Alþýðublaðið - 09.07.1949, Side 4

Alþýðublaðið - 09.07.1949, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Laugardaguriim 9, júlí 1949. Úígefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan hX ÞEGAR ALÞÝÐUBLAÐIÐ benti á dögunum á þann dæma lausa skrípaleik bæjarstjórn- aríhaldsins í Reykjavík, að samþykkja fyrst í bæjarstjórn að leita fjárfestingarleyfis hjá fjárhagsráði fyrir byggingu 200 nýrra bæjaríbúða, en láta svo flokksmenn sína í fjár- hagsráði koma í veg fyrir, að fjál'festingarleyfi fengist fyrir nema 100 íbúðum, varð sem vonlegt er lítið um vörn hjá Morgunblaðinu og öðrum mál- svörum þess. Það varð helzt fyrir, að láta Birgi Kjaran, annan fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í fjárhagsráði, sem nú gegnir formannsstörfum þar í fjarveru Magnúsar Jóns- sonar, skrifa borgarstjóralanga og loðna greinargerð um af- greiðslu málsins í fjárhagsráði, þar sem það var að vísu viðuv- kennt, að þeir Magnús hefðu báðir beitt sér gegn því, að fjáríestingarleyfi yrði veitt fyrir nema 100 íbúðum, en reynt var að afsaka það með því, að þeir hefðu ekki vitað, að fulltrúi Alþýðuflokksins í ráðinu, Óskar Jónsson, hefði verið reiðubúinn til að sam- þykkja fjárfestingarleyfi 'fyrir 200 nýjum bæjaríbúðum fyrr en atkvæðagreiðslu um málið var lokið og Óskar lét bóka yfirlýsingu þar að lútandi. Með þessari afsökun hugði bæjarstjórnaríhaldið sig geta þvegið sig hreint og róað Reykvíkinga, sem í pólitísku skrumauglýsinga skyni höfðu verið vaktar vonir um óvenju- legt átak til þess að bæta úr húsnæðisvandr'æðunum í höf- uðstaðnum. En nú hefur bæjarstjórnar- meirihlutinn misst einnig af þessu hálmstrái eftir yfirlýs- ingu þá, sem Óskar Jónsson birti í Alþýðublaðinu á mið- vikudaginn varðandi af- greiðslu málsins í fjárhagsráði. „Það er rangt hjá Birgi Kjaran“, segir Óskar í yfirlýs- ingu sinni, „að honum hafi ekki verið kunnugt um af- stöðu mína til umsóknar Reykjavíkurbæjar, um að fá að byggja 200 bæjaríbúðir, áður en málið fékk fulln- aðarafgreiðslu í fjárhagsráði. Sannleikurinn er sá, og það veit Birgir Kjaran fullvel, að áður fen atkvæðagreiðsla fór fram . . . lýsti ég þeirri bók- un, sem ég sagðist óska að fá bókaða að lokinni atkvæða- greiðslu. . . Með því að lesa upp þessa bókun áður en atkvæða- greiðsla færi fram um tillögu formanns (um 100 búðir) vildi ég kanna, hvort fyrir hendi væri óskir um fleiri íbúðir handa Reykjavíkurbæ, en svo virtist ekki vera, þótt hægð- arleikur hefði verið að taka frest í málinu, þar sem yfir- lýsing mín bar það skýlaust með sér, að ég myndi geta fall- izt á fleiri bæjaríbúðir, ef ósk Um bulina í úívarpinu. — Beðið um breyíingu. — Blaðalesandi segir blaðamönmtm íil syndanna. 4 FRÁ HLUSTANÐA hef ég fengið eftirfarandi bréf. „Um langt skeið virðist Ríkisútvarp- ið hafa verið á hrakhólum með þuli. Pétur Pétursson, bezti þuíurinn, sem starfað hefur við útvarpið frá iipphafi, hefur ver- ið fjarverandi mjög Iengi, og er, að því að sagt hefur verið veik- ur erlendis um þessar mundir. Jón Múli hefur annast sitt þul- arstarf og er allt gott um það að segja, því að hann er ágæt- ur þulur, þó að hann hafi ekki eins hreina rödd fyrir útvarp og Pétur. EN Á MÓTI HONUM hafa starfað, auk Ragnars Árnason- ar, sem er mjög sæmilegur þul- ur, ýmsir aðrir, sem hafa haft það að starfi undanfarin ár að flytja morgunfréttir, en ekki að stjórna aðaldagskrá. Engir þess- ara manna eru góðir þulir og sumir alveg ófærir. RÍKISÚTVARPIÐ VERÐUR að ráða í sína þjónustu sæmileg- an þul til þess að taka við starfi Péturs meðan hann er fjarverandi. Það er hægt að þegja við því, þó að ýmsir komi fram í skyndilegum forföllum. En þegar bezti þulurinn.er for-, fallaður svo mánuðum skiptir, þá verður að ráða sæmilagan þul í staðinn fyrir hann. Voná ég nú að útvarpsmennirnir all- ir, sem undanfarið hafa setið á ráðstefnum erlendis, fái nú tíma til að athuga þetta mál strax“. BLAÐALESANDI SKRIFAR. „Ég hef verið að hugsa um það, hvernig ég ætti að fara að því að komá dálitlu á framfæri við blöðin, sem snertir þau sjálf. Útkoman varð sú að, að snúa mér til þín, af því að, þú færð orfr fyrir að vera frjálslyndur. (Takk) Ég les blöð mikið, en alltaf kvíði ég fyrir efni þeirra á sumrin. Ég er lenginn íþrótta- hatari, langt frá, mér þykir meira að segja gaman að ýms- um íþróttum. En mér þykir ekki gaman að blöðunum á sumrin þegar þau eru að einum fimmta eða jafnvel einum fjórða, íþróttafréttir. ÞETTA HEFUR VERIÐ afar slæmt undanfarið, svo slæmt, að ég hygg að nú hafi blöðin sleg- ið öll met. Ég fer ekki í sam- jöfnuð milli blaðanna um þetta, því að þá myndir þú kannské ekki birta bréfið, en öll eru þau slæm og' má varla á milli sjá. Íþróttaíréttir eru einmitt þann- ig lagað efni, að það má og á, að þjappa því saman, en svo virð- ist að mörg blaðanna leg'gi ein- mitt áherzlu á að flenna þetta út eins og þau geta. ÞAÐ TEKUR ÞÓ út yfir all- an þjófabálk þegar birtir eru margir dálkar um íþróttamót upp í afdal þar, sem bezta af- rek er að lilaupa 100 metrana á 12 sekúndum og þar fram eftir götunum. Ég tala nú ekki um það, þegar birtir eru kannske tveir dálkar um úrslit í kappreiðum einhvers staðar í fjáranum. Það er mikill mis- skilningur hjá þeim blaða- mönnum ,sem halda að lesend- um þyki gaman að svona kjaft- æði. Ég vænti þess að þeir sjái að sér. Eg' vil segja að það sé eitthvað bogið við þá ritstjóra, sem leyfa svona efni í blaði sínu“. ÞARNA FENGU BLAÐA- MENNIRNIR þetta í höfuðið. Erlendis er talað um þurrka- tímana í blaðamennskunni. Og þeir koma allt af á surnrin. Þá koma upp sögurnar um vatn- skrímslin og sjóormana og allt það, og hér virðast íþróttirnar og kappreiðarnar koma í stað- inn. En þetta er alveg rétt hjá „Blaðalesanda". „Hannes á horninu. Siátlur hófst í s.l. viku í Eyjafirði. SLÁTTUR hófst í síðastlið- inni viku sums staðar í Eyja- firði og í Holtakoti í Ljósa- vatnshreppi, að því er blaðið Alþýðumaðurinn á Akureyri skýrir frá. Grasspretta er nú mjög ör á túnum nyrðra, þar sem kal er ekki til skemmda, en svo er því miður allvíða, til dæmis í Svarfaðardal, Mývatnssveit og Bárðardal. Öllum kennurum er heimil þátttaka í kveðju samsæti, sem haldið verður norsku kennur- unum í Tjarnarcafé á þriðju- daginn og hefst kl. 8,30, þátt- taka tilkynnist í síma 5378. um það ltæmi fram, og þá fyrst og.fremst frá þeim, er ríkasta skyldu höfðu til þess að gæta hagsmuna byggingarmála Reykjavíkurbæjar“. Eftir þessa yfirlýsingu Ósk- ars Jónssonar má segja, að fokið sé í flest skjól fyrir þæj- arstjórnaríhaldinu í þessu máli. Það er uppvíst að því, að hafa sagt ósatt um ástæðuna til þess, að flokksmenn þess í fjárhagsráði fóru ekki fram á fjárfestingarleyfi nema fyrir 100 bæjaríbúðum í stað þeirra 200, sem bæjarstjórnarmeiri- hlutinn hafði lofað Reykvík- ingum. Það vissi, að fulltrúi Alþýðuflokksins var reiðubú- inn að greiða atkvæði með því að veita fjárfestingarleyfi fyr- ir 200 íbúðum og að meirihluti með því var þannig tryggður, ef fulltrúar Sjálfstæðisfíokks- ins hefðu staðið við loforð bæj- arstjórnarinnar. En það gerðu þeir ekki. Þeir létu möguleik- ann til að fá fjárfestingarleyfi fyrir 200 íbúðum ónotaðan af því, að það vantaði heilindin í málið af hálfu bæjarstjórnar- meirihlutans. Hann ætlaði að slá sér upp í augum Reykvíkinga með sam- þykktinni um 200 nýjar bæjar- íbúðir, en treysti jafnframt á að hánn þyrfti aldrei að standa við hana og gæti varpað sök- inni yfir á aðra. En þetta mis- tókst og loddaraleikurinn hef- ur nú verið afhjúpaður. frá viðskiptanefnd Nefndin hefur tekið ábvarðanir um af- greiðsfu þeirra gjáldeyrils- og innflutnings- leyfa, sem gert var rláð fyrir að veita fvrstu átta mánuði þessa árs. Til 31. ágú.st verða því engar umsóknir um gjaldeyris- og innflutningsleyfi teknar til afgreiðslu, neima um sé að ræða brýnustu nauð- synjar, aðallega ti'lheyrandi útflutningsfram- leiðslunni. Svör við eMri urnsóknum, sem ákvarðanir bafa verið teknar um, verða send næstu daga eða svo fljótt sem áuðið er. 7. júlí 1949. VIÐSKIPTANEFNDIN Munið eftir að tryggja nótabáta, nætur og far- angur skipverja hjá oss. Almennar íryggingar hí Au'sturstræti 10. — Sími 7700. Að gefnu. tiiefni auglýsist hér með, að í sumar verða engin veiðileyfi seld fyrir Vogs- ósalandi. Nýr hamflettur LUNDI Kjötbúðin Borg Laugaveg 78. Myndavélar Filmur 6x9. Bókaverzlun Böðvars Sigurðssonar Strandgötu 3, Hafnarfirði. Smurðssfofan BJörninn Njálsgötu 49. — Sími 1733.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.