Alþýðublaðið - 28.06.1947, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 28.06.1947, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 28. júní 1947 æ nýja bio ææ gamla biö æ Viflihesturinn REYKUR (,,Smoky“) Frábærilega falleg og skemmtileg mynd, í eðli- legum litum. Aðalhlutverk: Fred MacMurry og Anne Baxter, ásamt undrahestinum Keykur. í myndinni spilar og syng ur frægur guitarleikari Burl Ives. Aukamynd: Nýtt frétta- blað. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11, f. h. Heimkoman (Till The End af Time). Tilkomumikil amerísk kvikmynd. Dorothy Mc Cuire Sýnd kl. 5, 7 og 9. Börn innan 14 ára fá ekki aðgang. Sýnd kl. 9. Ásfin er hverffynd (Blonde Fever) Fyndin og fjörug amerísk gamanmynd með Philp Dorn Mary Astor og nýju stjörnunum Gloria Grahame og Marshall Thompson Sýnd kl. 3,5 og 7. Sala hefst kl. 11 f. h. æ BÆJARBIÖ æ Hafnarfirði BADMAN’S TERRITORY Spennandi amerísk stór- mynd. Aðalhlutverk leika: Randolph Scott Ann Richards George „Gabby“ Hayes Sýnd kl. 7 og 9. Börn innan 16 ára fá ekki aðgang. Sími 9184. n TJARNARBIO H Keppinautar (Johnny Frenchman) Skemmtileg mynd úr lífi sjómanna á Bretagne og frönskum leikurum Francoise Rosay Tom Walls Patricia Roc Sýning kl. 5,7 og9. BÖR BÖRSSON, jr. Norsk gamanmynd Sýning kl. 3. ÍBR. ÍR. ÍSÍ. hefst á íþróttavel'linum á rnorgun kl. 4-e. h. Auk allra heztu frjáfeíþróttamanna iandsins keppa 5 heimsfrægir Svíar (3 Evrópurneistarar). Aðgöngumiðar séldir í dag í Ritfanga- og Bóka- verziun ísafoldar. Komið á Völlinn og sjáið merkasta íþróttaviðburð ársins. Síjórnm. IGina Kaus: | EG SLEPPI ÞÉR ALDREI [ <>e<><s><><><£<><<><><><><^<><><><><^^ e><><<&<<<<<<<<><<<<><<>^^ kvarða nokkurn hlut, höfðu þessar fimm manneskjur komið saman til að vernda hann, og þeim hafði strax geðjast vel hvert að öðru. Það var jafn óskýranlegt eins og ástin. Þau hugsuðu ekki um hvað 'hafði hindrað þau í að hittast fyrr, en Al- bert vissi ástæðuna. Hann vissi, að þau gátu setið hér saman bara af því að Melanía var dáin. Það var engin tilviljun. „Vinir mínir!“ sagði hann skyndi- lega og lyfti glasinu. Öll hættu að tala og horfðu næstum skelfd á hann. Hann gat varla annað en brosað sjálfur, af því að orðin höfðu orðið full hátíðlegan hljóm, án þess hann vildi. „Verið alveg ról'ag! Ég ætla ekki að halda neina ræðu. Ég er ekki með hita heldur, og ég er ekki orðinn vitlaus. Ég ætla bara að þakka ykkur. Ekki hverjum einstökum, því að þrátt fyrir það, áð þið hafið öll gert ým- islegt fyrir mig hvert fyrir sig, þá hafið þið öll í félagi gefið mér nokkuð með því að vera hér — nokbuð, sem þið skiljið ekki sjálf ■—“ „Hættu!“ sagði Stefán. „Af stað í rúmið!“ Það var kom- inn tími til. Albert fann, hvernig magnleysið gagntók hann, og þegar hann var orð- inn einn með Stefáni í her- bergi sínu, lagði hann þreytt höfuð sitt á öxl honum og grét. V. Daginn eftir rigndi. Albert varð feginn, þegar hann sá það úr rúmi sínu, því að Stefán hafði fyrirskipað klukkutíma gönguferð, og til þess hafði hann ekki minnstu löngun. Marta kom með inorgun- matinn og blaðið. „Ég gat ekki haldið í Önnu,“ sagði hún. „Hún þaut leiðar sinn- ar um áttaleytið til þess að lagfæra heima hjá sér sjálfri. Hún hélt að þú myndir kannske vilja flytja til hennar. En ég held ekki að það sé þess virði að þú gerir það strax —.“ „Nei, það hugsa ég ekki heldur,“ sagði Albert. „En eitthvað verð ég að gera, ég get ekki haldið áfram að vera gestur hér til eilífðar, og heim í íbúðina fer ég ekki.“ „Því er ég sammála þér, það myndi ekki neinn annar gera heldur. En af hverju ferðastu bara ekki burtu um tíma? Taktu Önnu með þér til Suðurlanda eina ferð, þið þurfið bæði að hressa ykkur. Og þá mun allt komast í lag á eftir.“ Hann svaraði ekki, og hún fór. Ferðast nreð Önnu —? Hann þurfti ekki einu sinni ferðaáætlun — hann vissi upp á hár að bezta lestin suður á bóginn fór kl. 10 á kveldin, hann hafði alla leið- ina til Taormina í höfðinu. í hverjum einasta smábæ, sem þau myndu koma við í, þekkti hann nafn á góðu og ódýru gistihúsi, -— það eina, sem hann þyrfti að segja var: ,,Á morgun ferðumst við til Suðurlanda, — Anna!“ Það var barið að dyrum, og Albert til mikillar undr- unar kom . Sax læknir inn. „Ég kem ekki sem læknir,“ sagði Sax undir eins. Albert svaraði, að hann væri alveg hailbrigður, honum fyndist hann bara vera svolítið máttfarinn ennþá. Sax kom að rúminu með útréttaf hendur. „Mín inni- legasta hluttekning,11 tónaði hann. Svo dró hann stólinn við gluggann nær, settist há- tíðléga og endurtók: „Þvílík slysni, þvílík slysni,“ um leið og hann hristi höfuðiö og starði ofan í gólfið milli þreþlegra fóta sinna. „Ég vona að þér hafið af- sakað mig,“ sagði Albret. „Ég var þarna búinn að á- kveða viðtal við yður.“ „Það var sorglegt, að þér skylduð ekki geta komið. Hver veit —? Nú, jæja, ég skal ekk íþyngja samvizku yðar frekara. Drekkið teið yð'ar; það verður alveg kalt.“ Albert leit á teið sitt. Hann hafði enga lyst á því. „Ég hafði hugsað mér að fara til yðar þennan dag líka. •— Ég ætlaði að biðja yður um meðal við hitanum, — en þá kom nokkuð fyrir, sem gerði mig svo æstan, að ég gleymdi öllu —.“ „Það voru mikil mistök,“ sagði Sax, „mjög mikil mis- tök. Þér hefðuð ekki átt að segja neitt, þegar þér voruð svona æstur. En ég ætla ekki að bæta neinu við þá byrði, sem þér hafið að bera,“ end- urtók hann. „Ég var veikur, ég - gat ekki hugsað skynsamlega,“ sagði Albert. „Þér hljótið að hafa sleppt yður alveg. Þér hafið brotið s]Degilinn í dagstofunni og mölbrotið stól — munið þér eftir því?“ „Já.“ „Hvers vegna kornuð þér ekki til mín á eftir að minnsta kosti?“ . Aibert hugsaði sig um. „Ég get ekki skýrt það,“ sagði hann. „Ég gleymdi því blátt áfram. Eg var svo veik- ur, og svo kom ég einhvers staðar við og drakk mig full- án. Síðan — kom ég hingað.“ „Ég beið eftir yður til kl. átta,“ sagði Sax. „Þá hringdi ég heim til yðar, en enginn svaraði-. Kona yðar var senni lega -— þegar sofnuð.“. „Og hvar var Fríða?“ spurði Albert. Þessi spurning hafði ásótt hann í marga daga. „Eigið þér við vinnukon- una? Hún var á pósthúsinu. Hún sá að þér hentust út úr húsinu um hálfsjö-leytið. Rétt á eftir kallaði kona vð- MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSINS: ÖRN ELDING LÆKNIRINN: Jæja. Þetta gekk vonum fremur. LÆKNIRINN: Hann verður auð- vitað að liggja um nokkurt skeið, en hann hefur skepnu- hreysti. CYNTHIA: Og skepna er hann, læknir góður. LÆKNIRINN: Segið mér eitt. Hvaða raunum hafa eyjaskeggj- ar orðið fyrir síðustu vikurnar? PÉTUR: Twitt, drengur minn. Ég ætla að gefa þér nokkur skot- hylki í byssuna, sem ég lánaði þér um daginn. Geri ráð fyrir að þú þurfir bráðlega að nota þau.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.