Alþýðublaðið - 05.10.1947, Qupperneq 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
♦----------------------r
: Næturlæknir er Alfred Gísla-
son, Víðimel 61. Sími 3894.
Næturvörður er í Laugavegs
apóteki, sími 1618.
Ljósatími ökutækja
er frá kí. 18.35 til kl. 6.25
árd. — Ef bifreið mætir vögn
um eða vegfarendum á stað,
þar sem hvorugir komast fram
hjá öðrum, skal bifreiðin aka
til baka og nema staðar þar
sem hinir komast framhjá
lienni.
HANNES Á HORNINU.
Frh. af 4. síðu-
silkisokkum allan ársins hring,
hvernig sem viðraði. Þetta er
því rniður satt. En ástæðan er
ekki sú, að þær séu svo heimsku
lega pjattaðar, heldur stafar
þetta af því, að aðrir sokkar fást
hvergi og hafa ekki fengizt í
mörg ár nema af svo skornum
skammti, að aðeins ein og ein
hefur verið svo heppin að ná í
þá.“
ÉG VEIT, að nú er mikill
skortur á erlendum gjaldeyri,
og þar sem allir kvensokkar eru
útlend framleiðsla, mun óhjá-
kvæmilega verða skortur á
þeim 1 náinni framtíð, jafnvel
silkisokkunum líka. En ég hef
séð íslenzka ullarsokka, unna á
íslenzku sveitaheimili, sem ég
er viss um, að engin íslenzk
kona mundi skammast sín fyrir
að ganga í. Finnst þér nú ekki,
Hannes minn, tími til þess kom-
inn, að íslendingar hefji sjálfir
verksmiðjuframleiðslu á íslenzk
um ullarkvensokkum, svo að
kvenfólkið þurfi ekki að skjálfa
og blána af kulda, þó að hita-
mælirinn falli niður fyrir 'frost-
mark? Vonast eftir svari í dálk
um þínum bráðlega.“
ÞETTA ER GOTT bréf. Ég
er sammála því. Skrifaðu mér
fleiri svona bréf, vina mín. Ég
mun áreiðanlega birta þau.
BERKLAVARNADAGUR-
INN er í dag. Ö.ll starfsemi hans
miðast við það að styrkja starf-
semina að Reykjalundi. Þar er
áreiðanlega unnið eitt mesta
þjóðnytjastarf, sem unnið er hér
á landi. Það hefur þegar borið
mjög glæsilegan árangur. Við
finnum það ekki aðeins, sem
fylgjumst nokkuð með barátt-
unni gegn berklunum, heldur
hafa erlendir menn, sem hingað
hafa komið, látið í Ijós mikla
aðdáun á því. Starfsemin að
Reykjalundi er næstum eins-
dæmi í Evrópu. Mér er til dæm
is kunnugt um það, að danskir,
sænskir og norskir. forustu-
menn, sem hér hafa dvalið, hafa
talið starfið að Reykjalundi eitt
hið merkasta af öllu því, sem
þeir hafa kynnzt hér.
REYKJALUNDI hefur mest-
’megnis verið komið upp með al
mennum samtökum lands-
manna. Það á því nokkra sér-
stöðu hjá okkur, því að flestu
öðru er komið.upp fyrir atbeina
og á kostnað hins opinbera. Við
skulum halda áfram þessu
starfi okkar. Við skulum halda
áfram að leggja fé til starfsem-
innar að Reykjalundi. Það sam
einar okkur um mannúðar- og
þjóðnytjastarf og verður því til
að þroska okkur sjálf. En um
leið erum við líka að vinna að
sóma landsins og þjóðarinnar
sem heildar.
Nýjar kosningar
í Danmörku
greiðsluna, sem fór fram
klukkan hálf þrjú,
Vantrauststillaga róttæka
flokksins var samþykkt með
80 atkvæðum gegn 66.
Kvaddi1 Kristensen sér þá
hljóðs og kvað stjórnma sam
■mála um að-Ieggja til við
konunginn, að efnt yrði til
■nýrra kosninga. Alþýðuflokk
urinn tók þá aftur tillögu
sína um nýjar kosningar. Til
laga Retsforbundets um, að
þjóðaratkvæðagreiðsla um
Suður-Slesvíkurmálið yrði
látin fara fram samtímis
kosningunum var felld með
103 atkvæðum gegn 40. Til-
laga frá Dansk Samling um
að Suður-Slesvík skyldi skilin
frá Þýzkalandi var felld með
142 atkvæðum gegn 3 og
þingsályktunartillaga frá í-
haldsflokknum um að þjóð-
aratkvæðagreiðsla færi fram
>um Suður-Slesvíkurmálið í
stað nýrra kosninga var felld
með 81 atkvæði gegn 63.
Framh. af 5 síðu.
framkvæmdastjórn, og það
er hafið yfir allan efa, að
mikill hluti hinnar ;yfirstand
andi alþjóðlegu þjónustu er
léleg. orsakar eyðslu og taf-
ir og oft hættulegt ástánd í
stjórnmálum. Fimmta nefnd
in, — hún fjallar um stjórn-
armálefni og fjárlög samein
uðu þjóðanna — mun taka
þetta til athugunar. Tillaga
hefur komið fram um það að
taka framkvæmdastjórnina
til rækilegrar athugunar, það
sem gert hefur verið, skuli
koma í ljós. og hæfileikar
þeirra, sem hækkaðir hafa
verið í tigninni skuli verða
vandlega prófaðir. Og ef til
vill hörðust af allri gagnrýni
á stjórn Tr.ygve Lie, nú 18
rriánuðum eftir fyrsta þing
sameinuðu þjóðanna, er til-
lagan um- að koma ætti upp
dómi sérfræðingi í fram-
kvæmdastjórn.
Einnig konia fjármálin til
umræðu. í sambandi við
fjárlög sameinuðu þjóðanna
eru hinn ævarandi dollar
mikið vandamál. Uppruna-
lega var áætlun Trygve Lies
fyrir næsta ár 39.500.000
dollarar. en ráðgefandi
nefnd bætti þa rvið 4.000
000 dollurum, og búizt er við
að þjóðir, sem fátækar eru af
dollurum, reyríi að fá þetta
lækkað í fimmtu nefnd. en
sama nefnd verður að snúa
sér að öðrum stórum reikn-
ingi, áætlunum um nýju að-
alstöðvarnar í Manhattan,
sem er eitthvað yfir 16.000
000 dollarar.
Lýsing mín á þessu þingi
og störfum þess eru aðeins
almenn. Mikil eru verkefnin,
bæði á sviði fjármála. fé-
lagsmála, menningarmála og
mannúðar. En ég hef sagt
nóg að ég held, til þess að
sýna að þing sameinðu þjóð
nna hefur nóg að gera. Fund
ir þess nú hafa mikla þýð-
ingu fyrir sameinuðu þjóð-
irnar og framtíð þeirra, og
vel getur verið, ef ekkert
samkomulag næst um neitun
arvaldið, að nauðsynlegur
meirihlut'i, tveir þriðju at-
kvæða, fáist með ályktunar-
tillögu Argentínu um að
kalla saman ráðstefnu er
fjalli um endurskoðun og
breyt'ingar á stjórnarskrá
hinna sameinuðu þjóða.
Jarðarför konunnar minnar og móður' okkar,
Guðrúnar Guðmundsdóttur,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. okt- og
hefst með húskveðju að heimili okkar, Frakkastg 9,
kl. 1 e. h.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Ágúst Markússon og börn.
- Skemmtanir dagsins -
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Abbott og Cost-
ello í Hollywood. Bud Abbott
og Lou Costello. Sýnd kl. 3
5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: í„ leit að lífsham-
ingju“. Tyrone Power, Gene
Tiereny. Sýnd kl. 9. „Á suð-
ræðnni söngvaey“. Sýnd kl.
3, 5 og 7,
TJARNARBÍÓ: „Broshýra stúlk
an“, Anne Ziegler, Webster
Brooth, Peter Graves, sýnd
kl. 3, 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Klukkan kallar“
sýnd kl. 5 og 9. „Á báðum
áttum“ sýnd kl. 3.
TRIBÓLÍBÍÓ: , ,Eyðimerkuræv-
intýri Tarzans“, Johnny
Weissmuuller, Nancy Kelly.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Söfn og sýningar:
MÁLVERKASÝNING Sigurðar
Sigurðssonar: Opin daglega
frá kl' 10—22.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: Op
ið kl. 13.30—15.
SAFN EINARS JÓNSSONAR:
Opið kl. 13.30—15.30. .
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Dans-
leikur Blindravinafél. kl. 10
síðd.
HÓTEL BORG: Klassisk tónlist
kl. 9—11.30 síðd.
TJARNARCAFÉ: Dansleikur
B.S.Í, kl. 10 síðd.
RÖÐULL: Gömlu dansarnir kl.
9—1 ,síðd.
G.T.-HÚSIÐ: Dansleikur kl. 10
síðd.
Ötvarpið:
20.20 Orgelleikur úr Dómkirkj
unni unni: Lög eftir Ás-
kel Snorrason (höfundur
leikur).
20.35 Erindi: Trúarbrögð frum
stæðra þjóða, V: Afstað-
an#til dauðans og dauðra
manna (Sigurbjörn Ein-
arsson dósent).
21.00 Einsöngur (Pétur Jóns-
son óperusöngvari): a)
Ich grolle nicht (Schu-
mann). b) Die beiden
Grenadiere (sami). c)
Winterstúrme (Wagner).
d) Bikarinn (Markús
Kristjánsson). e) Heimir
(Sigvaldi Kaldalóns).
21.20 Heyrt og séð (Jónas
Árnason blaðamaður).
23,.40 Tónleikar: Létt klassisk
lög (plötur).
óskast til innheimstustarfa.
Upplýsingar 1 afgreiðslu Alþýðublaðsins.
Sími 4900.
Alþýðublaðið
ISI.
KSÍ.
KRR.
K.R. og Yalur
meistarafloíkkur, fceppa
í dag kl. 4,30 til úrslita
í Tuliniusarmótinú.
Dómari:
Haukur Óskarsson.
Línuverðir:
Karl Guðmundsson
Sæmundur Gíslason-
Komið og sjáið spennandi leik.
Allir suður á völl.
Mótanefndin.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Fundur
þriðjudaginn 7. október kl. 8,30 s. d-
í fundarsal.Laugarneskirkju.
Fjölmennið á fyrsta fund haustsins.
Allar konur í sókninni velkomnar-
Stjórnin.
np Nýju og gömlu dansarnir í G.T.-húsinu
| í kvöld kl. 10. —
I 1 Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30 e. h.
Gömlu dansarmr
að Röðli í kvöld kl. 21—1. Miðasalan
byrjar kl. 20 (8). Símar 6305 og 5327-
Dansleikurinn byrjar með Lanciers kl. 9.