Alþýðublaðið - 05.02.1950, Page 8
Gerizt áskrifendur
að Aiþýðublaðinu.
Alþýðublaðið inn á
'hvert heimi'li. Hring-
ið í síma 4900 eða 4906.
Sunnudagur 5. febrúar 1950
Börn og unglingar.
Komið og seljið j
Alþýðublaðsð. j
Allir viljia kaupa j
Alþýðublaðið. i'
irðuleg rógsherferð íhalds
blaðanna um
Kolfallin-n bæjarstjóri kveður Akurnes-
iniga með svívirðingum í Vísi og Morg-
unblaðinu.
ÍHALDSBLÖÐIN TVÖ, Vísii og Morgunblaðið, eru nú
byrjuð ofstækisfulia rógsherferð gegn hinni nýju bæjarstjórn
á Akranesi. Ihaldið beið á Akranesi herfilegan ósigur og sýndu
kosningarnar greinilega, að bæjarbúar kæra sig ekki um að það
síjórni bænum ófram. Stóryrði og svívirðingar fráfarandi bæj-
arstjóra í Reykjavíkurblöðunum geta ekki breytt þessari stað-
reyitd. íhaldið skilar bæjarmálum Akraness af sér í hinni
mestu óreiðu, og er fullkomin eining í hiniúm nýja meirihluta
u;n þau verkefni, sem framundan eru, en á bak við þennan
meirihiuta standa 62,3% allra kjósenda á Akranesi.
Alþýðttflokkurlnn
í hreinum meiri-
hiula í Sandgerði
-
SANDGERÐI í febr.
í ALÞÝÐUBLAÐINU 1. fe-
rúar er sagt að Alþýðuflokkur-
inn hafi unnið 9 sæti við bæj
ar- og sveitarstjórnarkosning-
arnar — en Bá vantar einn full-
trúa, sem flokkurinn vann. Það
var hér í Sandgerði. Alþýðu-
flokkurinn átti 2 fulltrúa áður,
en hefur nú 3.
Þessir menn skipa nú hrepps-
nefnd Miðneshrepps:
Frá Alþýðufk: — Ólafur^Vil-
hjálmsson, Karl Bjarnason,
Hannes Arnórsson.
Frá SjálfstæðisfL: Aðalsteinn
Gíslason, Júlíus Eiríksson.
í sýslunefnd fyrir Miðnes-
hrepp var kosinn af lista Al-
þýðuflokksins Ólafur Vil-
hjálmsson.
Við kosningarnar 1946 var
einn sósíalisti á lista Alþýðu-
flokksins kosinn. Nú lögðu sós-
íalistar fram lista sér og var sá
maður efst á þeim lista.
Kjörsókn hefur aldrei verið
eins góð í Miðneshreppi og að
þessu sinni, og sýnir það bezt
að heppilegra er að hafa kosn-
ingar hér á þessum tíma árs en
á sumrin.
Sigur alþýðunnar í Miðnes-
hreppi er einn hinn mesti, er
Alþýðufl. vann í þessum kosn-
ingum. Listi Alþýðuflokksins
fékk 51% af öllum greiddum
atkvæðum. — Atkvæðamagn
flokkanna var sem hér segir:
Alþýðuflokkur 51%
Sósíalistaflokkur 12,2 %
Sjálfstæðisflokkur 31,8%
Auð ög ögild 5%
XV
4 Skrif íhaldsblaðanna um
bæjarmál Akraness einkennast
af slíkri heift, að þau verða
varla tekin alvarlega. Ihaldið
hefur undanfarið kjörtímabil
haft Guðlaug nokkurn Einars-
son bæjarstjóra, og hefur
stjórn hans á málefnum bæj-
arins verið með þeim endem-
um, að reikningar hafa enn
ekki verið lagðir fram fyrir ár-
ið 1948, hvað þá 1949. Hefur
stjórnin á öllum framkvæmd-
um bæjarins verið í sama ó-
lestri, enda mun þetta eiga sinn
þátt í því, að Akurnesingar
hafa snúið baki við íhaldinu og
kolfellt það við kosningarnar.
Brofizl inn í kjötbúð
AÐFARANÓTT föstudagsins
var brotizt inn í kjötverzlun
Hjalta Lýðssonar á horni Ás-
valiagötu og Hofsvaliagötu.
Hafði þjófurinn á brott með
sér um 80 krónur, en annars
var ekki saknað. Þjófurinn
hafði farið inn um kjallaradyr
á bakhlið hússins og þannig
komizt inn í verzlunina.
Guðlaugur Einarsson ætti
aS íhuga það, áður en hann
hleypur í Vísi og Morgún-
blaðið með róg og svívirðing-
ar um einstaka menn og
flokka á Akranesi, að í stjórn
artíð lians sjálfs hrapaði
íhaidið þar frá því að hafa
í marz 1946 51,7% gildra at-
kvæða í aðeins 37,7 % við
kosningarnar nú. Þctta er
dómur Akurnesinga um bæj-
arstjórn Guðlaugs og íhalds-
ins og þeim dómi getá níð-
skrif í Reykjavíkurblöðum
Sjálfstæðisflokksins ekki
lmekkt.
Hin nýja bæjarstjórn Akra-
ness hefur verið við völd að-
eins í eina viku. En á þessari
fyrstu viku er Guðlaugur þó
búinn að kveða upp stórvrta
dóma um þessa bæjarstjórrj,
eins og lesa má í Vísi og Morg-
unblaðinu. Hann segir, að hún
sé „ótraust, veik og spillt“,
j.byggð upp á vesaldómi for-
heimskunnar“, ásakar hana um
„upplausn og framkvæmda-
leysi“, „athafnaleysi og úr-
ræðaskort“. Þetta eru skrif á
borð við það, þegar Vísir birti
dóm um útvarpserindi, sem
aldrei var flútt, og er bezt að
lofa nýju bæjarstjórninni að
reyna sig, áður en dómur verð-
ur upp kveðinn yfir henni.
Guðlaugur Einarsson er nú á
förum frá Akranesi. Sjálfstæð-
ismenn þar hafa bannað honum
að skrifa í blað þeirra á staðn-
um, svo að hann kemur til
Reykjavíkur til að hella þar úr
skálum reiði sinnar yfir Akur-
nesinga, með persónulegum
svívirðingum um einstaka
menn. Þetta er ódrengilegur
viðskilnaður, sem varla mun
auka vegsemd Sjálfstæðis-
manna á Akranesi.
Alþýðufiokkurinn
í Hafnarfirði
heldur sigurhátíð
á laugardag
ALÞÝÐUFLOKKURINN í
Hafnarfirði efnir til hátíða-
halds laugardaginn 11. febrúar
í tilefni af hinum glæsilega
sigri flokksins við bæjarstjórn-
arkosningarnar í’ Hafnarfirði.
Allir stuðningsmenn A-listans
eru velkomnir í hófið meðan
húsrúm leyfir.
Hátíðin hefst með sameigin-
legri kaffidrykkju, en síðan
verða fjölbreytt skemmtiatriði,
sem auglýst verða nánar síðar.
---------v— -----
Kvikmyndir Kjarfans
0 Bjarnasonar
Nefin rifnuðu hjá síSdarfeifar-
skipinu Fanney í Miðnessjó.
... j
Mikil síld virtist þar á 7-15 faðma dýpi.
—...............
UNDANFARNA DAGA hefur síldar orðið vart í Miðnes-
sjó, og í fyrrinótt fékk Fanney noklcrar síldar í net, sem húm
lagði á 7—8 faðma dýpi, en er hún lagði netin á 15 faðma dýpi
fylltust þau og rifnuðu, og missti skipið þannig tvö net.
Samkvæmt upplýsingum ♦ .— ~ ~ _
sem blaðið fékk í gær hjá . . , . , . , 1
16 nyjum rafvirkjum
afhent sveinsbréf
Sveini Benediktssyni hafa bát-
ar orðið varir síldar í Miðnes-
sjó í síðustu viku.
Síðdegis á föstudaginn eða
um klukkan 7 fann leitarskip-
ið Fanney mikla fiskitorfu um
18 sjómílur vestur af Garð-
skaga og var torfan á 20—30
faðma dýpi, en þarna er 65
faðma dýpi. Fanney lagði
þarna net en fékk enga síld,
en aftur á móti fengu skipverj-
ar nokkra þorska á handfæri
og virtist því vera þarna um
MJÖ MIKIL AÐSÓKN hef- ■ þorskgöngu að ræða.
ur verið að kvikmyndasýning-
um Kjartns Ó. Bjarnasonar í
Nýja Bíó undanfarna daga, en
þar hefur hann sýnt kvikmynd
sína frá Vestmannaeyjum,
Vestfjarðakvikmyndina, „Bless
uð sértu, sveitin mín“ og „Blóm
móðir bezta“.
Um helgina hefur Óskar sér-
stakar sýningar fyrir börn
klukkan 3 fyrir hálft gjald.
Var ein slík barnasýning í gær
klukkan 3 og verður aftur í
dag á sama tíma.
Á miðnætti á föstudags-
kvöldið varð vart síldartorfu á
svipuðum' slóðum, og var hún
á 7—15 faðma dýpi. Lagði
Fanney þá tvö net á 7—8
faðma dýpi, en fékk aðeins fá-
•ar síldir í þau. Síðan voru net-
in lögð á 15 faðma dýpi og þau
látin liggja í klukkutíma. Virt-
ist mikil síld ganga í netin, og
þegar skipverjar ætluðu að
fara að draga netin voru þau
svo þung, að þau rifnuðu, og
misstu þeir bæði netin.
52 þáfífakendur í skákþingi
Reykjavíkur, sem hefst kl. 1 dag
-.............— ♦
Fjölmennasta þing, sem háð hefur verið
------------------ •»....
SKÁKÞING REYKJAVÍKUR hefst í dag kl. 1 að Þórskaffi,
og verða þátttakendur samtals 52, og er þetta fjölmcnnasta
skákmót, sem nokkru sinni hefur verið haldið hér. í meistara-
flokki eru 24 skákmenn, í I. flokki 15 os í II. flokki 13.
Vegna fjölda þáttakenda
verða tefldar 11 umferðir sam-
kvæmt hinu svokallaða „Mon-
radskerfi“, en það byggist að-
allega á því, að menn með jafna
eða svipaða vinningatolu tefla
saman eftir þar til gerðum
reglum, úr því að fyrstu um-
ferð er lokið.
Dregið var um töfluröð kepp
enda á föstudagskvöldið og
verður röðin, sem hér segir:
1. Björn Jóhannesson
2. Ingvar Ásmundsson
3. Baldur Möller
4. Þórður Jörundsson
5. Guðjón M. Sigurðsson
6. Kári Sólmundarson
7. Friðrik Ólafsson
8. Steingrímur Guðmundss.
9. Haukur Sveinsson
. 10. Guðm. S. Guðmundsson
11. Pétur Guðmundsson
12. Lárus Johnsen
13. Benóný Benediktsson
14. Gunnar Ólafsson
15. Bjarni Magnússon
16. Árni Stefánsson
17. Jón Ágústsson
18. Hjálmar Theódórsson
19. Eggert Gilfer
20. Óli Valdimarsson
21. Guðmundur Ágústsson
22. Árni Snævarr
23. Steinn Kristinsson
24. Þórir Ólafsson.
Samkvæmt þessu tefla þessir
saman í 1. umferð (sá sem tal-
inn er fyrr, hefur hvítt)):
1. Ingvar Ásmundss. - Björn
Jóhannesson
2 Þórður Jörundsson - Bald-
ur Möller
3. Kári Sólmundarson - Guð-
jón M. Sigurðson
4. Steingrímur Guðmundsson
- Friðrik Ólafsson
5. Guðmundur S. Guðmunds-
son - Haukur Sveinsson
6. Lárus Johnsen - Pétur
Guðmundsson
7. Gunnar Ólafsson - Benóný
Benediktsson
8. Árni Stefánsson - Bjarni
Magnússon
9. Hjálmar Theódórsson - Jón
Ágústsson
10. Óli Valdimarsson - Eggert
Gilfer
11. Árni Snævar - Guðmundur
Ágústsson
12. Þórir Ólafsson - Sveinn
Kristinsson.
FÉLAG ísl. rafvirkja og Fé-
lag löggiltra rafvirkjameistaræ
í Reykjavík héldu árshátíð
sína á föstudagskvöldið í Sjálf-
stæðishúsinu. Auk ýmsra
skemmtiatriða og ræðuhalda
fór þar fram afhending sveins-
bréfa í iðninni, þar sem hinir
nýútskrifuðu sveinar voru
boðnir velkomnir í stéttina, og
þeim fluttar árnaðaróskir. For-
maður prófnefndar, Sigurodd-
ur Magnússon rafvirkjameist-
ari afhenti sveinsbréfin.
Eftirtaldir menn fenga
sveinsbréf sjín afhent við þetta
hátíðlega tækifæri:
Páll J. Pálsson, ágætiseink-
unn, Ragnar Björnsson, I. eink-
unn. Þorleifur K. Sigurþórsson,
I. einkunn. Aage Steinsson, I.
einkunn. Sigurður Sigurjóns-
son, I. einkunn. Jakob Ágústs-
son, II. einkunn. Gunnar Run-
ólfsson, II. einkunn. Gunnar
öuðmundsson, II. einkunn.
Gunnlaugur Þórarinsson, II.
einkunn. Yngvi Guðmundsson,
II. einkunn. Björn Einarsson,
II. einkunn. Hafsteinn Davíðs-
son, II. einkunn. Friðrik Stef-
ánsson, II. einkunn.
í prófnefnd rafvirkja eigai
sæti: Siguroddur Magnússora
form., Jón Sveinsson, Finnur
Kristjánsson.
Þessir rafvélavirkjar fengu
afent prófskírteini:
Sverrir Eggertsson, I. eink-
unn. Axel Eiríksson, II. eink-
unn. Björn K. Gíslason, IL
einkunn.
í prófnefnd rafvélavirkja
eiga sæti: Ríkarður Sigmunds-
son form., Guðmundur Jensson,
Eiríkur K. Eiríksson.
Yíirlýsing frá
stuðningsmönnum
r
síra Arelíusar
Á FJÖLMENNUM fundi,
sem stuðningsmenn síra Árelí-
usar Níelssonar í prestskosn-
ingunum til Fríkirkjunnar
héldu 1. febrúar s.l., var eftir-
farandi tillaga samþykkt með
atkvæðum allra fundarmanna:
Að gefnu tilefni skal það
skýrt tekið fram, að við viljum
vinna að einingu Fríkirkju-
safnaðarins í nútíð og framtíð
eftir beztu getu samkvæmt ósk-
um þeim, er síra Árelíus bar
fram í lok ræðu sinnar 15. jan-’
úar s.l. 1