Alþýðublaðið - 27.08.1947, Blaðsíða 8
HljóSfæraverzIunm
VERZLUNIN
"1
Miðvikudagur 27- ágúst 1947.
Laugavegi 1. Sími 47444.
MikiS fækni í fluningi úfvarps- oi
sjónvai
Bretar fyrstlr til að flytja Njáio f lelk-
ritsformi i útvarp
ÆVAR KVARAIN Icikari er fyrir skömmu kominn heim
úr t’eeggja ára dvöl í Englandi. Ilefur hann dvalið í London
mestan hluta þess tíma og stuðað nám í sögn og leiklist. Hann
var tvisvar sinnum á síðastiiðnum veíri kjörinn úr nemanda
hópi leiklistarskólans, sem hann síundaði ná'in við, til þess
að leika í sjónvarp frá Alexandra Palace í London. Hann hef |
ur einkum lagt stund á leikstjórn og kennsluaðferðir í leik- i
list, en einnig kynnt sér leiksljórn útvarpsleikriía og alla j
tækni, sem að því lýtur.
Ævar R. Kvaran
Liðstyrkur, seni
um munar - ■
— Og hvað hyggst þú nú
Tíðindamaður Alþýðublaðs
ins hefur hitt Ævar að máli
og spurt hann fregria úr dvöl
inni.
Njálssega í brezka
útvarpinu
„Um ýmislegt mætti ræða.
Ég veit, til dæmis ekki, hvort
naörgum hérna er kunnugt,
að Njáls saga var ekki alls
fyrir löngu flutt í brezka út-
varpið í leikritsformi!i.
— Og hvernig tókst sá
flutningur, að þínum dómi?
„Ég beið með nokkurri ó-
þreyju eftir að heyra hvern-
ig tækist, eftir að ég hafði
fengið vitneskju um að þetta
stæði til. Vitanlega duldist
mér ekki, að ég mundi verða
þar dómharðari en Bretar,
þar eð ég var alinn upp í
aðdáun og virðingu fyrir við
fangsefninu, sem ekki var
sanngjarnt að krefjast af
þeim. En ég varð ekki fyrir
vonbrigðum. Leikritið og
flutningur þess var með af-
brigðum áhrifamikið. Fannst
mér einkum athyglisvert,
hve höfundur leikritsins
sýndi næman skilning á ör-
lagaþunga sögunnar og ýms-
um þeim þáttum öðrum, sem
einkenna fornsögur okkar-
Örlagatrúin og örlagaboðun-
in birtist í öllu sínu veldi,
þegar maður heyrði syngja í
atgeirnum fyrir vígum. Há-
marki náðu þessi áhrif í
brennuatriðunum. Mjög
hafði verið til flutningsins
vandað; t. d. hafði verið sam
ið sérstakt tónverk, sem leik
ritinu fylgdi og féll vel við
efnið. Tvö kvöld tók að flytja
allt verkið, og svo mikinn á-
huga fyrir íslendingasögun-
um vakti flutningur þess, að
skömmu síðar var Grettis
saga tekin til meðferðar á
sama hátt“.
— Heldur þú að íslenzkir
hlustendur yrðu ánægðir
með slíka túlkun fornsagna,
t. d- Njálu, í íslenzku út-
varpi?
„Það tel ég ótvírætt, ef
jafn vel tækist. En þess ber
að gæta, að íslenzka útvarpið
skortir enn mörg og margvís-
leg tæki, til þess að slíkt
gæti orðið. Þau tæki, sem
leiklistardeild brezka út-
varpsins, hefur yfir að ráða
til hljómframleiðslu eru
geysilega fullkomin".
Ssíenzka svipan i
sjóiivarpinu
— Þú kynntir þér sérstak-
lega flutningt útvarpsleik-
rita?
,,Já. Ég hafði aðgang að
leikæfingum brezka útvarps
ins, auk þess sem ég stundaði
fullkomið leiklistarnám við
Royal Academy Of Dramátic
Art, en ég tók inntökupróf í
þann skóla haustið 1946- Þar
er kennt allt, sem að leik.'
leikstjórn og leikennslu lýt-
ur. Mér hlotnaðist sú viður-
kenning að vera valinn til
þess að leika í sjónvarp“.
— Hvernig féll þér það?
— Ég álít það einhverja þá
mestu þrekraun, sem leikara
er hægt að bjóða. Það er ekki
nóg, að fara þar algerlega á
mis við alla uppörvun, sem
beint samband við áhorfend-
ur veitir leikendum á venju-
legu sviði, heldur verður
maður að leika í skini ótal
sterkra ljóskastara, og er hit-
inn og birtan hrein og bein
kvöl. Annars eru menn, sem
flytja viðtöl og annað þess
háttar í sjónvarp, sömu ó-
þægindunum ofurseldir. Þeir
verða t. d. að vera málaðir,
eins og til leiks- Annars verð
ur mynd þeirra ekki skýr á
gjónfleti móttökutækisins.
Ég get þess til gamans, að
annað kvöld, sem ég lék í
sjónvarpið, flutti það einnig
ferðaminningar aldraðs Eng-
lendings, og sagði karl frá
ferð um ísland, er hann fór
fyrir 30 árum síðan. í frá-
sögn sinni hældi hann íslenzk
um bændum fyrir hagleik og
máli sínu til sönnunar brá
hann upp silfurbúinni, ís-
lenzkri svipu, er honum
hafði verið gefin hér á landi“.
iyrir?
,,Ég hef ákveðið að gera j
leiklistina að líísstarfi mínu, j
leikstjórn og leiklistar-!
kennslu eftir því, sem til
fellur.“
Með Ævari Kvaran hefur
íslenzkri leiklist borizt mik-
ilsverður liðsstyrkur, er gagn
má að verða. Hann er mjög
fjölhæfur á því sviði, bæði að
hæíileikum og menntun. Má
geta þess, að hann er söngv-
ari ágætur og lagði stund á
söngnám um eins árs skeið
við Royal Academy of Music
undir handleiðslu þjóð-
kunnra hljómlistarmanna.
Stúlka slasast í
bifreiðaárekstri.
í GÆRDAG varð bifr.éiða-
árekstur á móti Njarðargötu
og Sóleyjargötu. Annarri bif-
reiðinni, sem var Jeppi ók
stúlka, Asbjörg Þorkellsdóttir
að nafrii, og slas_aðist hún það
mikið, að flytja varð hana í
sjúkrahús.
Aðra sakaði ekki í þessúfn
árekstri, en jeppabfireiðin,
sem stúikan ók, skemmdist
rííjög mikið.
Rannsóknarlögreglunni hafði
í gærkvöldi ekki borizt skýrsla
um slysið, og er því ekki nán-
ar vitað um tildrög þess.
Þakið fýkur af bíla-
braufinni í Tivoii
í FYRRINÓTT fauk þakið
af bílabrautinni í Tívolí og
eyðilagðist algerlega.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk í Tívolí í
gær, verður reynt að fá nýtt
þak á brautina eins fljótt og
auðið er, en á meðan verður
bílabrautin óstarfhæf, að
minnsta kosti þegar vont er
veður.
Engar frekari skemmdir
urðu í Tívolí í rokinu í fyrri-
nótt.
Finnbjörn og Haukur keppa a Svía
mótinu í frjálsum íþróttum
Mótið verður í Stokkhólmi og keppa
6 bezty íþróttanrie'nn Norðuriandá
í hverri grein
---------#---------
SVÍAMÓTIÐ í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM fer fram í
Stokkhólmi 6.—8. september, og er fyrirkomulag þess það,
að þrír beztu frjálsíþróítameixn Svía í hverri grein keppa við
þrjá bezfu afreksmenn hinna NorðurlandaþjóSanna, Dana.
Norðmanna, Finna og Islendinga. Voru keppinautar Svíanna
valdir af sérstakri þriggja mamia nefn nú á sunnudaginn, og
voru af hálfu íslendinga valdir tveir keppendur til mótsins,
IR-ingarnir Finnbjörn Þorvaldsson og Haukur Clausen.
F orset-i ÍSÍ, Benedikt
Waage, skýrði blaðamönn-
um frá þessu í gær. Menn-
irnir, sem völdu keppend-
urna, voru formenn frjáls-
jiþróttaSambanda Danmerk-
ur, Noregs og Finnlands, og
að aukí var Benedjkt G.
Waage boðið að sækja fund
nefndarinnar, en hann gat
ekki komið því við vegna
gjaldeyrisvandræða.
Enn er ekki vitað með
vissu í hvaða greinum þeir
Finnbjörn og Haukur Jú?ppa
á Svíamótinu, en búizt er við
að Finnbjörn keppi í 100
metra hlaupi, langstökki og
4x100 metra boðhlaupi, en
Haukur í 200 metra hlaupi
Afrek meistaramótanna í ár
voru lögð til grundvallar við
val á keppendunum, en á
meistaramótinu hér hljóp
Finnbjörn 100 metrana í
undanrás á 10,7 sek., sem
er nýtt íslandsmet, en Hauk-
ur hljóp 200 metrana á 22,1
sek.
Finnbjörn er 23 ára gam-
all og skrifstofumaður að at-
vinnu. Hann hefur undan-
farin ár verið snjallasti sprett
hlaupari okkar íslendinga
og komst í úrslit í 100 metra
hlaupi á Evrópumeistara-
mótinu í Osló í fyrrasumar.
Finnbjörn Þorvaldsson setti
í fyrrasumar 10 íslandsmet
og var fyrir þau afrek sæmd
ur gullmerki ÍSÍ, en á und-
an honum hefur aðeins einn
íslenzkur íþróttamaður ver-
ið sæmdur því, sundkapp-
inn Jónas Halldórsson.
Beztu afrek Finnbjörns eru
6,9 sek. í 60 metra hlaupi,
10,7 sek. í 100 metra hlaupi,
22,1 sek, í 200 metra hlaupi,
7,14 metrar í langstökki og
2958 stig í fimmtarþraut.
«---------------:-------
Erfið stjórnarmyndun
á Grikkiandi.
Tsaldsris orSioe
óþolinnióðyr
TSALDARIS hafði enn
enn ekki tekizt í gærkveldi
að mynda nýja stjórn á
Grikklandi.
Fóru í gærdag fram nýjar
tilraunir til þess að mynda
samstjórn konungssinna og
frjálslynda flokksins, og átti
sendiherra Bandaríkjanna í
Aþenu, Lincoln McVeagh, tal
bæði við Tsaldaris og Sofou-
lis í því skyni.
Tsaldaris er sagður hafa
'lýst yfir því að þessum við-
■ræðum loknum, að hann
myndi beita sínum aðferðum
við stjórnarmyndunina.
Egiptarnir tveir valda
aftur fundarspjöllum í
öryggsráðinu
UMRÆÐUR í öryggisráð-
inu um deilumál Egipta og
Breta voru truflaðar á ný í
gær af tveimur áheyrendum,
sem byrjuðu að kalla fram í
fyrir ræðumönnunum og
hrópa: „Niður með imperial-
ismann!“ Varð að fjarlægja
mennina með valdi.
Það kom í ljós, að þetta
voru Egiptar og sömu mienn
irnir, sem síðastliðinn föstu-
dag höfðu sams konar fundar
spjöll í frammi til þess að
trufla umræður öryggisráðs-
ins um deilu Egipta og Breta.
Haukur Claus-en er 18 ára
gamall og stundar nám við
Mentaskólann í Reykjavík,
Beztu afrek hans eru 10,9
sek, í 100 metra hlaupi, 22,1
sek. í 200 metra hlaupi, 34,7
sek. í 300 metra hlaupi 50,4
sek. í 400 metra hlaupi og
59,9 sek. í 400 metra grindar
hlaupi,