Alþýðublaðið - 07.02.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 07.02.1950, Page 6
ALÞÝÐIJBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. febrúar 1950. Eric Amhler ‘ Fró Dáríður Dulheims; A ANDLEGUM VETTVANGI. í dag ætla ég að minnast lítils háttar á eina þýðingarmestu stofnun þessa lands, — nefni- lega Ríkisútvarpið. Ekki ætla ég samt að gagnrýna starfsemi þess, — það er að segja, ekki það, sem það gerir, heldur ætla ég að geta um ýmislegt, sem það hefur látið ógert, en ætti þó helzt að gera, ef það vill standa i stykkinu sem menningarinnar verkfæri. Frá mínum bæjardyr- um séð er það bæði margt og mikið, sem það lætur ógert í því efni. Það-er nú hvað fyrst að telja, að það lætur sálræna vettvang- inn svo að segja alveg afskipta- lausan. Það er þó sá vettvangur, sem hvert menningarverkfæri ætti einna helzt að láta til sín taka. Og þar er af nógu að taka. Ég hef þaulhugsað þetta mál, meira að segja ritað um það áð- ur hér í dálkunum, enda þótt það fengi þá lítinn byr, — en ég er ekki af baki dottin enn, — það skal ég láta alla aðstandend- ur vita! í útvarpinu höíum við ýmsa fasta þætti og um hin ólíkustu efni, t. d. um Hæstarétt, sem er að sjálfsögðu einstaklega vill- andi nafn, þar eð hér er vitan- lega um alls engan hæsta rétt að ræða, — þátt um íslenzkt mál, — sem er sömuleiðis mjög villandi heiti, þar eð þátturinn fjallar því nær eingöngu um óíslenzkt mál, það er að segja málvillur. Og skákþætti, í- þróttaþætti, spilaþætti og jafn- vel jazzþætti hafa eyru okkar orðið að þola, — en sálrænir þættir, — nei, — þeirra er eng- in þörf að áliti ráðamanna út- varpsins. Að minnsta kosti ekki líkt því eins mikil og fyrir jazz- þættina! Sér nú ekki hver heilvita maður hvert þessi svokölluðu ráðamenn, — ekki einu sinni útvarpsins, heldur á öllum svið- um, eru að fara með þjóðfélag- ið! Engin þörf fyrir sálrænan þátt, — megum við þá heldur biðja um jazzþátt! Að hugsa sér annað eins. Jæja, munu nú sumir segja. Komið þér þá með rökstudda tillögu um tilhögun slíks þátt- ar, svo að menn geti fengið nokkra hugmynd um notagildi hans. — Jú, ég skal koma með tillögur. Ég hef þrauthugsað þetta mál; það skal ekki standa á mér,----------- Ykkur kann nú að bregða i brún þegar ég læt ykkur heyra tillöguna. Nefnilega um útvarps efnið. Ég vil sem sé kr.eíjast ^ þess, að í jafn mikilsverðuin þætti verði eingöngu útvarpað því vandaðasta og bezta, sem ( völ er á, og um leið tæki öllum j öðrum útvarpsþáttum og út- ( varpsefni langt fram. Dýrt hugsið þið, — en ég er nú ekki j svo viss um það---------- Ég vil sem sé láta útvarpa því nær eingöngu — eða ein- göngu, — eintómri þögn í þess j um sálrænuþáttum. Bara að þul urinn, sem stjórnar, segi um leið og þátturinn hefst: nú hefst sáj . I ræni þátturinn, að þessu sinni útvörpum við 15 mínútna þögn. Frú N. N. stjórnar þögninni, eða eitthvað þess háttar. Hugsið ykkur, hversu geysi- áhrifaríkur sá þáttur gæti orð- j ið, því að ekkert er sálrænnaj 1 en þögnin. Og hugsið ykkur, hvílík hvíld hún yrði hlustend- um og hversu óendanlega hátt hún yrði hafin yfir margt annað útvarpsefni. Ég segi nú ekki margt. Ég mun ef til vill, — nei, ég mun áreiðanlega skrifa um þetta meira seinna. í andlegum friði, Frú Dáríður Dulheims. Raflagnir Viðgerðir Véla- og raftækjaverzlun Tryggvagötu 23. Sími 91279. Hann les Alþýðublaðið Auglýsið í AlþýSublaðinu! dettur ekki í hug að halda, að fjandmenn okkar séu að setja slíkt og þvílíkt á svið að gamni sínu, eins og þér virðist halda. Við höfðum tækifæri til að fangelsa þá, sem að samsærinu stóðu, og þeir sögðu okkur eftir dálitla viðureign, að þeir hefðu verið keyptir til verknaðarins, og sá, sem borgaði þeim, var þýzkur njósnari í Sofía, Möller aðnafni, en þann mann höfðum við þekkt um skeið. Hann hafði kallað sig amerískan ríkisborg- | ara, en ameríska sendiráðið . mótmælti því að lokum. Ég geri ráð fyrir, að hann taki þann ríkisborgararétt og nefni sig ^ því nafni, sem passar honum það og það sinnið. En hvað sem þessu líður, þá kallaði ég á Ko- peikin og sagði honum allt af létta. Ég sagði honum um leið, að ég teldi réttast að yður yrði ekki gefnar neinar upplýsingar um málið, að minnsta kösti ekki á þessu stigi. Því minna, sem talað er um svona mál, því betra. Og auk þess vannst ekkert með því að gera yður ó- rólegan, meðan þér voruð önn- um kafnir við skyldustörf yðar. Ég er farinn að halda, að í þessu hafi mér skjátlazt verulega. Ég hafði ástæðu til að ætla, að Möller þessi mundi reyna að hafa hendur í hári yðar hvar sem væri. Þegar Kopeikin hringdi til mín, strax og hann vissi um tilræðið, skildist mér, að ég hafði vanmetið herra- manninn þýzka í Sofíu. Hann reyndi aftur. Ég er í engum vafa um að hann mun reyna í þriðja sinn, ef við gefum hon- um tækifæri til þess.“ Hers- höfðinginn hallaði sér aftur á bak í stólnum sínum. „Skiljið þér nú, Mr. Graham? Hefur hinn ágæti heili yðar gripið það, sem ég hef verið að reyna að segja yður? Þetta er ákaf- lega einfalt. Það er einhver að gera tilraunir til þess að ráða yður af dögum.“ Alltaf þegar Graham hafði hugsað um dauðann, hafði hon- um ekki til hugar komið, að hann mundi deyja ónáttúrleg- um dauðdaga. Hann hafði allt af gert ráð fyrir því, að hann mundi deyja á náttúrlegan hátt og í rúmi sínu eða í sjúkrahúsi. Vitanlega áttu slys sér stað, en hann ók alltaf á- kaflega varlega, hann var reglusamur, ágætur sundmað- ur, hann var enginn hestamað- ur, ekki heldur fjallgöngumað- ur, hann gekk ætíð varlega yf- ir götu, tók ekki þátt í hættu- legum leikjum og hafði aldrei fundið til minnstu löngunar til þess að fleygja sér fyrir braut- arlest á ferð. Aldrei á ævi sinni hafði honum dottið í hug að nokkur manneskja í öllum heiminum óskaði dauða hans. Hefði honum dottið það í hug, þá hefði hann áreiðanlega hraðað för sinni til sérfræðings í taugasjúkdómum til þess að láta hann rannsaka sig. Sú vitneskja, að einhverjir menn óskuðu ekki aðeins að hann léti lífið, heldur einnig unnu að því öllum árum, kom honum því eins mikið á óvart og, ef ein- hver hefði sagt honum, að nýj- ustu uppgötvanir sýndu áð jörðin væri þrátt fyrir allt eins og pönnukaka í laginu, eða ef hann hefði komizt að því, að kona hans héldi fram hjá hon- um. Hann var þannig gerður, að hann hafði alltaf ætlað öllum allt hið bezta. Það var því ekki undarlegt, þó að fyrsta hugsun hans við þessa nýju vitneskju væri á þá leið, að hann hlyti að hafa gert eitthvað mjög mik ið af sér, og að það réttlætti það, að einhver vildi nú ráða hann af dögum. Sú staðreynd, að hann hefði verið að fram- kvæma skylduverk sín, fannst honum ekki geta verið hin eina ástæða fyrir þessu. Hann var ekki hættuleguA Auk þess hafði hann konu að sjá fyrir. Það var óhugsandi, að nokkur maður ætlaði sér í raun og veru að myrða hann. Hér hlaut að vera um einhvern hræðileg- an misskilning að ræða. Hann heyrði sjálfan sig segja: „Já, ég skil“. En vitanlega skildi hann ekki neitt. Þetta var sjóðandi vitlaust. Hann sá, að Haki hers liöfcfingi starði á hann og úrn litla munninn lék kuldalegt bros. „Þetta kemur yður algerlega á óvart, Mr. Graham. Yður er ekkert um þetta. Það er ekki skemmtileg tilhugsun. En stríð er stríð. Og þetta er alveg eins og á vígvöllunum. Það er ekki sótzt eftir lífi yðar af því að þér eruð mr. Graham. Það væri jafn mikið sótzt eftir lífi hvers manns, sem hefði sama hlutverki að gegna og þér hafið. Þetta ér, ef svo má að orði komast, ó- persónulegt stríð. Það er búið að merkja við yður í skjölum fjandmannanna, og ég skil það vel, að það þarf nokkuð til að halda hugrekki sínu undir slík- um kringumstæðum. Ég skil yður vel, mr. Gramham. En þér standið betur að vígi en hermaðurinn á vígvellinum. Þér þurfið ekki að verja neinn herfræðilega mikilsverðan stað, ekki vígi eða hreiður. Þér þurfið bara að verja sjálf- an yður. Þér þurfið ekki að ryðjast fram og gera árás. Þér getið lagt á flótta án þess að vera hugleysingi eða liðhlaupi. Þér verðið að komast til Lon- don heilu og höldnu. En það er löng leið frá Istanbul til Lon- don. Þér verðið að undirbúa yður undir það, að ekkert geti komið yður á óvart, þér verð- ið að þekkja óvini yðar. Skilj- ið þér mig?“ „Jó, ég skil yður“. Hugsun hans var nú aftur orðin heið og skýr. En einhvern veginn fannst honum eins og hann væri orðinn allt annar maður. Hann vissi að hann varo að láta líta svo út, sem hann tæki þessu ®llu saman á hinn eðlilegasta hátt. En hann átti fullt í fangi með það Munn ur hans fylltist æ ofan í æ af munnvatni svo að hann varð alltaí að vera að kyngja, og bæði hendur hans og læri skulfu. Honum fannst hálft í hvorú að hann hagaði sér eins og skóladrengur. Maður hafði skotið á hann þremur skotum. Hvaða mismunur gat vcrið á því, hvort maðurinn væri al- gengur þjófur eða morðingi, sem sóttist eftir lífi hans? Hann hafði skotið þrisvar sinnum á hann, og það var staðreynd. En þrátt fyrir það var einhver mjög mikill mun- ur á þessu. „Jæja“, heyrði hann Haki hershöfðingja segja. „Við skul- um byrja á byrjuninni. Sam- kvæmt því, sem Kopeikm hef- ur sagt mér, þá sáuð þér ekki andlit mannsins11. „Nei, ég sá það ekki. Það var myrkur í herberginu“. Kopeikin greip fram í. „Hann skildi eftir skothylki. Það var níu millimetra gerð, sjálfshlaðningur“. sjálfhlaðningur. „Það veitir okkur ekki mikla hjálp. Tókuð þér ekki eftir neinu í sambandi við mann- inn, Mr. Graham?“ „Nei, alls ekki, er ég hrædd- ur um. Þetta var allt með svo mikilli skyndingu. Hann var horfinn áður en ég gat í raun og veru áttað mig“. „En hann hefur líkast til verið búinn að bíða eftir yður i herberginu nokkra stund. Þér hafið ekki fundið til dæmis fundið .neina lykt í herberg- inu?‘ Daglega á boð- stólum heitir kaldir fisk og kjötréttir. % /G O A T r'v-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.