Alþýðublaðið - 28.11.1947, Síða 1
Veðurhorfur:
Þykknar upp með sunnan
og suðaustan kalda.
ASþý'öublaSáð
vantar unglinga til að bera
blaðið til fastra kaupenda.
XXVII. árg.
Föstudagurinn 28. nóv. 1947
279. tbl.
UmtalsefniÖ:
Hirni nýi kosingasigur
brezka Alþýðuflokksins.
Forustugrein:
Krafan um Grænland.
íi á kjörstað.
Myndin var tekin, þegar Vmcent Auriol Frakklandsforseti
skilaði atkvæðaseðli sínum við bæjar- og sveitarstjórnar
kosningamar á Frakklandi nú fyrir skömmu.
Heíur kafbátagirðingin eyðilagí
síldarnæíur á Hvalfirði?
---------------*-------
Fiskiþingið skorar á vitamáSastJórnina
að hreiosa vírafSækjur úr firðinum.
SKIPSTJÓRAR SÍLDARSKIPANNA telja, að kaf-
bátagirðingu þeirri, sem lagt var í Hvalfirði á striðsárun-
um, hafi verið slepþt á botn fjarðarins, og enn fremur
kvarta þeir yfir margvíslegum víraflækjum á botni fjarð-
arins. Hefur mál þetta verið tekið fyrir á fiskiþinginu, og
hefur það gert ályktun til vitamálastjómarinnar um að
hreinsa botninn á Hvalfirði hið bráðasta.
Fer ályktun fiskiþingsins
hér á eftir:
,,í>að hefur komið í ljós
nú undanfarið að margvís-
'iegar víraflækjur eru li-ggj-
andi á botni Hvalfjarðar og
segja sumir síldveiðiskip-
stjórar, að sleppt hafi verið
á botninn kafbátagirðingu
þemri; sem gerð var í Hval-
firði á styrjaldarárunum.
Ýms síldveiðiskip hafa misst
legufæri og orðið fyrir fleiri
spjöllum af víraflækjium
þessum.
Fyrir því skorar fiskiþihg-
ið á vitamálastjóirnina að sjá
um að botn Hvalfjarðar
verði hreinsaður svo fljótt
sem unnt er og ljós verði sett
á baujur þær, er sýna leið
um fjörðinn. Þetta hvoru-
tveggja er mesta nauðsynja
verk vegraa yfirstandandi
síldveiða og væntir fiski-
þinígið, að bætt verði úr
þessu hið bráðasta“.
Verkfallið á Finnlandi
að leysast?
NOKKRAR HORFUR voru
taldar á því í gærkvöldi, að
samkomulag myndi nást í
nótt milli ríkisstjórnarinnar
finnsku og verkfallsmann-
anna úr hópi opinberra starfs
manna, en verkfall þetta á
Finnlandi hafði í gær náð til
50 000 manns.
Það var ríkissáttasemjar-
inn á Finnlandi, sem beitti
sér fyrir fundi fulltrúanefnd-
ar verkfallsmanna og Pekkala
forsætisráðherra, en vonir
stóðu til, að þar yrði fundinn
grundvöllur til samkomulags.
Stjórnin mun hafa hugsað
sér þann möguleika, að
kveðja verkfaillsmennina til
þjónustu í varahernum, ef
verkfallið héldi áfram en
þar með væru þeir komnir
undir herlög.
Aukakosningarnar á Bretlandi:
Sigurvegari hylitur.
Richard Ackland, sem vann
aukakosninguna í Gravesend
Hélt glæsilega velli í Gravesend í Kent,
þrátf fyrir samfylkingu andstæðinganna.
------------------------^----------
Stjórnin sterkari meöal aSþýðy en
nokkry sinni áðor.
---------e----------
AUKAKOSNINGAR í Gravesend i Kent urðu nýr
sigur íyrir brezku jafnaðarmannastjórnina, þar eð
frambjóðandi Alþýðuflokksins hlaut kösningu, þrátt
fyrir samfyikingu ands-tœðiinganna og mjög harða
kosn ingabaráttu. Hefur brezki Alþýðuflókkurinn því
enn engu kjördæmi tapað í samtals tuttugu aukakosn-
ingum, en slikt er algert einsdærni í brezkri stjórn-
málasögu.
Gravesend var kjördæmi
Garry Alleghans, sem svipt-
ur var þingsæti sínu fyrir
skömmu, eftir að vera fund-
inn sekur um að hafa gefið
upplýsingar um umræðar og
ákvarðanir þhigflokksfundar.
Við aukakosningamar hlaut
Sir Richard Ackland; fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins,
24692 atkvæði, en Frank Tay-
lor, frambjóðandi íhalds-
flokksins, fékk 23017 atkv.
Alþýðuflokkurinn bætti
við sig í Gravesend 3000 at-
kvæðum frá því við kosning-
arnar 1945, en íhaldsfíLokkur-
inn bæfti við sig 8000 atkv.
Frjálslyndi flokkurinn bauð
ekki fram við aukakosning-
arnar og hafði kosninga-
bandalag við íhaldsflokkinn.
Við kosningarnar 1945 fékk
Alþýðuflokkurinn 7000 at-
kvæða meirihluta fram yfir
Ihaldsflokkinn í Gravesend.
Kosningabaráttan í Grav-
esend var mjög hörð, og var
í sambandi við hana brotin sú
venja, að ráðhernar hefðu
ekki afskipti af aukakosn-
ingum, þar eð Harbert Morri-
son, varaforsætisráðherra og
málsvari stjómarinnar í
neðri málstofu brezka þings-
ins, tók af hálf-u Alþýðu-
flokksins þátt í fundarhöld-
um í kjördæminu fyrir kosn-
ingarnar.
Engin lausn á verk-
föllunum í
Frakklandi..
VERKFÖLLIN í Frakk-
Iandi halda emi áfram, og tek
ur nú hálf önnur milljón
manna þátt í þeim. Hefur
stjóm franska alþýðusam-
bandsins’ hafnað málamiðlun
ríkisstjómarinnar, en alls-
herjaratkvæðagreiðsla um
hana innan verkalýðsfélag-
anna hófst í gær og er talið,
að um sex milljónir muni
taka þátt í henni.
- Robert Schumann forsæt-
isráðherra flutti útvarps-
ræðu í gær og skoraði á verk
fallsmenn að hverfa þegar í
HINN NÝI MNGMADUR stað aítur 111 vinnu- Lýsti
brezka Alþýðuflokksiiis, Sir áaraa yfir því, að ríkisstjóm'
in væri fús til að bæta kjör
verkamanna og annarra laun
Kent tók sæti í neðri mál-jþega með auknum trygging-
stofu brezka þingins i gær.
Þingmenn Alþýðuflokksins
hylltu hinn nýja þingmarm
ákaít, þegar hann gekk til
sætis síns í þingsalnum, hróp
uðu fagnandi og veifuðu
vasaklútum. Þykir þetta
sýna, að þingmenra hafi lagt
mjög mikið upp úr auka-
kosningum þessum.
um, hækkuðum eftirlauraum
til fyrrverandi hermanna og
hækkuðum launum almennt
að vissu marki. Stjórn
franska a lþ ý ðusa mband sins,
en kommúnistar eru þar í
meirihluta, neitaði í gær að
fallast á málamiðlun stjóm-
arinnar, en ríkisstjórnin
Framhald á 2. síðu.
21 í
fyrir 6 milljónir í nóvember.
ÞAÐ SEM AF ER nóvembermánuði hafa 28 íslenzk
skip selt afla sinn í Bretlandi fyrir rúmlega sex milljónir
króna. Fyrri helming mánaðarins eða til 14. seldu 14 skip
fyrir 115 464 sterhngspund, og hefur sölu þeirra áður verið
getið, og síðan. hafa 14 skip selt fyrir samtals 114 308
sterlingspund.
SIGUR FYRIR
STJÓRNINA
Úrsht aukakosninganna í
Gravesend þykja mikill sig-
ur fyrir brezku jafnaðar-
mannastjómina, þar eð fram-
Framhald á 2. síðu.
Söluhæsta skipið síðasta
hálfan mánuð var Kaldbak-
ur, nýbyggingartorgari Akur
eyringa, seldi haran fyrir
11829 pund.
Sölur togararana, sem hafa
eftir 14. þessa mánaðar hafa
annars verið sem hér segir:
Venus 3735 kit, 10049 pund.
Ingólfur Arnarson 3561,
8941 pund. Egill Skallagríms
son, 4670, 11605 pund. Bjarni
Ólafsson, 5121, 10736 pund.
Skutull, 2555, 5555 pund-
Faxi, 2035, 5555 pund. Elliði
2147, 5442 pund. Júní, 2829,
7442 pund. Kaldbakur, 4541
11829 pund. Vörður, 4677,
11815 pund. Haukanes, 2352,
6857 pund. Júpiter, 4245,
8336 pund. íslendingur, 942,
2181 pund. Snæfell, 2524,
7638 pund.
í gærdag kom Askur af
veiðum með fullfermi og var
hann með 280 tunnur af lif-
ur. Enn fremur kom Ingólfur
Arnarson frá Englandi.