Alþýðublaðið - 18.04.1950, Side 10

Alþýðublaðið - 18.04.1950, Side 10
10 ALÞÝÐUBLAOiÐ Þriðjudagur 18. apríl 1950 VEGA SALT---------- þessir draumar sem tipla á takmörkum óráðs og undurs og mörgum í vökunni verða til hugsanadundurs--------- já, ■— hvað á að segja um þann draum sem mig dreymdi í nótt , . ; della eða vitrun úr því læst ei ráðið skjótt Á upphækkun mikilli úr ógildum skömmtunar seðlum A 2 og C 3 og viðlíka nytsömum bleðlum lá skömmtunarstjórinn . sem vogarás veltandi láréttur votur af svita . . . Það hafði ekki verið neinn smásprettur á fótleggjum mannsins nei — afsakið — aftast á slánni sat fjárhagsráð glottandi ■—• fjármáladósinn á tánni á andliti og hálsi nei, andspyrnis aftarlega sat stífpússuð frúarnefnd feimin og þreytt af að vega Og vogarstaursgreyið tautaði, lúið og leitt — Ég ramba á salti — þið sjáið ég ræð ei við neitt . . . Og nefndin brosti og blikkaði „ráðsins menn“ og milljónadósentinn kallaði eina ræsu enn! Leifur Leirs (poet. laur. C 3 A 2.) KRINGUM HÆRING. Örlagadýsirnar eru duttlunga- fullar og dyntóttar, hvort heldur 6em menn eða fley eiga hlut að tnáli. í dag gera þær mann nokkurn Voldugan og ríkan, fá honum völd og frægð og virðast ekki hafa annað fyrir stafni en að enúast í kringum hann og upp- fylla allar hans óskir. Á morg- un hrifsa þær svo allar sínar gjafir af honum, rýja hann öll- um sóma og látast síðan ekki ejá hann, þar sem hann stend- ur eins og glópur í öllum gínuin vanmætti og umkomuleysí; já, gott ef þær gera .ekki gys að vesaldómi hans. Og svo, löngu síðar, þegar liann hefur sætt sig við allt naman, eru þær til með að end- urtaka leikinn. Þannig fara þær, þessar grimm úðugudísir, með mennina, •— og þannig fara þær líka á stundum ineð skipin, þótt ekki verði séð hversvegna þau verða fyrir barð tnu á þeim. ,,St. Pauli“ hið fagra og tígu- iega fley, stolt franska seglskipa flotans, endaði sem árefti í hrútakofum austur í sýslum. „Capitana", fyrrurn" ,,Sham- rosk 111“ hið glæsta kappsiglinga Ekip tekóngsins Liptons, tapaði taunar hinni miklu siglinga- keppni, en varð sér úti um æ- varandi sagnfrægð, er Játvarður brezki kynntist frú Simpson í lúkar hennar, hásællar minning- t.r, síðan lá þetta fræga fley á Ueykjavíkurhöfn sjálfu sér til jiáðungar og íslenzkum eigend- um sínum til angurs og skap- raunar og þótti ekki einu sinni nothæft til ástandsflutninga. Og bannig mætti lengi telja. Og svo er það Hæringur . . . Skömmu eftir síðustu alda- mót þótti hann, þessi nýi Ekeifnajárnsknörr, ein hin glæsi íegasta sönnun, hvað snerti á- gæti hinna „nýju skipa“ og yf- irburði þeirra yfir hina há- sigldu, voðahvítu ,,elippera“, •— fjórum áratugum síðar var hann dæmdur úr leik úreltur og til lítils nýtur, ekki einu sinni í árefti í hrútakofa------- Síðan fundu íslenzkir sendi- menn hann og komust að raun ^im, að þarna væri einmitt skip- íð, sem hið unga, íslenzka lýð- veldi vanhagaði mest um. Og þeir keyptu það og fluttu heim yfir hafið og lögðu því að hafn- arbakkanum með fagnaðarræð- um og lúðraþyt og enn einu sinni var hinni öldruðu skeifna- járnskeið fagnaði sem tákni hins nýja tíma. Og nú stendur Hæringur á botni við hafnarbakkann og er nf forráðamönnum ríkis og bæj- ar ekki einu sinni talinn til skipa, — því aldrei mun lóðar- gjalda fyrir skip krafizt. Og allir gefa honum langt nef og gretta sig í áttina til hans og sumir streitast við að verða fyndnir á kostnað hans, — hvað ekki er hægt, — og enn aörir að slá um sig í ræðum og rit- um hans vegna---------- En örlagadísirnar glotta og húgsa víst bæði þeim og öðrum þeyjandi börfina. — Auglýsið í Alþýðublaðinu! honum hér í klefanumu hjá hinum myrta manni? En, nei, hvorugt var líklegt. Ef þeim hefði verið kunnugt um ráða- brugg þeirra, þá hefðu þeir leyft Tyrkjanum að fara í land með hafnsögumannsbátnum, og í staðinn hefði það verið lík hans sjálfs, sem hefði fundizt hér, og finnandinn hefði eng- inn annar verið en Mr. Kuvetli. Það var því bersýnilegt, að Möller hafði hvorki vitað urn ráðabruggið, og heldur ekki gert ráð fyrir að líkið mundi finnast svona tímanlega. Eftir klukkutíma eða svo mundi hann standa við hliðina á Banat og morðingjum hans, sem á- reiðanlega myndu telja, að hann væri sakleysið sjálft í góðri trú.... En hann mundi verða viðbú- inn. Hann hafði ekki mikla möguleika til undankomu, en samt..... Hann sneri sér við, greip um hurðarhúninn og byrjaði að snúa honum hægt. Hann vissi, að ef hann hugsaði meira um það, sem hann ætlaði að gera, þá mundi honum snúast hugur. Hann varð að framkvæma hlut- inn áður en hann hefði tæki- færi til að hugsa meira um það. Hann opnaði dyrnar örlítið. Það var enginn á ganginum. Augnabliki síðar var hann kominn út úr klefanum og dyrnar lokuðust að baki hans. Hann hikaði eina sekúndu. Hann vissi, að hann varð að vera á gangi, að hann mætti ekki nema staðar. Fimm skref báru hann að klefa númer þrjú. Hann opnaði dyrnar skjótlega og snaraðist inn. Það var aðeins ein taska sjá- anleg af farangri Kuvetlis. Og hún var ákaflega gamaldags. Hún stóð upp á endann á miðju gólfinu og rétt við hana lá tutt- ugu líra peningur, eins og ein- hver hefði týnt honum. Gra- ham tók upp peninginn og bar hann upp að nefinu. Það var vel hægt að greina rósailminn af honum. Hann leit inn í klæðaskápinn og gáði bak við hurðina að frakka og hatti Ku- vetlis, en fann hvorugt og geroi því ráð fyrir, að hvoru tveggja hefði verið hent út um kýraug- að. Banat hafði hugsað fyrir öllu. Hann tók upp töskuna, setti liana á legubekkinn og opnaði bana. Ofan til í henni var allt á ruglingi, svo að hann reikn- aði með að Banat hefði leitað í töskunni og hent niður í hana aftur í flýti. Neðan til í henni var hins vegar allt kyrfilega lagt saman. Graham fann ekki neitt, sem vakti áhuga hans, nema dálítið af byssukúlum, en byssu fann hann enga. Graham stakk byssukúlun- um í vasa sinn og lokaði tösk- unni. Hann var í vafa um, hvað hann ætti að gera við hana. Banat hafði bersýnilega reikn- að með því, a,ð hún yrði tekin í farangursgeymsluna og þjónn inn mundi stinga tuttugu líra peningnum í vasann, og síðan mundi hann gleyma Kuvetli. Það var ekkert líklegra en að Banat mundi hafa hugsað þannig. Um það leyti mundi vörðurinn í farangursgeymsl- unni fara að tala um tösku, sem gleymzt hefði að taka. En þá mundi monsieur Mavrodo- poulos verða allur á bak og burt. Graham hafði aftur á móti í huga að vera ekki farinn burt, ef hann mögulega gæti gert það. Og það sem meira var: hann hafði hug á því að komast af eigin rammleik yfir landamærin til Frakklands áð- ur en farið yrði að leita að Ku- vetli, en það mundi ekki verða fyrr en löngu eftir að farið yrði að tala um töskuna. En fyrst taskan var nú hér, þá reið á því fyrir hann, að koma tösk- unni undan, fela hana einhvers staðar. Hann opnaði vaskinn og setti peninginn niður í niðurfallið. Svo sneri hann sér að dyrun- um. Enginn var sjáanlegur á ganginum. Hann opnaði dyrn- ar, tók töskuna og bar hana að klefa númer fjögur. Að augna- bliki liðnu var hann kominn inn í klefann með töskuna og hafði látið á eftir sér hurðina. Hann var orðinn kófsveittur. Hann strauk sér um ennið og nuddaði hendurnar með vasá- klútnum sínum, og þá datt hon- um í hug, að fingraför hans hlytu að sjást á handarhaldi töskunnar og ýmsu öðru. Hann þurrkaði því allt með vasa- klútnum og sneri sér svo að líkinu. Hann komst brátt að raun um, að Kuvetli var ekki með byssuna í vösunum. Hann fann allt í einu, að hugrekkið var að fjara út, og dró því djúpt andann. Svo beygði hann sig áfram, tók annarri hendi um öxl Kuvetlis en hinni í buxur hans og velti honum við. Líkið lá nú endilangt, annar fóturinn krepptur. Hann hneppti frá honum jakkanum, þreifaði um brjóstið og fann þar leðurhylki, en byssan var horfin. Hann varð í raun og veru ekki fyrir miklum vonbrigðum, því að hann hafði varla gert ráð fyrir, að Banat hefði skilið byssuna eftir. Byssan var dýr- mæt, og að sjálfsögðu mundi Banat hafa tekið hanai Gra- ham leitaði enn í jakkavasan- um, en hann var tómur, Banat hafði einnig tekið peninga Ku- vetlis og vegabréf hans. Graham stóð upp. Hann gat ekkert meira aðhafzt þarna. Hann setti upp glófa sína, opn- aði hurðina og gekk út. Hann stefndi á klefa númer sex. Hann barði að dyrum. Hann heyrði hraðar hreyfingar og frú Mathis opnaði dyrnar. Hún hafði víst haldið, að það væri þjónninn, sem væri að koma, og því sett upp merki- legheita svip, en svipurinn breyttist, þegar hún sá Gra- ham. Hún sagði aðeins: „Góð- an daginn“ og starði undrandi á hann. „Góðan daginn, madame. Get ég fengið að segja nokkur orð við manninn yðar?“ Mathis skaut höfðinu yfir öxl hennar. „Góðan tíaginn, Mr. Graham. Ég kalla, að þér séuð snemma ferðbúinn.“ „Get ég fengið að tala við yður fáein orð, Mr. Mathis?“ „Vitanlega. Þó það nú væri.“ Hann kom út um dyrnar á tómri skyrtunni og brosti glað- lega. „Ég er aðeins þýðingar- mikill í mínum eigin augum. Hvað viljið þér, Mr. Graham?“ „Viljið þér vera svo góður og koma inn í klefa minn rétt sem snöggvast?“ Mathis leit forvitnislega á hann og áhyggjusvipur kom á andlitið. „Þér eruð svo alvar- legur, vinur minn. Vitanlega skal ég koma þangað með yð- ur.“ Hann sneri sér að konu sinni. „Ég kem aftur eftir augnablik, chéri.“ Þegar þeir voru komnir inn í klefann, lokaði Graham dyr- unum vandlega og sneri sér svo að Mathis, sem stóð og starði á hann fullur undrunar. „Ég þarf á hjálp yðar að halda,“ sagði Graham lágri röddu. „Nei, ég þarf ekki að fá peninga að láni. Ég þarf að biðja yður fyrir skilaboð.“ „Vitanlega, ef ég mögulega get.“ „Það er nauðsynlegt fyrir mig að tala mjög hratt. Ég hef engan tíma til að missa,“ hélt Graham áfram. „Ég vil ekki valda konu yðar áhyggjum og þilið er mjög þunnt.“ Sem betur för, skildi Mathis ekki til fullnustu, hvað þessi yfirlýsing þýddi. Hann kinkaði aðeins kolli. „Ég hlusta." „Ég sagði yður, að ég væri starfsmaður hergagnafyrir- tækis. Það er satt. En um leið er ég að vissu leyti nú sem stendur í sameiginlegri þjón- ustu brezku og tyrknesku rík- isstjórnanna. Þegar ég yfirgef þetta skip nú innan stundar, munu þýzkir njósnarar gera til- raun til að ráða mig af dögum.“ „Er þetta sannleikur?" Hann

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.