Alþýðublaðið - 07.02.1950, Qupperneq 8
Gerizt ’áskrifendor
að 'ASþýðyblaðiou.
Alþýðublaðið inn á
■ hvert heimili. Hring-
ið í sínia 4900 eða 4906.
Þriðjudagur 7. febrúar 1950.
Börn og ungíiogar®
Komið og seljið j
AI þ ýð y b íá ð I ð. j-
Allir viljia kaupa
Alþýðublaðið. i
Skipfing úfsvara þungbær fyrir
nágrannasveifir Reykjavíkur.
• _• r
Formáður BFI
Reykjavík fær allt að helmingi útsvara
maona, sem búa í nágrannasveitonum.
..................-.—■»-— ■
ENGIN SVEITAKFÉLÖG munu hafa goldið slíkt afhroð
aí ákvæðum útsvarslaganna um skiptingu útsvara sem nágranna
hréppar Reykjavíkur. Verulegur hluti íbúa þessara hreppa
stundar atvinnu sína í Revkjavík, og því fær Reykjavík hluta
áf útsvari þeirra. Nemur þetta í sumum tilfellum jafnvel helm-
itr.gí. Er nú svo komið, að sumum þessara hreppa er með öllu
fyrirmunað að sjá fyrir börnum íbúa sinna með eðlilegum
hæíti, er Reykjavík á að halda áfram áð fá stóran hiuta af út-
svörum þeirra.
------ ♦ Guðmundur I. Guðmundsson
hefur flutt á alþingi frumvarp
til laga um breytingar á út-
svarslögunum, þar sem þessi
skipting á útsvörum verði lögð
niður. Var mál þetta til um-
ræðu í efri deild í gær, og urðu
nokkrar umræður um það,
hvort maður eigi að greiða út-
svörin þar, sem hann starfar,
eða þar, sem hann býr, ef þetta
er ekki í sömu sveit.
Guðmundur hélt því * fram,
að sú sveit, sem maður býr í,
beri af honum mikinn .kostnað.
Hún verði að greiða hátt gjald
til trygginga vegna hans, sjá
fyrir skólum, vegum, lóðum og
margs konar þjónustu. Sú sveit,
sem maður starfar í, hafi eng-
in slík útgjöld af honum. Taldi
Guðmundur því rétt, að sú
sveitin, sem ber útgjöldin
vegna borgarans, skuli einnig
hafa af honum tekjurnar.
Efri deild vísaði málinu til
allsherjarnefndar, og mun það
sennilega verða sent Reykjavík
og nágrannasveitunum til um-
sagnar.
Mannlaus bifreiS
í miðju Póst-
hússtræti í gær
í GÆR um klukkan ir.3Q var
mannlaus bifreið, R. 4811, úti
í miðju Pósthússtræti og stöðv-
aði þar alla umferð. Hafði eig-
andi bifreiðarinnar lagt henni
við Austurvöll í bifreiðastæði
bæjarstofnananna klukkan 1,
er hann fór til vinnú sinnar.
Þar gekk hann frá bifreiðinni
eins. og venja hans var, læsti
hurðum hennar og setti hand-
hemlana á, en klukkan um 2.30
tiikynnti lögregjan manninum
að bifreið hans stæði úti á
reiðju Pósthússtræti, en þegar
að henrii var komið var ekkert
á henni að sjá, annað en að
komið hefði verið við fram-
stuðarann. Virðist helzt sem
önnur bifreið muni hafa krægzt
á síuðarann og dregið þessa
bifreið á eftir sér út úr bíla-
stæðinu, og óskar rannsóknar-
legreglan að hafa tal af þeini,
sem gætu gefið nánari upplýs-
ingar.
KONRAD ADENAUER,
I kanzlari Vestur-Þýzkalands,
hefur bannað útflutning á járni
og stáli til Austur-Þýzkalands.
Sjónieikurinn Piiturog
sfúlka sýndur 15
sinnum á Ákureyri
Frá fréttaritara Alþýðubl.
AKUREYRI í gær.
SJÓNLEIKURINN Piltur og
stulka, eftir Emil Thoroddsen,
var sýndur hér í fimmtánda og
jafnframt síðasta sinn í gær-
kveldi .iyrir troðfullu húsi og
við ágætar undirtektir leikhús-
gesta. Hefur enginn leikur ver-
ið oftar sýndur á Akurevri við
jafnmilda aðsókn.
Leikstjóra var Jón Norðfjörð.
Jón æfir nú leik með mennta
skólanemendum og verður
hann sýndur síðari hluta febrú-
ar.
HAFR.
nnansfokksmunir brunnu
að Hverfisgötu 55 í gær
I GÆRDAG brann íbúð með
öflíiin innanstokksmunum að
Hverfisgötu 55. Stóð eldurinn
út um glugga á einni stofunni
þegar slökkviliðið kom á vett-
vang, en því tókst að slökkva
efdinn á um það bil stundar-
fjórðungi. Hins vegar var þá
afi.t brunnið innan úr þremur
berbergjum á hæðinni, þar
sena eldurinn kom upp, en að
öðru leyti tókst að verja liúsið.
Hverfisgata nr. 55 er gamalt
timburhús, ein hæð, kjallari og
ris, og kom eldurinn upp á
hæðinni. Var ein stofa alelda
þegar siökkviliðið kom, en eld-
urinn búinn að læsa sig í veggi.
Allir innanstokksmunir í íbúð'-
inni á þessari hæð brunnu, og
íbúðin, þrjú herbergi, eyðilagð-
ist.
Ókunnugt er um upptök elds-
ins.
Thorolf Smith.
son
í Hveragerði.
FYRSTI FUNDUR hinnar
nýkjörnu hreppsnefndar í
Hveragerði var haldinn í fyrra
dag. Oddviti var kjörinn Jó-
hannes Þorsteinsson, sem er
Framsóknafmaður, með stuðn-
ingi Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins. Á fundinum
var kosið í nokkrar helztu
nefndir hreppsfélagsins.
í byggingarnefnd voru kosn-
ir Stefán Guðmundsson, Her-
bert Jónsson, Jón Guðmunds-
son og Rögnvaldur Guðjónsson.
í skólanefnd: Ólafur Steinsson
og Valdís Halldórsdóttir. í
vatnsveitunefnd: Þorsteinn
Jónasson, Jón Bjarnason og
Gunnar Björnsson. I rafveitu-
nefnd: Ragnar Guðjónsson,
Sigurjón Jónsson og Sigurður
Árnason.
Sýslunefndarmaður var við
nýafstaðnar sveitarstjórnar-
kosningar kosinn síra Helgi
Sveinsson af lista Alþýðu-
flokksins. Sjálfstæðismaðurinn
hlaut 69 atkvæði, en kommún-
istinn 65.
Fréttaritari.
Fyrsta umferð á skák-
þingi Reykjavíkur
á sunnudaginn
FYRSTA UMFERÐ í skák-
þingi Reykjavíkur var tefld á
sunnudaginn í öllum flokkum.
Úrslit í meistaraflokki urðu
þessi: Björn Jóhannesson vann
Ingvar Ásm.undsson, Iiaukur
Sveinsson vann Guðmund S.
Guðmundsson, Benóný Bene-
diktsson vann Gunnar Ólafs-
son, Sveinn Kristinsson vann-
Þóri Ólafsson. Jafntefli gerðu
þeir Árni Snævarr og Guð-
mundur Ágústsson.
Aðrar skákir í meistaraflokki
urðu biðskákir.
horolf Smiíh kosinn formað
Félaginu boðin þátttaka í norrænu
bíaðamannamóti í Noregi í sumar.
BLAÐAMANNAFELAG ISLANDS hélt aðalfund sinn að
Hótel Borg á sunnudaginn, og var fundurinn óvenju fjölsóttur.
Formaður var kjörinn Thorolf Smith, blaðamaður við Vísi, en
aðrir í stjórnina þeir Gísli J. Ástþórsson, frá Morgunblaðinu,
Guðni Þórðarson, frá Tímanum, Ingólfur Kristjánsson, frá Al-
þýðublaðinu, og Jón Bjarnason, frá Þjóðviljanum.
Ákveðið var, að framhalds- ferðar, og búast má við, að ekki
aðalfundur yrði haldinn á næst
unni, því að ekki var unnt að
ganga frá reikningum félagsins,
þar eð gjaldkerinn í fráfarandi
stjórn, Guðni Þórðarson, liggur
í sjúkrahúsi. Að öðru leyti fóru
fram venjuleg aðalfundarstörf.
Fráfarandi formaður, Helgi
Sæmundsson, flutti ýtarlega
skýrslu um störf félagsins á
liðnu ári og gat þess meðal ann-
ars, að aðalfélagar blaðamanna
félagsins væru nú 44. Félagið
hefur fjallað um margvísleg
málefni á árinu; má þar nefna
afstöðu íslenzkra b-laðamanna
til alþjóðasambands blaða-
manna, en félagið samþykkti
nýlega að segja sig úr samband-
inu. Á ýmis fleiri málefni var
drepið í skýrslu formanns og í
umræðunum um hana. Þar á
meðal var rætt um undirbún-
inginn að stofnun eftirlauna-
sjóðs og byggingarfélags blaða-
manna; en þessi mál eru enn á
undirbúningsstigi.
Þá var rætt um i>oð það, sem
blaðamannafélagið hefur feng-
í ið um þátttöku í norræna
blaðamannamótinu, sem haldið
verður í Noregi í byrjun júní í
sumar, en þátttökutilkynning-
ar þurfa að hafa borizt fyrir
marzlok. Loks var rætt um að
bjóða hingað dönskum blaða-
teiknurum meo sýningu, er
þeir hafa haldið í ýmsum lönd-
um að undanförnu, en endan-
leg ákvörðun um það mál verð-
ur tekin.á framhaldsaðalfund-
inum.
Sigurður Bjarnason, formað-
ur menningarsjóðs, flutti
skýrslu stjórnarinnar og kvað
eignir sjóðsins hafa aukizt veru
lega og á sjóðurinn nú rúmar
60 þúsund krónur, þrátt fyrir
óvenju mikla starfsemi síðast
liðið ár, en þá veitti sjóðurinn
6 blaðamönnum styrk til utan-
minna en 12—15 þúsund krón-
ur verði veittar úr sjóðnum í
utanfararstyrki á þessu ári.
Stjórn menningarsjóðsins var
endurkosin, en hana skipa: Sig-
urður Bjarnason alþm., for-
maður, Jón H. Guðmundsson og
Hendrik Ottósson, og til vara
Valtýr Stefánsson. Endurskoð-
endur voru kjörnir Þorbjöra
Guðmundsson og Stefán Jóns-
son, og til vara Þorsteinn Jós-
efsson. í fjáröflunarnefnd
menningarsjóðs voru kosin
Benedikt Gröndal, Margrét
Indriðadóttir og Sverrir Þórð-
arson, og í launamálanefnd.
voru endurkjörnir Benedikt
Gröndal; ívar Guðmundsson og
Jón Bjarnason. í útvarpskvöld-
vökunefnd voru kosnir: Bjarni
Guðmundsson, Loftur Guð-
mundsson, Benedikt Gröndai,
Hersteinn Pálsson og Jónas
Árnason. Og loks var nefnd
falið að undirbúa norsku blaða-
mannaförina ásamt stjórninni,
en í þeirri nefnd eru: Valtýr
Stefánsson, Bjarni Guðmunds-
sno og Jón Magnússon.
" ..... ♦
Tveir menn slasasi
undir dráftarvél.
menn slösuðust f
í Suður-Þingeyjar-
TVEIR
Reykjadal
sýslu um miðja síðustu viku er
dráttarvél valt út af veginum f
hálku. Voru fjórir menn á vél-
inni og urðu tveir undir hennl,
en hinir tveir sluppu ómeidd-
ir. Mennirnir, sem meiddust,
heita Eyvindur Áskelsson frá
Laugafelli og Hjörtur Tryggva
son frá Laugabóli. Viðbeins-
brotnaði Áskell, en Ujörtur,
marðist mikið og skrámaðist.
Báðir fengu þeir einnig tauga-
áfall.
.. " ......-1
Snjókoma og veírarhörkur í lönd-
urtum fyrir bofni Miðjarðarhafsins
...................
VEGNA MIKILLAR AÐ-
SÓKNAR að kvikmyndasýn-
ingurn Kjartans Ó. Bjarnason-
ar, verða myndir hans sýndar
enn einu sinni- í-dag kl. 5, 7
°g 9.
ÓVENJULEGAR vetrarhörk
ur eru nú í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins. Hefur
verið snjókoma í tvo sólar-
hringa í Palestínu og Transjór-
daníu og er búizt við frekari
snjókomu. Þá hefur snjór einn-
ig fallið í Egyptalandi.
Þetta veðurfar hefur þegar
valdið miklu tjóni. Umferð hef-
ur tafizt, flugvélar stöðvazt og
í Jaffa í Palestínu hefur orðið
mikið tjón á appelsínuuppsker-
unni. í Annam, höfuðborg
Transjórdaníu, var stjórnar-
skrifstofum lokað í gær, skól-
um og bönkum. Á Ítalíu hafa
einnig verið miklar vetrarhörk-
ur, og fórust sex manns í jan-
úar af völdum kuldanna.
Á sama tíma og þessar veð-
urfregnir berast sunnan úr
sólskinslöndum Miðjarðarhafs-
ins, er veðurblíða í Englandi og
norður á íslandi. >