Alþýðublaðið - 12.07.1947, Blaðsíða 8
Fœreyingar og Danir semja
Nefnd Færeyinga, skipuð fulltrúum allra flokka í Færeyj-
um, dvalur nú í Kaupmannahöfn til þess að semja við nefnd
úr danska ríkisbinginu um framtíðarréttarstöðu eyjanna.
Hér á myndinni sjást tveir áhrifamenn í þessum samninga-
umleitunum, Mohr Dam, formaður Alþýðuflokksins í Fær-
eyjum (til vinstri) og Vilhelm Buhl, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Dana og einn þekktasti forustumaður danska Al-
þýðuflokksins.
634 nýjar íbúðir bæffusf við
í Reykjavík á síðasfa ári
--------♦------7-
Þar af 172 í kjöllurum og þakhæöum án
samþykkis byggingarnefndar.
--------*--------
ÁRBE) 1946 hafa bæzt við 634 íbúðir í Reykjavík, en
þar með eru taldar 172 íbúðir, sem vitað er um að gerðar
hafi verið í kjöllurum og þakhæðum húsa án samþykkis
byggingarnefndar bæjarins. Alls hefur verið byggt fyrir
um 113 milljónir króna á árinu og samtals nema bygging-
arnar 44921,54 fennetrum.
Pétur Benediktsson
sendiherra verður
fulitrúiíslandsáPar-
ísarfundinn.
RÍKISST J ÓRNIN hefur
fálið Pétri Bendiktssyni
sendiherra að mæta fyrir ís-
lánds hönd á Parísarráð-
stefnunni um viðreisn Ev-
rópu.
að hafa þann borg-
arstjóra, sem hún
vifl, fyrir Rússum
HERRÁÐ BANDA-
MANNA í BERLÍN hefur
orðið að synja kosningu jafn-
aðarmannsins Ernst Reuters
til borgarstjóra þar staðfest-
ingar vegna þess, að Rússar
neituðu að fallast á hann, og
samkvæmt áður gerðu sam-
komulagi hernámsríkjanna
getur livert þeirra um sig ó-
nýtt borgarstjórakjör í Ber-
lín með neitunarvaldi.
Ernst Reuter var kjörinn
til borgarstjóra í Berlín fyr-
ir hálfum mánuði og hafði
fylgi allra flokka í borgar-
stjórn nema kommúnista eða
sósíalista, eins og þeir kalla
sig þar nú.
Brezka útvarpið dró enga
dul á það í fyrradag, að
Reuter hefði verið Rússum
sérstakur þyrnir í augum af
því, að hann var ainu sinni,
endur fyrir löngu, í þýzka
kornmúnistaflokknum.
Mörg fundurdufl
gerð óvirk.
TÖLVERT hefur borið á
því, að tundurdufl rækju hér
á land að undanförnu, og
hafa Skipaútgerð ríkisins ný-
Iega borizt skýrslur um dufl
gerð óvirk á eftirgreindum
stöðum:
1. Skýrsla frá Evald Krist-
ensen, Neskaupstað.
1 dufl að Stuðlum í Norð-
firði og annað í Djúpavogi.
2. Skýrsla frá Skarphéðni
Gíslasyni, Hornafirði: 3 dufl
í Álftarfirði, 2 í Lónsvík, 1 í
Hornsfjöru, 3 á Borgarfjöru.
3. Skýrsla frá Jóni Gunn-
Iaugssyni, Siglufirði: 3 dufl
norðarlega á Skaga vestan
Skagafjarðar.
4. Skýrsla frá Helga Eiríks
syni, Foss, Vestur-Skaftafells
sýslu: 3 dufl á Meðallandi.
Öll framangreind dufl voru
brezk að undanskildu einu
þýzku á Skaga við Skaga-
fjörð.
Samkvæmt yfirliti yfir
byggingar í bænum, eftir
Sigurð Pétursson bygginga-
fulltrúa, hafa samtals verið
byggð 377 hús, þar af 201 í-
búðarhús, 7 verzlunar- og
skrifstofuhús, 2 sjúkrahús, 1
kvikmyndahús, 1 skóli, 1 í-
þróttahús, 1 kapella, 10 verk
smiðjur, 19 geymslur og því
um líkt og 134 bílskúrar.
Ennfremur hefur verið tölu-
verð aukning gerð á eldri
húsum.
í hinum nýju húsum, sem
byggð hafa Aerið á árinu, er
íbúðarfjöldinn 643 íbúðir
eins og áður segir og her-
bergjafjöldi þeirra auk eld-
húss, sem hér segir: 19 eins-
herbergis íbúðir, 187 tveggja
herbergja, 146 þriggja her-
bergja, 170 fjögurra her-
bergja, 67 fimm herbergja,
23 sex herbergja, 16 sjö her-
berja, 3 átta herbergja, 2
níu herbergja og 1 tíu her-
bergja.
Auk þessa eru einstök í-
búðarherbergi án 'eldhúss í
þaki 53, í kjallara 20 og á
hæðum 32, eða samtals 105.
Af húsum þeim, sem byggð
hafa verið eru timburhúsin
2576.22 fermetrar, en stein-
húsin 42345,32 fermetrar.
88 af nýju íbúðarhúsum
eru einlyft, 99 tvílyft, 12
þrílyft og 2 fjórlyft. Af verzl
unar og skrifstofuhúsunum
eru 4 þrílyft, 3 fjórlyft, og
tvö fimmlyft. Eitt sjúbrahús
er tvílyft og eitt þrílyft. Þá
er aukning á kvikmynda
húsi 5 hæðir og annað kvik-
myndahús 2 hæðir. Einn
skóli hefur verið byggður,
þrjár hæðir. Auk framan-
taldra húsa hefur verið
byggt eitt íþróttahús, ein
kapella og 13 verkstæði og
verksmiðjur, þar með talin
aukning á nokkrum.
Geymslu, gripahús og sumar
bústaðir eru 21 samtals og
bílskúrar 134 eins og áður
segir.
5 bátar gerðir út á
síld frá Eskfirði.
FIMM BÁTAR ver.ða gerð
ir út á sild frá Eskifirði í
sumar og eru þrír þeirra
þegar farnir, en tveir fara nú
um helgina.
Stúdeníar ræða endurheimí ísS.
handriía og minja í vörzlu Dana
------4------
Aðaífundur Stúdentasambandsins og
mót islenzkra stúdenta um aðra helgi.
STÚDENTASAMBANDIÐ, en í því eru öll akademisk
félög hér á landi, hefur ákveðið að halda mót og aðalfund í
Reykjavík, dagana 1S. — 21. julí. í lögum sambandsins er
gert ráð fyrir, að slík mót séu haldin þriðja hvert ár, og verð
ur þetta mót annað í röðinni. Núverandi formaður s^mbands
ins er Gísli Sveinsson sendiherra, en varaformaður Lúðvík
Guðmundsson, skólasíjóri. Aðalmál fundarins verður end-
urheimt íslenzkra handrita og þjóðminja í vörzlum danskra
safna.
Þatta mót verður um Jeið
aðalfundur sambandsin, eins
og áður er sagt, en aðalvið-
fangsefnið, sem sambandið
tekur til meðferðar á fund-
unum, verður handritamálið,
það er að segja; endurheimt
forna íslenzkra handrita og
þjóðminja, sem enn eru í
vörslum danskra safna.
Erfitt hefur verið að setja
mótinu starfskrá, svo að ekki
kæmi til árekstra við hátíða
höldin vegna afhjúpunar
Snorrastyttunnar í Reyk-
holti, en nú telur fram-
kvæmdanefnd mótsins að
það hafi tekist og verður til-
högun þess í aðalatriðum
þannig.
19. júlí.. Mótið sett kl. 2
síðd. af formanni stúdenta-
sambandsins, Gísla Sveins-
syni sendiherra. Lárus Páls-
son leikari flytur kvæði Ein-
ars Benediktssonar um
Snorra Sturluson; þá fara
fram hljómleikar, prófessor
Ólafur Lárusson, rektor há-
skólans flytur ræðu og reif-
ar handritamálið, Sigurður
Norðdal prófessor flytur á-
varp u msama efni og að
síðustu flytur Lúðvík Guð-
mundsson lokaorð. Ekki
munu neinar umræður um
málið fara fram á þessum
fundi.
HEIÐURSGESTIR MÓTS-
INS.
Þess skal getið, að Sigurð-
ur Guðmundsson skólameist-
ari og frú hans verða heiðurs
gestir mótsins í tilefni af
því, að skólameistarinn mun
láta af störfum á næsta ári
fyrir aldurs sakir. Verður
hann hylltur af stúdentum
við setningu mótsins og hon-
um fluttar þakkir fyrir hið
mikla og merka starf er hann
hefur unnið þau tuttugu ár,
sem liðin eru síðan mennta-
skólinn á Akureyri hlaut
réttindi til að brottskrá
studenta.
20. júlí fara þátttakendur
mótsins til Reykholts og
verða viðstaddir Snorrahá-
tíðina. Verður farið sjóleiðis
til Akraness og þaðan með
bifreiðum að Reykholti.
21. júlí, síðasta dag móts-
ins verður aðalfundur sam-
bandsins haldinn; þar munu
fara fram umræður og vænt-
anlega samþykkt tillögu um
handritamálið. Að fundinum
loknum fer fram skilnaðar-
hóf að Hótel Borg.
AÐALVERKEFNI MÓTS-
INS.
Megin verkefni mótsins, er
greint í þrem liðum: Að gefa
íslenzku þjóðinni yfirlit um
handritamálið og rök þau er
að því hníga, að vér íslend-
ingar heimtum hin fornu
handrit vor, svo og forna
þjóðminjagripi, sem enn eru
í vörzlum danskra safna. —•
Að sameina alla íslendinga
um rök þessi og sameiginlega
ályktun, sem á þeim sé byggð.
— Að leitast við að kynna
dönsku þjóðinni hin íslenzku
rök í fullu trausti þess að
þekking og réttur skilningur
á afstöðu vor íslendinga
muni reynast oss öruggusta
og skemmsta leiðin að settu
marki.
Framkvæmdanefnd móts-
ins skipa 7 menn: Lúðvík
Guðmundsson og er hann for
maður nefndarinnar, Einar
Ól. Sveinsson prófessor, full
trúi Háskóla íslands, Páll S.
Pálsson lögfræðingur, for-
maður Stúdentafélags Reykja
víkur og Sigurður Reynir
Pétursson cand. jur., frá sama
íélagi, frú Hildur Bernhöft
cand. theol., frá Félagi ís-
lenzkra kventúsdenta og frá
Stúdentaráði Reykjavíkur
þeir Geir Hallgrímsson stud.
jur. og Þorvarður Kristjóns-
son stud. jur.
Nína Sæmundsson
farin fil Khafnar.
NÍNA SÆMUNDSSON fór
héðan í gærmorgun loftleið-
is til Kaupmannahafnar, en
þaðan fer hún til London.
í fyrrakvöld gekkst Banda
lag íslenzkra listamanna fyr
ir kveðjuhófi fyrir Nínu í
Tjarnarcafé, og sátu það fjöT
margir listamenn og margir
vinir og kunningjar hennar.
Sýningin í Listamanna-
skálanum verður opin til
sunnúdagskvölds. Á fimmta
þúsund manns hefur nú sótt
sýninguna.