Alþýðublaðið - 07.02.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.02.1950, Blaðsíða 1
Þióðverjar fá engan her ela Alviitmileysi í nokkru sinm ■ ■ meira en n íyrir stríð. Fiytti ræðu um Þýzkaiandsmáiin í Stuttgart í gærdag, McCLOY, hernámsstjóri Bandaríkjanna í Þýzkalandi, flutti í gær ræðu í Stuttgart, er hann opnaði „amerískt hús“. þar í borg. Sagði hattn meðal annars, að Þjóðverjum mundi ekki verða leyft að koma sér upp her eða flota, og hét hann því, að Bandaríkin myndu einskis láta ófreistað til þess að liindra það, að nazisminn vakni á ný í Þýzkalandi. Brezka utanríkismálaráðu- * ' neytið í London hefur þegar lýst yfir, að það sé algerlega sammála þeirri stefnu gagnvart Þjóðverjum, sem kom fram í ræðu McCloys í Stuttgart. McCloy sagði um nazista, að það væri fyrst og fremsl htut- verk þýzkra yfirvalda að hindra endurfæðingu nazism- ans, enda þótt Bandaríkj amenn myndu ekki hika við að nota öll þau ráð, sem þeir geta, til að hindra slíka endurfæðingu. Þá ásakaði McCloy þýzka embættismenn fyrir að reyna að kenna Frökkum og öðrum þjóðum um ógæfu Þýzkalands. Þjóðverjar verði að gera sér grein fyrir staðreyndum, en ekki reyna að velta sökinni á ógæfu sinni yfir á aðra. Þýzkaland getur bezt unnið fyrir öryggi sitt, hélt hernáms- stjórinn áfram, með því að taka fullkominn þátt í samstarfi vestrænna lýðræðisþjóða. Um sameiningu Þýzkalands sagði hann, að þrátt fyrir erfiðleika, sem nú væru á vegi slíkrar sam- einingár, mundu Bandaríkja- menn eftir sem áður stefna að myndun sameinaðs, lýðræðis- legs sambandsríkis í Þýzka- landi. McCloy minntist á Saarhér- aðið og sagði, að deilan um það væri alvarlegt vandamál, sem leysa yrði á skynsamlegan hátt og ekki mætti verða forleikur verri tíðinda, eins og áður hef- ur orðið. Lofiárás á Shianghai FJÓRTÁN sprengjuflugvélar kínverskra þjóðernissinna gerðu í gær loftárás á Shiang- hai. Tókst þeim að valda skemmdum á orkuveri einu og snúa aftur til Formósu, þrátt fyrir allmikla loftvarnaskot- hríð. 360 000 náimimenn í verkfalli í Éandaríkjunum TRUMA.N FORSETI hefur gripið til Taft-Hartley-laganna til þess að reyna að leysa kola- verkfallið í Bandaríkjunum. Nú eru alls 360 000 námumenn ec'gerðalausir. Ekkert samkomulag um bæjarstjóra áAkureyri. Frá fréttaritara Alþýðubl. AKUREYRI í gær. HIN nýkjörna bæjarstjórn Akureyrar heldur fyrsta fund sinn á morgun. Ekki er vitað að neitt samkomulag hafi tekizt um nýjan bæjarstjóra. HAFR. ---------«---------- Njósnamál í Póllandi RÉTTARHÖLD yfir franska ræðismanninum Robineau hóf- ust í gær í Stettin í Póllandi. Er hann, ásamt fimm öðrum mönnum (þar af fjórum Pól- verjum) ákærður um njósnir fyrir vesturveldin. hann er kennd. Frá þessu segir í fréttaskeyti til blaðsins „New York Times“ frá Bagdad. Hefur fornminja- vörður Iraqríkis, dr. Nail al- Asil, beðið stofnanir í Banda- ríkjunum um sérfræðilega að- stoð við rannsókn á þeim töflum, sem fundizt hafa, en alls hafa fundizt um 2400 leir- töflur. Er það ærið starf að þýða þær allar og vega og meta það efni, sem á þeim finnst. Flestar töflurnar fundust í bænum Shadippur, sem nú er ♦ Gústav Adolf þegar sænska þingið kom sam- an fyrir nokkru, kom það fyrir í fyrsta sinn, að Gústav kon- ungur gat ekki verið viðstadd- ur. Var hásæti hans autt, en Gústav Adolf krónprins las há- sætisræðuna. Myndin er af krónprinsinum. kallaður Tel Harmel. Hafa fornleifafræðingar ekki veitt þessum litla bæ mikla athygli fyrr en nú, en bærinn er skammt frá Bagdad. Nú er hins vegar búið að grafa þenn- an bæ upp, og hafa verið í hon- um rúmlega 500 hús, fjögur musteri og borgarmúr um- hverfis, allt að fjögurra feta þykkur. Mikið af töflum þeim, sem fundizt hafa í Shadippur, cru Framhald á 7. síðu. Þekktu Sumerar kenningu Pythagorasar 2000 f. Kr.? -------♦------- Merkilegur fornleyfafundur, sem getur gerbreytt sögu vísindanna. ---------------*------- STÓRMERKILEGUR FORNLEIFAFUNDUR í bænum Shadippur, skammt frá Bagdad í Iraq, getur leitt til þess, að saga vísindauna, og þar með mannsandans, gerbreytist. Það hefur til dæmis komið í ljós, er rannsakaðar voru leirtöflur, sem munu liafa verið „skólabækur“ meðal Sumera, að hið fræga lögmál Pythagorasar í stærðfræðinni hefur ekki aðeins verið þekkt, heldur einnig kennt skólabörnum um það bil 2000 árum fyrir Krist, eða 1500 árum fyrir tíð Pythagorasar, er talinn hefur verið höfundur stærðfræðireglunnar, sem við Tí\ maður léí skrá sig atvinnu- lausan um síðastliðin mánaðamót, þar af 110 fjölskyldufeður. -. ♦---------- ATVINNULEYSI er nú meina í Reykjavík en nokkru sinni síðan fyrir stríð. Við skráningu atvinnu- lausra, sem fram fór fyrir helgina, ]ét samtals 221 maður skrá sig, þar af 135 verkamenn, 63 vörubíl- stjórar og 15 sjómenn. Þá voru menn skráðir atvinnu- lausir úr öðrum stéttum, t. d. verzlunarmenn, vél- stjórar, skósmiðir, verkstjórar og trésmiðir. Af þess- um a.tvinnuleysingjum eru 111 fjöl'skyldufeður og 110 einhleypir. Til samanburðar við þessar! tölur má geta þess, að við at- vinnuleysisskráninguna, sem fram fór um sama leyti í fyrra- vetur, voru aðeins. skráðir 135 atvinnulausir, og var það þá hæsta tala, sem komið hafði til skráningar síðan fyrir stríð. Af þeim 135 verkamönnum, sem nú létu skrá sig við at- vinnuleysisskráninguna, eru 48 fjölskyldufeður, en 87 ein- hleypir. Af vörubílstórunum' eru 51 fjölskyldufaðir og 12 einhleypir. Sjómennirnir eru 8 fjölskyldufeður og 7 einhleyp- ir. Þá voru skráðir 2 einhleyp- ir verzlunarmenn og einn fjöl- skyldufaðir, einn kvæntur múrari, einn kvæntur vélstjóri og einn einhleypur, einn kvæntur skósmiður, einn kvæntur verkstjóri og einn einhleypur trésmiður. í fjölmennustu atvinnu- greinunum er aldur hinna at- vinnulausu sem hér segir: 16—20 ára: Verkamenn 42, sjómenn 5 og vörubílstjórar 2. 21—30 ára: Verkamenn 33, sjómenn 5 og vörubílstjórar 6. 31—50 ára: Verkamenn 36, sjómenn 4, vörubílstjórar 35. 51—66 ára: Verkamenn 18, sjómaður 1, vörubílstjórar 16. 67 ára og eldri: Verkamenn 6 og vörubílstjórar 4. Vísindamenn flulfir frá Stoningtoneyju ÞRÍR BREZKIR VÍSINDA- MENN voru í gær fluttir flug- leiðis frá Suðurpólseyjunni Stonington, þar sem enskur leiðangur hefur dvalizt við rannsóknir í tvö ár. Eru þá eftir sex menn á eynni, sem hefur verið inni frosin um langt skeið, en björgunarskip er nú á leið til þeirra. HIN NÝKJÖRNA BÆJAR- STJÓRN Hafnarfjarðar kemur saraan á fyrsta fund sinn í dag. Bidault reynir enn að halda sljorn sinni saman BIDAULT, forsætisráðherra Frakka, vinnur enn að því að finna menn í stað jafnaða.r- mannanna þriggja, sem fóru úr ráðuneyti hans fyrir helgina. Queuille, fyrrverandi forsætis- ráðherra, hefur þegar tekið að sér embætti innanríkismáláráð- herra, sem er hið vandasamasta þeirra ráðuneyta, sem :afnað- armenn fóru með. Tydings vill al- heims afvopnun- arráðsfefnu ÖLDUNGADEILDARÞING- MAÐURINN TYDINGS flutti í gær ályktunartillögu í öld- ungadeild bandaríska þingsins þess efnis, að skora á Truman forseta að kalla saman alheims afvopnunarráðstefnu. Telur Tydings, að’ algert bann á fram- leiðslu allra vopna, frá vatns- efnissprengjunni til riffla (nema vopn handa lögreglu og hernámsliði) sé eina vonin til að forðast þá eyðileggingu, sem hljóti að sigla í kjölfar kjarn- orkuvopnakapphlaupsins. Bevin í London ERNEST BEVIN, utanríkis- málaráðherra Breta, er nú kom inn til London eftir rumlega sex vikna ferðalag til Austur- landa. Hann hefur þegar rætt við Attlee og mun gefa skýrslu á ráðherrafundi í dag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.