Alþýðublaðið - 03.09.1949, Page 1
yéðurhörfurs
Norðaustan kaítli, víðast
skýjað.
Forustugreinf
Flokkur hinna ónýtu at-
= kvæða.
* * *
XXX. árgangiur.
Laugaidagur 3. sept. 1949
197. tbl.
ellslns í Bsrgar-
Sir Stafford Cripps, fjármálaráðherra brezku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar er nú á leið vestur um haf til þess að sitja ráð-
stefnuna í Washington um dollaraskort Breta. En með hon-
um sitja ráðstefnuna af Breta hálfu Ernest Bevin utanríkis-
málaráðherra, Harold Wilson viðskiptamálaráðherra og Sir
Oliver Frank sendiherra í Washington Myndin er af Sir Staf-
ford Cripps, í ræðustól.
ölmenn leynihreyfing Kom-
inform slarfandi í Júgóslavíu
Hún á að steypa Tító af stóli og koma
„sönnum kommúnistum“ tii valda.
Tsaldaris tjáir Bret-
um þakkir Grikkja
TSALDARIS, utanríkismála-
ráðherra Grikkja, er um þess-
ar mundir staddur í London og
gekk á fund Attlees forsætis-
ráðherra og ræddi við liann.
Sagði Tsaldaris blaðamönn-
um, að erindi sitt á fund
Attlees hefði fyrst og fremst
verið það að tjá brezku stjórn-
inni þakkir stjórnarinnar í
Aþenu fyrir aðstoð þá, sem
Bretar hefðu veitt Grikkjum
í sambandi við úthlutun Mar-
shallaðstoðarinnar.
Samvinnunefnd Marshallríkjanna heíur.nú
ákveðið skiptingu heildarupphæðarinnar
milli hinna 19 þátttökuríkja í Evrópu
MÁLGAGN KOMINFORM, sem gefið er út í Búkarest,
höfuðborg Rúmeníu, hefur enn einu sinni ráðizt lieiptarlega á
Tító og kallar hann „fasistískan blóðhun<J“. Segir blaðið, að
endi verði bundinn á ógnarstjórn Títós og fylgismanna hans af
Júgóslövum sjálfum, enda sé öflug mótspyrnuhreyfing gegn
stjórninni í Belgrad starfandi í landinu og vinni margvíst að
því að steyna henni af stóli en koma „sönnum kommúuistum“
til valda.
• Tilefni greinar þessarar í
málgagni Kominform er sá
orðrómur, að Rússar dragi um
þessar mundir saman mikinn
her í nágrannalöndum Júgó-
slavíu og hyggist láta vopnin
skera úr deilu Kominform við
Titó. Blað Kominform ber á
móti þessu og segir, að slíkra
ráðstafana sé ekki þörf, þar eð
öflug hreyfing fylgismanna
Kominform starfi í Júgóslavíu
og muni fyrr en síðar stevpa
Titó og fylgismönnum hans af
stóli.
Blaðið játar þó, að Titó sé
var um sig og fastur í sessi enn
sem komið er. Segir það, að
stjórnin í Belgrad hafi stofnað
til mjög umfangsmikiliar
njósnarstarfsemi og svífist
einskis í baráttunni við Kom-
Inform. Nefnir það sem dærai
Framh. á 7. siöu.
SAMVINNUNEFND MARSHALLRÍKJANNA í
EVRÓPU, sem í fyrradag lagði fram tiHcgur sínar um
skiptingu MarshaMjárins á öðru fiáiLagsári Mars'bal'l-
aðstoðarinnar, 1949—1950, ætlar íslandi 7,3 milljónir
dol’lara eða sem svarar 47,5 mJJjórjum ísienzkra króna
á því tímábili.
Þetta var upplýst af Þórhalli*-——--------------
Ásgeirssyni, skrifstofustjóra í ’
lSkÆ“S;nA J Þjófurinn fannsl sof
útvarpið í gærkvöldi.
í áætlun, sem ísland hafði
lagt fyrir samvinnunefndina,
var gert ráð fyrir því, að
greiðsluhalli þess við dollara-
svæðið yrði 8,5 milljónir doll-
ara á þessu tímabili, og hefur
hinn fyrirhugaði hlutur ís-
lands af Marshallaðstoðinni að
sjálfsögðu verið byggður á
þessu.
Samvinnunefnd Marshall-
ríkjanna gerði ráð fyrir því,
að Marshallaðstoðin við Ev-
rópu myndi á þessu fjárhags-
ári nema samtals 3776 milljón-
um dollara, og er það mun
minna en á fyrsta fjárhagsári
hennar, en þá nam aðstoðin
4300 milljónum dollara. Það
var því mikið vandaverk fyr-
ir samvinnunefnd Marshall-
ríkjanna að skipta fjárupphæð
inni milli hinna 19 hlutaðeig-
andi landa, enda munu sum
þeirra svo sem Bretland telja
sig hafa fengið of lítið. Við
úthlutun samvinnunefndarinn-
ar var Bretlandi þó ætluð
langhæst fjárupphæð eða 962
milljónir dollara; næst er
Frakkland með 704 milljónir,
þá Ítalía með 400 milljónir og
síðan Vestur-Þýzkaland með
348 milljónir.
Paul Hoffman, framkvæmda
stjóri Marshallaðstoðarinnar,
lýsti yfir því í gær, að úthlut-
;un samvinnunefndarinnar gæti
enn orðið einhverjum breyting
um undirorpin með því að
Bandaríkjaþing ætti enn eftir
að samþykkja hana, og ekki
væri óhugsanlegt, að það
neyddist til að lækka heildar-
framlagið nokkuð.
andi í bankanum
FYRIR SKÖMMU var inn-
brotsþjófur handtekinn í
banka í Kaupmannahöfn, og
var hann sofandi, þegar að hon
nm var komið. Áður hafði
hann brotizt inn á fjórum
otöðum sömu nóttina, en hvergi
Cundið eyri, og í bankanum
reyndist heldur ekki vera um
auðugan garð að gresja.
Þegar náungi þessi hafði
brotizt inn á fjórum stöðum,
án þess að finna eyri, ákvað
hann að gera úrslitatilraun
með því að brjótast inn í úti-
bú banka eins í Kaupmanna-
höfn. Honum tókst að komast
inn í bankann og leitaði þar í
öllum skúffum, en fann ekkert
fémætt. Þá ákvað hann að hvíla
sig stundarkorn og lagðist fyr-
ir á legubekk. Þetta hefði hann
hins vegar átt að láta ógert,
því að hann sofnaði og vakn-
aði ekki fyrr en einn af varð-
mönnunum í bankanum ýtti
við honum heldur óþyrmilega.
Var haldið beina leið á fund
lögreglunnar, og innbrotsþjófur
tnn var dænjdur til tíu daga
fangelsisvistar.
a
ivæðlnu fyrir Norð
uriandi ígær
ÞOKA var á öllu síldveiði-
svæðinu fyrir Norðurlandi í
gær, að því er síldarleitin á
Siglufirði skýrði blaðinu frá í
Samningar hafa
tekizt í Sfykkishólmi
Imiu ■ mtm
SAMNINGAR HAFA TEK-
IZT milli Verkalýðsfélags
Stykkishólms og atvinnurek-
enda þar á staðnum.
Samkvæmt nýja samningn-
um hækkar grunnkaup verka-
manna úr kr. 2,70 í kr. 3,00 á
klukkustund.
Verkalýðsfélagið hafði hótað
verkfalli frá 1. september, ef
samningar hefðu ekki tekizt
fyrir þann tíma.
símtali í gærkvöldi, og var eng
in veiði og ekki vitað um að
síldar hefði orðið vart.
Benedikt Gröndal.
FRAMBOÐ ALÞÝÐU-
FLOKKSINS í Borgarf j arðar-
sýslu hefur nú verið ákveðið.
Verður Benedikt Gröndal
blaðamaður í kjöri þar fyrir
flokkinn.
Minnismerki í Þórs-
höfn um færeyska
sjómenn, sem fór-
usi á slríðsárunum
NORSKI MYNDHÖGGVAR
INN Kaare Orud hlaut fyrstu
verðlaun í hugmynda sam-
keppni um minnismerki fær-
eyskra sjómanna, er fórust á
styrjaldarárunum, en Sigurjón
Ólafsson hlaut önnur verðlaun
í samkeppni þessari. Alls bár-
ust dómnefndinni 72 hugmynd
ir og segir formaður hennar,
Per Palle Storm, að hugmynd-
in að sjómannslíkneski Oruds
hafi verið bezt þeirra, en bæt-
ir við, að hugmynd Sigurjóns
hafi verið glæsileg, en ekki eins
glögg og auðskiljanleg og hug
mynd Oruds.
Fyrstu verðlaunin í hug-
myndasamkeppni þessari eru
2500 færeyskar krónur. Líkn-
eski Oruds verður fjögurra
metra hátt, en það kemur til
með að standa á ellefu metra
háum stöpli, og verður hann
akkeri að lögun. Líkneskið á
að steypast úr bronsi, en
stöpullinn verður úr færeysku
basalti. Minnismerkinu verður
valinn staður á hæð skammt
ofan við Þórshöfn í Færeyjum,
og mun það sjást Iangt utan af
hafi.
Kaare Orud er ungur mynd-
höggvari. Hann hefur oft tek-
ið þátt í hugmyndasam-
keppni áður, en aldrei fengið
fyrstu verðlaun fyrri.