Alþýðublaðið - 04.11.1947, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.11.1947, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. nóv. 1947. ALÞYÐUBLAÐIÐ Guðm. Gíslason Hagalín: Leikmannasþankar um iisf III. Sepfembersýningin. SVO var það þá Septémber sýningin! Það var auðséð á blaðavið- tölum við forgöngumenn sýn ingarinnar, að nú stóð mikið itil. Listamennirnir hugðu, áð sýning þeirra mundi hrein- lega boða byltingu í málara- listinni hér á landi. Þaraa var j sem sé hvorki meira né minna um að vera heldur en þegar Kristinn sálaði Andrésson hugðist með Rauðum penn- um bylta öllu í bókmennta- heirninum — friður sé með minningu þeirra penna. . . . Já, og forgöngumenn sýning- arinnar, byltingarmennirnir, höfðu ekki aðeins látið prenta myndaskrá, heldur líka mynd skreytt rit, sem þeir kölluðu Septembersýningin. I þessu riti er ágætur pappír, og prentun virðist vönduð, svo að þess vegna getur það all- vel sómt sér bundið í silki, og þá gervisilki, því að orma vef mun sjálfsagt erfitt að fá á þess-um tímum. Rit þetta hefst á grein eftir Kjartan Guðjónsson, og á hún að skýra sjónarmið byltinga- mannanna. Greinin heitir: ,,Hvað á þetta að vera?“ Er það einn hinn meinlegasti vottur um heimsku almenn- ings og virðingarleysi hans fyrir listum, að hann skuli sífellt spyrja, þegar hann sér listaverk og finnst ekki liggja í augum uppi, hvort það sé sykurkassi, ungfrú eða hrút- ur: Hvað á þetta áð vera? Hef ur þessi spurning sært marg- an listamanninn, allt frá -Sölva Helgasyni til byltinga- manna nútímalistar. Þá eru myndir af öllum listamönn- unum, 8 málurum og tveim- ur myndhöggvurum, og loks er grein eftir listfræðinginn Chritian Zervos, og fjallar hún um list hins fræga mál- ara Picassos, en einnig um við horf listarinnar við þjóðfé- laginu og hlutverk hennar í því, og er þar meðal annars veitzt mjög að þrælkun listar innar í Rússlandi. Greinin heitir Frjáls list og þjóðfé- lagsvandamál, og hefur Þor- valdur málari Skúlason þýtt hana á íslenzku. Með útgáfu rits þessa- drógu forgöngu- menn sýningarinnar eins kon ar markalínu milli hennar og annarra sýninga, sem hér hafa verið haldnar nýlega. Á sýningunni voru mynd- ir eftir Gunnlaug Scheving og Snorra Arinbjarnar, en á Brunabófafélag fslands vátryggir allt lausafé (nema verzlunarbirgðir)., Upplýsingar í aðalskrif- stofu, Alþýðuhúsi, (sími 4915) og hjá umboðs- mdnnum, sem eru í hverjum kaupstað. báðum þeim málurunum hef ég mætur — og hef lengi haft. En sannast að segja skil ég ekki, hvað þeir áttu að vera að flækjast þarna — hvort ég á heldur að skilja það svo, að forráðamenn sýn ingarinnar hafi narrað þá til að sýna, svo að þeir mættu verða til spotts og aðhláturs! — eða þeim hafi verið boðið það svona til siðasaka, og þeir reynzt svo grályndir að þiggja boðið. En það eitt er víst, að það voru hinir málar- arnir, sex að tölu, sem voru vorboðarnir á þessari haust- sýningu, voru forustumenn listbyltingarin'nar. Bíðum nú við, — ég hafði mikið heyrt um það talað, hvað þessir listamenn væru frumlegir, hvað þeir skæru sig úr, og af blaðaviðtölunum hafði það svö sem verið auðsætt, að þeir höfðu þá skoðun sjálf ir, að frumleikinn væri þeirra aðall. Enn fremur hafði það vakið athygli mína, að ég hafði lítið heyrt um það rætt, að einn væri síðri öðrum — eða einn öðrum fremri. . . En hvað var þetta? Ég reik- aði fram og aftur um hríð, og ég stóð og glápti. Mér fannst ég nefnilega aldrei hafa séð líkari myndir eftir sex málara heldur en málverk þessara abstraktsnillinga — sumar myndir Kristjáns Davíðsson ar þó að nokkru sérstæðar. Ef þeir voru að mála sinn óháða innri mann, þá voru þeir merkilega eðlislíkir og ekki ósvipaðir því að vera ljósa- skjóttir — eins og bóndanum sýndist málverk Sölva Helga sonar af eilífðinni, og liggur beint fyrir að svara mér eins og Sölvi svaraði bóndanum. En hvað sem öðru leið: Þessir málarar voru ekki frumlegir hver fyrir sig — heldur þá sem heild, og þeirri frum- leikans heild virtist mér hann einnig tiiheyra, hinn státni fulltrúi hins andlega armóðs, sem hér sýndi og talaði í fyrra — og meira að segja: Mig minnti, að ég hefði séð myndir af einhverjum útlend um málverkum, sem þessi skilgetin frumleikans börn minntu mig afarmikið á, var engu líkara en þessar myndir væru undan þeim erlendu. Og um leið og þetta flögraði að mér, duttu mér í hug hinir rauðu kúahópar, sem ég hafði séð á Sjálandi, en þar var hver kýr svo annarri lík, að ég sá engan mun. Eina bót in, að kýrnar voru hver ann- arri fallegri. Nú, jæja, þegar maður var kominn að þess- ari niðurstöðu um málverk- in, þá fór manni ekki að finn- ast það neitt undarlegt, þó að maður hefði ekkert um það heyrt, að einn málarinn væri öðrum snjallari — eða lak ari. Ég settist niður, horfði, hvorfði — reyndi að ljúká sem vandlegast upp mínum hugarkynnum fyrir áhrifum listarinnar, snéri baki í Gunn ■laugi og Snorra og v&r engan veginn á þeim buxunum að girnast kattarkvikindi kon- unnar, sem listahendur Sig- urjóns Ólafssonar höfðu form að. Já, ég reyndi að ryðja burt hvers konar tregðu, reyndi að ganga fyrir bý hina heilbrigðu skynsemi, sem eftir skýrri yfirlýsingu Kjartans Guðjónssonar er hinn vesti f jandi heilbrigðrar listar og grunuð um að standa fyrir þeim illrændu njósnar- sveitum, sem spyrja: Hvað á þetta að vera? . . . En þetta var ekki til neins hjá mér. Engin áhrif frá nokkurri mynd — nema hvað syndir Kristjáns Davíðssonar, Smá- Ijón í prófíl og Barn, vöktu hjá mér hugsanir, sem ég held að varla geti talizt til list- rænna áhrifa, en að því mun ég víkja síðar. . . Og hvað svo? Jú, allt í einu óskaði ég þess — og var þetta inn- blæstri líkast — að tík, sem ég hafði átt fyrir nærfellt aldarfjórðungi, væri komin spillifandi — og þarna væri orðið fullt af sýningargest- um. Mér þótti ákaflega mikið varið í þessa tík. Hún var falleg, þrifin, vitur og við- kvæm. Ef hún heyrði falskan eða ruddalegan söng eða önn- ur afkáraleg hljóð eða sker- andi, þá settist hún niður og ýlfraði sárt, og þegar henni lét verst í eyrum, þá span- gólaði hún svo ámáttlega, að það var sem hún yrði að þola hið sárasta hugarstríð. Og nú var ég þarna allt í einu sann færður um það, að ef þessi itík hefði verið komin, þá hefði hún farið að spangóla, þegar hún hefði verið búin að horfa stundarkorn á myndir byltingaforkólfanna. Ef til vill hefði tíkardómurinn ork- að á einhverja sýningargest- ina eins og orð barnsins á fólk ið í skrúðgöngunni í ævintýr- inu Nýju fötin keisarans! . . . En það var nú steinhljóð í salnum, því að ég var orðinn þarna einn — Halldór Jónas- ■son frá Eiðum farinn og Gunn laugur Blöndal farinn — var ógurlega fljótur að átta sig á þessari sýningu, sá meistari. Já, ég var þarna einn og ut- anveltu — eins og myndir Gunnlaugs Schevings og Snorra — andspænis sex- mannasálinni, sem var að gera byltingu í íslenzkri list. Ég fór heim, og ég fletti sýn ingarskránni — ég fletti henn.i aftur og aftur, — en stund hrifninnar kom ekki. Svo las ég þá ritið Ssptember sýningin og skoðaði myndirn ar og sá talsverðan ytri mun á málurunum, því að þeir höfðu hvorki birt myndir, sem þéir hefðu málað hver af öðrum né sjálísmyndir. . . En í ritinu sá ég sitthvað, sem mér þótti sérkennilegt. Á blaðsíðu eitt las ég: ,,Mólarinn er ekki að leit- ast við að búa til konu, eitt- hvað, sem er alveg eins og kona, eða hvað sem kann að vera þinn táknræni grund- völlur undir verki hans. í kvöld klukkan 8,30. Aðgöngumiðasala frá kl. 2 í dag. Lækkað verð. Ný atriði. Nýjar vísur. DANSAÐ TIL KL. 1. SIMI 7104. Hann er að skaþa verk, sem iifir sínu eigin lífi eins og náttúran sínu, án þess að það þurfti að styðjast við neitt annað en sjálft sig. Athyglin beinist fyrst og fremst að því eina, sem skiptir verulegu máli, myndfletinum. . . . Lista maðurinn skapar náttúru, en líkir ekki eftir þeirri, sem er fyrir.“ Leturbr. eru allar eftir mig G. G. H. O, rétt — ég kem nánar að þessu síðar, en ég verð að láta strax í Ijós undrun mína yfir því, hvernig hinir hátt- virtu byltingarlistamenn geta búizt við stórbortnum byltingarárangri, þegar þeir stanga hvor annan, vantar auðsýnilega einn einráða byltingarforkólf — éða eru þessir forustumenn á vét-t- vangi andans ekki skarpari en svo, að þeim sjáist yfir hin ar hörmulegustu mótsagnir í málflutningi? Minnsta kosti segir svo í grein .þeirri, sem Þorvaldur Skúlason hefur þýtt eftir Christian nokkurn Zerves um list Picassos: ,,Að mála er fyrir mann eins og Picasso að hlusta á æðaslög lífsins, túlka þær kenndir, sem þau vekja hjá honum, koma öðrum til að skynja með sér. Svo lítilfjör legur hlutur er ekki til, að honum virðist hann ekki verð ugt viðfangsefni. Uppruna verka hans má ætíð rekja til hins séða, þess, sem snart til- finningar hans. Allt kemur eðlilega fram í verkum þessa manns, jafnt hlutir, sem ytri hræringar manneskjunnar og hugsanir.“ Mótsögnin mun vera nokk- uð augljós, en það er svo sem fleiri í ritinu, sem kemur svo kynlega fyrir, að ekki væri undarlegt, þó að þeir fyndu það, fyrr eða síðar, listbylt- ingarmennirnir, að ,,heil- brigð skynsemi lætur ekki að sér hæða“ — eins og forustu- spekingurinn Kjartan Guð- jónsson segir í grein sinni, bls. 3. Á sömu bls. sjáum við, að sízt er undarlegt? þó að . Þjóðviljinn sé reiður við Bjarna dómsmálaráðherra út af negra-jazzinum — því að ætla má að það sé í ráði hjá hinum byltingarsinnuðum myndlistamönnum að fá hing að nokkra mestu myndlistar- menn Ástralíublökkumanna, Bantúnegra, Zúlúkaffa, Hott- intotta og Búskmanna til þess að kenna við vísi að listhá- skóla. Kjartan Guðjónsson segir sem sé í stefnuskrárrit- gerð sinni: ,,Margar þær þjóðir, sem við köllum frumstæðar, standa okkur á mörgum svið- um Iangtum framar, ekki kvað sízt í listum.“ Haná nú! Þá segir sami list fræðingur — og leggst djúpt: „Hina fullkomnu andlits- mynd er hægt að fá með því að líta í spegil“. (Bls. 1.) En þar sem ekkert er mifmzt' á skopmyndir af mönnum, vantar hliðstæð sannindi, sem trúlega hefðu verið orðuð svo: Hina fullkomnu skopmynd af andliti sínu geta menn fsngið með því að líta í spé- spegil! Sami' höfundur getur þess, að'Eiríksjökull komist . ekki fyrir í einni stássstofu, og einnig minnist hann á það, að lis'tin eigi að vera hluti hins daglega lífs — og virðist það takmark listbyltingarmann- anna, að svo megi þetta verða. Að því marki stefna þeir þá. með listaverkunum, sem þeir sýndu á Septembersýning- unni! Framh. á 7. síðu. álþýðublaðið vantar fullorðið fólk og unglinga til blaðburðar í þessi hverfi: Seltjarnarnes Vesturgötu TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA. Alþýðubtaðið. Sími 4900.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.