Alþýðublaðið - 05.08.1948, Side 7
Fimmtudagur 5. ágúst 1948.
ALÞÝUUBLAflií)
7
Félagslíf
Ferðafélag
íslands
ráðgerir að fara
8 daga skemmtiferð
au'stur í Horn'afj örð -og verðair
floigið þangað. Ferðast verður
um Hoxtniafj örðiilnni og farið
au'stuir í Almanniaskarð og í
Lónið. Þá verðiur haldið vest-
ur íendilangar Skaf'tiafie'lfesýsil-
ur á ibíilíuim og hesitum. Dvalið
í Öræfum í niofckra idiaga. Far-
ið yfir Slk'eiðará á jöfcl! en á
bílum yfir sandinn og baldið
að K'lausfcri og dvalið þair ieinn
dag cg. isíðan itil Reyikjavifcur.
Líklega verður lagt af stað 11.
þ. m. Ásikriffcairliisti liggur
fraamni í iskriifstofunini í Tún-
göfu 5 og nánari upplýsinigar
gefnar.
,i. Reykjanes
frá Antwierpen 12. þ. m.
Frá Amst'ei'dam 14. þ. m.
Einarsion, Zoega & Co. hf
Hafnarbúsinu.
Símar 6697 og 7797.
fer í dag til Færeyja og Kaup
mannabafnar. Farþegar eiga
að koma 'um borð .ki. 6 síðideig-
is, og. vera þá búniir að láta
itollskoða faranigur sinn í
Tollbúðinni.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN.
(Erlendur Pétursson).
Ungverjalands.
SZAKAZITS, formaður
hins nýstofnaða sameiningar
flokks kommúnista á Ung-
verjalandi, var á mánudaginn
kjörinn forseti Ungverja-
lands í stað Tildy, sem sagði
af sér í vikunni sem leið.
Enginn annar var í kjöri og
var Szakazits kosinn í einu
hljóði.
Einn af fréttariturum
brezka útvarpsins lét svo um
mælt. að kjör Szakazits í for
setaembættið væri launin
fyrir þjónustu ha,ns við kom
múnista.
Framhald af 5. síðu.
nú að hrinda henni í fram-
kvæmd. Þeir framkvæma til-
tölulega meiri þjóðnýtingu á
fyrstu tveim valdaárum sín-
um en kommúnistar í Rúss-
landi á fyrstu tveim valdaár
um sínum, svo að fullyrðingar
um. að ekki sé hægt að
hrinda í framkvæmd þjóðnýt
ingu með lýðræðisaðferðum,
ættu ekki að heyrast lengur,
og þá vissulega ekki heldur
getsakir um, að jafnaðarmenn
vilji í raun og veru alls ekki
þjóðnýtingu.
En vilji bæði jafnaðarmenn
og sósíalistaflokksmenn koma
á hagkerfi jafnaðarstefnur.n-
ar, og séu einhverjir eða marg
ir sósíalistaflokksmenn sarn-
mála Á. S. um, að það eigi
að gera ,,á grundvelli hins
borgaralega lýðræðis", hvað
skilur þá þessa men.n og okk-
ur jafnaðarmenn?
Rétt er að geta þess, að inn
án Sósíalistaflokksins virðist
nokkur hópur m^nina, sem
vii'ðist trúa á ,,hið borgara-
lega lýðræði“ til framkvæmd
ar sósíalismanum og skilja ó-
metanlegt gildi þeirra félags-
legu verðmæta, sem lýð-
ræðinu er tengd. Skoðununi
þessara manna er þó haldið
algerlega niðri í flokknum,
og það telst til algerra und-
antekninga, að nokkur þess-
ara sósíalistaflokksmanna
hafi kjark til þ-ess að láta slík-
ar skoðanir í ljós. Jónas Har-
alz hagfi'æðingur sýndi slík-
an kjark fyrir skömmu með
því að lýsa í grein í Þjóðvilj
anum fullri hollustu við ,-lýð
ræðið og óskoraðri virðingu
fyrir mannréttindum ]>ess,
og því jafnframt, að hann
hafi aldrei verið hrifinn af
stjórnarfarinu í Rússlandi. Og
Á. S. lýsir í umræddri grein
yfir fylgi sínu við. að sósíal-
isminn verði á íslandi fram-
kvæmdur ,,á grundvelli hins
borgaralega lýðræðis“. Þejr,
sem hafa trú á ,,hinu borgara-
lega lýðræði“ til framkvæmd
ar sósíalismanum og skilja
gildi þeirra mannréttinda,
sem því fyigja, eru á öndverð
um meiði við leiðtoga Sósíal
isíaflokksins, hvað snertir
eitt helzta meginatriði stjórn
málanna, þeir viðurkenna. að
Alþýðuflokkurinn hafi verið
klofinn 1930 vegna rangs
málsstaðar. viðurkenna að
kommúnisíaflokkurinn hafi
haft rangt fyrir sér í samn-
inguniun 1937—38, en A1
þýðuflokkurinn rétt, afneita
sjálfri meginröksemdinni fyr
ir tilveru og starfi kommún-
istiskra flokka og einu meg-
inatriði heimsbókmennta
kommúnismans, — og eiga
því í raun og veru alls ekki
heima í Sósíalistaflokknum,
heldur í Alþýðuflokknum,
þeir hafa villzt inn í Sósialista
flokkinn og láta blekkjast til
þess að vera þar kyrrir.
Svo er þess að geta, að
þótt Sósialistaflökksmenn
lýsi yfir fylgi sínu við „lýð-
ræði“, er rétt að gjalda nokk-
unx varhug við. Þeir kunna
að eiga við allt ar.nað með
.,lýðræði“, en aðrir menn. Og
jafnvel þótt lýst sé yfir trú
á „borgaralegt lýðræði“, eins
og Á. S. gerir, væntanlega til
þess að hann verði ekki vænd
ur um að telja íslendinga full
sæmda af „austrænu lýð-
ræði“, er ekki víst, að fullur
skilningur á eðli lýðræðisins
liggi aC baki. Og Á. S. verð-
ur einmiU á að sýna, að hann
brestur skilning á, í hverju
lýðræði sé fólgið. því að hann
mefnir valdatöku kommún
ista í Tékkóslóvakíu sem
dæmi um valdatöku eftir lýð
ræðisaðferðum og að unn-
um meiri hluta þings og þjóð
ar! !
Það er ekki lýðræði í
Tékkóslóvakíu, frekar en það
er lýðræði í Rússlandi eða
öðrum nágrannaríkjum þess
í Austur-Evrópu. Það er ekki
lýðræði í þessum löndum
vegna þess, að menn hafa
þar ekki skilyrði til frjálsrar
stjórr.málastarfsemi, flokkar
hafa verið leystir upp og
bannaðir, stjórnmálamenn
hafa verið fangelsaðir vegna
skoðana sinna og jafnvel líf-
látr.ir. þar er engin stjórnar-
andstaða leyfð, þar er ekk-
ert pei'sónulegt réttax'öryggi,
menn eru fangelsaðir án
dóms og laga, þar er ekki
prentfrelsi, ekki félagafrelsi.
ekkert andlegt frelsi, þar
heyrist engin rödd önr.ur en
sú, sem ríkisvaldið vill að
'heyrdst -eða er sama, þótt
heyrist, því að völd þess yfir
lífi og limum borgaranna eru
algjör. Og valdatakan í Tékk
óslóvakíu var .ekki lýðræðis-
leg sökum þess. að hún varð
með tilstyrk vopnaðra „fram
kvæmdanefnda“, fangelsana,
baixns á blöðuin og margs
konar ofbeldis.
Hér er komið að mergi þess
máls, hvað nú fyrst og fremst
skilur jafnaðarmenn og
kommúnista, hvað svo sem
þöir kunna að kalla flokk
sinn. Kommúnistar halda nú
ekki eins hátt á lofti og áður
þeirri kenningu sinni, að vald
bylting sé nauðsynleg og ó-
hjákvæmileg, þótt * hinar
gömlu skoðanir þeirra á því
séu vafalaust óbreyttar, enda
er þeim ekki afneitað. Þeir
telja ,nú heppilegra. að lýsa
yfir fylgi við „lýðræði“. En
þegar rökrætt er við þá um,
hvað sé lýðræði, kemur í ljós,
að þeir leggja allt annan
skilning í það hugtak en yfir
leitt hefur verið gert í Vest-
ur-Evrópu, frá því að hugtak
ið fór að skipta verulegu
máli, og eru allar rökræður
af þeirra hálfu um þessi efni
mjög þokukenndar. En þegar
raunveruleikinn er tekinn
sem mælikvarði á „lýðræðis“-
hugtak þeirra. *er niðurstaðan
skýr og greinileg. Þeir telja
að það sé ,,lýðrseði“ í Rúss-
landi og Austur-Evrópulönd-
unum yfirleitt. og þeir telja,
að valdataka kommúnista-
flokkanna í Austur-Évrópu,
nú síðast í Tékkóslóvakíu,
hafi verið algjörlega „lýð-
ræðisleg". Það stjórnarfar,
sem kennt hefur verið við ein
ræði. kalla þeir nú „lýðræði“,
þær valdatökuaðferðir, sem
kenndar hafa verið við of-
beldi. telja þeir nú „friðsam-
Iegar“, það sem hingað til
hefur verið nefnt, kúgun
kalla þeir nú .frelsi“, það,
sem hingað til hafa verið
r.efndar ofsóknir, -,nefna þeir
nú ,,réttargæzlu“, ritskoðun,
nefna þeir nú „ritfrelsi". Það
er með þessu móti, sem
kommúnistar hafa gerzt á-
hangendur -,lýðræðis“- og
„frelsis“, m. ö. o. með því að
hafa endaskipti á öllum hug
myndum um þessi efni. Þann
ig verður virðing fyrir „lýð
ræði“ og ,,frelsi“ samrýman
leg hinum gömlu skoðunum
um valdbeitingu og byltingu.
Það er fjarri mér að halda
því fram, að allir þeir, sem
telja sig til Sósíalistaflokks-
ins, aOiiy _list í raun og veru
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát
Guðmundar A, J. ÞérSarsonar
skipstjóra.
F. h. vandamanna.
Sigríður Thordersen.
vantar ungling til blaðburðar í
Laugarneshverfi.
þessar umsnúnu hugmyndir.
þetta gerfilýðræði og þetta
gerfifrelsi. En hin opinbera
afstaða Sosíalistaflokksins og
málgagna hans sýnir, að hann
er enn sem fyrr trúr og trygg
ur í kommúnistiskri afstöðu
sinni. Það er komið svo skýrt
í ljós, að tími er vissulega
kominn til þess fyrir þá. sem
ekki aðhyllast gerfilýðræðið
og gerfifrelsið að segja skil-
ið við þennan flokkk.
Á. S. hneykslaðist á því, að
ungir jafnaðarmenn skyldu
hafa skipað mynd af Karli
Marx veglegan sess á þingi
sínu. Það er eins og hann telji
fullvíst, að Karl Marx hefði
skrifað undir hvert orð. sem
kommúnistar hafa skrifað og
sagt, síðan hann dó, og lagt
blessun sína yfir sérhverja
gerð þeirra.
Karl Marx skrifaði ýmis-
legt um frelsið á sínum tíma.
Þeir, sem nú dá ,,lýðræðið“
og „andlega frelsið" í Austur
Evrópu — og halda sig geta
gert það í nafni Karls Marx
— ættu að kynna sér t. d.
skrif hans um gildi prer.t-
frelsis. í maí 1842 birti hann
greinaflokk í ,Rínarblað-
inu“, þar sem hann segir m.
a.:
oFrjáls blöð eru hið sí-
vakandi auga almennings-
álitsins, þau eru grund-
völlur að sjálfstrausti þjóð
arinnar, þau eru hin tal-
andi tengsl milli einstak-
lingsins aimars vegar
og ríkisins og um-
heimsins hins vegar. Þau
eru andlegur spegill, þar
sem þjóðin getur skoðað
sjálfa sig. og að þekkja
sjálfan sig er fi'umskilvrði
allrar vizku“.
,-Ritskoðun hefur spill-
ingu í för með sér. Löstur
lastanna, hræsnin, er óað-
skiljanlegur förunautur
hennar. Ríkisstjórnin heyr
ir aðeixxs sína eigin rödd.
Hún veit það, en hún tel-
ur sér trú um, að það sé
rödd almennings. og krefst
þess, að þjóðin leggi líka
trúnað á þá blekkingu.
Meðal almennings grípur
hins vegar um sig hjátrú í
stjórnmálum eða vantrú,
ef hann þá missir ekki all
an áhuga á opinberum mál
um og verður að einkahags
munaskriT1.
Hvernig er háttað frelsi
blaðanna í Austur-Evrópu?
Er þar kannske engin ritskoð
un? Eða hefur eðli ritskoð-
unar breytzt eitthvað síðan
á dögum Karls Marx?
Það fór vel á því, að ung-
ir jafnaðarmenn skyldu hafa
mynd af höfundi þessara
framangreindu ummæla, á-
samt mynd af Jóni Baldvins-
syni. þar sem þeir héldu síð
asta þing isitt. Jón BaÍdvins
son hefði getað tekið undir
hvert orð í þessum ummæl-
um. En skyldu leiðtogar Sósí
alistaflokksins geta það?
Skyldu þeir geta það í sömu
andránni og þeir lofsyngja
andlega ófrelsið og ritskoð-
unina í Austur-Evrópu?
Gylfi Þ. Gíslason.
norræns
æskulýðs dagana
2.-7. ágúst.
SUMARMÓT norræns
æskulýðs verður haldið í
Grunndtvigs Höjskole í Hill-
eröd 2. — 7. ágúst. Búizt er
við að þangað komi 200—300
norræns æskufólks, og niunu
flestir þátttakendurnir verða
í þjóðbúningum. Þarna verða
fluttir nokkrir fyrirlestrar
um menningarmálefni. söng-
skemmtanir, hljómleikar og
ferðalög um .nágrennið. Foi’-
stöðu þessa móts hefur Nord-
iske Kvinders Samarbejdes-
komité.
hafa borizt 400 mál af þrem.
Þær fréttir hafa borizt af mið
inum, að síld hafi sést á
Skjálfandaflóa og noi’ður af
Tjörnesi, og einnig nokkrar
torfur sunnan Langaness.
Lesið Álþýðublaðið!