Alþýðublaðið - 12.10.1947, Page 5
Sunnudagur 12. okt. 1947
DAVID LOW:
HVl Á HANN AÐ BERA BYRÐARNAR?
I GRF.IN ÞEIRKI, sem
hér fer á eftir, er stutt frá
sögn um bók, er nýlega er
komin út í Sviss Fjallar
bókin um kvikmyntir, og
er lags til aS þeim sé beiít
meir í þágu menningar og
listar en hingaðYiI. Grein
in er biríist í „Verdens
Gang“ og er eftir Jörgen-
Richard Lund.
Bretar lögðu meiri fórnir fram tií þess að vinna styrjöldina en nokkur önnur þjóð, og tóku meðal annars stórlán
víða um heim. Nú bera þeir geysilegan skuldabagga, sem þelm finnst að fleiri mættu að réttu taka þátt í að bera.
Bretum finnst byrðin þuiig.
. ALMENN SAMTÖK kvik-
myndahúsgesta geta frelsað
kvikmyndalistina.
Að þessari niðurstöðu
komast þrír Svisslendingar,
Georg Schmidt, Werner
Schmalenbach og Peter
Báchlin, í bók „Der Film
wirtschaftlich, gesellsehaít-
lich; kunslerich“, sem sviss-
neska kvikmyndaskrifstofan
í Basel gaf út.
Kvikmyndaskrþistofan var
stofnuð árið 1943 af almenn-
ingsfélagi, er nefnist „Le bon
Film“, og berst það nú ásamt
„Schweiz Arbeterbildungs-
zentrale“ fyrir frelsi kvik-
myndanna.
Bókin er með 160 mynd-
um, er skýra fjárhagsleg og
listræn vandamál kvkmynd-
anna og myndar, eins og sagt
er í foirmálanum, fullkomið
fræðikerfi kvikmyndarinnar,
og geta þeir, sem ekki eru út-
lærðir í þýzku, einnig notið
hennar.
Peter Báchlin sýnir fram
á, að kvikmyndin er lifandi
myndlis't og rekur þróúnina
frá hinni hreyfingarlausu en
fullkomnu • málaralist um
1800 gegnum ófullkomna en
hreyfanlega birtingu im-
pressionista til fullkomnnar
og hreyfanlegrar myndgerð-
ar kvikmyndarinnar af veru-
leikanum.
Á lénstímum miðaldanna
var bók eða mynd aðeins
framleidd í einu eintaki, en
á endurtreisnartímanum
fundu menn upp prentlist og
koparstungu, og ef'tir frönsku
stjórnarbyltinguna kom til
sögunar steinprentun, lág-
pirentun og ljósmyndagerð,
sem nú nýiega hefur náð há-
marki í lifandi og talandi lit-
myndum.
Sagt er, að kvikmyndagerð
sé eingöngu tækni. Rangt er
það. Jafnvel málverk eftir
van Gogh er að allmiklum
hluta tækni, og ekki aðeins
list. Þannig er kvikmyndin
meir en tækni; hún er einnig
list, og hversu mikil list hún
er, fér eftir Isikstjóranum,
sem aðeins ræður yfir tækn-
inni, ef hann þekkir eigin-
leika kvikmyndarinnar og
takmarkanir og skilur hvern-
ig á að hagnýta þennan skiln-
ing í þágu listarinnar.
Þó er sngin hætta á ferð-
um. Bæði Syiss og Danmörk
eiga unga og efnilega kv:k-
myndaleikara, sem reiðu-
búnir eru t:l þess að taka að
sér örðugt hlutverk, ef fyrir
hendi eru fjárhagsleg skil-
yirði.
Kvikmyndir eru aðeins
fjórum sinnum lengri en
þær voru árið 1910; en þær
eru nú 1400 sinnum dýrari í
framleiðslu, og talið er, að
hálf önnur milljón manna
þurfi að horfa á svissneskar
kvikmyndir t:l þess að þær
borgi sig.
Enua þótt þessar tölur gefi
ekki alveg áreiðanlega mynd
af aðstöðu kvikmyndafélag-
anna nú, því að ekki er al-
gerlega hægt að . fylgjast
með kostnaði við upptökú,
leigu og fleira, er þó augljóst,
að sviseneskar kvikmyndiir
eru betur á vegi en danskar.
Danskar kvikmyndir fara að-
allega á markað á Norður-
löndum, en svissneskar kvik-
myndir eru seldar í Italíu,
Þýzkalandi og Frakklandi,
eftir því á hverju hinna cp
inberu máia kvikmyndin er
tekin. Þrátt fvrir það hefur
Sviss ekki náð svo mikilli
framleiðslu, sem búast mætti
við.
Vegna þess að kvikmyndir
eru seldar í öllum löndum
og öll alþýða nýtur þeirra,
eru þær góð útbreiðslutæki
fyrir mikilsverðar hugs]ónir
Þessi möguleiki er ■ aðeins
hagnýttur í fáum myndum,
t. d. „Mr. Smith goes to
V/ashington“ og „Louis Pas-
teur“. Báchlin spyr: Hvers
vegna skyldi þessu vera
þannig farið? Og hann svar-
ar sér sjálfur með því að
t-
rekja þróunina írá því í
gamla daga, þegar kvik-
myndaframleiðandinn tók
sjálfur myndina og sýndi
hana, til kvikmyndahringa
nútímans, sem sækjast eftir
hagnaði án menninga.rlegs á-
huga, eins og segir í setnnig-
unni:. „Það, sem fólkið vill,
það skal það fá.“
Hve^þetta er háskalegt, skil
ur maður, þegar hann fær að
vita, að þrír fjórðu hlutar af
fjármagni kvikmyndaiðnaðar
ins er eign amerískra hringa.
Morgan- og Rockefellerhóp-
urinn ræður yfir eftirfarandi
kvikmyndafélögum, sem eru
einhv.er stærstu í heimi:
Paramount, Warner Bros,
20th Century Fox, Metro-
Goldwyn-Meyer, United
Artist, Universal, Columbia
og R. K. O. þar að auki stjórn
ar hann hljómleikastofnun-
um og sýningartækjum með
félögunum Western Electric,
General Electric Co. og^ B. C.
A. Photophone. General
Electric Co er einnig veruleg
ur þáttur í Phoebushingsins',
sem hefur aðalbækistöðvar
sínar í Sviss, og sænska
Philipsfélagið á einnig full-
trúa bar, en formaður þess er
Gúnther fyrrverandi utanrík
ismálaráðherra.
Fjármagn kvikmyndafé-
Iaga og framleiðsla þeirra
hafði verk að vinna í þágu
nazistaflokksins í Þýzkalandi.
Er því fróðlegt, að eftir heim
ildura, sem alþjóðanefnd í
vandamálum Evrópu birti,
eiga nazistarleiðtogar enn þá
mikil auðæfi geymd í Sviss.
Þessir hringir kæra sig
ekki um list, heldur peninga,
og vilja aðeins kannast við
..stjörnukvikmyndir, fram-
haldskvikmyndir og metsölu
sögur.
í sambandi við þetta dreg-
ur bókin fram í dagsljósið
hvers við förum á mis og
hvaða ævintýri eru í vænd-
um, þegar búið er að gera
upp sakimar við auðvaldið
og brjóta hlekki þeiss af list
kvikmyndar.na.
I röð greinilegra mynda er
sýnt í bókinni hvernig kvik-
rnynd er byggð upp, tækni við
kvikmyndagerðina frá upp-
hafi til lifandi mynda á hvíta
tjaldinu. Menn ' komast að
raun um að leikarinn er að-
eins þáttur í myndamáli
kvikmyndarinnar, og þá ór-
ar vart fyrir hinni miklu
list, er sjaldan sést, en sumir
þekkja: Kvikmyndin fjallar
þá ekki um okrara, kúreka
eða hispursmeyjar, heldur um
lifandi fólk, sem glímir við
mannleg vandamál og elur í
brjóti sömu vonir og við.
Útsýninu má breyta, mynd
ir má taka nærri og einnig
úr mikilli fjarlægð, myndir
af smáu og stóru, rúminu,
sem rúmi eða vettvangi æv-
intýra, en efnið í hinni já-
kvæða kvikmynd er ætíð mað
urinn, hinn starfandi og skap
andi maður.
í tækni er kvikmyndin nú
mjög vel á veg komin og hef
ur alla möguleika til mjög
mikillar listaþróunar. Þegar
síðasta leikhúsinu verður lok
að eða því er breytt í safn-
hús, mun kvikmyndin lifa
En listræn þróun kvik-
myndannia fer eftir okkur
gestunum í kvikmyndahús-
unum. Einungis ef við tök-
um höndum saman, leggjum
út í baráttu gegn hinum kapi
talísku framleiðslu og leigu-
félögum og heimtum betri
Framhald 8 7. síðu.
Vegna þess að nokkrir nemendur eru að útskrif-
ast úr Flugskólanum, getum við tekið nýja
nemendur.
Flugskólinn mun starfa í veur, og flokið er alla
daga vikunnar. Einnig lánum við þeim nem-
endum, sem Ijúka prófi hjá okkur, flugvélar
fjmir minna gjald. — Leitið upplýsinga, skrif-
kga eða munnlega, í skrifsto'fu okkar á
Reykjavíkurflugvelli. Einnig gefum við upplýs-
ingar milli kl. 12—1 í síma 7414.
•^es^o
C-
Yélflugudeild Svifflugfélags íslands
Pósthólf 1069.