni hvattir til að
Uyggja sér miða á þeim
tíma.
Sumarið er komið
Vorið var heldur seint á ferð í Danmörku í ár, og var það
mönnum léttir eftir hinn harða vetur, er trén byrjuðu að
springa út og jörð að grænka. Nú eru hins vegar hitabylgjur
þar í landi, svó að skammt er öfganna á milli.
Farmiðar á öllum leiðum franska
flugfélagsins fyrir íslenzkar krónur
FJugvélar Frakka hætta að Jenda í
Reyk|avík, koma við í Keflavík
AIR FRANCE, franska flugfélagið, mun héðan í frá selja
farmiða með flugvélum sínum gegn greiðslum í íslenzkum
krónum. Að vísu getur félagið sem stendur ekki tekið farþega
milli íslands og Ameríku, en hvar sem er annars staðar á flug-
leiðum félagsins geta íslendingar ferðast fyrir íslenzka pen-
inga. Er þannig hægt að fara frá Prestwick eða Kaupmanna-
höfn allt til Buenös Aires eða Shanghai í Kína, ef miðarnir eru
aðeins keyptir í Reykjavík. Frá þessu skýrði fulltrúi franska
'lugfélagsins hér, Marc Noué, í viðtali við blaðamenn í gær.
Þá skrýði Noué einnig frá
því, að hinar miklu Constell
ation flugvélar Frakka
myndu 15. júní hætta að nota
Reykjavíkurflugvöllinn
vegna þess, að brautir hans
séu of stuttar, og framvegis
koma við í Keflavík. Hefur
þungi flugvélanna verið auk
inn nokkuð, og var það nóg
til að ekki reyndist hægt að
nota Reykjavíkurvöllinn Jeng
ur.
Constellation flugvélar Air
France fljúga stöðugt um ís
land á leiðinni milli París og
New York, en svo mikið af
farþegum er nú milli enda-
stöðvanna, að litlar líkur eru
á að hægt sé að taka farþega
hingað eða héðan. Þó eru lík
ur á það geti lagazt. Hefur
verið töluverð eftirspurn eft
ir ferðum frá og til Reykja-
víkur. Farmiðar milli París-
ar og Reykjavíkur kosta 845
kr., en- milli Prestwick og
Parísar 367 krónur.
Franska flugfélagið reynir
að gera farþegum sínum ferð
irnar sem þægilegastar og á
lengri leiðum eru franskar
máltíðir bornar fram og
franskt kampavín veitt með,
en Frakkarnir fullyrða, að
eitt glas af kampavíni lækni
flugveiki á augabragði.
Verkamenn á Seyðis-
firSi segja nei
VERK AMANNAFELAG-
IÐ FRAM á Seyðisfirði sam
þykkti á fundi fyrir helgina,
með 45 atkvæðum gegn 5, að
neita tilmælum frá hinni
kommúnistísku stjórn Al-
þýðusambandsins um samúð
Framkvæmdir hefjasí bráðlega
Barnaspííalasjóð Hringsins vantar enn
þá 3 þúsnnd styrktarmeðlimi
3000 NÝJA STYRKTARMEÐLIMI þarf barnaspítalasjóð-
ur Hringsins að fá til þess að takmarkinu með söfnun sjóðsins
sé náð, en það eru 3 milljónir 'kréna, áætiað kostnaðarverð
barnaspítalabyggingarinnar. Stjórn og fjáröflunarnefnd Hrings-
ins fara um þessar mundir á stúfana og ætla nú að 'hrinda
þessu merka máli síðasta áfangann, svo að innan skamrns verði
hægt -að hefja framkvæmdir við byggingu barnaspítal-ans.
Líklegast er talið, að barna* ‘
spítalinn verði viðbygging við
landsspítalann, en nú mun
skipulagsstjórj bæjarins vera
að ganga frá því máli. Nú þeg
ar eru í barnaspítalasjóði
Hringsins kr. 1 237 000 og lof
orð hafa verið fengin fyrir 100
000 kr. til viðbótar. Er þetta
talinn vera fram undir helm
ingur byggingarkostnaðar-
ins.
Hringurinn hefur ákveðið
að bæta ekki við skemmtan-
ir og happdrætti þau, sem hér
eru nú, heldur leita beint til
manna og reyna að fá styrkt
arfélaga. Var síðastliðið ár
stjjfnað félag, er nefnist
„Styrktarfélagar Hringsins“
og er félagsskapurinn í því
fólginn, að hver félagi legg- ln
ur til 100 kr. á ári í þrjú ár.
Má greiða öll árin fyrirfram
ef menn vilja það heldur.
í stjórn Hringsins eru nú
þessar konur: Ingibjörg C.
Þorlákssson, form., Guðrún
Geirsdóttir, Anna Briem, Jó
hanna Zöega og Margrét Ás-
geirsdóttir.
í fjáröflunarnefnd eru þess
ar konur: Soffía Haralds-
dóttir, form., Helga Björns-
dóttir, Una Brandsdóttir,
Kristjana Einarsdóttir, Sig-
ríður Magnússdóttir, Sigrún
Jónsdóttir, Eggrún Arnórs-
dóttir og Anna Blöndal.
Benedikt Waage
á Olympíuráðstefnu
í Stokkhólmi
BENEDIKT G. WAAGE,
forseti í. S. í., er nýlega far-
inn til Stokkhólms, þar sem
hann mun sitja alþjóða
olympiuráðstefnu fyrir hönd
íslendinga. Verða þar rædd
i ýmis mál varðandi olymp-
| isku leikana, svo og hvar
halda skuli leikana 1952.
Næsta ár verða leikarnir sem
kunnugt er haldnir í London
og er þegar ákveðið að ís-
lendingar taki þátt í þeim.
arverkfall eða aðra aðstoð
vegna Dagsbrúnarverkfalls-
ins.
Útför Garðars
Þorsteinssonar al-
þingismanns fór
fram í gær
ÚTFÖR GARÐARS ÞOR-
STEINSSONAR alþingis-
manns, sem fórst við flug
slysið í Héðinsfirði, fór fram
frá dómkirkjunni í Reykja-
vík í gær að viðstöddu fjöl
menni. Séra Bjarni Jónsson
flutti ræðu við athöfnina í
kirkjunni.
Kista hins látna var bor-
í kirkju af forsetum al-
þingis, en úr kirkju af Odd-
fellowum. Jarðað var í Foss-
vogskirkjugarði, og báru sam
stúdentar Garðars heitins
k;istuna síðasta spöliinn, að
gröfinni.
Fjölmenni við jarðar-
för Þorgerðar
Þorvarðsdóttur
JARÐARFÖR Þorgerðan
Þorvarðsdóttur húsmæðra-
kennara fór fram frá fríkirkj-
unni í gær að viðstöddu fjöl-
menni, en Þorgerður var með-
al farþega í flugvélinni TF-ISJ,
sem fórst í Héðinsfirði 29. f. m.
í kirkju þáru Ikistuna félag-
ar hinnar látnu úr Iþróttafé-
lagi kvenna og skólasystur úr
kvennaskóla-num, en úr kirkju
nánustu ættingjar. I kirkju-
garð báru 'kistuna samstarfs-
menn hinnar látnu við blaðið
Tímann og úr prentsmiðjunni
Ed:du. Sír.a Halldór Kolbeins,
sóknarprestur í Vestmanna-
eyjum, jarðsöng.
Leikið kl. 8 í kvöld
SIÐASTI LEIKUR Bret-
anna verður í kvöld, og hefst
hann klukkan 8, en ekki háif-
níu eins og venjulega. Munu
þeir leika gegn öðru úrvalsliði
Reykjavíkurfélaganna og að
öllum líkindum ste.rkara éu
hinu fyrra.
I