Alþýðublaðið - 17.07.1947, Blaðsíða 4
4 /
ALÞÝBUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. iúlí 1947.
Ferðaskrifstofan og starf hennar. — Þeir,
sem panta far — og mæta svo ekki. — Óþol-
andi framkoma. — Óstundvísi umboðsmanna
skrifstofunnar.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Bitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson.
Áuglýsingar: Emilía Möiler.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Landbúnaðar-
sýnfngin
ÞAÐ MUN SANNMÆLI,
að landbúnaðarsýningin, sem
.iauk í fyrrakvöld eftir að
hafa staðið yfir í 18 daga, hafi
sétt mestan svip á höfuðstað-
inn undanfarna daga. Aðsókn
in að sýningunni varð svo
mi'kil, að hún fór langt fram
úr öllum vonum forráðamann
anna, en alls sóttu hana 60
300 manns, og er það lang
mesta aðsókn að nokkurri
sýningu, sem haldin hefur
verið hér á iandi til þessa.
Mikill mannfjöldi sótti sýn
ingu þessa víðs vegar utan af
landi, en þó mun meginhluti
sýningargesta að sjálfsögðu
hafa verið úr hópi höfuðstað-
arbúa. Ýmsir munu hafa séð
sýninguna oftar en einu
sinni, en ekki er ólíklegt, að
hartnær þriðjungur Iands-
manna hafi séð hana, og má
af því gleggst ráða, hversu
vel hún hefur tekizt.
*
Landbúnaðarsýningin hafði
verið ágætlega undirbúin,
enda var lengi og vel unnið
að því að koma henni upp.
Hún sýndi í stórum dráttum
þróun landbúnaðar á íslandi,
en sér í lagi gaf hún skýra
heiidarmynd af þessum öðr-
um stærsta atvinnuvegi þjóð
arinnar, eins og hann er í
dag, og leiddi í Ijós, hversu
framförunum á sviði hans
hefur fleygt fram á þessari
öld og þá einkum síðustu ára
tugunum. Sýningin bar þess
og vitni, að ný tímamót eru
að verða í sögu íslenzks land
búnaðar. Ný og stórvirk tæki
eru um þessar mundir tekin
í þjónustu hans, eins og ann
arra atvinnuvega lands-
manna, og þau munu áreiðan
lega hafa mikla þýðingu fyr
ir framtíð landbúnaðarins og
þar með framtíð þjóðarinnar
í heild, beinlínis og óbein-
línis.
Það ætti vissulega að gera
mikið að því í framtíðinni að
efna til sýninga hér á landi,
sem séu hliðstæðar landbún-
aðarsýningunni, en hún má
raunverulega heita fyrsta
sýningin, sem gefi heildar-
mynd af íslenzkum atvinnu-
vegi. Það átti vel við, að land
búnaðurinn, hinn forni höf-
uðatvinnuvegur þjóðarinnar,
yrði fyrstur fyrir valinu, því
að á sviði hans eru einmitt
nú að verða athyglisverð
þáttáskipti. Landbúnaðurinn
á líka rík ítök í hugum fólks-
FERÐASKRIFSTOFA RÍK-
ISINS vinnur mikið þjónytja-
starf. Hún er boðin og búin að
hjálpa fólki, veita þeim upp-
lýsingar og fyrirgreiðslu og
skipuleggja fprðir þess. Ferða-
skrifstofan hefur á þessu ein-
dæma rosasumri efnt til fjöl-
margra ferðalaga um nágrenni
Reykjavíkur og til fjarlægari
staða við allmikla þáttöku og
bezta orðstír. Hefði þátttakan
þó orðið margfalt meiri, ef
veður hefðu ekki verið svo vá-
lynd, eins og Hagalín segir, á
þessu sumri.
í SAMBANDI VIÐ þetta vil
ég gera tvennt að umtalsefni.
Það er ófært að Ferðaskrifstof-
an taki á móti pöntunum á far-
seðlum, án þess að þeir séu
borgaðir um leið. Það munu
hafa verið nokkur brögð að því,
að skrifstofan hafi skrifað upp
nöf-n manna, sem síðan hafa
ekki tekið þátt í ferðalögun-
um, en hún orðið að kaupa bif-
reiðarnar og borga fargjöldin,
eins og viðkomandi hefðu farið
með. Það á að vera ófrávíkjan-
leg regla, að allir, sem panta
far, borgi við pöntun — og síð-
an verði þeir að bera hallann,
ef þeir fara ekki, af hvaða á-
stæðu sem það er.
FERÐASKRIFSTOFAN get-
ur ekki tekið á sig gjald þeirra
sem ekki mæta. Það er eðlilegt
að bifreiðaeigendur vilji fá
fulla greiðslu fyrir bifreiðar sín
ar. Og það verður skrifstofan
að tryggja þeim. Þeir, sem
panta far og mæta svo ekki, eru
að baka skrifstofunni mikið
tjón, sem er alveg ástæðulaust
fyrir hana að þola. Gistihús, að
minnsta kosti sum, hafa tekið
upp þann sið að heimta greiðslu
fyrir vissan tíma, við pöntun.
Gripu þau til þessa úrræðis
vegna þess, að menn léku sér að
því að pánta, og mættu svo
ekki, ef nokkuð var að veðri.
Ferðaskrifstofan verður að
taka upp sama sið.
ins, því að meginhluti þjóð-
arinnar hefur haft af honum
meiri eða minni kynni. Nú
eru þessi viðhorf hins vegar
óðum að breytast, þar eð
borgarlífsins gætir æ meira
eftir því, sem fram líða stund
ir. En mest er um það vert,
að af sýningu sem þessari má
draga ótrúlega mikla lær-
dóma og færa þjóðinni á ó-
yggjandi hátt heim sanninn
um, hvar hún er á vegi stödd
í þessum efnum.
*
m
Nú kemur röðin að öðr-
um atvinnuvegum þjóðarinn
ar, og þá fyrst og fremst að-
alatvinnuvegi hennar í dag,
sjávarútveginum. Þá væri og
æskilegt, að áður en langt
um liði yrðu haldnar hér á
landi heildarsýningar af iðn
EN FERÐASKRIFSTOFAN
verður og að standa við sínar
skuldbindingar í einu og öllu.
Hún vinnur fyrir almertning.
Þegar hún tilkynnir í útvarp-
inu, að fyrir hennar atbeina
verði látin sápa í Geysi á viss-
um tíma, er hún ekki eingöngu
að tilkynna þetta öðrum, sem-
hafa hug á að fara austur til
að sjá gos. En á það vill bresta
að við þetta sé staðið.
SKRIFSTOFAN hafði til-
kynnt um síðustu helgi að kl,
13 á súnnudag yrði sápa sett í
hverinn. Margar bifreiðar voru
komnar austur klukkan 1. En
engin sápa var sett í Geysi fyrr
en klukkan 3. Ástæðan var sú
að ferðafólk sem fór austur á
vegum Ferðaskrifstofunnar tók
upp á því, að fara fyrst að Gull
forssi, og sú ferð tók svo lang-
an tíma að ekki var komið að
Geysi fyrr en um kl. 2,30. Og
síðan dróst það í hálftíma að
koma sápunni í Geysi.
ÞETTA HAFÐI ÞAÐ í för
með sér, að erlendir menn, sem
þarna komu til þess eins að sjá
gos til að skrifa um það, og
segja frá því í erlendum útvarps
stöðvum — og einnig til að taka
grosdrunur upp á plötu, fóru
án þess að sjá þau undur. Vel
má vera að þeir hafi ekki misst
af neinu, því að hafi orð-
ið úr gosi, um það veit ég ekki,
en óstundvísi umboðsmanns
Ferðaskrifstofunnar var sú
sama fyrir því.
ÞAÐ ER MIKIL NAUÐSYN,
að í öllum ferðum Ferðaskrif-
stofunnar sé gætt hinar ítrustu
reglusemi. Mér er líka kunn-
uft um það, að forstjóri henn-
ar ætlast til þess. Þessa er að-
eins getið hér til varnaðar í
framtíðinni.
Veitingasölum
Sjálfstæðishússins verður lok
að til laugardagsins 19. þ. m.
vegna hreingerninga og málun-
aði okkar og verzlun, þróun
þeirra mála frá upphafi' og
viðhorfum þeirra í dag.
Fleiri atvinnugreinar koma
svo að sjálfsögðu einnig til
athugunar í þessu sambandi.
Landbúnaðarsýdingin hefur
gefið fordæmi, sem er hollt
til eftirbreytni', og þjóðin hef
ur sýnt og sannað, að hún
kann vel að meta starfsemi
sem þessa og er óspör á
fulltingi sitt.
íslendingar hafa löngum
haft orð á sér fyrir að vera
söguþjóð. Þelm er því ekki
hvað sízt skylt að hyggja að
sögu atvinnuvega sinna og
halda henni á lofti. Það gera
þeir kannski hvað bezt með
sýningum sem þessum, er
jafnframt hvetja til nýrra
dáða.
ar.
milli kl.
■hinix ft
m'enn,
sxnar í
leyfir.
Aðgangseyrir sá
áður, 2 kr. fyrir
orðma og 1 kr.
Nýtt, heitt slátur
í dag.
Tiamarlundur
Hinar margeftirspurðu farangursgrindur á bif-
reiðaþök eru nú komnar aftur. — Mjög tak-
markaðar birgðir.
Bífasmiðjan h.f.
Skúlatún 4. . . Sími 1097.
Renaulf bifreiðarnar.
Fimmtudaginn 17. júlí verða afhentar bifreið
arnar, sem bera afgreiðslunúmer 101—115, svo
og þeir sendiferðabílar, sem enn eru óafhentir,
þótt ekki beri þeir þessi afgreiðslunúmer. Af-
hending fer fram kl. 1—4 e. h. þar sem bifreið-
arnar standa á afgreiðslu Eimskip í Haga.
Kaupendur verða að hafa með sér skrásetn-
ingarnúmer bifreiðarinnar.
Viðskiptamálaráðuneytið.
Úfbreiðið ALÞÝÐUBLAÐfÐ