Alþýðublaðið - 09.02.1950, Blaðsíða 8
Gerizt áskr ifendor
að AiþýðublatSinUe
Alþýðublaðið inn á
hvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 eða 4906.
Fimmtudagur 9. febrýar 1950.
Börn og unglir.gar.
Komið og seljið j
AlþýÖobíaðið. |
Allir viljta kaupa i
Alþýöublaðið. •
/
r B
rir Kommumsia
fn
Borgþór Sigfússon endurkiörinn for-
siiaðiir með yfirgnæfandi meirihluta.
iiafvrirli
um maf manna
á góðu og illu
AÐALFUNDUR SJÓMANNAFÉLAGS HAFNARFJARÐAR
vai’ lialdinn í gærkvöldi; fór þar fram stjóriiarkosning og biðu
kommúnistar herfiiegau ósigur. Kom áþreil'anlega í ijós það
áí.it félagsmanna, að forustu félagsins væri bezt borgið i hönd-
um alþýðuflokksmanna, og sýna úrslit stjórnárkosninganna, að
frambjóðendur hans eiga yfirgnæfandi fylgi að fagna í félaginu.
-----------------------------• Kosningar fóru þannig, 'að
formaður var kosinn Borgþór
Sigfússon með 112 atkvæðum,
en formannsefni- kommúnista,
Kr. Eyfjörð, hlaut 34 atkvæði.
Þá hlaut. og Viggó Jónsson, ó-
háður, 1 atkvæði. Ritari var
kosinn Pétur Óskarsson með
125 atkvæðum, en Gísli Sig-
urðsson og Halldór Hallgríms-
son hlutu 11 • atkvæði hvor.
.Gjaldkeri var kosinn Þórarinn
Kr. Guðmundsson með 97 ,at-
kvæðum; Magnús Þórðarson
hlaut 38 atkvæði, en Þórarinn
Sigurðsson 10. Pálmi Jónsson
hlaut kosningu sem varafor-
maður. með 86 atkvæðum. Karl
Guðmundsson hlaut 25 og Þor-
steinn Arndal 35; varagjald-
keri var kosinn Magnús Sig-
fússon með 74 atkvæðum; Jón-
geir D. Eyrdal hlaut 46 og Sig-
fús Magnússon 22.
Fundurinn skoraði á alþingi
að samþykkja frumvarp það
um 12 stunda vinnutíma á tog-
urum, sem nú liggur fyrir og
einnig frumvarpið um vinnu-
vernd og frumvarp til laga um
öryggi á vinnustöðum. Fleiri
mál lágu fyrir fundinum og
var afgreiðslu þeirra frestað
til framhaldsaðalfundar.
SUNNUDAGINN 12. febrú-
a. flytur prófessor Símon Jóh.
Ágústsson fyrirlestur í hátíða-
sai háskólans, er hann nefnir
„Skilningstré góðs og ills.“
Erindið fjallar um mat
manna á góðu og illu og gildi
siðferðilegrar íhugunar og
jjx;kkirgar fyrir breytnina.
Mönnum dugir hvorki að fylgja
aiinenningsáliti né óupplýstri
samvizku sinni í breytninni.
Aímenningsálitið er oftast
margskipt og aldrei er nein
trygging fyrir því, að meiri
hlutinn hafi rétt fyrir sér. Mað-
urinn verður því að taka sjálf-
stæða afstöðu til almenningsá-
litsins. Samvizkan er ekki
heldur öruggur áttaviti um rétt
og rangt. Þeir menn, sem van-
rækt hafa skyldurnar gagnvart
samvizku sinni, geta í góðri trú
unnið ýmis hermdarverk. Siík
samvizka er vansköpuð eða
brengluð, hún er ekki öruggur
m.ælikvarði á rétt og rangt og
skortir algeran myndugleik.
Að svo miklu leyti sem sið-
fræðin fæst við rannsókni.r á
siðferðilegum staðreyndum, er
liún vísindi, en að því leyti sem
hún fæst við mat á markmiðum
siðgæðisins er hún ekki vísindi
í strangasta skilningi. Við get-
um ekki sannað eða ákveðið
vísindalega þau siðferðismark-
ínið, sem stefna ber að, þar með
er þó ekki sagt að íhugun um
mat á réttu og röngu sé fánýt.
Síður en svo. Hún er mannin-
um lífsnauðsyn, svo lengi sera
hann kýs að vera maður en
ekki dýr. í raun er því þannig
farið, að flestir siðfræðingar
eru furðu vel sammála um öil
þau meginatriði, sem mönnum
ber að keppa að í breytni sinni.
íhugun um siðferðileg efni og
þekking á þeim bætir stórum
mat okkar á réttu og röngu.
Samvizkan, sem við höfum að
ieiðarsteini í daglegri breytni,
verður að vera upplýst af allri
þeirri reynslu og þekkingu, sem
við getum aflað okkur. Af
þessu leiðir aukið siðferðilegt
gildi þekkingarinnar á öllum
sviðum. Breytt menning og
þjóðskipulag hafa í för með sér
síbreyttar kröfur til breytni
manna og leiða óhjákvæmilega
tii endurmats á siðferðilegum
verðmætum.
Kvöldskemmtun
Á-listans
í Hafnarfirði
efnir til hátíðarhalda næst
komandi laugardag í Alþýðu
húsinu og Góðtemplarahús-
inu kl. 8,30 síðdegis, í tilefni
af kosningasigri Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði, og
verður þar margt til skemmt
unar.
Allt stuðningsfólk A-list-
ans er velkomið, og er fólk
beðið að panta aðgöngumiða
sem fyrst.
Schumacher sakar
Bonnstjórnina um
alvinnuleysið
KURT SCHUMACHER,
leiðtogi jafnaðarmanna á
Þýzkalandi, flutti ræðu á stúd-
entafundi í Köln í gær og réð-
ist harkalega á Adenauer og
stjórn hans. Sagði hann, að
Adenauer og stjórnin í Bonn
bæri ábyrgð á hinu mikla og
vaxandi atvinnuleysi á Vestur-
Þýzkalandi.
Sagði Schumacher, að þýzþa
þjóðin fengi nú að kenna á því,
hvaða afleiðingar það hefði að
hafa stutt til valda stjórn auð-
mannanna og forréttindastétt-
anna, enda væri stefna Bonn-
stjórnarinnar sú að þjóna hags-
munum kapítalistanna en berj-
ast gegn verkalýðnum.
Iþróííabandalag Reykjavíkur vil
byggja fullkomið íþróttahús
íþróttahúsið við Hálogaland aðeins
bráðabirgðahúsnæði.
-------.». —
ÁRSÞING íþróttabandalags Reykjavíkur var sett á þriðju-
daginn. Lögð hefur verið fram tillaga á þinginu um byggingu
nýs íþróttahúss í stað íþróttahússins við Hálogaland, en þar er
eins og kunnugt er stór birgðaskemma frá stríðsárunum, sem
aldrei var hugsuð nema til bráðabirgða fyrir íþróttastarfsemina.
Tillögunni um byggingu nýs ; á árinu, en þau voru allum-
fangsmikil.
íþróttahúss fyrir bandalagið
var vísað til nefndar, og mun
verða tekin endanleg afstaða
til málsins á síðari hluta þings-
ins, sem haldið verður um
mánaðamótin.
Viðhaldskostnaður íþrótta-
hússins við Hálogaland er mjög'
mikill, t. d. var á síðasta ári
varið rúmum 30 þúsund krón-
um til endurbóta og breytinga
á húsinu. Telur bandalagið því
brýna nauðsjm til þess að fara
að hugsa fyrir nýrri íþrótta-
húsbyggingu.
Ýmis málefni íþróttahreyf-
ingarinnar voru til umræðu á
þinginu, og gaf formaður banda
lagsins skýrslu um störf þess' því nær,þriðjungi minni.
Síldveiði Norðmanna
þegar orðin rúm-
lega 3 millj. hl.
SÍLDVEIÐI Norðmanna var
síðast liðinn laugardag orðin
3.228.800 hl. eða 2.152 þús. mál.
Af aflanum var ísað til út-
flutnings 172.314 hl., saltaðir
voru 344.918 hl., í síldarbræðslu
fóru 2.629.150 hl. Á sama tíma
í fyrra var síldveiði við Noreg
Úrslit í sveitarkeppni
Keppt verður í 11 sundgreinum.
i. -,.■■■ , ....
ÆGIR OG ÁRMANN gangast • fýrir sundmóti' í SundhÖll*
inni í kvöld klukkan 8.30, en þátttakendur í mótinu eru sam-
tals 76 frá 7 félögum. Alls verður.keppt í 11 sundg'reinum, og
verður keppnin vafalaust mjög hörð í mörgum greinum, því
þarna eigast við margir af kunnustu og beztu sundmönnum
bæjarins, og auk þeirra eru nokkrir efnijegir utanbæjarmenra
þátttakendur í mótinu.
Meðal þeirra sundgreina, er* ’--------------
sérstaka athygli munu vekja,
má nefna 300 metra skriðsund,
sem er bikarkeppni. Þar eigast
meðal annarra við Ari Guð-
mundsson og Ólafur Diðriksson,
sem báðir hafa unnið bikarinn,
sinn í hvort sinn. Alls eru kepp-
endurnir 8 í þessari grein.
Meðal keppenda í 200 metra
baksundi er Hörður Jóhannes-
son, sem setti nýtt met' í 400
matra baksundi í vor, og Rúnar
Hjartarson, sem einnig er mjög
efnile'gur og talinn Herði hættu
legur keppinautur. Alls eru 7
keppendur í þessari grein.
í Kvennasundum eru meðal
þátttakenda þær Anna Ólafs-
dóttir, Þórdís. Árnadóttir og
Kolbrún Ólafsdóttir, en þær
eru allar kunnar sundkonur.
í 4X50 metra boðsundi karla
keppa sveitir frá öllum félög-
unum, sem þátt taka í mótinu,
og verður þetta án efa mjög
hörð og skemmtileg keppni, því
að sveitirnar eru allar mjög
jafnar.
Þá verður 50 metra skrið-
sund drengja, en meðal þátt-
takenda í því eru Pétur Krist-
jánsson, Ármanni, og Þórir Ar-
inbjarnarson, Ægi. Báðir eru
þessir piltar mjög efnilegir
sundmenn, sem mikils má
vænta af. Enn fremur er 100
metra baksund drengja og
3X50 metra boðsund.
Félögin, sem senda þátttak-
endur til mótsins, eru þessi;
Ármann með 23 keppendur,
ÍR með 12, KR með 13, Ægir
með 25 og Ungmennafélag
Skagfirðinga, Ungmennafélag
Reykdæla og Ungmennafélag
Laugardæla með einn mann
hvert félag.
Fanney leitar nú
síldar í Hvalfirði
FANNEY hefur undanfarna
daga leitað síldar í Miðnessjó,
en er nú farinn í leitarleið-
angur inn í Hvalfjörð og í
sundunum hér við Reykjavík.
Eins og getið hefur verið,
hefur Fanney og aðrir bátar
orðið vör síldar á allmiklu
dýpi í Miðnessjó, en sama og
engu náð. Missti Fanney net
sín þar fyrir nokkrum dögum,
er hún hafði lagt þau á 15
faðma dýpi, en síðar fékk hún
um eina og hálfa tunnu af s.íld
í net, er hún lagði.
I fyrradag versnaði veðrið
svo, að Fanney hélt til hafnar
hér í Reykjavík, og lá það hér í
fyrrinótt, en í gærmorgun fór
skipið upp í Hvalfjörð og setl-
ar nú að leita síldar þar.
A SUNNUDAGINN laulí
fiokkakeppni Bridgefélagsins,
og bar sveit Zophoníasar Pét-»
urssonar sigur úr býtum, hlaut
ellefu stig.
. Auk Zophoníasar eru í sveit-
inni þessir menn: Jón Guð-
mundsson, Halldór Dungal, Pét-
ur Halldórsson, Sverrir Hall-'
dórsson og Þorleifur Krist-
mundsson.
Úrslit í sveitakeppninni urðu
að öðru leyti sem hér segir:
Sveitir Baldurs Ásgeirssonar
og Hermanns Jónssonar hlutu
10 stig, sveitir Einars Guðjohn-
sens og Helga Guðmundssonar
9 stig, sveitir Einars B. Guð-
mundssonar, Zophóníasar Bene-
diktssonar og Tryggva Briem 8
stig, sveitir Ástu Flygenring,
Frímanns Ólafssonar, Árna
Jónssonar og Guðmundar Sig-
urðssonar 6 stig, sveit Ingólfs
Ólafssonar 4 stig og. sveitir
Guðrúnar Rútsdóttur og Mar-
grétar Jensdóttur 3 stig.
Meistarakeppni í bridge
hefst næst komandi sunnudag.
Töidu sig ekki óhulia
austan járntjalds
TVEIR af forustumönnum
kristilega flokksins á Austur-
Þýzkalandi hafa flúið yfir á
hernámssvæði tVeurvesldanna
og beðið þar u mhæli, þar eð
þeir töldu sig ekki lengur ó-
hulta austan járntjaldsins.
Hafa menn þessir að undan-
förnu verið bornir þeim sökum
af kommúnistum, að þeir væru
„föðurlandssvikarar" og , glæpa
menn“, og töldu þeir víst, að
þeir yrðu handteknir og fang-
elsaðir af andstæðingum sín-
um, ef þeir veldu ekki þann
kost að flýja land.
Rússar og Kína
Framh. af r. síðu.
leynilegu viðræður í Moskvu
staðið lengi yfir. í París og
Washington er þó búizt við, að
Rússar muni knýja fram vilja
sinn, en yfirráð þeir.ra yfir
hafnarborgunum sjö í Norður-
Kína tryggja þeim alger yfir-
ráð á Gula hafinu og veita
þeim aðstöðu til að einangra
Suður-Kóreu annars vegar og
Mansjúríu og Innri-Mongólíu
hins vegar.