Alþýðublaðið - 27.08.1947, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.08.1947, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. ágúst 1947. Umsóknum um skóla- vist í kvöldskóla K. F. U. M. veitt móttaka 1.-15. sepf. -jr KVÖLDSKÓLI K.F.U.M. tekur eins og að undanförnu til starfa 1. október og starf- ar vetrarlangt. Skólinn er bæði fyrir pilta og stúlkur, er lokið hafa fullnaðarprófi í barnaskóla, og mun hann, eins og áður, verða starfrækt ur í byrjunardeildum og fram haldsdeild. Einskis inntöku- prófs er krafizt, en fyrir skóla vist í framhaldsdeild ganga þeir nemendur, sem verið hafa áður í byrjunardeildum skólans- Námsgreinar eru: Kristin fræði, íslenzka, danska, enska, reikningur, bókfærsla, og auk þess er námsmeyjum skólans kennd handavinna. Skólinn starfar bæði síðdegis og að kvöldinu. Síðdegis eru 'tvær byrjendadeildir sinn daginn hvor, en að kvöldlagi byrjendadeild fyrir drengi og framhaldsdeildin, einnig sinn daginn hvor. Þessi skóli er miðaður við þá nemendur, sem vilja leita sér holtrar og hagnýtrar fræðslu samhliða starfi sínu. Hann hefur á undanförnum áratugum verið mjög fjöl- sóttur, ekki einungis af nem- endum úr. Reykjavík, heldur og úr öllum byggðarlögum landsins. Skólinn hefur eins og áður ágætum kennurum á að skipa. Umsóknum um skólavist verSur véitt mót- taka 1.—15- september í verzluninni Vísi (nýlendu- vörubúðinni) á Laugavegi 1, og er fólki eindregið ráðlagt að tryggja sér skólavist sem fyrst, því að vitað er, að að- sókn verður mikil og verður vafalaust ekki unnt að veita öllum þeim viðtöku, er um skóiann sækja, því að hús- næði hans er mjög takmark- að. Verða nemendur teknir í þeirri röð, sem umsóknir þeirra koma, og verða þeir þá óhjákvæmilega afgangs, sem síðastir sækja. Fólk er vinsamlega beðið að athuga, að Kvöldskóli K. F.U.M. verður settur miðviku daginn 1. október kl. 8Vz síð- degis stundvíslega í húsi K. F.U.M. við Amtmannsstíg. Eiga allir umsækjendur um skólavist að koma til skóla- setningarinnar eða aðstand- endur þeirra, svo og þeir nem endur, sem skrifaðir kunna að hafa verið á biðlista vegna mikillar aðsóknar. Verða Nokktar síórbyggingar og mörg íbúöarhús í smiðum á Akureyri -------♦------- MeSal annars fjórðungssíúkrahús, heimavist menntaskólans og frímúrararús VERIÐ. ER að reisa nokkrar stórbyggingar á Akureyri um þessar mundir. Meðal þeirra er fjórðungssjukrahúsið, heimavistarhús menntaskólans og frímúrarahús. Enn fremur eru í smíðum viðbótarbygging við barnaskólann og KEA hef- ur í byggingum stórt verzlmiarhús. Þá eru og í byggingu mörg íbúðarhús, bæði einstaklinga og félaga. --------------------« Ökeypis skólavist í Finnlandi og Svíþjóð FYRIR SKÖMMU barst Norræna félaginu hér bréf frá Norræna félaginu í Finnlandi þar sem tilkynnt er að finnska ríkið hafi veitt fé til þess að kosta 12 nem- endur frá hinum Norður- löndunum i lýðskóla í vetur. Verður þessum skólapláss- um skipt á milli Norður- landanna fjögurra. Þeir ís- lendingar, sem vildu sækja um þessa skólavist þurfa að senda umsóknir sínar til rit- ara Norrænafélagsins hér Guðl. Rósinkranz fyrir 5. sept. Umsóknunum þarf að fylgja afrit af prófskírtein- um frá héraðsskóla ásamt meðmælum skólastjóra. Eins o‘g áður hefur verið skýrt frá hefur 100 ungu fólki frá öllum Norðurlönd- unum verið boðin ókeypis skólavist við lýðskóla í Svi- þjóð næsta vetur og er um- soknarfiVsturinn útrunninn 1. september. Umsóknir send ist til ritara Norrænafélags- ins. 7 nemendur geta fengið þessa ókeypis skólavist frá íslandi. þeir síðarnefndu þá teknir í skólann, eftir því sem rúm Leyfir, ef enginn mætir við skólasetninguna fyrir hönd þeirra nemenda, sem lofað hafði verið inntöku. VALUR! Meistara- flokkur, 1. og 2. fl. Æfing í kvöld kl. 9 á íþróttavellinum- Lesið AlbýðubíaðiS Fjórðungssjúkrahúsið er nú þegar risið af grunni, og verður það hið myndarleg asta hús. Frímúrarahúsið er nær fullgert, en önnur hús eru mismunandi langt á veg komin. Þá hefur Samvinnubygg- ingarfélagið Garður reist tvö I íbúðarhús við Grænugötu, j og eru þar átta íbúð'ir Enn fremur er verið að reisa' nokkur sænsk hús á vegum félagsins. Loks hefur Byggingarfélag Akureyrar í smíðum yfir 20 íbúðarhús, og eru sum þeirra fullgerð, en önnur eru í smíðum. Var byrjað á bygg- ingum fyrstu húsanna hjá félaginu í fyrravor. Enn fremur hafa nokkrir einstak- lingar samvinnu um íbúðar- húsabyggingar, og vinna mikið að smíði þeirra sjálfir. Gyðingaskipin nú stödd í Gibraltar BREZKU flutningaskipin, sem eru á leið til Hamborg- ar með Gyðingana 4500. komu til Gibraltar í gær- morgun til þess að taka kol. Herskip fylgdu þeim inn á höfnina og ýmsar varúðarráð stafanir voru gerðar til þess Olympíuleikarnir í Helsingfors sumarið 1952. Vetrarleikir sama ár í Osló BENEDIKT G. WAAGE, forseti ÍSÍ, skýrði blaða- mönnum frá því í gær, að á fundi alþjóða olimpíunefnd- arinnar, sem haldinn var í Stokkhólmi í júní og hann sat fyrir íslands hönd, hefði verið ákveðið, að sumar- olympíuleikarnir 1952 skyldu háðir í Helsingfors ] á Finnlandi, en vetrarleik- arnir sama ár í Osló í Nor- egi. Sjö borgir hafa sótt um að halda sumarleikana, og voru 5 þeirra í Bandaríkj- unum, en af borgum í Ev- rópu sóttu Amsterdam og Helsingfors um að halda þá. Þegar ákveðið hafði verið, að leikirnir skyldu háðir í Helsingfors, voru fánar dregnir að hún um ger vallt Finnland í fagnaðar- skyni. Olympiuleikarnir 1940 áttu að fara fram í Helsingfors, en féllu niður vegna styrjaldarinnar. Tvær þjóðir auk Norð- manna sóttu um að hafa vetrarleikana, Bandaríkja- menn og ítalir. Sjórekið lík finnst við Hornafjörð NÝLEGA fannst sjórekið lík á fjörum við Hornafjörð og reyndist það vera lík Rögnvaldar Ákasonar, eins þeirra, er fórust með Borg- ey á síðasta vetri. að koma í veg fynr ,að nokkr ir Gyðinganna gætu sloppið í land- sakadómaraembættisins í Reykjavík verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar Sigurðar Gíslasonar, lögregluþjóns. Sakadómari. Kaupum tuskur Baldursgötu 30. Munið Tivoli. NÝR LUNDl NÝTT HREFNUKJÖT FISKBÚÐIN Hverfisg. 123. Sími 1456. Hafliði Baldvinsson. Úrvals KARTÖFLUR úr sandgörðum í 25. kg. pokum. FISKBÚÐIN Hverfisg. 123. Sími 1456. Hafliði Baldvinsson. Eldhúsvaskar Nýkomið. Eldhúsvaskar 3 gerðir og handlaugar. Kaupfélag Hafnfirðinga Kápuefni Kápuefni, Hollensk 4 litir. Kaupfélag Hafnfirðinga

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.