Alþýðublaðið - 09.04.1949, Page 6

Alþýðublaðið - 09.04.1949, Page 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ Laugardagur 9. apríl 1949. I „Hótel N. N.“ til lengdar, •— fleiri uppástungur, þér orðhögu menn! Hótelið verður að fá glæsilegt nafn, — upp á land- kynninguna. EITT LÍTIÐ VORDIKT Samkvæmt myndskreyttri morgunblaðsfrsgn er lóan nú loksins komin og samkvæmt þjóðsögn sannar koma hennar að veturimi sé liðinn og vorið komið. Og í norðanélinu geng ég brosandi götur mínar og þegar haglkornin særa hörund mitt brosi ég gleitt og hvísla fagnandi: „Æ, þetta ólukkans ekki sen mýbit — — —“ því að lóan er komin samkvæmt myndskreyttri morgunblaðsfregn. Leifur Leirs (poet meterol.) HÓTEL N. N. Alltaf eru mér að berast bréf með uppástungum að nafni Keflavíkurhótelsins, enda má með sanni segja, að ekkert vandamál sé nú jafn aðkallandi með þjóð vorri og þessi hótel- skírn. Þakka ég öll þessi bréf, en þau skipta hundruðum. Langflestir stinga upp á nöfn- unum „Hótel Vík“, ,-HóteI Keflavík“ eða ,,Hótel Annes“, en svo hafa einnig borizt uppá- stungur eins og „Hótel Hali“, — sem er öldungis ófært, þar eð það minnir um of á ..hala- negra“, sem westmenn að minnsta kosti hafa lítið álit á, sumir hverjir; „Hótel Þjóð- vörn“, sem er snoturt nafn, fer vel í munni, hefur á sér hug- sjónablæ og væri mjög vel fall- ið til notkunar í auglýsinga- skyni; — og svo eru önnur, sem eru langsóttari að merkingu, eins og til dæmis , Hótel Hreiðr- ið“, en bréfritari telur það nafn einkar táknrænt, þar eð flestír gestirnir muni verða eins konar farfuglar. Einhvér skortur á glæsileik finnst mér samt vera við þetta nafn, enda gæti það orðið til þess. að sá dómur íesíist. við gestina, að þeir væru hálfgerðir fuglar. i En ekki getum við notast við ' BRIDGEMÓT Þessa dagana stendur yfir Bridgemót mikið í bænum. Eigast þar við sveitir mestu „spilafífla“ hér í bæ og auk þess úr helztu kauptúnum landsins. Eru þar sett íslands- met á hverjum degi eins og í sundhöllinni, og sjálfsagt líka eitthvað af veraldarmetum. enda þótt þess sé ekki getið vegna þess íþróttayfirlætisleys- is, sem jafnan einkennir okkur. Verður keppni þessari haldið áfram unz einhver sveitin fær tvo tígulkónga í spilið, og á sú sveit, sem fær þá, að fljúga til Parísar og taka þar þátt í keppni, unz tveir Gaular gera vart við sig. Að fengnum tveim tígulkóngum hér, halda hinar sveitirnar áfram, unz einhver þeirra fær tvo laufagosa, og fer sú sveitin til Færeyja og spilar þar síðan við neggvana. þar til „grindin kemur“ í spilið. Að sjálfsögðu verður þessi spilamannautanför íslandi og íslendingum til hins mesta sóma og frábær landkynning. Fróðir menn spá því, að ekki komi til mála annað en okkar menn sigri frönsku spilafíflin eins og að drkeka, enda hefur það löngum þótt sannað mál. að vér stæðum öllum öðrum þjóð- um framar að hvers kyns fíflsku. Þá verður það og ekki ónýtt „upp á landkynninguna“, þegar fararstjórar taka að fræða franska fréttamenn á því, að til forna höfum vér ver- ið svo mikil spilafífl. að spil- endurnir hafi spilað sjálfa sig í kaf, og að enn séum við það magnaðir í fíflskunni, að allt útlit sé fyrir, að afkomendum hinna fornu , garpa“ takist að hnekkja metinu og spila þjóð- ina gervalla á slíkt bólakaf, að met verði talið, enda séu nú tígulkóngarnir í þjóðarspilinu orðnir legíó, — og gosarnir þó snöggtum fleiri. Hvað við segj- um Færeyingum er annað mál. Að minnsta kosti verður það að vera öðruvísi orðað. til þess að þeir telji það fréttir, — þeir þekkja okkur, neggvarnir. Útbrelðið Mþýðublaðið! Vicki Baum = HOFUÐLAUS ENGILL margt að sjá af þakinu á hinu látlausa heimili okkar, því að þaðan sást þar sem tvær ár mættust og brúin yfir þær, sem öll umferð til og frá námunum Iá yfir. Lífið á þjóðveginum, sólin á götuhellunum, blómin, turnarn ir, trén, dýrin, fólkið; mennirn ír í skinnfötum sínum. Drukkn ir námumenn á laugardags. kvöldum, sem hölluðu sér hver upp að öðrum til stuðnings. MúLrekarnir og múldýrin, töfr andi ungir menn í aðskornum jökkum, hnepptum silfurhnöpp um, og þröngum buxum, að sýna hestana sína. Hermennirn ir á hestbaki, í fylgd með lest um,-sem voru að flytja silfur, og þeir voru mjög hermannleg ir með háar einkennishúfur og Ieðurreimar undir hökunni. Og lengra níður með veginum, veit ingahúsin og krárnar, alveg eins og klippt út úr bók eftir Miguel Cervantes, í bókasafni föður míns, grísirnir sofandi í dyrun um, svo að ferðamennirnir urðu að stíga yfir þá, skáhallir geisl ar sólarinnar í húsagörðunum, hnakkarnir hangandi við dyrn ar, og inni fyrir sungið eða bar izt, eða gömul kona var að skammast eða maður að bölva. Lyktin, hljóðið og allt, sem var að sjá á þessum vegi til og frá, heimsins ríkustu námum, ó það líf á þessum vegi sætleiks og silfurs, ó það ljóta, daunilla, óhreina og þó dásamlega, auð uga líf, sem aldrei gleymdist. Þarna upp frá, handan vegar ins, gnæfðu hinar vingjarnlegu blámáluðu svalir La Rosauru. Á daginn var það rólegast af öllum húsum, en á kvöldin var það lýst upp með þrem fögrum koparljósum, og hljómlist og söngur barst stundum upp í her bergið til mín, þar sem ég gat ekki sofið vegna þess að Felipe var þar uppi. Það var skiljan legt, að jafnvel nú, þegar svona var komið fyrir okkur, mátti ég aldrei stíga fæti mínum þang að upp. En La Rosaura kom oft að heimsækja mig, oftar og oft ar eins og Felipe dvaldi fleiri og fleiri nætur í húsi hennar. Hún kom stikandi niður brekk una og bar fílabeinsstafinn sinn glæsilega, með hið glott,. andi andlit Cocos í hendinni, fremur vegna fordildar en til stuðnings, hún var eins og stærð ar fjall, en létt á fæti eins og hraust ung sveitastúlka. Aldrei kom hún inn í litla húsið okkar svo, að hún væri ekki með eitt hvert gamanyrði á vör, bros_ andi, eða færði mér einhverja gjöf. „Mig langaði að sjá þig, Neuita Linda“, var hún vön að segja. „Það er orðinn ávani hjá mér að sjá þig, verri en að reykja eða drekka. Ef ég sé ekki einhverja ögn af þér um hádegið á hverjum degi verð ég alveg eirðarlaus". Þetta var sagt af einskærum g'óðvilja, af þeim hæfileika, sem Goethe mundi hafa kallað hæ_ versku hjartans. Því að vafa_ laust var það ég, sem var ein_ mana og eirðarlaus. „Góður guð á himnum“, sagði hún oft. „Hvað þú ert falleg í dag, barn. Ég vildi að ég væri karlmaður — en svo, ef ég væri karlmaður, þá yrði ég að hengja mig, því að þú ert alltof trú þessum blessuðum Felipe þínum. Svona, lofaðu mér nú að setja svolítinn lit á kinnarnar á þér —■ og hérna, ég kom með þessa knipplinga pjötlu. Ég hef ekkert að gera með hana, segi ég þér satt. Hvernig heldurðu að þessi knipplingapjatla líti út á mín um barmi?“ „Þakka þér fyrir, Rosaura, þakka þér kærlega. Það líður ekki svo dagur, að ég þurfi ekki að þakka .þér fyrir eitt hvað“. „Por nada“, sagði hún alltaf. „Það er ekkert“. Hún færði mér ávexti og fugla, blóm og lyf, rauðar ger aníur, körfu fulla af stórum, nýjum kalkúnseggjum, vín_ flösku, uppskrift á sérstökum spönskum rétti, sem Felipe hafði talað um, og hún lét mér fúslega í té af nægtum vizku sinnar og reynslu. „Hann Felipe þinn — slær hann þig? Berst hann við þig? Það er gott. Það er góðs viti. Það. bezta, sem þú getur kosið. Karlmenn eru skrítnari en ap ar. Mér geðjast vel að karlmönn um, en það er mín trú, að guð hafi skapað þá vegna þess að hann hafi langað til að skapa skepnu, sem hann gæti hlegið að. Að taka karlmann alvar_ lega, er sú mesta skyssa, sem nokkurn getur hent. Ég er að tala um karlmenn, barn. Ástin — það er dálítið annað. Ástin er það alvarlegasta, sem til er, og líka það fágæt.'-.sta, þú elsk ar Felipe þinn, þú elskar hann enn þá, er að ekki? Og hann? Já, ég er viss um að liann elsk ar þig eins mikið og áður, þrátt fyrir allt —“ sagði hún oft, og svo starði hún á mig og gegnum mig, og bros hennar hvarf og stóra andlitið á henni varð eins og myndin framan á leiktjöldunum í leikhúsinu í Weimar. „Hvers vegna gerirðu þér svona mikið far urn að ég haldi ást Felipes?" spurði ég hana einu sinni. „Hvað snertir það þig? Hvað er ég þér? Og hvað er hann nema viðskiptavinur þinn?“ „En barn, skilurðu ekki? Ég hef séð svo mikinn hórdóm um mína daga og tekið þátt í hon um sjálf. Það verður erfitt fýr ir mig, þegar ég kem á fund Sankti Péturs og bið hann um að hleypa mér inn í himnaríki. „Þú saurlífa fitubákn", mun hann segja við mig, „þú, sem hefur breytt út sjúkdóma, þú, sem hefur auðgazt á syndinni, þú gagnslausa óbyrja, sem hef ur spillt mönnunum, er ekkert, sem þú getur sagt þér til máls bóta?“ Og þá ætla ég svara honum: „Kæri herra Sankti Pétur, dyravörður himnaríkis, vissulega hef ég unnið eitt góð verk, þótt ég sé skepna og sið_ laus, þá gat ég alltaf þekkt sanna ást, hvar, sem ég sá hana, og ég igerði .allt sem í mínu valdi stóð til að bjarga henni og vernda. Og þar sem ég var hóra, eins og þú réttilega kall ar mig, þá var ég kannske enn betur til þess fallin að gæta hennar og vernda, heldur en nokkur af þínum flekklausu, kvnlausu, daufgerðu og alger_ lega óreyndu englum, gæti hafa gert, amen“, og þá getur verið að Sankti Pétur leyfi mér að koma inn.“ S s Jóns Baldvinsonar forseta ^ ÍMinningarspjðld tfást á eftirtöidum stöðum:^ ^ Skrifstofu Aiþýðuflokksins. • ^Skrifstofu Sj óm annafélags ? SReykjavíkur. Skrifstofu V. r S K.F. Framsókn. Alþýðu- ^ Sbrauðgerðinni Laugav. 61, ^ Si Verzlun Valdimars Long-, SHafnarf.. og hjá Sveinbirm S jOddssyni, Akranesi. . S MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSINS: ÖRN ELDING

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.