Alþýðublaðið - 19.01.1950, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 19.01.1950, Qupperneq 8
Kosningaskrifstofa A-iistans i er opin k3. 10—10 i í Alþýðuhúsinu. Símar eru 5020 og 6724. Fimmtudagur 19. janúar 1950. Stuðningsmenn j A-Sistans ' Komið í skrifstofu listans í Alþýðuliúsinu og leggi^ liönd á plóginn í imdir- búningi kosninganna. f ( á þriðjudag og næstu viku UTVARPSUMRÆÐUR um bæjarmál Rvíkur liafa verið ákveðnar á þriðjudags- kvöld og fimmtudagsl-cvöld í uæstii viku, í tilefni af bæj- arstjórnarkosningunum. Ekki hefur verið ákveðið erm, hve margar ræðuum- ferðir verða hvort kvöld, né í hvaða röð fulltrúar flokk- ajMia taia. rr aagen kominn fram ÞAÐ ER NÚ LJÓST, að ungir sjálfstæðismenn þora elrki í útvarpskáþpræður við hin æskulýðsfélögin í bæmnn fyrir kosningarnar, og framsóknarmenn hafa veitt íhaldinu fulikom- inn stuðning til þess að liindra, að nokkuð verði úr slíkum umræðum. Er íhaldinu svo mjög umhugað um að slíkar út- varpsumræður unga fólksins fari ekki fram, að sjálfur forseti Sambands ungra sjálfstæðisman'na, Magnús Jónsson frá Mel, feildi tillögu um betta í útvarnsráði. Félag ungra iafnaðarmanna | cjálfir með fulltingi Framsókn- boðaði fyrir rösklega viku síð- j ar hindrað það, að æskan fengi Einkaskeyti til Alþýðubl. KHÖFN í gær. STRANDGÆZLUBÁTUR- INN „Maagen“, sem hvarf við Grænlandsströnd þann 9. þ. m. og enginn hafði síðan spurnir kom í fyrrinótt til hafnar í Evigtut. 9 manna áhöfn er á bátnum, og leið þeirn öllum vel. Báturinn hafði hreppt óveð- ur, stýri hans laskazt, útvarps- tækin bilað og ísing mikil setzt á byrðing og yfirbyggingu hans. Olíubirgðirnar þrutu 6kjótt, og rak hann lengi fyrir sjó og veðri. Þegar storminn lægði, komu bátsverjar seglum við og náðu til hafnar. Vekur fregn þessi mikinn fögnuð í Damnörku, en þar höfðu menn talið bátinn af, enda eru ekki nema tæp tvö ár liðin síðan bátur af sömu gerð og stærð týndist, einmitt á þessum slóð- um. Dönsku Catalinasjóflugvél- j arnar tvær, sem ætluðu til Grænlands að leita að „Maag- en“, en urðu veðurtepptar á Keflavíkurflugvelli, halda nú heimleiðis þegar er veður leyf- ir. IiJULER. Intrsku kennslan I háskólanum áný NORSKI sendikennarinn, cand. mag. Hallvard Mageröý, byrjar kennslu á ný 17. þ. m. Athygli er vakin á því, að kennslan fer fram að kvöldinu til svo að þeir, sem annars stunda vinnu á daginn, en á- huga hafa á norskunámi, geti frekar notið fræðslunnar. Kennsla fer fram á þriðju- dögum og föstudögum í háskól- anum, an fulltrúa hinna flokkanna á fund til a^ ræða sameiginleg- ar kappræður æskulýðsfélag- anna í bænum. Var þar stung- Ið upp á því, að fara fram á útvarpsumræður, og varð það úr, að útvarpsráði var send ósk um æskulýðsumræður útvarpinu. í útvarpsráði beittu sjálf- stæðismenn og Framsóknar- maðurinn sér gegn slíkum umræðum, og var það ekki afgreitt fyrr en nú á þriðju- dag, en þá felldu íhaldið og framsókn að leyfa slíkar umræður; fulltrúi Alþýðu- flokksins, sem einn hafði stutt ósk æskulýðsfélag- anna, og fulltrúi kommún- ista greiddu atkvæði með tilmælum æskulýðsfélag- anna. Annar fulltrúi sjálfstæðis- manna í ráðinu er Magnús Jónsson, forseti SUS, og er það einstakt að forseti æskulýðs- hreyfingar skuli beita sér gegn því, að æskan fái að koma fram í útvarpinu, og gat málið al- gerlega oltið á atkvæði hans. Þá kom einnig til mála, að stjórnmálaflokkarnir léðu æskulýðsfélögum sínum annað þeirra tveggja kvölda, sem þeir Eá fyrir umræður í útvarpinu. Jóhann Hafstein, sem enn þá er talinn „ungur Sjálfstæðis- maður“ (36 ára), beitti sér tnjög gegn þessu, en fulltrúi Alþýðuflokksins mælti ein- dregið með því. Framsóknar- maðurinn tók afstöðu með í- haldinu: en kommúnistar voru óákveðnir, en fylgdu þó Al- þýðuflokknum. Þannig var þessi tillaga felld með jöfnum atkvæðum af fulltrúum flokk- anna, 2:2. Af þessu er auðséð, að í- baldið og framsókn þora alls ekki að leggja út í æskulýðs- umræður um bæjarmál fyrir kosningarnar. Þarf þetta raun- ar ekki að koma neinum á ó- vart, því að æskan á engan fulltrúa á lista sjálfstæðis- manna og er fáliðuð og í léleg- um sætum hjá Framsókn. „Ungu mennirnir1 í Sjálfstæð- tsflokknum, Jóhann Hafstein og Magnús frá Mel, hafa því að ræða bæjarmálin í útvarp- inu fyrir þessar kosningar. Þetta eru „æskulýðsleiðtogar“ cem segja sex! i.Frönsk stjórnarvöld krefjasf árifunar á vörureikninga SENDIRÁÐ ÍSLANDS í Par- ís hefur skýrt ráðuneytinu frá því, að frönsk stjórnarvöld krefjist nú áritunar fransks ræðismanns á íslandi á alla vörureikninga yfir útfluttar tiskafurðir til Frakklands. Stendur ráðstöfun þessi í sam- bandi við það, að fyrir skömmu hefur verið lögleiddur á ný tollur á fiski í Frakklandi. Toll ur þessi reiknast af upphæð vörureikningsins. Leggja þarf mikla áherzlu á fi raunir með veiði Faxasíldar Störf fiskimálasjóðs gagnrýnd í um- ræðum á alþingi í gærdag. SILDARGÖNGURNAR í FAXAFLÓA gefa til kynna, a& þarna séu ef til vill ríkustu fiskimið; á litlum bletti, scm við höfum fundið lengi, sagði Finnur Jónsson á alþingi í gær, er tillaga hans og Erlendar Þorsteinssonar um rannsólcn ó vciði- aðferðum á Taxasíld var til umræðu. Finnur kvað engin vett- lingatök duga í sambandi við þessi miklu ónotuðu auðæfi, og‘ taldi hann það ekki tiltökumál, þótt rannsóknir á þessu kost- uðu nokkuð fé, þar sem til mikils væri að vinna. S j ávar út vegsmálaráðherra skipaði fjölmenna nefnd til að athuga þessi mál svo til sama dag, sem tillaga Finns og Er- lendar kom fram. Finnur taldi, að nefnd þessi væri of stór til að koma miklu í verk. Þá gagn- rýndi hann þá ráðstöfun ráð- herra, að ætla fiskimálasjóði að standa undir kostnaði rann- sóknanna. Finnur benti á, að sjóðurinn mundi ekki hafa mikið fé handbært og væri að auki búinn að lofa allmiklum lánum fram í tímann. Vildi Finnur því heimila ríkisstjórn- inni að verja fé í þessu skyni, bvo að þessar tilraunir verði gerðar af fullum krafti, og á- taldi Finnur að nú þegar hefði tími tapazt frá jólum. Þá gagnrýndu þeir Finnur og Gísli Jónsson fiskimálasjóð fyrir að hafa veitt fé sitt að láni til ýmissa fyrirtækja, en misst sjónar af höfuðtilgangi sjóðsins, sem ætti að vera fiskirannsóknir, veiðafæratil- raunir og markaðsleit. Gat Gísli um það, að tillögum um merkar nýjungar hefði sjóður- Inn látið ósvarað með öllu, og átti hann þar við tveggja þil- fara togara, sem hann hefur mikinn áhuga á að gerðar verði tilraunir með. Skemmtun 11. hverfis Alþýðu- flokksfélagsins 11. HVERFI Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkuu heldur spila- og skemmti- fund í Þórscafé í kvöld kl. 8, Skemmtiatriði verða: Fé* lagsvist, Benedikt Gröndal flytur ræðu og kvikmynda- sýning. Félagar fjöhnennifS og takið með ykkur gesti, Hafið spil meðfcrðis. Leikurinn ,Það er ekki gott að mað- urinn sé einn' sýndur í Hafnarfirði .......- Frú Inga Laxness heftir þýtt leikinn og er leikstjóri. LEIKFELAG HAFNARFJARÐAR er að hefja vetrarstarf- semi sína að þessu sinni, og hefur það frumsýningu í Bæjar- bíói annað kvöld á nýju amerísku leikriti — „Það er ekki gott, að maðufinn sé einn“. — Leikstjóri er frú Inga Laxness, leikararnir eru allir úr Hafnarfirði. en Þetta er gamanleikur, sem gerist á norðurslóðum í einangr aðri loftskeytastöð. Þar nauð- lendir flugvél skammt frá, en í vélinni eru enskur nðalsmaður og unnusta hans, og fjallar að- alefni leiksins um baráttu að- alsmannsins og loftskeyta- mannsins um konuna. „Það er ekki gott að mað- urinn sé einn“ nefnist á frum- málinu Petticonat Ferer og er eftir ameríska rithöfundinn Mark Reed, sem er talinn einn af beztu núlifandi leikritahöf- undum í Bandaríkjunum. Frú Inga Laxness hefur þýtt ieikinn og hefur jafnframt leik Gtjórn á hendi, en leikendurnir eru allir úr Hafnarfirði. Aðal- hlutverkin leika: Sigurður Minningarathöfn í Véstmannaeyjum I GÆR fór fram í Vest- mannaeyjum minningarathöfia um menn þá, er týndust mefS v.b. „Helga“ og Guðlaug Brynjólfsson, er drukknaði a£ togaranum „Bjarnarey“. Sókn- arpresturinn sr. Halldór Ko!-» beins flutti minningarræðu. Svo margt . bæjarbúa sóttl kirkjuna við þetta tækifæri, aSS fjöldi fólks varð að lilýða á at- höfnina gegnum hátalara, utaiB dyra. Þá var og jarðsett lík Óskars Magnússonar og lík Gísla Jón- assonar flutt til skips, en það verður jarðsett fyrir norðan í átthögum hans. Sjómenn í Eyj- um gengu undir fánum til kirkju og á bryggju. Listi Alþýðuflokks- ] ins í Bolungarvík LISTI Alþýðuflokksins viS hreppsnefndarkosningar í Bol- ungarvík verður A-listi og er Kristinnsson, Jóhanna Hjalta-: hann skipaður þessum mönn- lín, Ársæll Pálsson, Inga Dóra um: Hubert og Valgeir Óli Gísia- son. Stjórn Leikfélags Hafnar- fjarðar skipa nú: Sigurður Gíslason, formaður. Sólveig Guðmundsdóttir ritari og Sig- urður Árnason, gjaldkeri. Steinn Emilsson, Bernodys Örn Finnbogason, Ingimundur Stefánsson, Jón Þórarinsson, Hafliði Hafliðason, Páll Sólmundsson Jóhann Guðjónsson. .......']

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.