Alþýðublaðið - 15.10.1947, Síða 7
Miðvikudagur 15. okt. 1947
ALÞYÐUBLAÐIO
Bærinn í dag.
Næturlseknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki, sími 1760.
Ljósatími ökutækja
er frá kl. 19.25—5.20 að
nóttu. — Hlass, sem flutt er á
ökutæki um bæinn, má ekki
vera þyngra en svo, að ökutæk
ið beri það auðveldlega; því
skal vera vel fyrir komið og
fest svo, að ekki haggist. Ekki
má það dragast með jörðu né
ná langt út af ökutafeinu. Með
málmvarning skal fara svo, að
ekki hljótist hávaði af. (Lög-
reglusamþykktin).
Skrifstofur
Franska sendiráðsins eru
fluttar á Skálholtsstíg 2, I. hæð.
Símanúmerið þar verður 7622.
Heimili sendiherrans verður á-
fram á Skálholtsstíg 6, sími
7705.
Flugvöllurinn.
Hekla kom frá New York kl.
2 með 6 farþega. Átti að fara í
gær til Hafnar með 39 farþega,
og koma þaðan aftur með 35
farþega. — Skozka leiguflug-
vél F.í. frá Prestwich. — Dougl
asflugvél F. í. kom frá Sola og
Prestwick.
Séra Jakob Jónsson
er kominn heim úr Englands
för sinni.
SKIPAÚTGÍRÐ
RIKISINS
til Bíldudals, Auðkúlu. Þing
eyrar og Flateyrar. Yörumót
taka árdegis í dag.
M.s. Helgi
tekið á móti flutning til Pat-
réksfjarðar, Tálknafjarðar og
í dag
Mb. SkaHfellingur
til Vestmannaeyja.
Vörumóttaka í dag.
Ævisaga Hallgríms Péturssonar
eftir Magnús Jónsson væntanleg.
--------4-------
Prófessorinn hefur í mörg ár unnið að
verkinu, sem verður í tveim bindum.
---------------♦------ ■
ÆVISAGA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR eftir
Magnús Jónsson, guðfræðiprófessor, er væntanleg á bóka-
markaðinn innan skamms. Er þetta stórt rit, tvö bindi, og
hefur höfundurinn unnið að samningu þess um margra
ára skeið. H.f. Leiftur gefur ritið út, og hefur á allan hátt
verið mjög til þess vandað.
„Riti þessu er skipt í þrjá
meginkafla,“ segir Magnús
Jónsson í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gær. „Fyrsti kaflinn
og sá skemmsti, fjallar um
öldina, þ. e. a. s. tímaskeið
það, sem séra Hallgrímur
var uppi, sérkenni þess og
almenn einkenni. Annar kafl
inn nefnist „Maðurinn“; en
það er ævisaga skáldsins, og
auk þess, sem þar eru rakin
æviatriði hans, er einnig
leitazt við að bregða upp sem
skýrastri persónumynd, með
því að lýsa þar útliti hans,
lyndiseinkunn og skaphafn-
arsérkennum, hjónabandi
hans, prestsskap og starfi,
eftir því, sem heimildir
standa til. Þriðji kaflinn er
um skáldið, og er hann
lengstur.“ -
Eru ritverk skáldsins tek-
in upp í bókina? 'if
„Ekki verður það nú sggt.
Að visu eru teknir upp úr
þeim kaflar sem sýliishorn,
en beinast liggur við að kalla
þennan hluta bókarinnar
bókmenntalega ritgerð um
skáldið og ritverk hans. Eru
rímur hans teknar þar fyrst
til athugunar, þar eð þær eru
hið elzta, sem eftir hann
liggur; en þá eru tekin til at-
hugunar kvæði hans, önnur
en Passíusálmarnir og rit
hans í óbundnu máli.“
— Eru til rit í óbundnu
máli eftir séra Hallgrím Pét-
ursson? —
„Já; en um það er ekki
öllum kunnugt. Eru til eftir
hann tvö smárit eða bækur.
En auk Passíusálmanna orti
hann mikið, og er ljóðum
hans skipt niður eftir efni í
ritgerðinni. Og svo er það
meginatriðið, Passíusálmarn-
ir. Hef ég varið miklum tíma
til rannsókna á þeim og tel
ég mig hafa komizt þar að
nýjum, fræðilegum niður-
stöðum, sem of langt mál er
að segja frá í stuttu viðtali.
Þó vil ég geta þess, að mér
hefur ekki unnizt tími til
rannsókna á þeim á guðfræði
legum grundvelli, og er þvi
einkum um bókmenntalega
og upprunalega athugun að
ræða. Þá er og þarna getið
ýmissa dóma um Hallgrím
og verk hans, og auk þess eru
margar skrár, rp. a. skrá
allra versa í Passíusálmun-
um, eftir upphafsorðum.“
— Og þetta verður mjög
vönduð útgáfa?---------
„Já. Meðal annars eru í
henni allmargar myndir;
mynd frá Gröf á Höfða-
strönd, en þar fæddist skáld-
ið; Hólum í Hjaltadal, Kaup-
mannahöfn, Saurbæ á Hval-
f j arðarströnd, Ferstiklu og
fleiri stöðum; einnig ljós
prentunarmyndir af handrita
blöðum. Þá lét ég og gera
mynd af mynd þeirri, er séra
Hjalti Þorsteinsson málaði
af séra Hallgrími; en hann
var mikið ' yngri maður en
Hallgrímur, og er því lík-
legt, að hann hafi gert mynd
ina eftir minni.“
— Einhvern tíma hef ég
heyrt, að enn geymdist bréf,
ritað af Tyrkja-Guddu. —
„Já, það er til, eða öllu
heldur brot úr bréfi, og reit
hún það x Barbaríinu til
I - Skemmtanir dagsins - I
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Hin eilífa þrá“.
Madeleine Sologne, Jean Mar
ais, Junie Astor. Sýnd kl. 9.
„Dularfulli hestaþjófnaður-
inn“. Ken Maynard, Hoot
Gibson. Sýn d kl. 5. og 7.
NÝJA BÍÓ: „Anna og Síams-
konungur“. Irene Dunne. Rex
Harrison. Linda Darnell. —
Sýnd kl. 5 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Gilda“. Rita
Hayvord, Glenn Ford. Sýnd
kl. 7 og 9. „Útlagar'1. Evelyn
Keyes, Williard Parker, Larry
Parks. Sýnd kl. 5.
TRIPOLIBÍÓ: „Draugurinn bláa
herberginu11: Paul Kelly,
Constance Moore, Vý. Man
Lundegen, sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: ,,í leit að lífsham-
ingju sýnd kl. 9. „Leyf mér
þig að leiða. Sýnd kl. 7.
Söfn og sýningar:
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: Op
ið kl. 13.30—15.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Dansað
frá kl. 9—11,30.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Revy-
an: „Vertu bara kátur“ kl.
8.30 síðd.
HÓTEL BORG: Klassisk hljóm-
list frá kl. 9—11.30 síðd.
TJARNARKAFÉ: Danshljóm-
sveit frá kl. 9—11,30 síðd.
Úfvarpið:
21.00 Útvarpssagan: „Daníel
og hirðmenn hans“ eftir
John Steinbeck, X (Karl
ísfeld ritstjóri).
21.00 Tónleikar: íslenzkir söng
..menn (plötur).
21.15 Erindi: Bókasafn Vestur-
amtsins 100 ára (Lúðvík
Kristj ánsson ritstj óri).
21.35 Tónleikar: Symfónía í B
dúr eftir Johan Svendsen
(plötur).
22.00 Fréttir.
22.05 Harmonikulög (plötur).
7
Kvikmyndafökuvéí
og sýningarvél ós-kast til kaups. Til greina
geta komið bæði 16 mm og 35 mm fyrir
tal og tón og einnig þögul. Tilboð merkt
„Kvikmyndir“ sendist afgreiðslu Alþýðu-
blaðsins, sem alira fyrst.
fyrri eiginmanns síns, er bjó
að Stakkagerði í Vestmanna-
eyjum. Það mun vera eina
bréfið, sem við vitum um að
til sé, frá beim er herleiddir
voru, og britist mynd af því
í bók minni.“
Með þessu mikla riti Magn
úsar Jónssonar prófessors er
séra Hallgrími Péturssyni og
verkum hans reistur sá veg-
legi varði, er ekki var okkur
sem bókmenntaþjóð og unn-
endum hans sæmandi að
draga lengur að reisa.
L. G.
Ausfurrfki...
Framh. af 5 síðu-
lin í andstöðunni, og þar við
situr, þótt blóðugar stað-
reyndir tali öðru máli. Það
er ekki metið til skuldar, að
Frakkland átti Pétain, Nor-
egur Quisling, Belgía De-
grelle og Króatia og Slóvak-
ia börðust með herskörum
Hitlers. En nú vill enginn
heyra -nefnt, að Austurríki
barðist fyrir lýðræðinu og
fór halloka, en verkamenn
þess stóðu árið 1934 aleinir
og yfirgefnir í heiminum, og
að Austurríki snéri sér árið
1938 til stjórnanna i Paris,
London og Washington og
hrópaði á hjálp. Austurríki
á að verða olnbogabarnið í
Evrópu.
Austurríki vill leysa naz-
istavandamál si-tt, en í þeim
tilgangi hefur þingið sam-
þykkt lög, og eftir þeim skal
hver nazisti í ábyrgri' stöðu
hljóta xéttmæta hegningu.
En þær tugþúsundir manna,
sem nauðugir eða viljugir
gengu í nazistaflokkinn, en
engan þátt tóku í hryðju-
verkum hans, skal verða
gert kleift að nokkirum tíma
liðnum að hverfa aftur til
mannfélagsins.
Austurríki vill að lokum
verða frjálst, og austurríska
þjóðin vill enduirbyggja land
sitt. Fleiri og fleiri verða
þeir, sem vilja gera Austur-
ríki að landi, þar sem lýð-
ræði og félagslegt jafnxétti
sitja að völdum undir for-
ustu jafnaðarmannaflokks-
ins. Austurrískir verkamenn
þekkja hinar tignarlegu venj
ur verkalýðshreyfingar sinn
ar og þetta er einn hinna fáu
sólskinsbletta, sem í dag eru
í heiði í Austurríki.
B-y
HANNES Á HORNINU.
Frh. af 4. síðu-
þessi ,,vefnaðarvöru“-skömmt-
un verði til þess að landar mín-
lir fari aftur að nota fatnað al-
mennt úr ullinni af fénu okkar
og þurfi engin lög að brjóta,
þótt þeir fái sér meira en einn
fatnað og hundrað krónu virði
að auki komandi ár, þegar ull
ein er notuð í flíkurnar.“
„TREYSTI ÞVÍ, að ég fái
greinileg og áreiðanleg svör við
þessu. Málið snertir svo marga,
og þeir, sem vilja sigla-í strand
— því miður eru þeir til —
leggja allt út á versta veg hjá
valdamönnum.“
ÉG HELD að allt sé í lagi
með spurningar þínar, Jónatan.
Það mun ekki þurfa skömmtun-
armiða í þessum tilfellum.
Unglingaskóli
stofnaður í Mos-
fejlsveit
-—«—
HINN 10. okt. s. 1. var
Unglingaskóli Mosfellsskóla-
hverfis settur í fyrsta sinn að
Brúarlandi af Lárusi Hall-
dórssyni skólastjóra. Starfar
skólinn samkvæmt hinum
nýju fræðslulögum, en aðeins
í einni deild í vetur.
Kennarar verða, auk skóla
stjóra, séra Hálfdán Helga-
son prófastur og ungfrú
Klara Klængsdóttir kennari.
Við setningu skólans fluttu
ræður auk skólastjóra sr.
Hálfdán Helgason formaður
skólanefndar og fræðsluxáðs,
Björn Birnir hreppstjóri,
Magnús Sveinsson og Jónas
Magnússon oddvitar Mosfells
og Kjalaimeshreppa. Lýstu
þeir allir ánægju sinni yfir
stofnun skólans og því nýja
skrefi, sem nú hefði verið
stigið í fræðslumálum héraðs
ins og árnuðu skólanum fram
tíðarheilla.
Sendlherra Finna
kom III Reykja-
vfkur í gær.
HINN NÝI sendiherra
Finna, herra Páivö K. Tarj-
anne, kom til Reykjavíkur
flugleiðis frá Noregi í dag, á-
samt frú sinni. Herra Tarj-
anne verður sendiherra Finna
á íslandi með búsetu í Osló.
Skrifstofustjóri utanríkis-
ráðuneytisins, Agnar Kl. Jóns
son, og Eiríkur Leifsson vara
ræðismaður Finna tóku á
móti sendiherrahjónunum á
flugvellinum.