Alþýðublaðið - 30.07.1948, Qupperneq 4
®iMudágur '30. ij#í> 1-948.
Útgeíandl: Alþýðuflokkurtnn.
Bitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedibt Gröndal
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsmgasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
f Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðnprentsmiðjan h-f.
Nýju bæjðríbúðimar
við Lönguhiíð.
SMÍÐI nýju bæjaríbúð-
anna við Lönguhlíð er nú
svo langt komið, að séð þyk
ir, hvert kostnaðarverð
þeirra muni verða og að á-
kvöxðun hefur verið tekin
um ráðstöfun þeirra; þær
verða seldar með svipuðum
skilmálum og bæjaríþúðirn-
ar við Hringbraut á sínum
tíma. En hvílíkt verð! Við
kaup á þriggja herbergja í-
búðunum verður að greiða
út í einu 70 000 krónur, síð-
an 780 krónur mánaðarlega
í tíu ár og 358 krónur mánað
arlega eftir það; en við kaup
á tveggja herbergjaíbúðun-
um verður að greiða út í
einu 53 000 krónur, síðan
520 krónur mánaðarlega í
tíu ár og 310 krónur mánað-
arlega eftir það.
*
Þetta eru of dýrar íbúðir
ttil þess að fullnæ^ja þeim
tilgangi, sem hið opinbera á
að hafa með íbúðabygging-
um sínum: að ráða sem bráð
asta bót á húsnæðisvandræð
um hinna efnaminnstu. Það
þýðir í því sambandi ekkert
að vitna í hinn mikla mynd-
arbrag, sem á þessum íbúð-
um er, eins og borgarstjór-
inn gerði á bæjarstjórnar-
fundi í fyrradag. Efnalítið
eða efnalaust fólk getur blátt
áfram ekki keypt þessar íbúð
ir og bundið sér þá lítt bæru
bagga, sem þær mýndu
verða fyrir það.
Það er ekki þar með sagt,
að hið efnalausa fólk væri
ekki vel að því komið að fá
hinar beztu íbúðir. En það
er óhjákvæmilegt bæði fyrir
það og hið opinbera að sníða
sér stakk eftir vexti; og svo
dýrar íbúðir, sem nýju bæj-
aríbúðirnar við Lönguhlíð
eru engin lausn á húsnæðis-
vandræðum þess. Það er
ekki á slíkan hátt, sem bær-
inn á að byggja, ef hann
vill eiga skjótan og áhrifa-
rikan þátt í því að xáða fram
úr húsnæðisskortinum.
*
Nágrannaþjóðir okkar,
sem enginn muin saka um
neinn ómyndarskap eða um
vöntun á vilja til þess, að
búa betur en áður að hinu
efnaminna fólki, byggja ekki
'svona „flolt“, þegar um það
er að ræða að bæta úr bráð
um húsnæðisskorii; þær
taka meira tillit til fjárhags
legrar getu bæði fólksins,
sem á að fá íbúðirnar, og
hins opinbera, sem sér að
meira eða minna leyti um
byggingu þeirra; og tekst þó
með hagsýni að gera þær
bæði þægilegar og vistlegar;
og þar að auki verður þeim
meira ágengt _í baráttunni;
gegn húsnæðisskortinum, af
því að þær byggja ódýrari
Verðum við ekki að treysta sérfræðingxmum?
En ef þeir skrökva — Flugáætlanir til Noregs
Veghefill á Þingvallavegi.
GOXT OG VEL. Maður getur
ekki annað en trúað sérfræð-
ingunum — og ef maður hefur
rangt fyrir sér að þeirra áliti,
þá er ekki annað en að slíðra
sverðið og bíða, láta reynsluna
skera úr. En guð hjálpi þeini
seinna, ef þeir hafa sagt manni
rangt um málið. Þá munu bæði
þeir, borgarstjórinn og fleiri fá
orð að heyra bæði hér hjá mér
og frá öðrum.
ÉG HITTI nefnilega hinn á-
gæta mann Svein Einarsson
verkfræðing og síldarverk-
smiðjuforstjóra frá Hjalteyrar-
verksmiðjunni, sem sér víst um
uppsetningu nýju síldarverk-
smiðjunnar í Örfirisey. Hann
sagði, að ég og aðrir þeir, sem
óttuðust að ólíft verði fyrir ó-
lykt og sóðaskap hér eftir að
verksmiðjan tekur til starfa í
eynni, hefðum algerlega á röngu
að standa.
HANN SAGÐI að engin ólvkt
myndi berast frá verksmiðj-
unni, ekki snefill, sagði hanu.
Þetta verður ekki til neins
miska fyrir Reykvíkinga. Það
verður unnið úr öllu og það
verður ekki einu sinni neinn
reykur. Það er ný uppfynding
og ég veit að þið, sem eruð á
móti verksmiðjunni af þessum
sökum á þessum stað, sjáið eftir
orðum ykkar eftir á, þegar
reynslan hefur afsannað ykkar
mál.
EITTHVAÐ LÍKT sagði borg-
arstjórinn við blaðamennina
núna einn daginn og hann hefur
náttúrlega talað fyrir munn
Verkfræðinganna, því ekki hef-
ur hann meira vit á þessu en ég.
En er þá nokkur skömm að því
fyrir mig að treysta sérfræðing
unum fyrst hann treystir sér til
þess, sá ágæti maður, sem vill
ekki lengur vera þingmaður, en
arfleiðir kaupmann í Stykkis-
hólmi að sæti sínu, sem raunar
verður aðeins á listanum, en
ekki á alþingi?
ÞAÐ ER KVARTAÐ undan
því við mig, að flugfélögin skuli
ekki hafa einhverjar fastar á-
ætlunarferðir til Noregs. Hvers
vegna eru fastar áætlunarferðir
til Prestvíkur og Kaupmanna-
hafnar, en ekki til Noregs? spyr
bréfritari minn. Að vísu er ein-
staka sinnum farið til Garder-
moen, en hvers vegna er ekki
líka farið til Sólaflugvallarins
við og við? Ástæðan fyrir þess-
um spurningum er sú, að við-
komandi þurfti að fara til Nor-
egs, heimsækja veika móður
sína, sem á heima í grennd við
Stavanger, en hann fékk ekki
gjaldeyri — og vegna þess að
hann gat því ekki borgað far-
seðilinn frá Gardermoen til Sta-
vanger með járnbrautinni, varð
hann að hætta alveg við förina.
JÁ, ÉG VEIT að þetta hefur
verið bagalegt. En af sömu á-
stæðu væri hægt að spyrja
hvers vegna flugfélögin hefðu
ekki stundum áætlunarflugferð-
ir til Bromma. Það er ekki hægt
að krefjast neins af flugfélögun-
um í þessu efni. Þau verða að
haga áætlunum sínum eftir hag
fyrirtækja sinna. Þau geyma nú
fjöregg og verðá að fara var-
lega. Annars finnst mér það líka
undarlegt, ef bréfritari hefur
ekki á einhvern hátt getað
bjargað sér með fé eftir að vera
kominn til Ósló til að komast til
Stavanger. Brautarferð er ekki
svo dýr á þessari leið.
BIFREIÐARSTJÓRI segir í
bréfi, að það sé ófært hvernig
menn á vegheflunum vinni um
þessar mundir á veginum til
Þingvalla. Hann segir að núna
einn daginn eða eina nóttina
hafi veghefill skafið veginn öðr-
um megin alla leið frá Svana-
stöðum og austur að Valhöll.
Vegurinn var stórhættulegur,
enda fór vörubifreið út af og
hvolfdi. Vita og allir hve veg-
urinn er mjór. Væri ekki réttara
að taka styttri leiðir í einu og
ganga frá þeim til fullnustu?
Skemmfiferð F.U.J. fil
Þórsmerkur um heígina.
EINS og kunnugt er, hefur
Félág ungra jafnaðarmanna
efnt til margra skemmtiferSa
í sumar. sem allar hafa verið
fjölmennar.
Um verzlunarmannahelg-
ina efniy það til ferðar inn á
Þórsmörk og er ekki að efa
að þetta verður skemmtileg
ferð, þar sem Þórsmörk hef-
ur upp á margt að bjóða og
reynslan hefur sýnt að ferðir
féíagsins hafa verið mjög vin
sælar.
Allar nánari upplýsingar
um ferðina eru gefnar í skrif
stofu félagsins. sími 5020. Fé
lagar isem ætla að taka þátt í
ferðinni eru beðnir að hafa
samband við skrifstofuna í
síðasta lagi fyrir kl. 5 í dag
þar sem fararkostur er mjög
takmarkaður og færri munu
komast með en vilja.
íbúðir, — og geta þess vegna
byggt svo tilitölulega miklu
fleiri.
Þetta veit bæjarstjói'nar-
meirihlutinn. enda mátti
heyra það _á borgarstjóran-
um á bæjarstjórnarfundlim,-
um í fyrradag, að honum er
það Ijóst, að fara verði inn
á einhverjar aðrar leiðir til
þess að sigrast á húsnæðis-
vandræðunum í Reykjavík,
en þær, sem farnar hafa ver
ið við byggimgu h-inna dýru
bæjaríbúðahúsa við Löngu-
hlíð og við Hringbrauit. Gat
hann þess, að verið væri að
athuga -nýjar og hagkvæm-
a-ri leiðir til þess að ná því
marki, og er vondandi, -að sú
athugun beri tilæ-tlaðan ár-
angur. En áreiðanlega veltur
í því efni ekki hvað minnst
á því, að hætt verði allri ó-
þarfaeyðslu á húsrúmi og
efni og meiri samhæfing
verði upp tekin við íbúða-
húsabyggingar., en h-ingað til
hefur verið tíðkuð hér á
landi. ,
Til áskrifenda
A l þýðublaðsins
Afgreiðsla Alþýðublaösins vill áminna fasta
kaupendur blaðsins að láta þegar í stað vita, í
símum 4900 eða 4906, ef blaðið kemur ekki
til þeirra með góðum skilum. Á síðari árum
Iiefur reynzt mjög erfitt að fá samvizkusöm
börn til blaðburðar og er því samvinna við
kaupendur mikils virði fyrir afgreiðsluna, svo
að hægt sé að sjá, hverjij- bera vel út og hverjir
illa. Ef kvartað er, verður blaðið sent til kaup-
\
enda samdægurs.
ÞAKKAROED.
Hjartanlega þakka ég öllum þeirn vinum og vanda-
mönnu-m og öðrum, s-em glöddu mig á einn: eða annan
hátt við áttræðisafmæli mínu. — Guð blessi ykkur öll.
Herdís Magnúsdóítir, Kárasííg 13.
Margf er nú fil í mafinn.
Feit og stór bleikja, sjóbirímgur og lax.
SALTFISKBÚÐIN,
Hv-erfisgötu 62. — Sími 2098.
FISKBÚÐIN,
Hverfisgötu 123. — Sími 1456.
Hafliði Baldvinsson.
Færri forusf en búizf
var við í Ludwigs-
hafen.______
FÆRRI miunu hafa fa-rizt í
Ludwigshafen -en í fyrstu var
áætlað, og er nú la'Itaennt
-gizkað á 50—150 manns, en
fyris't eftir sprenginguna var
talið, að ran 600 hefðu látið
lífið. Tjónið varð -gífurlegt og
mun' -um 80 % af veilk-smiðju-
by-gginigum I.G. Farbem hlafa
lagst í rúst. Ilerlið og björgun
unarsveitir frá fransfca og
am-erísfca hernámssvæðinu
vinna iað því að hreinsia til í
rústunum.
37 farasf í fveim
flugslysum.
37 MANNS fórust í gær í 2
flugslysum. Annað þeirra varð
'hjá Buenos Aires í Arig'entinu,
þar sem 18 fórust og fjórir
særðnst, -er flugþáti hvolfdi.
Hitt slysið varð í Kína, en þair
fórust 19, er flutningaflugvél
hrapaði við flugvöl'l.
law( áður Breslau) í Póllandi
og mun sýning þessi verða
opin til enda september n.k.
Á sýningunni eru sýndar
allar helztu framleiðsluvörur
Póllands, is. s. iðnaðarvörur,
landbúnaðarframleiðsluvör-
ur, byggingavörur o. fl.
Allar nánari upplýsingar
varðandi sýniraguna eru veitt
ar á skrifstofu konsúlatsins,
Austurstræti 12. Reykjavík.
Pólsk vörusýning
PÓLSKA KONSÚLATIÐ
vill vekja athygli viðkom-
andi á þ\»í, að um þessar
mundir stendur yfir pólsk
vörusýning í borginnii Warc-
Gjafir og áheif til
S.Í.B.S. 3
AÐ UNDANFÖRNU hafa
eftirtaldar gjafir borizt S. í.
B. S.: Gjöf 'kr. 100 00. Gjöf
kr. 37,00 frá J. ísfeld. Áheit:
100 kr. frá G. I., Garði, 100
frá ónefndum, 50 frá B. B.,
100 frá K. K„ 25 frá M. J„ 50
frá S. 15 frá Ingibjörgu Ás-
mundsdóttur, 100 frá N. N..
5 frá Þ. J„ 100 frá K. G„ 100
frá G. O. 10 kr„ 20 kr. gamalt
áheit.
Rúmurhefmingur
hafsíld.
I '
UM ÞAÐ BIL 60% síldar
innar, sem veiðzt hefur und-
arsfarna daga fyrir norðan er
hafsíld, en fyrst í sumar var
síldin, sem veiddist svo að
isegja eingöngu millisíld og
vorgotssíld. Þykir þessi aukn
ing hafsíldarinnar í síldar-
magninu benda ti.1 þess betra
en alvarlega þótti horfa í vor,
er hafsíldin fannst ekki.