Alþýðublaðið - 26.10.1947, Blaðsíða 8
ALÞÝÐUBLAÐBÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
, Vesturgötu
Seltjarnarnes.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ v
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
Kleppsholt
Hringbraut
Talið við afgr. Sími 4900.
Frægasfa skáldsaga Arfhurs Kösf-
lers komin úí á íslenzku
„Mýrkor um miðjan dag“, sagan om hln
svo nefndu málaferSi í Moskvu fyrir
styrjöldina.
MYR'KUR UM MIÐJAN DAG, hin fræga og viðlesna
skáldsaga Arthurs Köstlers, er nýkomin út í íslenzkri þýð-
lingu, en saga þessi fjallar um hin svo nefndu málaferli í
Moskvu og hin dapurlegu örlög rússnesku byltngarfor-
kólfanna. Hefur skáldsaga þessi verið þýdd á fjölmörg
tungumál og hvarvetna hlotið mikla útbreiðslu og vakið
mikinn styr, og er Köstler tvímælalaust sá íniðaldra r:t-
höfundur í Evrópu, sem mesta athygli vekur.
Arthur Köstler er Ung-
verji í aðra ættina, en Aust-
urríkismaður í hina og fædd
ist í Ungverjalandi árið
1905. Hann stundaði nám í
Vínarborg og dvaldist langi í
Þýzkalandí, en flúði land við
valdatöku Hitlers. Hann varð
fréttaritari fyrir brezka blað
ið „New Chronicle“'í borg-
arastyrjöldinni á Spáni, en
þar tóku fasistar hann til
fanga og dæmdu hann til
dauða. Var hann látinn laus
fyrir milligöngu brezku
stjórnarinnar eftir ' að hafa
mánuðum saman setið í fang
elsi með dauðadóminn yfir
höfði sér. Eftir Spánardvöl-
ina fór hann austur til Rúss-
lands til að fylgjast með
málaferlunum þar og dómin
Hallgrímsmessa
annað kvöld
í Dómkirkjunni
DÁNARDÆGUR Hall-
gríms Péturssonar er á morg
un, og verður þá að venju
haldin Hallgrímsmessa í dóm
kirkjunni, og fer hún fram
eins og messur tíðkuðust í tíð
séra Hallgríms. Verða sungn
ar Kyrie og Gloria, og sálm-
urinn Te Deum Laudamus.
Þegar messunni, sem verð
ur kl. 8,30 annað kvöld, lýk-
ur, verður fjársöfnun til
styrktar kirkjunni. Þá mun
og Kvenfélag safnaðarins
standa fyrir merkjasölu til
styrktar kirkjunni á morg-
un, og skorar félagið á for-
eldra að leyfa bör.num sínum
að selja merkin, að minnsta
kosti einhvem hluta dagsins.
Blaðið spurði séra Jakob
Jónsson frétta af nýju kapell
unni um leið og hann skýrði
frá Hallgrímsmessunni. Hann
kvað það hafa verið von
manna, að hún yrði tilbúin
um jól, en nú væru allar
horfur á, að svo mundi ekki
verða, vegna ýmissa örðug-
Ieika.
um yfir forkólfum rússnesku
byltngarinnar, sem Stalin og
fylginautar hans höfðu á-
kveðið að ryðja úr vegi. Sner
ist Köstler þá frá kommún-
ismanum, sem hann hafði
fylgt frá því 'hann var í æsku
og hóf. áð skrifa Myrkur um
miðjan dag, þar sem- hann
gerir upp reikningana við
kommúnistana. Hann var á
Frakklandi þegar síðari
heimsstyrjöldin brauzt' út,
en komst úr iandi, þegar inn
rás Þjóðverja hófst, fór til
"Engiands og barðist sem ó-
breyttur hermaður í brezka
hernum og hefur verið bú-
settur á Englandi eftir að 6-
friðinum lauk.
Aríhur Köstler hefur skrif
að fjölmargar bækur, en
frægust þeirra, víðlesnust og
umdeildust er Myrkur um
miðjan dag, sem nú er kom-
m út í íslenzkri þýðingu Jóns
Eyþórssonar á vegum Snæ-
landsútgáfunar, en hún mun
hafa fengið einkaleyfi fvrir
útgáfu á bókum Köstlers hér
á landi. Aðalpersóna sögunn
ar er gamall uppreisnarfor-
ingi og embættismaður sov-
étstjórnarimnar, Rubashov að
nafni, en hann er tekinn
höndum, sakaður um landráð
og hvers konar glæpi. Við-
námsþrek hans er brotið
með yfirheyrslum og pynd-
ingum, unz hann játar á sig
að lokum allar þær sakir, sem
á hann eru bornar. Sagan
h'efst með handtöku Rubas-
hovs og lýkur, þegar hann er
loks deyddur með skamm-
bysuskoti í hnakkann.
Þessi áhrifamikla og læsi-
lega skáldsaga Köstlers er
tvímælalaust listrænasta og
opinskáasta bók, sem rituð
hefur verið um málaferlin í
Moskvu. Fyrri samherjar
Köstlers, kommúnistarnir,
óttas mjög áhrif bóka hans,
og þegar Myrkur um miðjan
dag kom út á Frakklandi eft-
ir ófriðarlokin, skipulögðu
frönsku kommúnistarnir
kaup meðlima sinna á bók-
inni til þess að hún hyrfi af
markaðinum. Varð kapp-
hlaupið um bókina svo mik-
ið, að 250 000 eiintök seldust
af henni á örfáum dögum.
Ævar R. Kvaran og Brynjólfur
Jóhannesson í hlutverkum í
gamanleiknum „Blúndur og blá
sýra“, sem Leikfélag Reykja-
víkur sýnir nú. 5. sýning er í
kvöld kl. 8.
Úr ályktunum farmannaþingsins:
Samvinna þarf að takast um nið-
urfærslu verðlags og vísitölu
----------------*-------
Skuidir laynþega vegna nauðsynlegra
framkvæmda verði jafnframt lækkaðar
-------------------«-------
FARMAANNAÞINGIÐ ÁLEIT, að með samvinnu alira
framleiðslustéttann'a muni reynast kleift að færa verðlag og
vísitölu niður svo að um munar, enda sé um leið trýggt að
kaupgeta launastéttanna verði ekkert skert frá því, sem nú er.
Þá ályktaði þingið, að um leið og vísitalan lækkaði væri óhjá-
kvæmilegt að lækkaðar væru skuldir launþega þeirra, ;er ráð-
ist hafa í þarfar en dýrar framkvæmdir á verðbólgutímabilinu.
í ályktunum þingsins um* “ ' "
dýrtíðarmálin er enn frem-
ur lögð áherzla á að ríkis-
stjórnin láti gera ítarlega á-
ætlun um brýnustu þarfir
Slysavarnafélagið
afhendlr Sandgerð-
ingum björgunarbéf
SLYSAVARNAFÉLAG ÍS
LANDS mun í tlag afhenda
Sandgerðingum nýjan mótor
björgunarbát til afnota við
björgunarstöð félagsins þar á
staðnum.
Bátur þessi, sem kemur í
staðinn fyrir björgunarbátinn
„Þorstein“, sem þar var áð-
ur, var smíðaður í skipasmíða
stöð Péturs Ottasonar fyrir
ári síðan og þá strax útbúinn
sem áttróinn brimróðrabátur
meðan beðið var eftir sér-
stakri vél er setja átti í bát-
inn, en nokkur töf hafði orð-
ið á afhendingu hennar. Vélin
er nú komin fyrir nokkru og
að undanförnu hefur verið
unnið að því að setja vélina
niður og hefur það verið gert
í dráttarbrautinni í Keflavík.
Vélin í bátnum er 10 ha.
Bolinder semidieselvél aðal-
lega ætiuð fyrir björgunar-
báta, og á vélin að geta geng-
ið óhindruð þótt hún sé á kafi
í sjó. Þá er véiin þannig út-
búin, að hún eys undir íeins
burtu ölium sjó sem kemur í
bátinn, og á að geta haldið
honum þannig þurrum þó um
mikla ágjöf sé að ræða.
Vélin er sett á stað með sér
stökum skotum, er gera gang
setninguna trygga undir flest
um kringumstæðum. Þetta
er fyrsta vélin af þessari
gerð, sem tekin hefur verið í
notkun hér á landi.
í reynzluferð, sem farin
var á bátnum, reyndist bæði
bátur og vél hið bezta, og
náði báturinn góðum gang-
hraða. Björgunarsveitin í
Sandgerði mun sækja bátinn
til Keflavíkur og sigla honum
til Sandgerðis.
þjóðarinnar með sérstöku til
liti til þess. sem þarf til að
starfrækt verði óhindruð hin
nauðsynlegustu atvinnutæki
þjóðarinnar, og þá sérstak-
iega sjávarútvegurinn. sem
skapar fiestar og verðmæt-
astar útfrutniuígsafurðir
landsmanna, og að gjaldeyr
inum verði fyrst og fremst
varið með tilliti til þessa.
Með þeim frarríleiðslutækj
urn, sem þjóðin hefur þegar
eignast og eðlilegri og jafn-
ari aukningu þeirra ályktar
þingið, að ef farið verði eftir
framangreindum tillögum
geti þjóðin aftur safnað
gjaldeyri í nánustu framtíð.
Þá ítrekaði þingið fyrri
áskoranir sínar um það, að
tryggt verði að sjómanna-
stéttin fái fulltrúa í við-
skiptanefnd utanríkisvið-
skipta. Enn fremur beindi
þingið þeim tilmælum til
stjórnarinnar að hún feli
fiskifélaginu og landssam-
bandi útgerðarmanna milli-
göngu um útvegun reksturs
lána hjá stofnunum fyrir þá
útgerðarmenn, er þess óska.
Jafnframt að hlutast verði
til um að útlánsvextir af
rekstrarlánum ti Isjávarút-
vegsins verði færður niður í
3%.
Þá var áskorun um að lög
unum um útsvör og skatt-
greiðslur verði breytt þann-
ig, að útsvör og skattar mið-
ist við það ár. sem launin
eru tekin og greiðist mánað-
arlega með hlutfalislegum
greiðslum.
Innbrot á laugar-
dagsnótiina
AÐFARANÓTT laugardags
ins var brotizt inn í vöru-
geymsluhús Eimskip við höfn
ina, gamla pakkhúsið. Hafði
verið leitað í skúffum og
skápum, en ekki taldi rann-
sóknarlögreglan að neinu
hefði verið stolið.
Rannsóknarlögreglan skýrði
biaðinu einnig frá því, að far
ið hafi verið inn um glugga
á rakarastofu á Mánagötu'
18 sömu nótt og nokkrum
krónum í skiptimynt stolið.
Nýr 99 smálesta bátur
til Patreksfjarðar
NYR 99 SMALESTA BÁT-
UR kom til Patreksfjarðar í
fyrradag. Nefnist báturinn
„BIakknes“ og var hann smíð-
aður í Danmörku.
Báturinn er 25 metra lang-
ur og 6,3 metrar á breidd. í
bátnum er 270 hestafla vél og
gekk hann 9 sjómílur á
klukkustund í reynsluför.
Skipstjóri á „Blakknes“ verð-
ur Helgi Guðmundsson.
Virðuleg háskóla-
hátíð í gær
STÓR OG FRÍÐUR HÓP-
UR ungra stúdenta fékk há-
skólaborgarabréf sín á há-
skólahátíð, sem haldin var í
gær. Rektor háskólans, Ólaf-
ur Lárusson, hélt setningar-
ræðu og skýrði frá ýmsu
starfi skólans. Gat hann með
al annars um Sáttmálasjóð,
sem nú er á þriðju milljón,
en það er þó miðað við dýr-
tíð ekki eins mikil upphæð
og áður var í sjóðnum. Hefur
sjóðurinn aðallega haft tekj-
ur af kvikmyndahúsi. Úr
sjóðnum er veitt til utan-
ferða háskólakennara, svo og
til íslenzku orðabókarinnar,
sem unnið er að. Þá gat rekt-
or um sunparnámskeið fyrir
norræna stúdenta, sem halda
átti í sumar, en aflýsa varð,
m. a. af því að hinir erlendu
stúdentar gátu ekki fengið
ferðir hingað. Verður nám-
skeiðið haldið að sumri. Þá
hefur háskólinn boðið hingað
nokkrum erlendum vísinda-
mönnum, og hafa tveir þeirra
haldið hér fyrirlestra undan
farið. Þrem öðrum var boð-
ið, en þeir gátu ekki komið.
Munu þeir vonandi koma að
ári. Eru það prófessor Magn-
ús Olsen í Osló, Konrad Pers
son í Stokkhólmi og Finn-
inn Virtainen.