Alþýðublaðið - 20.11.1949, Blaðsíða 7
Sunnudagur 20. nóv. 1949
ALÞYCUBLAÐIÐ
7
Skólaselrið Brunns-
vík
Frh. af 5. siðu.
Richard Sandler, fyrrverandi
ráðherra og núverandi lands-
höfðingi, en hann hefur komið
til íslands, og Yngve Hugo. En
þeir voru þá báðir kennarar
við lýðháskólann. Tilhögun
kennslunnar er þannig, að á
hverju kennslutímabili er tek-
íð fyrir aðeins eitt efni og eru
þessi helzt. Þjóðhagsfræði fé-
lagafræði (þ. e. stjóm og rekst-
ur félaga), saga verkalýðs-
hreyfingarinnar, saga sam-
vinnuhreyfingarinnar eða önn
ur slík efni. Nemendur við
þennan skóla eru um 400 á
'hverju sumri.
Að endingu er svo yngsti
■skólinn, skóli alþýðusambands
ins, „LO-skolen“. Á þingi al-
þýðusambandsins árið 1926
kom fram tillaga um stofnun
■ skóla, þar sem félagar úr verka
lýðsfélögunum gætu fengið
góða fræðslu um starf og
rekstur félaganna. — Tillagan
var samþykkt, og sumarið 1929
var skólinn vígður og fyrsti
nemendahópurinn settist á
skólabekkina. Fyrsti skóla-
stjórinn var S.igfrid Hansson,
bróðir Per-Albins, hins látna
foringja jafnaðarmanna og for
sætisráðherra. Nemendur eru
allt að 900 á ári hverju. Skól-
inn starfar í stuttum og löng-
um kennslutímabilum. Á
hverju sumri er kennslutíma-
bil, sem stendur í 13 vikur,
annað á haustin, sem stendur
í hálfan mánuð. Þann tíma,
sem alþýðusambandið notar
ekki húsakynnin, fá ýmis
verkalýðsambönd þau til af- [
nota. En hvert námskeið
þeirra stendur í hálfan mán-
uð. Má því segja, að þessi
skóli starfi árið um kring.
Á sumrin er kennd: stjórn
og rekstur verkalýðsfélaga,
saga verkalýðshreyfingarinn-
ar og dægurmálabarátta
þeirra, þjóðhagsfræði, félags-
fræði, félagsmálalöggjöf, jafn-
aðarstefnan, alþjóðleg verka-
lýðsaga, sænska og bókfærsla.
LO-skólinn hefur enga fasta
kennara. Öll kennsla fer fram
eins og í hinum tveimur. í
fyrirléstrum. Hin tvö tímabil- !
in er kennt hið sama, en ekki
farið eins nákvæmlega út í
einstök atriði. Allt kennslu-1
gjald er greitt af alþýðusam-
bandinu, en fæði og húsnæði ;
borga nemendurnir sjálfir.
Félagslíf er mjög fjörugt í
lýðháskólanum, sem ég er í,
umræðuffundir oft, og þá I
deilt hart um ýmis þau mál, ■
sem efst eru á baugi, en allt-
af haldið sér við málefnin
sjálf —- og gætum við íslend-
ingar í því efni margt lært.
Hér eru nær allir alþýðuflokks
menn. Fyrir fáum dögum
stofnuðum við sérstakt félag
ungra jafnaðarmanna við skól
ann, og tókum einnig félaga
frá Sörvik, þó að þeir séu ekki
í skólanum. Við vorum tólf
saman, en nú eru allir nem-
endurnir komnir í það, nema
tveir. Þá eru skemmtikvöld
með upplestrum og ýmsu, sem
er skemmtilegt. Mjög strang-
ar reglur gilda hér um alla
hluti, en hlýðnin við þær
kemur af sjálfu sér, því að hér
er rektor ekki lögreglustjóri,
kennararnir ekki lögreglu-
þjónar — og nemendurnir al-
mennir borgarar. Héru eru all-
ir ein heild.
Þetta eru þá þeir þrír skólar,
sem starfa í Brunnsvik, ,,Há-
borg verkalýðshreyfingarinn-
ar“ Og ég vil að lokum segja,
að Brunnsvik hefur haft mikla
þýðingu fyrir sænsk alþýðu-
samtök og fjölmargir af leið-
togum þeirra hafa notið þar
menntunar.
Hvenær eignast íslenzka al-
býðuhreyfing sinn skóla?
Vilhj. St. Vilhjálmsson.
Gunnlaugur Kristmundsson,
fyrrverandi sandgræðslustjóri,
andaðist að Landsspítalanii.m laugardaginn 19. þ. m.
Bálför hans verður auglýst isíðar.
Ásgeir G. Stefánsson.
Innlfutningur og
sköfflinlunarmagn
Framh. af 3. síðu.
milli 40 og 50 þúsund slíkir
ytrifata seðlar óinnleystir,
sem reiknast mættu þá með
útsöluverði allt að 17,5 millj.
kr.
Niðurstaðan verður hin
sama og áður. Það skortir
mjög mikið á að flutt hafi ver-
ið inn af þessum vörum nægi-
lega mikið til að fullnægja
skömmtunarmagninu. Þetta er
viðurkennt af öllum, sem til
þekkja, að því er tekur til inn-
flutningsins 1948. Á árinu
1949 átti að gæta þess að þetta
kæmi ekki fyrir aftur. Leyfis-
veitingar hafa eigi að síður
verið svo seint á ferðinni, að
útkoman fyrri hlirta ársins
hefur verið eins og áður er
lýst, mjög á sama veg, en von-
andi er að úr þessu rætist eitt-
hvað á síðari hluta ársins.
Ég geri ekki ráð fyrir að
eiga frekari orðastaS við ung-
frúna um þetta, nema sérstpkt
tilefni gefist til. Og frýjuorð
hennar um drembilæti, aðstoð
við svarta markað o. fl. læt ég
mig engu skipta, því að hún
veit að hvort tveggja er jafn
mikill tilbúningur og tölurn-
ar, sem hún sjálf hefur búið
til og eignað öðrum.
__________Emil Jónsson.
Auglýsið í
Alþýðublaðinu!
í nýrri útgáfu Guðna Jónssonar
Koma út á vegum íslendingasagnaútgáfuimar um mánaðamótin nóv.—des,
EDDURNAR verða í fiórum bindum. EDDUKVÆDI (Sæmundar-Edaa) tvö bindi, SNORRA-EDDA eitt bindi og EDDULYKLAR (skýringar
og bókmenntaþættir) eitt bindi.
í Eddukvæðunum eru, auk þess, sem er í útgáfu Sigurðar Kristjánssonat: Hjábnarskviða, Hervarðarkviða, HlöðskviSa, Hálfsrekkaljóð, Heið-
reksgátur, Eddubrot.
Vegna þessa mikla efnis munu Eddukvæðin verða í tveim bindum. Fjórða bindi, Eddulyklar, er skýringarbindi fyrir Eddurnar. í því ei*u
Bókmenntaþættir um hvert kvæði, svo efnið verður mun aðgengilegra fyrir almenning, þá orðasafn fyrir Eddurnar ásamt tilvísun hvar orðin
koma fyrir og í hvaða merkingu, vísnaskýringar og Nafnasltrá við báðar Eddumar.
EDDU-útgáfa þessi er ekki að stafsetningu eins forn og torskilin s,em eldri útgáfur, því áð ritháttur handrita hefur ekki verið fymdur, eins
og áður hefur tíðkast.
Þetta mun því verða hin langaðgengilegasta og um leið liandhægas ta Eddu-útgáfa handa íslendingum, sem til er og sú læsilegasta.
Hinn vinsæli listmálari Hálldór Pétursson hefur gert titilsíðu og s aurblaðateikningar smekklega að vanda.
Finnbogi Guðmundsson cand. mag. og Hermann Pálsson cand. mag. hafa aðstoðað Guðna Jónsson við útgáfu þessa.
Að baki þessarar útgáfu liggur óhemju vinna, því allt var gert til þess að Eddurnar gætu komið að sem beztum notum, bæði til lestrar
fyrir almenning og til notkunar í skólum. En þrátt fyrir það og hækkandi verðlag á bókum munu Eddurnar verða seldar til áskrifenda á kr.
hugsað sér að eignast þennan
EÐA SKRIFIÐ
Túngötu 7. — Pósthólf 73. — Sími 7508. — Reykiavík.