Alþýðublaðið - 05.02.1950, Qupperneq 7
Sunnudagur 5. febrúar 1950
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Daglega
á
boð-
stólum
heitir
og
kaidir
-
jggr
****T>.V
fisk og kjötréttir.
Köid borö og
heriur veiiiumaiur
^endur út um allan bæ.
SÍLD & FISKUR.
Innfluíningurinn
Atvinna
Matvöruverzlun vantar
duglegan verzlunarstjóra,
sem vildi gerast meðeig-
andi og gæti lagt fram
nokkurt fé. Æskilegt að
viðkomandi hefði unnið í
kjötbúð áður. Nánari upp-
lýsingar (þó ekki í síma)
í skrifstofunni eftir há-
degi í dag og næstu daga.
SALA OG SAMNINGAR
Aðalstræti 18.
Aiþýðublaðið!
Framhald af 5. síðu.
flutningsmál heldur en nú eru.
En ég vil leggja höfuðáherzlu
á eftirfarandi atriði, sem mér
finnst að hafi ekki verið tekið
nægjanlegt tillit til:
í fyrsta lagi: Sá litli gjald
eyrir sem þjóðin hefur yfir
að ráða, verður að úthlut-
ast þannig, að bæði þeir, sem
gjaldeyrinn eiga að nota, og
allir einstaklingar þjóðfé-
lagsins, fái fulla vitneskju
um það, hvernig honum er
úthlutað, eftir hvaða reglum
og hverjir fái gjaldeyrinn, ef
þeir óska að vita það.
f. öðru lagi: Að allt sé
gert, sem hægt er, til þess
að verzlunin fari ekki út úr
þeim eðlilegu og föstu skórð-
um, sem hún hefur verið i
og á að vera í, sérstakloga
vegna þeirrar hættu, að viss-
ir einstaklingar séu ekki eins
samvizkusamir eins og hin
eldri og rótgrónari fyrirtæki
ættu a. m. k. að vera.
HVAÐ ER HÆGT AG SPARA?
Þegar líkur benda til að gjald
eyririnn verði miklu minni á
þessu ári en undaníarið, er eðli-
legt að fólk spýrji: Hvað or’
hægt að gera til að spara gjald-
eyrinn? Ég tel eftirfarandi at-
riði athugandi, fyrir utan þá
stefnu, sem virðist vera ríkj-
landi, að draga sem mest úr
fjárfestingu, annari en til at-
vinnuaukningar, svo sem til
byggingaframkvæmda:
1. Minnka verulega flutninga
til landsins með leiguskipum
og reyna að flytja sem
mest, nema kol, með íslenzk
um skipum. Á síðasta ári
voru veitt leyfi fyrir meira
en 30 millj. til skipagjalda
og fragta. Þetta hlýtur að
geta lækkað verulega eftir
því sem skipum fjölgar.
2. Minnka sjómannagjaldeyr-
inn, þótt það sé hrein neyðar
. ráðstöfun, og
3. Minnka gjaldeyri til náms-
manna og kalla þá heim,
sem geta lært hér.
Tvö síðastnefndu atriðin eru
mjög alvarlegs eðlis og þau ætti
ekki að framkvæma, nema allt
þryti.
Ef umræður um þetta mál
gætíi hafizt á almennum grund
velli, væri það vel, og ég er
sannfærður um það, að þeir,
sem um þessi mál eiga að f jalla,
vilja gera sitt til að gera mál-
in sem nauðveldust og afgreiðsl
urnar sem réttlátastar.
! flugvéla
frá verksmiðju- og vélaeftirlitinu
um olíukyndingartæki
Með tilvísun til fyrri auglýsingar eldvarna-
eftirlits ríkisins um viðurkenningu olíukyndi-
tækja, skal athygli vakin á því, að frá og með 1.
jan. þessa árs er óheimilt að selja, setja upp eða
taka í notkun utan Reykjavíkur önnur olíukyndi-
tæki en þau, sem hlotið hafa viðurkenningu verk-
smiðju- og vélaeftirlitsins.
Fram til þessa hafa einungis fáar umsóknir
um viðurkenningu á olíukynditækjum borizt eft-
irlitinu og flestum þeirra fylgt svo ófullkomin
gögn, að ekki hefur verið unnt að byggja á þeim
umsögn um hæfni tækjanna.
Athygli hlutaðeigenda skal vakin á því, að
umsóknum þurfa að fylgja fullkomnar vinnu-
teikningar, sem sýna alla hluta tækjanna og
hvernig tækjunum er fyrir komið í eldfærinu.
Þá skal og tekið fram, að óheimilt er síðar, án
leyfis eftirlitsins, að breyta á nokkurn hátt gerð
eða einstökum hlutum tækjanna frá því, sem
teikningar sýna og viðurkenningu hefur hlotið.
Yerksmiðju- og vélaeftirlit ríkisins.
Framh. af 3. síðu.
hefðu lagt niður til þess að fá
kjör sín bætt. í dag eru það
flugvirkjar sem eru í deilu,
næst getur röðin komið að flug
mönnum, loftskeytamönnum og
skr.ifstofufólki þessara sömu
flugfélaga að fára í deilu og fá
kjör sín bætt og væri þeim þá
gott að eiga aðstoð in'ni í stað
hins andstæða, enda gerir
þessi aðstoð við flugfélögin það
eitt að verkum að deilan dregst
á langinn, en lausn hennar hlýt
ur’ aðeins að verða á þann veg
einan að flugvirkjar fá kröfur
sínar að mestu eða öllu.
Að því munu flugvirkjar ein-
liuga vjnna.
Jón Sigurðsson.
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
M.i. „Esja"
fer austur um land til Siglu-
fjarðar 9. febr. n.k. Tekið á
móti flutningi og farseðlar
seldir til allra áætlunarhafna
tnilli Djúpavogs og Húsavíkur
á morgun og þriðjudag.
Barnaverndarfélag Reykjavíkur
heldur kynningar- og útbreiðslufund í Breiðfirðingabúð
piiðvikudaginn 8. febrúar klukkan 8.30 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Form. félagsins, Matthías Jónasson: Stutt ávarp.
2. Frú Lára Sigurbjörnsdóttir: Erindi: Hvar eyða reyk-
vísk börn tómstundum sínum?
3. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir: Upplestur.
4. Frjálsar umræður.
Velkomnir eru allir, sem áhuga hafa á málum barna.
. Stjórnin.
w
Raflapir
Viðgerðir
Jarðarför konunnar minnar,
EEínar Pálsdótfurr
fer fram þriðjudaginn 7. þ. m. Athöínin hefst að
heimili okkar, Akbraut, Eyrarbakka, kl. 1.30 e. h.
Þorbjörn Hjartarson.
Véla- og raftækjaverzluu •
% Tryggvagötu 23. í
S Sími 91279. >
S >
Við þurfum ekki
að auglýsa
SENDIBÍLASTÖÐIN H.F.
Ingólfsstræti 11.
Sími 5113.
Embættispróf við
háskólann : j*
ÞESSIR menn luku embætt-
isprófi við Háskóla íslands í
janúarmánuði:
Læknisfræði:
Ragnar Karlsson, I. eink. 169
stig.
Lögfræði:
Ásgeir Pétursson, I. eink.
192% stig.
Hermann Jónsson, I. eink.
191 stig.
Knútur Hallsson, II. eink.
betri, 173 stig.
Níels Sigurðsson, I. eink.
197% stig.
Valgarð Briem, I. eink. 211%
stig.
Viðskiptafræði:
Árni Fannberg, I. eink. 296
stig.
Guðlaugur Þorvaldsson, I.
eink. 328 stig, serp er hæsta
próf, sem tekið hefur verið í
þessari grein við háskólann.
GuðmundiY Jóhannsson, II.
eink. betri, 241 stig.
Gunnar Hvannberg, II. eink.
betri, 221% stig.
Pétur Pálmason, II. eink.
betri, 242 stig.
íslendingasagnaútgáfan hefur undanfarna mánuði auglýst
og selt bækur sínar gegn afborgun við miklar vinsældir.
Nú þegar getið þér fengið allar bækur útgáfunnar mcð
afborgunarkjörum. — Klippið út pöntunarséðil þennan
og sendið útgáfunni hann.
Ég undirrit.....óska að mér verði sendar íslendinga
sögur (13 bindi), Byskupasögur, Sturlunga og Annálar
ásamt Nafnaskrá (7 bindi), Riddarasögur (3 bindi) og
Eddukvæði I—II, Snorra-Edda og Eddulyklar (4 bækur),
pamtals 27 bækur, er kosta kr. 1255,00 í skinnbandi.
Bækurnar verði sendar mér í póstkröfu þannig, að ég
við móttöku bókanna greiði kr. 155,00 að viðbættu öllu
póstburðar- og kröfugjaldi og afganginn á næstu 11 mán-
uðum með kr. 100,00 jöfnum mánaðargreiðslum, sem
greiðast1 eiga fyrir 5. hvers mánaðar.
Ég er orðin.. 21 árs og er það ljóst, að bækurnar verða
ekki mín eign fyrr en verð þeirra er að fullu greitt.
Það er þó skilyrði af minni hendi, að ég skal hafa rétt
til að fá skipt bókunum, ef gallaðar reynast að einhverju
leyti, enda geri ég kröfu þar um innan eins mánaðar frá
móttöku verksins.
Litur á bandi óskast
Svartur
Brúnn
Rauður
Strikið yfir það, sem
ekki á við.
Nafn .
Staða .
Heimili
Útfyllið þetta áskriftarform og sendið það til útgáfunnar.
Séuð þér búinn að eignast eitthvað af .ofantöldum bók-
um, en langi til að eignast það er á vantar, fáið þér þær
bækur að sjálfsögðu með afborgunarkjörum, þurfið að-
eins að skrifa útgáfunni og láta-þess getið hvaða bækur
um er að ræða.
Aldrei hefur íslenzkum bókaunnendum verið boðin slík
kostakjör sem þessi.
ÍSLENDINGASAGNAÚTGÁFAN H.F.
Túngötu 7. — Pósthólf 73. — Sími 7508. — Reykjavík.