Alþýðublaðið - 19.01.1950, Síða 1
Veðurhoríurs
Hvass suSaustan og sunn-
an, rigning fyrst; síðau suð-
vestan með skúrum.
*
Forustogreln;
Sóknarhugur.
- 1
XXXI. árgangur.
Fimmtudagur 19. janúar 1950.
16. tbl.
Fyrirspurn til Jóhanns Þ. Jósefssonan
Endurbygging gamla bœjarins
Juho Paasikivi,
hinn endurkjörni forseti.
Paasikiví verður
áfram forseti Finna
Fékk hreinan meiri-
hSuta kjörmanna.
PAASIKIVI vann glæsileg-
an sigur við forsetakjörið á
Finnlandi. Af þeim 300 kjör-
mönnum, sem kosnir voru, og
BÍðar munu kjósa forsetann, eru
172 fylgismenn hans, en ekki
nema 66 með Pekkala og 62
með Kekkonen.
Það voru jafnaðarmenn,
frjálslyndir, íhaldsmenn og
sænski flokkurinn, sem stóðu
að Paasikivi í þessum kosning-
um. Pekkala var frambjóðandi
kommúnista og Kekkonen
frambjóðandi bændaflokksins.
Tveir kommúnida-
flokkar í Japan!
NAKANISHI, hinn Komin-
formtrúaði kommúnistáfor-
sprakki, sem vikið var úr Kom-
múnistaflokki Japans fyrir
nokkru síðan, hefur nú lýst yf-
ir því, að nauðsynlegt sé að
stofna sannan 'kommúnista-
flokk í Japan á grundvelli
þeirrar gagnrýni á núverandi
kommúnistaflokki þar, sem
Kominform hafi nýlega birt.
Segir Nakanishi, að Kpmmún-
istaflokkur Japans hafi svikið
marxismann og leninismann.
'nii veiííi rí
ngarmr,
gararétt,
FYKÍK TÆPLEGA ÁRI SÍÐAN, eða 25. janúar 1949, veitti
alþingi með skyndiafgreiðslu. tveim þýzkum fiskiðnfræðing-
um og f.jölskyídum þeirra, samtals sjö manns, íslenzkan ríkis-
borgararétt. Mál þetta var afgreitt í miklum flýti samkvæmt
ósk Jóhanns Þ. Jósefssonar fjármálaráðherra. Fylgdu þær skýr-
ingar af hálfu Jóhanns, að fiskiðnfræðingar þessir, dr. Karl
Metzner og aðstoðarmaður hans, Bernhard Wiencke, hefðu
tekizt á hendur að aðstoða ríkisstjórnina og einstaklinga í mál-
um, er snerta fiskiðnað þjóðarinnar, og væri í því skyni nauð-
synlegt að þeir fengju ríkisborgararétt.
----------------- ‘ ♦ Nú er liðið ár frá því þetta
gerðist, og he.fur ekkert héyrzt
um hina þýzku fiskiðnfræð-
inga, sem Jóhann Þ. Jósefsson
útvegaði íslenzkan ríkisborg-
ararétt á einni nóttu. Að vísu
var mál þetta afgreitt með at-
kvæðum allra flokka á þingi,
en það var gert samkvæmt
ósk Jóhanns Þ. og fyrir hans
fylgi komst málið fram. Út af
þessu er því full ástæða til þess
að beina nokkrum fyrirspurn-
um til Jóhanns Þ. Jósefsson-
ar:
FJármáiaráðherra
Thuringen neifar
að hverfa heim
FJARMALARAÐHERRA
Thiiringcn, sem legið hefur
undanfarið rúmfastur í sjúkra-
húsi í Vestur-Berlín, hefur
beðið um hæli á hernáms-
svæði Vesturveld'anna á Þýzka-
landi og neitar að hverfa heim.
Forsætisráðherrann í Thúr-
ingen hefur í tilefni þessa lýst
yfir því, að hann taki ekki
lausnarbeiðni fjármálaráðherr-
ans til greina.
Pólskur embæltis-
maður biður um
iíUSA
Ár eftir ár hefur íhaldið talað mikið um endurbyggingu gamla
bæjarins og skipulagningu elztu bæjarhverfanna. Ár eftir ár
hefur ekkert verið gert í þessum efnum, enda þótt fyrr eða
síðar hljóti að koma að því, að endurbygging bæjaríns hefjist.
Með því mætti spara stórfé vegna gatna, vatns, rafmagns og
annars, sem fyrir er í gömlu hverfunum. Myndin sýnir einn
frægasta stað gamla bæjarins, hlykkinn á Vesturgötu, augljóst
verkefni á skipulagssviðinu. (Sjá 5. síðu blaðsins í dag um
samgöngukerfi bæjarins.)
VARAFORMAÐUR sendi-
nefndar Pólverja hjá bandalagi
hinna sameinuðu þjóða hefur
sagt af sér og beðið um hælis-
vist í Bandaríkjunum sem póli-
tískur flóttamaður. _
Maður þessi heitir Alexand-
er Rydinzki og er lögfræðingur
að menntun. Segist hann ekki
geta haldið áfram að starfa í
þjónustu pólsku stjórnarinnar,
þar eð félagslegt frelsi hafi
verið afnumið í heimalandi
hans. Enn fremur tekur hann
fram, að Pólverjar hafi enga
sjálfstæða skoðun innan banda
lags hinna sameinuðu þjóða,
heldur verði þeir þar að sitja
og standa eins og Rússum
þóknist, en sömu sögu sé að
segja um öll leppríki Rússa í
Austur-Evrópu.
Rydinzki hefur fengið at-
vinnu í New York og hefur
sótt um borgararétt í Banda-
ríkjunum fyrir sig og konu
sína.
1. Er það rétt, að dr. Metzner
og fylgdarlið hans sé farið
til Argentínu og sé setzt þar
að? Og ef svo er, hvernig
samrýmist það þeirri yfir-
lýsingu, að hann mundi tak-
ast á hendur að aðstoða ís-
lenzkan fiskiðnað, ef hann
fengi borgararéttinn?
2. Er það rétt, að fyrirætlanir
um stórt fiskiðjuver, er gæti
unnið úr öllum togarafiski
Islendinga með nýjum að-
ferðum, og staðsetja átti við
austurhluta Reykjavíkur-
liafnar, séu runnar út í
sandinn?
3. Er það rétt, að dr. Bletzner
hafi farið til Argentínu með
einkaleyfi sín að hinni nýju
vinnsluaðferð, sent með hon-
um áttu að fást til landsins,
og að hér hafi ekkert gagn
að þeim orðið?
SVARS ÓSKAÐ.
Alþýðublaðið óskar mjög
eindregið eftir svörum frá Jó-
hanni Þ. Jósefssyni við þessum
spurningum. Hér er um ein-
stakan viðburð að ræða, er sjö
útlendingar fá fyrirhafnarlaust
íslenzkan ríkisborgararétt hjá
alþingi, og sé það rétt, að þetta
fólk sé nú farið til Argentínu,
verður ekki annað séð, en að
það hafi haft alþingi íslend-
inga að fífli. Þá væii æskilegt
að vita, á hverju Jóhann Þ.
Jósefsson byggði það, að hann
sótti svo fast að fá borgara-
rétt fyrir þetta fólk, og hvern-
ig hans samningum við það
hefur verið háttað.
að bll al fara á veiðar
Samoingar miili farmannasambantísins
og L S. 0. voru undfrritaðir í gær.
Eins viflaust og
Einar Olgeirsson
hefði samið það,
segir
AKI JAKOBSSON var
fyrir nokkrum dögum á tali
við ónefndan mann. Bárust
samræður þeirra að frum-
varpi Rannveigar og Fram-
sóknarmanna um „stóríbúða
skatt“, og sagði Áki þá að
frumvarpið væri svo vit-
laust, að það væri eins og
Einar Olgeirsson liefði sam-
ið það!
VÉLBÁTAFLOTINN mun nú allur í þann veginn að fara
á veiðar, en í gærmorgun tókust samningar milli Farmanna-
og fiskimannasambandsins annars vegar og Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna hins vegar um kaup og kjör yfirmanna
á bátaflotanum.
Samningar þessir gilda fyrir
allan fiskibátaflotann, eða þá
aðila, sem eru innan farmanna
sambandsins og ekki hafa aðra
samninga.
Ekki hefur þó enn verið
Eamið endanlega um kjör skip-
etjóra, stýrimanna og vélstjóra
á vélbátum, sem eru í flutning-
um milli hafna innan lands.
Á nokkrum stöðum hafa sjó-
mannafélög eða sjómannadeild
ir verkalýðsfélaga nýlega gert
samninga fyrir háseta, meðal
annars á Akranesi, þar sem
Gammngar tókust í fyrradag,
bvo og í Sandgerði, Gerðum og
Grundarfirði. Hins vegar stend
ur enn yfir sjómannavei’kfall
í Ólafsvík og búið er að boða
verkfall í Stykkishólmi frá 25.
janúar, ef samningar hafa ekki
tekizt fyrir þann tíma.
Um kaupskipaflotann er það
að segja, að hjá stýrimönnum
og loftskeytamönnum stendur
nú yfir allsherjaratkvæða-
greiðsla um það, hvort veita
skuli stjórnum viðkomandi fé-
iaga heimild til að boða vinnu-
stöðvun, og er atkvæðagreiðsl-
unni lokið næstkomandi laug-
ardag.
Hörð loftárás
á Kanion í gær
FLUGHER Kuomintang-
ctjórnarinnar kínversku gerði í
gær loftárás á Kanton og fleiri
borgir, sem eru á valdi komm-
únista.
Er þetta harðasta loftárás,
sem flugher Kuomintang-
etjórnarinnar hefur gert á
Kanton, og stóð hún yfir í
fimm klukkustundir.