Alþýðublaðið - 13.07.1947, Blaðsíða 7
Sunnudagur 13. júlí 1947
ALÞVÐUBLAÐIÐ
Helgidagslæknir er Sigurður
Samúelsson, Skúlagötu 60. Sími
1192.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1618.
Næturakstur annast í nótt
Litla bílstöðin, sími 1380, á
mánudagsnótt Hreyfill, sími
6633.
Þjóðhátíðardagur Frakka.
Á mánudaginn, 14. júlí, þjóð
hátíðardag Frakka, taka frönsku
sendiherrahjónin, Henri Voillery
og frú, á móti gestum í sendi-
herrahústaðnum, Skálholtstíg
6 kl. 5—7 síðdegis.
Útvarpið á mánudag.
20.30 Erindi: Myndhöggvar-
inn Gustav Vigeland (Helgi
Hjörvar). 20.55 Létt lög (plöt-
ur). 21.00 Um daginn og veginn
(Jakob Jónsson prestur). 21.20
Egill Bjarnason og Jón Kjart-
ansson syngja „Glunta“. 21.40
Tónleikar: Lög leikin á ýms
hljóðfæri (plötur). 22.00 Frétt-
ir. 21.10 Búnaðarþættir: Land-
búnaðarsýningin (Bjarni Ás-
geirsson landbúnaðarráðherra).
Orðsending1
frá Slysavarnafélaginu. — Að
gefnu tilefni tilkynnist hér með,
að starfsemi sú; sem rekin er
nú í Örfirisey, er á engan hátt
viðkomandi Slysavarnafélagi
íslands.
Friðrik Einarsson
læknir
sinnir læknisstörfum mín-
um um tíma. Friðrik er til
viðtals í Túngötu 3 kl. 3.30
til 4.30, nema laugardaga
kl. 1 til 2.
KARL JÓNSSON læknir.
JJjdípá \
^andiL' Jt
eacfic
tií J cjrœÉa
ilerj^ í cJandcfrœJ laíját)
Jlrifitopa JJapparitífl 29
Þjóðarbúskapur eftir áællun
(Frh. af 3. síðu.)
erlendis styrjaldarárin,
skyldi að stríðinu loknu var-
ið til að kaupa ný og betri
framileiðslutæki. Ég held að
allir hafi verið sammála
um að fyrsta rétt í • þessari
nýsköpun ættu togararnir að
hafa. Um þessa hlið nýsköp-
unarinnar ’nefði því verið ó-
þarfi að fjölyrða svo mjög
sem gert hefur verið eða að
guma af framkvæmdunum.
Að vísu varðaði það miklu
að vel tækist til um þær.
Hitt skiptir meira máli að
koma sér saman um ein-
hverja áætlun um nýsköpun
ina, hvernig ætti að fram-
kvæma hana, i hvaða röð
framkvæmdirnar ættu að
vera, því ekki er hægt að
gera allt í einu, og hver'nig
ætti að reka framileiðslutæk-
in, á hvaða grundvelli. En
öll þessi hlið málsins hefur
farið í hreinustu handaskol-
um og er nú komin í algert
óefni. Nú er. að vísu búið að
skipa nefnd í þriðja sinni til
að gera tillögur um þessi
mál og núverandi stjórn ætl-
ar sér að láta gera áætlanir
um fjárfestinguna og stjórna
henni að verulegu leyti, en
hvort þessi síðasta nefnd nær
skjótaúi árangri en hinar,
eða hvort stjórnin lifir svo
lengi að fjárfestingarnefnd
hennar geti náð tökum á
vand'amálunum áður en allt
er komið í fullkomið öng-
þveiti, um það æt)la óg ekki
að spá.
Annað vandamál, sem ég
ætla heldur ekki að fjölyrða
um, er hvernig takast megi
að leiðrétta þann stórkost-
lega ójöfnuð í tekjum og
eignum, sem orðið hefur til
á stríðsárunum vegna þeirr-
ar stefnu, sem ríkjandi hef-
ur verið í dýrtiðar- og skatta
málum þjóðarinnar. La-usn
þess vandamáls er eitthvert
hið erfiðasta hlutverk, sem
bíðiír næstu framtíðar í
stjórnmálum okkar, en verð-
ur ekki til lengdar umflúið,
hversu mikla löngun sem
stjórnmálamenn okkar hafa
til að stinga höfðinu í sand-
inn.
Nýlega hafa fjórir hag-
fræðingar skilað ítarlegu á-
liti, þar sem þeir sýna glögg-
lega fram á í hvert öngþveiti
gjaldeyris- og fjárfestingar-
mál okkar eru að komast.
Sennilega er enn hægt að
bjarga miklu, þó að við séum
nú raunverulega búnir að
ráðstafa öllum þeim erlenda
gjaldeyri, sem safnaðist á
stríðsárunum. Enn þá eru af-
urðir okkar í mjög háu
verði og von um góða afurða
sölu þessa árs, að þvi er ég
bezt veit. En það má vel tak
ast, ef saga hinnar íslenzku
nýsköpunar á ekki að verða
eitthvert Ömurlegasta dæm-
ið um gönuskeið hins óbeizl-
aða, skipulagslausa, frjálsa
framtaks og hinnar skefja-
lausu gróða- og einstaklings-
hyggju. Við skulum vona, að
það takist að koma í veg fyr
ir það, vona að hinni litíu,
íslenzku þjóð takizt að nota
þá miklu möguleika, sem
lagðir hafa verið í hendur
henni af forsjóninni, til að
skapa litið fyrirmyndarþjóð
félag, þar sem frelsi, jöfnuð-
ur og bræðralag sitia í önd-
vegi. Því að ég hygg, að raun
verulega séu það fáar þjóð-
ir, sem eru þessar hugsjónir
jafn ríkt í blóðið feornar og
okkur íslendingum, sem
sjálfir höfum orðið að þola
margra alda kúgun og ó-
frelsi. Vonandi tekst okkur
að varðveita og ávaxta þenn
an arf frelsisanda og lýðræð-
islegs jafnaðar.
Jón Blöndal.
Kvenskátafélag
Reykjavíkur
25 ára.
KVENSKÁTAFÉLAG
REYKJAVÍKUR átti 25 ára
afmæli 7. júli. Það er elzta
og fjöilmennasta kvenskáta-
félag landsins.
Afmælis þess var minnzt
með því að farið var í úti-
legu austur að Úlfljótsvatni
um síðustu helgi. Við varð-
eldinn, sem haldinn var á
laugardagskvöldið voru auk
Reykjavíkurskátanna mættir
fulltrúar frá ýmsum skáta
félögum víðs vegar að af
landinu.
í tilefni af afmælinu
barst Kvenskátafél. Reykja-
víkur útskorinn lampi að
gjöf frá Bandalagi íslenzkra
skáta, en Skátafélag Reykja
-víkur gaf félaginu skála
sinn við Hafravatn.
- Skemmtanir dagsim -
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Næturgestirnir“
Ai-letty, Jules Berry, Marel
Dea, sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Ég elska þessa
borg“, John Haíl, Louise All-
bretton, Buster Ketaton. Sýnd
kl. 3, 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Konungsleik-
hús“ — Bud Flanagan, Chesn
ey Allan, sínd kl. 5, 7 og 9.
,,Reimleikar“ sýnd kl. 3.
BÆJARBÍÓ: ,,Á barmi glötunn
ar“, Mirjani Rousmanen,
Edwin Laine. sýnd kl. 7 og
9. „Ef heppni er með“ sýnd
kl. 3 og 8.
Söín og sýningar:
L ANDBÚN AÐ ARSÝNIN GIN:
Opin kl. 2—11.30 síðd.
ÞJOÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
NÁTTÚRUGRIP AS AFNIÐ:
Opið kl.' 13,30 — 15.
SAFN EINARS JÓNSSONAR:
Opið kl. 13,30—15,30.
LISTSÝNING Nínu Sæmunds-
son í Listamannaskálanum.
Opið kl. 10 árd 11,30 síðd.
Síðasti sýningardagur.
Skemmtistaðir:
SKEMMTISTAÐURINN Tivoli
opinn kl. 2—11.30.
Sviffimleikasýnintg kl. 4 og
kl. 10—11. síðd.
DÝR ASÝNIN GIN í Örfirisey
Opnað kl. 8 árd. Dansleikur
kl. 10 síðd.
Samkomuhúsin:
HOTEL BORG: Konsertmúsík
kl. 9—11.30 síðd.
STJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Dans-
leikur H S S kl. 10 síðd.
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Hljóm-
sveit kl. 9 — 11,30 síðd.
TJARNARCAFÉ: Hljóms. kl.
9—11,30 síðd.
G.T-HÚSIÐ: Gömlu og nýju
dansarnir kl. 10. síðd.
Ötvarpið:
20.20 Tónleikar: Horowitz leik
ur á píanó (plötur).
20.35 Erindi: „Læknarnir eru
listamenn, lífið í oss þeir
teygja —“ (Steingrímur
Matthíasson læknir).
21.00 Tónleikar: Norðurlanda-
söngmenn syngja (plöt-
ur).
21.15 „Heyrt og séð“ (Jónas
Árnason blaðamaður).
Jarðarför
Angantýs Ásgrímssonar,
prentara frá Seyðisfirði,
fer fram frá dómikirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
15. júl'í kl. 1.30 e. h.
Þeir, sem hafa hugsað sér að gefa blóm, eru beðh-
ir að afhenda þau á afgreiðslu Morgunblaðsins.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðmundur Atlason.
Jarðarför konu minnar og móður,
Margrétar Karelsdóttur,
fer fram frá heimili okkar, Fálkagötu 32, þriðjudag-
inn 15. júlí kl 3. Jarðað verður frá dómkirkjunni.
Ásmundur Ólafsson. Emil Ásmundsson.
Bygging UN í New
York verður 40
hæða skýjakijúfur
FREGN FRÁ NEW
YORK í gær hermir, að þar
sé nú byrjað að rífa niður
húsin á svæði því, sem ætlað
er fyrir framtíðaraðseturs-
stað bandalags hinna sam-
einuðu þjóða.
Verður bygging bandalags-
ins hin veglegasta, og nokk-
ur hluti hennar fjörutíu hæða
skýjaklúfur.
E.s. „Horsa”
fermir í Leith 21.—25. júlí.
E.s. „Lagarfoss”
fermir í Kaupmannahöfn og
Gautabong um 23.
H.f. Eimskipafélag
íslands.
E.S. REYKJANES
fertmiir í Antwerpen 17.—19.
þessa< mánaðar.
Einarsson, Zoega
& (o. HF.,
H afnarh ú s in u.
Símar 6697 og 7797.
HANNES A HORNINU.
(Frh. af 4. síðu.)
taka póstafgreiðsluna á íslandi
sér til fyrirmyndar. Væri mjög
æskilegt að fá nöfn þessara
,,merku“ manna, sem leyfa sér
að hæða íslendinga svo frek-
lega, og er ég undrandi að
nokkur maður, sem hefur nokk
uð með póstmál á íslandi að
gera, skuli láta hafa þetta eftir
sér, nema ef vera skyldi við
Hindúa eða Kínverja, eða álíka
ókunnugar og fjarlægar þjóðir.
(Sennilega þætti þeim ,,merku“
útlendingum það einnig til fyr-
irmyndar, að í bæ með 40—50
þúsund íbúum skuli aðeins vera
hægt að fá keypt frímerki á
einum stað.)“
„ÉG VIL rétt segja frá því,
að við kaupum öll íslenzk dag-
blöð og fáum þau send í pósti,
og sem dæmi um hina góðu
póstafgreiðslu, sem hinir
,,mierku“ útlendingar vilja taka
sér til fyrirmyndar, skal ég
láta þess getið, að við fengum í
gær, 7. júlí, Alþýðublaðið frá
20,—25. maí og Vísi frá sama
tíma, en hvortveggju blöðin
stimpluð í Reykjavík 24. maí,
en svo í dag, 8. júlí, fáum við
blöð, sem einnig eru frá 20.—
22. maí, en þau eru fyrst stimpl-
uð í Reykjavík 22. maí, en svo
aftur í Þórshöfn í Færeyjum 4.
júlí. Getur Póststofan gefið mér
skýringu á þessari „fyrsta
ílokks afgreiðslu“?“
„ÉG ÆTLA EKKI að hafa
mörg orð um aðdróttanir Póst-
stofunnar þess efnis, að ég muni
hafa þá minnimáttarkennd, að
finnast allt betra hjá Dönum.
Hver er það, sem notar útlend-
inga fyrir skjöld? Ég hef dvalið
hér í 10 ár og ég sé fyllilega
margt, sem er ábótavant hér —
en ég sé líka gallana heima. Svo
aðeins eitt. ísland setur met í
háum póstgjöldum. Fyrir pakka,
sem mér var sendur að heiman,
1 kg. (innihald 4 pk. kaffi)
hafði orðið að borga 8,05 kr.!“
Lesið
Alþýðublaðið.
Nýju og gömlu dansarnir í G.T.-húsinu
í kvöld kl. 10. —
® ASgöngumiðar seldir frá kl. 6.30 e. h.