Alþýðublaðið - 11.05.1949, Side 8
Gerizt áskrifeodiir
eð Áif>ýSubiaSioy*
Alþýðublaðið iim á hvert
heimiii. Hringið í síma
1900 eða 4908.
Miðvikudagur 11. maí 1949.
Böro og ynglingar,
Komið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ )
Allir vilja kaupa
ALÞÝÐUBLAÐIÐ j
pio m
Björgunarbáturinn Þorsteinn
smiojuna oroi
1 m:
FKUMVARPIÐ um áburðar-
verksmiðju ríkisins var sam-
þykkt meS 11 samhljóSa at-
kvæSum á furidi efri deiidar
alþingis í gær og bar með af-
greitt, sem lög frá alþingi.
Samþykkti efri deild frum-
varpið óbreytt eins og það
kom frá neðri deiíd, en þar
hafði Finnur Jónsson borið
fram við það nokkrar breyt-
ingartillögur, sem samþykkt-
ar voru, og varð efri deild
því að taka frumvarpið til
meðferðar á ný.
manna í Hýju Psil
HÁLF MILLJÓN flótta-
inanna hefst við í hreysum og
hellum í grennd við Nýju
.öelhi á Indlandi og á við mikla
örbirgð aS búa.
Stjórnarvöldin hafa til
þessa séð flóttafólkinu fyrir
mát, en nú hefur verið ákveð-
ið að hætta matgjöfunum í
þeirri von, að flóttafólkið
dreifi sér þá um landið og taki
upp arðbær störf. Er á það
bent, að mikii hætta stafi af
þessu fólki, þar eð heilbrigði
þess sé mjög ábótavant og þess
megi vænta, að það beri með
sér skæða sjúkdóma, jafnvel
drepsóttir.
Þriggja ára drengur
ÞRIGGJA ÁRA gamall
drengur, Ragnar Jón Péturs-
son, Bollagötu 1, fékk happ-
drættisbifreið Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga, en
dregið var í fyrradag. Númer-
Lð, sem vinningurinn kom á,
var 48436.
é Háloga-
andi sýnd í Ólafs-
vík.
A -! If
ORUSTAN Á HÁLOGA-
LANDI var frumsýnd í Ólafs-
vík síðastliðinn laugardag og
þótti leikurinn takast með á-
gætum. Leikurinn er fcýndur
til ágóða fyrir félagsheimili,
og gangast stúkurnar og ung-
mennafélagið. fyrir sýningu
leiksins. Leiðbeinendur eru
þau hjónin Þorgils Stefánssón
og Ingibjörg Hjartardóttir, en
jafnframt leika 'þau bæði.
Aðrir leikendur eru: ungfrú
Ingunn Ölafsdóttir, Magnús
Jónsson, Ottó Árnason, Jóna-
tan Sveinsson og Bárðuí
Jenssoa.
Þessi mynd var tekin af Þorsteini, björgunarbáti Slysavarna-
félags íslands, utan við Réykjavíkurhöfn. Þorsteinn Þorsteins-
son skipstjóri í Þórshamri og kona hans gáfu hann upphaflega
slysavarnafélaginu, og var sú gjöf fyrsta stórgjöfin, er því
barst. Þorsteinn hefur nú aðsetur í Reykjavík, en var áður í
Sandgerði. Nýlega bjargaði hann tveimur drengjum, er höfðu
hrakizt út í Akurey.
Ávarp íil Reykvíkinga írá
varnadeildinni Ingólíi
SLYSÁVARNA- OG BJÖRGUNARMALEFNI ÍSLENZKU
ÞJÖÐAEINNAR eru mál, sem alla varða og enginn getur látið
afskiptalaus.
Það eru nú liðin 20 ár síðan Slysavarnafélag íslands hóf
starfsemi sína. Alþjóð er kunnugt, hvert starf þess hefur verið.
Það starf hefur fært þjóð okkar meiri blessun en orð fá lýst.
Hundruðum manna hefur það orðið bein lífgjöf, og það hefur
flutt birtu og yl inn á fjölda heimila.
Svo sem kunnugt er, samanstendur Slysavarnafélag ís-
lands af stórum hóp manna, karla og kvenna, ungra og gamalla,
sem hafa það höfuðmarkmið að verja samborgara sína slysum
og bjarga þeim, er í lífshættu lenda. í þessum tilgangi hafa
verið stofnaðar ekki færri en 145 félagsdeildir víðs vegar um
landið, og hafa margar þeirra sýnt frábæran áhuga og fórn-
fýsi félaganna vegna hins góða málefnis, og mun nú um 20%
af þjóðinni vera skráðir félagar.
Viljið þér hjálpa okkur til að stuðla að því, að Reykjavík
verði ekki eftirbátur og að sami árangur náist hjá okkur hér
í höfuðstaðnum og annars staðar, en eins og stendur er félaga-
talan að hundraðshluta hærri úti um land. Öll mikil viðfangs-
efni verða aðeins leyst og framkvæmd á einn veg, með sam-
tökum, þannig að allir leggist á eitt. Hver er það hér í Reykja-
vík, sem ekki vill vera með að leiða slysavarnastarfsemina
fram til sigurs? Hjálpið okkur til að fá hvert einasta manns-
barn á heimili yðar í Slysavarnafélagið, hvert -einasta manns-
barn í húsinu — í bænum.
Slysavarnadeildin Ingólfur býður alla velkomna, sem vilja
ganga í félagið og rétta fram örvándi hjálparhönd fyrir slysa-
varnamálefnin.
Með fyrirfram þakklæti og beztu félagskveðjum.
Stjórn slysavarnadeildarinnar „Ijigólfs", Reykjavíli.
110 blaðsíður í svipuðu broti
LeiSarvísir i raektun- > °§ársrit féiagsmS hefw -ver-
og maijuriarækt
GARÐYRKJUFÉLA.G ÍS-
LANDS hefur gefið út leiðar-
vísi um ræktun matjurta, er
nefnist Matjurtabókin, og
kemur út í ár í stað ársrits
félagsins, sem það hefur gef-
ið út að undanförnu. Bókin er
i ið, og prýdd fjölda mynda, en
, töflur fylgja til skýringar.
Þeir Halldór Ó. Jónsson,
Ingimar Sigurðsson, Ingólfur
Davíðsson, Ragnar Ásgeirsson
og Sigurður Sveinsson sáu um
útgáfu bókarinnar, og skrifa
flesta kafla hennar, en auk
þeirra skrifa þeir Jóhannes
Nielsen og dr. Júlíus Sigur-
jónsson sinn kaflann hvor.
í>etta er eio af ráðstöfyotin 11 m til þess
að Siægt sé að ]afna halla f|arIagaona.
MEIRIHLUTI FJÁRHAGSNEFNDAR NEÐRI DEILDAR
flytur að ósk ríkisstjórnarinnar frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu, en
samkvæmt því verður kjötuppbótin takmörkuð að allmiklti.
leyti frá Jiví, sem nú er. Segir í greinargerð frumvarpsins, aS>
ráðstöfun þessi sé nauðsynleg til þess að unnt verði að afgreiða
fjárlögin greiðsluballalaus.
Þeir, sem ekki hafa rétt til*~ " ‘
niðurgreiðslu á kjöti sam-
kvæmt frumvarpi þessu eru:
þeir, sem hafa landbúnað að
atvinnu að einhverju leyti; at-
vinnurekendur, sem hafa 3
menn eða fleiri í þjónustu
sinni; þeir, sem fá laun greidd
að nokkru eða öll leyti með
fæði, og þeir, sem hafa hrein-
ar tekjur, sem nema persónu-
frádrætti margfölduðum með
2,5 eða meira, eins og hann er
reiknaður á hverjum tíma. Séu
hreinar tekjur lægri en þetta,
en þó ekki þeim mun lægri
sem niðurgreiðslunni nemur,
skal borga hluta hennar unz
tekjurnar að viðbættri niður-
greiðslu nema 2,5 sinnum per-
sónufrádrætti samkvæmt
framansögðu.
Frumvarp þetta kom til
fyrstu umræðu á fundi neðri
deildar alþingis í gær, og
fylgdi Jóhann Jósefsson fjár-
málaráðherra því úr hlaði.
Benti hann á það, að nauðsyn-
legt væri, að ríkissjóði væru
íryggðar auknar tekjur, ef af-
greiða ætti fjárlagafrumvarp-
ið greiðsluhallalaust. Lög þessi
skulu öðlast gildi þegar í stað,
en ákvæði þeirra verða lögð
til grundvallar við útreikning
og framkvæmd niðurgreiðslna
frá 20. september 1948 að telja.
SÆNSKA kvikmyndaleik-
konan Ingrid Bergman er hætt
við að hafa mannaskipti og
farin frá Kómaborg heim til
Bandaríkjanna ásamt mannl
sínum dr. Lindström.
Samtímis því sem Ingrid
Bergman hélt af stað flugleið-
is heim til Bandaríkjanna x
fylgd með manni sínum til-
kynnti hún Roberto Rosselini
kvikmyndastjóranum ítalska,
að hún væri hætt við að leika
í kvikmyndinni, sem hann var
byrjaður að taka, og hún ætl-
aði að leika aðalhlutverkið í.
Hins vegar lýsti hún yfir því,
að hún myndi greiða sinn
hluta af kostnaðinum við
myndatökuna fram að þeina
tíma, sem samvinnu þeirra
Rosselini var slitið.
Nýi Lagarfoss fór
reynsluför á mið-
vikudag.
KHÖFN, 4. maí.
KLUKKAN RÚMLEGA
ÁTTA í MORGUN lagði nýi
Lagarfoss af stað í reynsluför
út í Eyrarsund.
Meðal gesta voru Jón
Krabbe sendifulltrúi, Dithmer
framkvæmdastjóri Burmeister
& Wain, Jón Guðbrandsson
framkvæmdastj óri, Hallgrím-
ur Benediktsson alþm., vara-
formaður stjórnar Eimskipa-
félags íslands, Jóhann G.
Möller framkvæmdastjóri,
Martin Bartels bankafulltrúi,
heiðursfélagi íslendingafélags-
Lns í Kaupmannahöfn, frétta-
menn útvarps og blaða o. m. fl.
Lagarfoss er þriðja farm-
skipið, sem B. & W. byggir
fyrir h.f. Eimskipafélag ís-
lands síðan stríðinu lauk, og
er jafnstórt hinum tveimur,
Dettifossi og Goðafossi.
Skipstjóri á skipinu er Sig-
urður Gíslason, 1. stýrirnaður
Bertel Anaréss jn, sem var
Fimm handlangarar
nazisla skotnfr í
í Kaupmannahöfn
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í gær.
FIMM handlangarar nazista,
sem dæmdir höfðu veri'ð til
dauða, voru skotnir á þviðju-
dagsmorguninn, og var þeirra
á meðal Jörgen Lorenzen, for-
ingi Lorenzensflokksins svo-
kallaða.
Fimmtán aðrir me'ðlimir
flokksins voru dæmdir í ævi-
Langt fangelsi. Orðrómur er
uppi um, að Popp Madsen,
fyrrverandi skrifstofustjóri,
dómsmálaráðuneytisins, og
Sehested hirðveiðimeistari
verði náðaðir í tilefni af ald-
arafmæli grundvallarlaganna,
en um það hefur enn ekkert
fengizt staðfest.
HJULER. '
skipstjóri á gamla Lagarfossi,
2. stýrimaður Birgir Thorodd-
sen, 1. vélstjóri er Jón Aðal-
steinn Sveinsson, loftskeyta-
maður Einar Bjarnason , og
bryti Jón Bjarnason.
Klukkan 15,30 var íslenzki
fáninn dreginn að hún og
Dithmer framkvæmdastjórx
afhenti skipið. __]