Alþýðublaðið - 11.11.1947, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.11.1947, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 11. nóv. 1947. ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Alykfanir kirkjufundarins Tjarnarbíó: Hin nýja litkvikmynd LOFTS GUÐMUNÐSSONAR ISLAND verður sýnd í Tjarnarbíó í 6. skipti næstkomandi miðvikudag, fimmtudag og föstudag, 2 sýn- ingar á dag, kl. 5 og kl. 9. Myndin hefur inni að halda m. a.: Reykjavík, frá landbúnaðinum, síldveiðunum, íþróttum, Geysi, lax- og silungsveiðum, Heklugosinu og íslenzkar blómarósir. Hr. Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari og hljómsveit hans hefur leik- ið nokkur. íslenzk lög inn á plötu í tílefni af sýningu þessari, en að öðru leyti verða tilvalin útlend lög leikin á meðan á sýningunni stend- ur, ennfremur hljóðdrunur frá Heklugosinu o. fl. Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 1 alla dagana og kosta kr. 15.00 og 20,00. Sýningin stendur um 3 klukkustundir. 5 mín. hvíld verður á milli hvers þáttar. Rláa bókin 1947 PéSiir Haukur Nú er komin út Bláa drengja og ungl- ingabókin fyrir árið 1947. Hújn beitir Pétur Haukur og er eft'ir Torry Gred- sted, þann sama og skrifaði Klóa. Sagan af Pétri Plauk er óvenjulega góð unglingabók. Hún er í senn skemmtiileg, spenmandi og hcUbrigð. Þau eru óteljandi - ævintýrin, sem Pétur Hauikur og hestur- ■inn hams, Túin, og hundurinn bans, Taza, lenda í í byggðum oig öræfum Mongótíu, því að þar gerist sag-an. Ræminigjar myrða föður Péturs og einn verður hann að taka við stjórn á búi föður s'íns, verjast árás- um rærángja, berjast við villidýr og að lokum að hefna föður síns. Pétur Haukur er piltur að skapi ís- lenzkra drengja og þeir munu verða fljóíir að kynnast honum. Bláu bækurnar eru trygging fyrir góðum bókum. Bókfellsútgáfan. vegar þeir, sem því eru and- ALMENNUR KIRKJU- FUNDUR var haldnn hér í bænum dagana 2. til 4. þ. m. Guðsþjónusta fór fram kl. 10 árd. á sunnudag og pré- dikaði þar séra Helgi Kon- ráðsson frá Sauðárkróki. Þrír prestar þjónuðu fyrir altari. Funduiinn var settur í Fríkirkjunni kl. 1,30 af Ás- mundi Guðmundssyni pró- fessor. Aðalmál fundarins var leikmannastarf og sunnu dagaskólar og fluttu um það framsöguerindi séra Sigur- björn Á. Gíslason og Þórður Kristjánsson kennari. Kl. 5 prédikuðu aðkomu- prestar í öllum kirkjum og messustöðum bæjarins. Um kvöldiið flutti séra Valdimar Eylands erindi í dómkirkjunni um leikmanna starf Vestur-íslendinga. Mánudagsmorguniinn kl. 9 hóf fundurinn störf sín að loknum morgunbænum og hugvekju, er Brynleifur Tobíasson hafði sent fundin- um. Kosin var nefnd til að ganga frá tillögum um aðal- mál fundarins. Siðan hófust umræður um málið og stóðu allt til kl. 7. Að þeim lóknum voru samþykktar með sam- hljóða atkvæðum eftirfar- andi tillögur: 1. Hiinn almenni kirkju- fundur lítur svo á. að mik- ilvægt sé að samstarí eflist í öllum skólum landsins milli leikmanna og presta um kxiistilegt uppeldi barna og unglinga. Teiur fundurinn að bezta leiðin til þessa sé sunnudaga skólahald þar sem því verð- ur við komið og barnaguðs- þjónustur, enn fremur að sá siður verði tekinn upp á heimilunum og í skólunum að hafa þar guðræknisstund ir með börnunum þegar þess er kostur. Fundurinn leyfir sér að beina þeim eindregnu til- mælum til kirkjuráðs, að það fái hæfan mann til þess að ferðast um landið og leið- beina prestum og leikmönn- um í sunnudagaskólastarf- inu og um að koma upp kristlegum æskulýðsfélög- um á sem flestum stöðum. Skorar fundurinn á alþingi aðvei-ta fé til bess að greiða slíkum manni laun og ferða- kostnað, þar sem sunnudaga- skólar eru stórmikilvægur þáttur í kristilegu uppeldi hverrar þjóðar. Fundurinn telur eðlileg- ast að prestarnir hafi hver á sínum stað forgöngu og forustu í þessu starfi og vinni að því að fá áhuga- samt fólk í sóknum sínum itil starfsins. 2. Fundurinn þakkar þeim mönnum og félögum, sem hingað til hafa urmið að sunnudagaskólastarfinu og væntir samstarfs við þá á komandi tímum. Um kvöldið flutti Snorri Sigfússon erindi í dómkirkj- unni, er han nefndi „Hinn vígði þáttur“. Erindinu var útvarpað. Á síðasta degi kirkjufund ariins (þriðjud. 4. þ. m.) voru bornar upp og samþykktar efitirtaldar tillögur: I. Um þjóðkirkjuhúsið. Hinn almenni kirkjufund- ur vill hvetja alla presta og söfnuði landsins til þess að sameina krafta sína um þjóð kirkjuhússbygginguna og stuðla að þvi að húsið kom- ist sem fyrst upp. og þá fyrst og fremst með því að safna fé í þessu skyni. II. Um kirkjuleg mál á alþingi. 1. Hinn almenni kirkju- fundur skorar á alþingi að samþykkja frumvarp það um sóknargjöld, sem lagt verður fyrir þingið að til- hlutan kirkjumálaráðherra og biskups, þar sem sóknar- gjöld í landinu eru samræmd og sem jafnframt felur í sér ákvæði um sérstakt gja'ld til sameiginlegra þarfa- þjóð- kiirkjunnar. 2. Hinn almenni kirkju,- fundu.r beinir þeirri áskorun til ríkisstiórnarinnar, að hún samkvæmt þingsályktun frá síðasta alþingi leggi fyrir þetta þing frumvarp til laga um kirkjubyggingar, þar sem ákveðinn sé ríflegur styrkur úr ríkissjóði til kirkjubygginga í landinu, og beiti sér fyrir framgangi máls.ins. III. Flutningur Passíusálma í útvarpinu. Hinn álmenni kirkjufund- ur 1947 lætur í ljós ánægju sína yfir því, að Passíusálm- ar skulu lesnir í útvarp á föstunni. en óskar þess, að eftir lestur þeirri verði jafn- an stutt þögn í útvarpinu. IV. Um áfengismál. Hinn almenni kiirkjufund- ur telur að siðgæði og heil- brigði þjóðarinnar stafi al- vairleg hætta af hínni vax- andi áfengisnautn, og skorar á alþingi að gera nú þegar ráðstafanir til þess að draga úr áfengisneyzlu þjóðarinn- ar að verulegu leyti. V. Hvíldardagur sjómanna. Með því að hinn almenni kirkjufundur, háldinn í Reykjavik 2.—4. nóv. 1947, lítur svo á, að siómannastétt in eigi fullan rétt á sunnu- deginum sem hvíldardegi eins og aðrar stéttir þessa i lands, óskar funduirinn þess eindregið að skipstjórar og formenn í verstöðvum lands ins, þar sem dagróðrar eru stundaðir rói ekki til fiskjar að jafnaði á helgidögum þjóðkiirkjunnar. VI. Söngskóli þjóðkirkjunnar. Hinn almenni kirkjufund- ur, haldinn 2.—4. nóv. 1947, skorar á alþingi að sam- þykkja frumvarp það um söngskóla þjóðkirkjunnair, sem lagt var fyrir síðasta al- þingi, nú þegar á yfirstand- andi þingi. Að loknum morgunbæn- um, sem Þorv. Jón Júliusson annaðist, hófust umræður um þjóðk’irkjuhúsið. Biskup landsins gerði grein fyrir frumvörpum um kirkjumál eftir hádegið og flutti ávarp til fundarmanna undi r lok fundarins. Jón Arason flutti erindi um kirk.ju og knistin- dóm og danskur maður, Bykær Jörgensen, flutti er- indi um djáknaskólann í Ár- ósum. Stjórn Elliheimilisiins og Kvenfélag Fríkirk.jusafnað- arins veittu fundargestum miðdegiskaffi eiinn fundar- daginn hvor og síðasta kvöld sátu fundarmenn kveð.jusam sæti í húsi K.F.U.M. Urmræður urðu miklar á fundunum og snerust þær að nokkru um boðskap kirk.j- unnar. Stóðu annars vegar þeir, sem vilja halda sér viið kenningargrundvöll evang- elisk-Iútherskrar kirkju. eins og hann kemur fram í játn- ingarritum hennar og hins ví£iir. í undirbúi íingsnefnd næsta kirkjufundar voru kosnir þessir menn: Frímann Ólafs- son, Jóhannes Sigurðsson, Ólafur Ólafsson, séra Sigur- b.jörn Á Gíslason, séra Sig- urjón Guðjónsson, Steingrím ttr Benediktsson og séra Þorgrímur Siigurðsson. Samtíðin, nóvemberheftið, er komin út og flytur þetta efni: Flug er tím ans krafa eftir ritstjórann. Mold (kvæði) eftir Björn Þ. Þórðarson. Merkir samtíðar- menn (með myndum).' Fyrsti viðkomustaður (framhaldssaga). Nærræn fræði erlendis síðan 1939 eftir Jón Belgason prófes sor. Þá skrifar Sigurður Skúla son ritstjóri tvær greinar: Vel- sæmi — eða svartur markaður og: Enginn heiftarhugur til ís- lendinga. Enn fremur eru mann lýsingar, bókafregnir, skopsög- ur o. m. fl.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.