Alþýðublaðið - 13.04.1950, Page 3
Fimmtudagur 13. apríl 1950.
ALÞÝÐUBLAÐfÐ
sc
FRAMORGNITÍL KVOLDS
í DAG er fimmtudagurinn 13.
apríl. Látinn Stefán Gunnlaugs
son landfógeti 1883 og Hándel
tónskáld árið 1759.
Sólarupprás var kl. 6,05. Síð-
degisháflæður verður kl. 20.53.
Árdegisháflæður.er kl. 3,05. Síð
degisháflæður <er kl. 15,25. Sól
er hæst á lofti í Reykjavík kl.
13,28.
Næturvarzla: Ingólfsapótek,
sínii 1330.
Næturakstur: Bifreiðastöð
Hreyfils, sími 6633, eftir kl. 2:
sími 6636 og 1382.
Skipafréttfr
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss kom til Rotterdam 9.4.
fer þaðan væntanlega 12.4. til
Hamborgar, Hull og Reykjavík-
tir. Fjallfoss er á Hvammstanga,
£er þaðan til Skagastrandar.
Goðafoss kom til Antwerpen
12.4., fer þaðan til Leith og
Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Searsport 7.4. til Reykjavíkur.
Selfoss kom til Heroya í Noregi
11.4. frá Akureyri. Tröllafoss
kom til New York 8.4. frá
Reykjavík. Vatnajökull kom til
Tel-Aviv 6.4.
M.s. Arnarfell lestar saltfisk
a Eyjafjarðarhöfnum. M.S.
Hvssafell er í Neapel.
Foldin er væntanleg til Pal-
estínu á föstudag. Lingestroom
er í Amsterdam.
Hekla fer frá Reykjavík um
hádegi á morgun austur um
land til Siglufjarðar. Esja er í
Reykjavík. Herðubreið var á
Akureyri í gær. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík í gærkveldi á
Húnaflóahafnir til Skagastrand-
ar. Þyrill ér í Reykjavík. Ár-
mann fer væntanle*ga frá Rvík
um hádegi í dag til Vestmanna-
eyja.
Blöð óg'tímarit
Tímaritið Úrval. Nýtt hefti af
Úrvlai er komið úr. Efni þess
er: Reynsla mín af sálkönn-
tin“, Brauðbiti og líkkista úr
tini,' smásaga eftir Ignazio Sil-
one, Síðasti geirfuglinn eftir
Julian Huxley, Rommel gegn
Hitler1 Þegar sandeðlan missir
halann* Þar sem feðurnir liggja
á sæng, Heiðarleikapróf, Fram
tíðarmöguleikar erfðafræðinm-
ar eftir Julian Huxley, Flugið,
sem breytti heiminum, f lang-
ferðabíl um Ameríku, Rósemi
dauðans, Hverjar eru óskir æsk
unnar?, Kynfæri yngjast upp,
í leit að týndum börnum Ev-
rópu, Hið fljótandi gull, 'Ævi og
ást ívars grimma, Mesti leyni-
lögreglumaður Fraltka og bók-
in: Leiðir til að sigtast á áhyggj
um og kvíða' eftir Dale Carn-
egie.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.30 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stj.).
20.45 Lestur fornrita: Egils saga
Skallagrímssonar (Einar
Ol. Sveinsson prófessor).
21.15 Dagskrá Kvenréttíndafé-
lags íslands. — „Konan
á krossgötum“, hugleið-
ingar Elínar Wágner
(Britta Björnsson cand,
mag.).
21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Þýtt og endursagt (Ólaf-
ur Friðriksson).
22.10 Sinfónískir tónleikar
(plötur).
ALLT til skemmtunar og fróð-
leiks, 2. h. er komið út. í heftinu
eru margar s’másögur, framhalds
saga, kvikmyndasíða, flugsíða,
tónlistarsíða, íþróttir, skáksíða
(birtir skák, sem Friðrik Ól. og
Lárus Johnsen tefldu), bridge-
síða, krossgáta, húsmæðrasíða,
íslenzk tízkumynd, myndasaga,
myndasltrýtlur og ýmis skonar
myndir aðrar bæði innlendar og
erlendar.
Söfn og sýningar
Bókasafn Alliance Francaise:
Opið kl. 15—17.
Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13
—15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
L3.30—15.00.
Skemmtanir
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Meðal mannæta og villidýra.
(amerísk) Bud Abbott og Lou
Costello. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Gamla Bíó (sími 1475:) —
„Páska-skrúðgangan“ (amerísk)
Fred Astaire Judy Garland, Pet-
er Lawford og Ann Miller. Sýnd
kl. 5, 7 og 9.
Hafnarbíó (sími 6444): —
„Æskuástir tónsnillingsms“
Mariella Lotti. Sýnd kl. 7 og 9.
„Vinirnir“ Sharyn Moffett og
Jerry Hunter. Sýnd kl. 5.
Nýja Bíó (sími 1544): —
„Allt í þessu fína. . .“ (amerísk)
Clifton Webb. Sýnd kl. 5, 7 og
9.
Stjörnubíó (sími 81936); —
„Seiðmærin á*Atlantis“ (frönsk)
Maria Montez Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Quartet" (ensk). Mai Zetter-
ling og Susan Shaw. Sýnd kl. 5
og 9.
Tripolibió (sími 1182): —
„Leðurblakan“ (býzk). Sýnd kl.
7 og 9. „Jumbo og ég“ og kóngs
dóttirin sem vildi ekki hlægja11.
Sýnd kl. 5.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9184): „Humo.resque11 (ame-
rísk). Joan Crawford, Johan
Carfield og Oscar Levant. Sýnd
kl. 9. „Litli og Stóri og smyglar
arnir. Sýnd kl. 7.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):
„Þar, sem sorgirnar gleymast11.
Tino Rossi. Sýnd kl. 7 og 9.
SAMKOMUIIÚS:
Hóíel Borg: Hljómsveit leik-
ur frá kl.,9 síðd.
Ingólfscáfé: — Hljómsveitin
leikur frá kl. 9.30.
Or öll&im éttvw
Bólusetning gegn . barna-
veiki. Pöntunum veitt móttaka
í síma 2781 fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar kl. 10—12 f. h.
Fólk er minrít á að láta bólu-
setja börn sín.
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, verður fram-
vegis opin á þriðjudögum og
föstudöguhi kl. 3,15—4 síðd.
H.TÓLREIBAMENN og aðrir
ökumer.n. Þegar . farartæki
mætast á gatnamótum, ber
þeim að bíða, sem hefur öku-
tæki á vinstri hönd. VARÚÐ
TIL VINSTRI er setning, sem
þér .skuluð hafa í lmga í
hvért EÍnn, sem þér nálgist
gatnamót. ÞesSi regla leysir
þó engan undan þeirri skyldu
að sýna fyllsíu nærgætni á
báða bóga._
Slysavarnafélagið.
Skömmfunarstjóri
segir fjárhagsrá
hafa hreyff fyrri
ákvörðun sinni
Sjállfsmynd eftir Kathe Kollwitz.
KÁTHE KOLLWITZ er ein-
stæð í heimi myndlistarinnar,
og sýning á verkum hennar
hér í Reykjavík hlýtur að vera
einstæður listviðburður. Þessi
sýning á því meira erindi til
Islendinga á þessu herrans ári,
sem þeir hafa nú lifað við góð
og auðfengin lífskjör um
margra ára skeið, en ævilangt
strit án veraldlegra gæða í
aðra hönd, fátækt og undirok-
un hverfa æ lengra aftur í
heim gleymskunnar í hug þjóð
arinnar.
Myndirnar, sem sýndar eru
í sýningarsal Ásmunaar þessa
dagana hljóta því að vekja ó-
skipta athygli þeirra, sem
gefa sér tíma til að skoöa þær.
Hinir yngstu meðal vor munu
stara á þær eins og skugga úr
algerlega óþekktum heimi.
Hinir eldri muna þá daga hér
á landi, er gera þeim kleift að
skilja þessar myndir betur,
hvað efni þeirra snertir.
ITvert sem viðhorf manna
kann að 'vera til þess heims,
sem mynair Kathe Kollwitz
sýna, þá er það aoeins ein hiið
málsins. Myndirnar eru lista-
verk, einstæð listaverk á sviði
svartlistarinnar.. Þær spegla
ekki aðeins. einstæða sál lista-
konunnar, hatur hennar á
stríði, kúgun og pyntingum,
skilning og samúð hennar með
bláfátækri alþýðunni ög um-
hugsun hennar um dauðann,
heldur sýna þær einnig ein-
staka snilld í meðferð pensíls
og krítar. Formið, línurnar,
samsetning myndanna — allt
er þetta með handbragði snill-
ingsins.
Kathe Kollwitz kom árið
1878 til listnáms í Berlín, þá
18 ára að aldri og ættuð frá
Austur-Prússlandi. Hún nam
list sína í hinni þýzku höfuð-
horg og i Múnchen, en 24 ára
giftist hún lækninum Karl
Kollwitz, og settust þau að í
einu af fáta;krahverfum Ber-
línar. Þar bjó iistakonan í
nærfellt hálfa öld, ávallt í
sama húsinu. Hún kynntist nú
æ betur fátækri alþýöunni og
list hennar þroskaðist. Naut
hún ‘æ meiri viðurkenningar
og varð fyrst kvenna kjöriri í
þýzka listakademíið. Heims-
styrjöídin fyrri hafði djúp á-
hrif á Káthe, enda missti hún
þá annán son sinn.
Þegar nazistar komu til
valda, var eitt fvrsta verk
Göbbels, að banna sýningar
á verkum Káthe Kollwitz og
reka hana úr akademíinu. Hún
fékk þó að búa í húsi sínu, þar
til það var eyðilagt í sprengju-
árás í styrjaldarlok. Þá hrökki
aðist hún burt frá Berlín, suð-
austur á bóginn. Ekki biðu
hennar þó betri örlög þar.
Enda þótt k.ommúnistar væru
þá að komast þar til valda í
skjóli rússneska byssustingja,
bjó hún við þröngan kost, og
lézt árið 1945; en skorturinn
og hungrið, sem hún hafði á
áhrifaríkan hátt sett fram í
myndum sínum, stóðu við
hennar eigin dánarbeð.
Það er einstakt tækifæri,
sem Reykvíkingum gefst með
sýningunni á verkum Káthe
Kollwitz, og ætti enginn sá,
sem áhuga hefur á lífsbaráítu
alþýðunnar, á listum, eða
hvoru tveggja, að láta það
tækifæri sér úr greipum
gsnga.
Við sækjum
iiin
í Hafnarfjörð,
Reykj avík
og nágrenni.
ÞVOTTAHÚSIÐ FRÍÐA
Sími 9832.
Frá Elís Ó. Guðmunds-
syni skömmtunarstjóra
hefur blaðinu borizi:
eftirfarandi yfirlýsing:
VEGNA ÞRÁLÁTRA*
BLAÐASKRIFA, ummæla í
útvarpi og nú síðast persónu-
legrar árásar á mig út af því,
að ég auglýsti 31. marz s. 1., að
úr gildi fél’u þá skömmtunar-
reitir frá fyrra ári fyrir vefnað-
arvörum og sokkum, þykir mér
rétt að taka fram eftirfarandi:
1) í bréfi fjárhagsráðs til
skömmtunarstjóra, dags. 24.
febr. s. 1., segir, að vefnaðar-
vörureitir ársins 1949 og sokka-
miðar frá s. 1. ári, sem fram-
lengdir voru um s. 1. áramót,
skuli falla úr gildi. Þessi ákvörð
un fjárhagsráðs, sem gerð var
á fundi þess 22. febr. s. 1., var
raunar aðeins ný staðfesting á
fyrri ákvörðun ráðsins um þetta
sama atriði.
2) Eftir að hafa meðtekið
þetta áminnzta bréf fjárhags-
ráðsins sagði ég svo auðvitað
hverjum, sem um það spurði,
að umræddir reitir ættu að falla
úr gildi 31. marz, án þess þó að
ég gæfi út um það nokkra sér-
staka auglýsingu. Frásagnir
blaðanna um þetta atriði síðustu
dagana í marz voru því efnis-
lega réttar, þótt ekki væru þær
nein tilkynning frá mér, heid-
ur aðeins rétt svar mitt við fyr-
irspurnum.
3) Um hádegisbilið 31. marz
s. 1. fékk ég að vita í símtali
við einn meðlim fjárhagsráðs-
ins að ráðið hefði þá þann sama
dag breytt fyrri ákvörðun sinni
í þessu efni og samþykkt að
íramlengja enn á ný gildi þess-
arra umræddu skommtunar-
reita. Auglýsti ég svo um
kvöldið þessa nýjustu .ákvörð-
un fjárhagsráðsins, eins og mer
bar skylda til.
Af framansögðu ætti það að
vera hverjum manni Ijóst, að
ég hef á engan hátt gefið út
rangar né blekkjandi tilkynn-
ingar til almennings, heldur að-
eiris skýrt rétt frá þeim ákvörð-
unum, sem í gildi voru á hverj-
um tíma, og ekki auglýst neitt
annað en. það, sem mér bar
skylda til. Samkvæmt gildandí
reglugerð um vöruskömmtun.
fer.fjárhagsráð með ákvarðan-
ir sem þessa. og hef ég engari
atkvæðisrétt þar um.
LesiÓ Al þýiul íial m Reykjavík, 12. apríl 1950. Elís Ó. Guðmundsson. skömmtunarstjóri.
m |^| .di ir
Þeir, sem enn hafa ekki greitt leigu eftir garðlönd
sín, þurfa að gera það nú þegar, þar sem dráttur á greiðslu
leigug-jaldsins skoðast hér eftir sem uppsögn á garðland-
inu og því útfelutað til annarra. Gjöldunum veitt móttaka
á skrifstofu bæjarverkfræðings, Ingólfsstræti 5, sími
81000.
Ræktunarráðunautur Reykjavíkur.