Alþýðublaðið - 18.04.1950, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 18.04.1950, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. apríl 1950 Úígefandi: Alþýffuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsíngar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiffslusími: 4900. Affsetur: Alþýffuhúsiff. Alþýffuprentsmiffjan h.f. iiisi nfg TÍMINN er yfirleitt þreyt- andi aflestrar, en ritstjómar- grein hans síðast liðinn laugardag er einstaklega skemmtileg. Höfundur hennar reynir að vera fyndinn á kostn- að Alþýðuflokksins, en hvort tveggja er, að hann er reiður og illa verki farinn, svo að les- endur greinarinnar sjá þar Framsóknarflokkinn í stórum og glöggum spéspegli. Klauf- inn, sem reiðir til höggs gegn Alþýðuflokknum, ber óvart vopn á sjálfan sig. Höfundurinn líkir Alþýðu- í'lokknum við drukkinn bíl- stjóra, sem haíi ekið farkosti sínum út í urð, brotið hann og slarao fólk. Þegar aðrir eru að koma farartækinu upp á veginn á ný, hrópar bílstjórinn að þeim hæðnisorðum, hvers vegna þeir aki ekki eins greitt og hann hafi gert. Og þegar læknir er kominn til að gera að sárum hinna slösuðu, hrópar bílstjórinn: •— Sjáið bölvaðan kvalarann! Það leynir sér svo sem ekki, hver blessaður lækn- irinn er. Hann er hinn frábæri björgunaraðili íslenzkra stjórn- mála, Framsóknarflokkurinn! En svo bregst greinarhöf- unainum heldur betur boga- listin, því að skömmu síðar fer hann að ræða um það, að Al- þýðuflokknum fari illa að sví- virða þá, sem standi í tvísýn- um björgunaraðgerðum. Þá hefur hann gleymt því, að dæmisagan hljóðar um lækni, sem er að gera að sárum bein- brotinna farþega á slysstað. Sannleikurinn um hið ömur- lega hlutskipti Framsóknar- flokksins er svo ríkur í huga hans, að hann fer áður en var- ir að ræða um tvísýnar björg- unaraðgerðir flpkksins, sem hann áður líkti við lækni. ❖ Þetta er eðlilegt. Framsókn- arflokkurinn er enginn læknir í ísienzkum stjórnmálum. En hann var farþegi í bifreiðinni, sem Tíminn ségir nú, að Al- þýðuflokkurinn hafi ekið drukkinn. Alþýðuflokkurinn ók þeim farkosti ekki út í neina urð. Hann stöðvaði hann þvert á móti á sléttum og greiðfær- um vegi, þegar Framsóknar- flokkurinn hljóp út í fússi af því að hann fékk ekki að stýra og tók sér fyrir hendur ferða- lag um torfæra fenjamýri. Þar skreið hann um á höndum og fótum og ataði sig upp fyrir haus. Loks komst hann þó að sama landi aftur. Þá samdi hann um samfylgd við íhaldið, þótt hann þættist yfirgefa far- kostinn vegna nærveru þess áður eti hann álpaðist út í fenja mýrina. Framsóknarflokkurinn settist meira að segja undir stýri. Og hvernig hefur svo þessi Öku-Þór íslenzkra stjórn- mála rækt bílstjórastarfið? Er það ekki einmitt nú fyrst, að farkosturinn liggur á hvolfi úti í urðinni? Staðreyndirnar tala. Það er búið að Iækka gengi krónunn- 1 ar um 42,6^. Hver nauðsynja- varan af annarri, svo og hvers konar þjónusta, hefur stór- hækkað í verði, og er þar þó aðeins um byrjun að ræða. En sjávarútvegurinn, atvinnu- greinin, sem gengislækkunin átti fyrst og fremst að bjarga, er í þann veginn að stöðvast. Nú blasir við urð og grjót, hvert sem litið er. En Fram- sóknarflokkurinn virðist í- mynda sér, að framundan liggi beinn og breiður vegur og æskudraumalöndin bíði hans bak við næsta leiti. Hann hefur varla tapa,ð dómgreindinni á á- fengisdrykkju. En hann lifir í sælii vímu. Það, sem gleður hann, er að vita Steingrím, Hermann og Eystein í framsæti stjórnarbílsins og elsku vinina, Ólaf, Björn og Bjarna, sem farþega í aftursætinu. Tírninn segir í umræddri rit- stjórnargrein, að Framsókn- arflokkurinn hafi slitið stjórn- arsamvinnunni í fyrrahaust til að knýja fram stefnubreytingu. Stefnubreytingin er komin til scgunnar. Hún birtist í mynd- gengislækkunarinnar og verð- hækkananna. Afleiðing hennar er sú, að atvinnuvegirnir eru í þann veginn að stöðvast, en verðbólgan og dýrtíðin fer upp úr öllu valdi. Það er svo rem ekki ofsögum af því sagt, þó að fullyrt sé, að Framsókn- arflokkurinn standi í tvísýnum björgunaraðgerðum. En Tíminn lítur á hann sem lækni á slys- stað og ímyndar sér sennilega, að sjálfur sé hann lyfseðillinn. Þvílíkt og annað eins! Og svona íkrifa menn, sem hafa á sér orð fyrir reglusemi! S s s s S VÓRUVÖNDUN er orð, sem alltof sjaldan heyrist hér á landi. Þjóðin lifir að veru- legu leyti á útflutningi fisk- afurða, sem eru þess eðlis, að það getur miklu munað um verð og vinsældir vörunn ar, hversu vel hefur verið með hana farið, hvernig verkun hennar hefur verið og hvernig umbúðir eru. Und- anfarin ár, í styrjöldinni og rétt eftir hana, var hægt að selja svo til allan fisk góðu verði, og þá hvarf umhugun um meðferð fisksins, og var öll áherzla á það lögð, að veiða sem mest og koma því á markaðinn. NÚ ER ÞETTA tímabil liðið. í markaðslöndum okkar, til dæmis Bretlandi og Þýzka- landi, er nú hægt að fá meira af annarri matvöru, og fólk er tekið að þreytast á illa verkuðum og oft slæmum fiski. Þegar eitthvað annað er í boði, bíður fiskurinn lægri hlut í samkeppninni. Þetta er verule»t atriði í sam bandi við rýrnun brezka markaðarins, eins og vel má sjá á skrifum sérfróðra manna í f iskveiðitímarit Breta. Þar má einnig sjá um- mæli fjölda skipstjóra, fisk- sala og annarra, sem við fisk veiðar eða sölu fást, þess efn is, að nú verði að vanda vör- una og eina vonin um áfram- haldandi fiskmarkað sé betri fiskur, sem húsmæður fáist til að kaupa. HÉR Á ÍSLANDI haf. cpin- berir aðilar nokkrum sinnum Greinarhöfundur Tímans hefur allt á hornum sér vegna þess, að Alþýðublaðið birti greinar um það, að nú þurfi að sækja það fé, sem íslenzkir gróðamenn hafi rakað saman á verzlun, fluit úr landi og kom- ið fyrir erlendis, meðan Al- þýðuflokkurinn var í stjórn. Það vantar svo sem ekki ónot- in og derringinn. Alþýðublaðið hefur þó ekki annað gert en minna á það, að Hermann Jón- asson fullyrti á opinberum fundi, að hann vissi, hversu hárri upphæð földu inneign- irnar erlendis næmu, og fram- bjóðendur Framsóknarflokks- ins í fyrrahaust töldu einsýnt, að Hermann fyndi þetta fé, þegar hann væri orðinn ráð- herra eftir kosningar. Nú er Hermann kominn í stjórn og ætti því að fara að spjara sig. Námumálaráðherrann þykist vita, hvar fjársjóðs fölau inn- eignanna sé. að leita. Alþýðu- blaðið hefur mælzt til þess, að hann leiði Björn vin sinn Ól- afsson á staðinn, þar sem sjóð- urinn er fyrir, láti hann grafa eftir honum og afhendi Ey- steini Jónssyni hann til varð- veizlu og ávöxtunar. Þessum hógværu tilmælum hefur Tírn- inn reiðzt. En Alþýðublaðinu gekk hins vegar gott eitt til, og það ímyndaði sér meira að segja, að Herniann Jónásson hefði valið sér embætti námu- málaráðherrans með sérstöku tilliti til þessa veglega hlut- verks. En gremja Tímans skyldi þó aldrei stafa af því, að Hermann Jónasson hafi að- eins dreymt þennan gullfund, meðan Framsóknarflokkurinn var á ferðalaginu úti í fenja- mýrinni? r*^r* gefið út tilkynningar, þar sem hvatt er til vandaðrar verkunar á fiski. Hefur verið frá því sagt, að íslenzki fisk- urinn hafi þegar misst. mikið af þeirri frægð, sem hann áð- ur naut, og þyki nú hvergi nærri svo góð vara, sem fyrir stríð. Þegar samkeppnin um markaðina eykst, verður þetta að lagast. Þá geta gæði fisksins ekki síður en verð hans haft úrslitaáhrif á það, hver heldur markaðinum. HRAÐFRYSTI FISKURINN okkar hefur ekki alltaf feng- ið góðar móttökur, þegar hann hefur loks komizt á pönnuna. Hér hefur honum verið pakkað í stóra pakka og hann síðan sendur í geymsl- ur í Bretlandi. Yfirvöldin þar syðra hafa oft ekki sent hann á markaðinn nema þegar skortur hefur verið á nýjum fiski, og þá hefur íslenzki freðfiskurinn verið þýddur í Verzlunum og seldur sem nýr fiskur. Hér er að vísu ekki skorti á vöruvöndun um að kenna af íslendinga hálfu, en þessi meðferð hefur senni- Iega lítið aukið frægð ís- lenzkra afurða erlendis. Nú munu frystihúsin vera að snúa sér að fullkomnari pökkunaraðferðum og smærri pökkum, svo að hraðfrysti fiskurinn ætti að vera síór- um seljanlegri og snotrari vara. HÉR VERÐUR EKKI RÆTT um aðrar greinar framleiðsl- unnar, til dæmis niðursuðu, þar sem reynslan af vöru- Feitmetisskortur í Reykjavík. — Ekki til, ekki til. — Hvorki smjör, smjörlíki eða tólg. — Hafnar- fjarSarvlgurirm. — Nokkrar fyrirspurnir 'frá Hafnarfirði viðvíkiandi verzlun. SEGJA MÁ, að bærinn liafi verið viðbitslaus undanfarna daga, Er því líkast sem aff styrj aldarástand sé ao færast yfir Reykjavík, því aff á stvrjald- arárunum heyrffi maffur það oft að það væri feitmetisskorturinn rem aðallega þjakaffi þjóðunum íivaff mataræði snerti. Tólg hef- ur .ekki fengizt, ekki smjör líki heldur ekki í nokkra daga.' EFTIR AÐ HAFA lesið til-j kynningar iðnrekenda skilur ^ maður að smjörlíkisskortur: kunni að vera fyrir hendi vegna ' rkorts á hráefnum í smjörlíkið. ! Smjörskorturinn hefur alltaf gert várt við sig við og við svo 1 að hann er varla tiltökumá!. enda flytjum vio líka inn smjör í stórum stíl. En hvers vegna vantar tólg. Maður, sem kvaðst hafa hringt í Sláturfélagið í Cyrradag sagðist hafa fengið þær fréttir að það stæði bara á því að búa til tólgina. Það er furðleg afsökun og ótrúleg núna í þessum algera feitmetisskorti. En ef til vill er það ein af hlið- arráðstöfununum, að neyða fólk til að borða búrrt. •.v"*jr*y'«^"»^r*^*y"*y‘*>'.^r'V". vöndun mun því miður ekki vera öll sem skjddi. Nægir að benda á þessi dæmi um það, að hér þarf að hefja miklu stórfelldari herferð til þess að festa það í huga hvers manns, sem við fram- leiSsluna vinnur, að vöruna; verði að vanda eins og fram- ast er unnt, því að hver smá- partur af fiskinum getur, þeg ar hann er seldur erlendis, ráðið því, hvort ein fjöl- skylda kauþir meira af ís- lenzkum fiski eða ekki. VÖRUVÖNDUNIN er þó ekki nema ein hlið málsins. ís- lendingar eru orðnir of van- ir því að ríkisstjórnin selji öðrum ríkisstjórnum afurð- irnar í stórum slöttum, ' án þess að nokkuð sé hugsað um neyt-gndann tilvonandi. Norð menn hafa mikið gert til þess | að vinna markað fyrir vöru sína og auglýsa hana, gera hana vinsæla. Slíkar vöru- vinsældir eru langbezta tryggingin fyrir góðum fram j tíðar markaði, sem hægt er j að fá. Bandaríkin eru eina landið, þar sem Islendingar hafa orðið að skapa sér mark að með því að selja alþýð- unni sjálfri vörur sínar, og það starf hefur ekki borið mikinn sjáanlegan árangur. Þar þyrfti að gera meira til að afla íslenzka fiskinum vina og kaupenda, og verður það ekki gert betur en að aug lýsa og fá verzlanir til að auglýsa vöru, sem sölumenn- irnir eiga með góðri sam- vizku að geta gefið hin beztu meðmæii. Slíkt og VEGFARANDI SKRIFAR: Einu sinni ennþá er vegurinn milli Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar orðinn ófær bifreiðum og versnar nú dag frá degi. Vegaryfirvöldin horfa á að- gerðalaus. Nýlega fór ég í bíl rnínum um veginn í myrkri, og varð það á að detta með eitt hjólið í djúpa holu og brjóta augablað, sem hvergi fæst nú. Nokkrum metrum sunnar á veg ínum var bíll með þungt hlass, hafði hann lent í einni gryfj- unni, því þetta eru nú ekki hol- ur lengur, heldur gryfjur, og brotið einnig augablað. M. ö. o., dag hvern eru eyðilögð á þess- um fjölfarnasta þjóðvegi lands- ins verðmæti fyrir þúsundir eða kannske tu| þúsundir luróna. ■ ÞAÐ MÁ VERA DÆMAFÁTT hirðuleysi af vegamálastjóra, að iáta þennan veg alloftast vera ófæran. Hvers á hann .að gjalda'j Það var beint ógeðs- legt að sjá bíl og menn vera að dreifa sandi og möl í stærstu gryfjurnar um daginn. Nú er þetta allt farið og gryfjurnar gapa enn þá meiri gímöid en nokkru sinni fyrr. Ég skora nú á, og ef ekki það dugar, þá hrópa ég á vegamálastjóra, að láta nú fara að gera við veginn, ekki með klastri, heldur endur- bæta hann svo að hann dugi eitthvað frekar en hingað til. Ég treysti að vegamálastjóri nvari nú, því að hvenær verður byrjað á viðgerðinni. HAFNFIRÐINGUR SKRIF- AR: ,,Ég vil biðja þig að birta fyrir rnig tvær fyrirspurnir, sem 6g vona að fá svör við frá hlutað eiganai félögum. Fyrsta er til Sambands íslenzkra samvinnu- félaga. Fá ekki öll kaupíélög', sem eru í sambar.dinu, útbýtt vörum þaðan, í hlutfalli við fé- lagatölu sína t. d. vefnaðarvöru, búsáhöld, skófatnað og fleira? Ef s\o er, þá vil ég spyrja kaup- félagsstjóra Hafnfirðinga hvað verður af þessum vörum? Hvers vegna getur Kaupfélag Hafnar- fjarðar ekki selt félagsmönnum sínum svipað magn af þessum vörum og önnur kaupfélög? EF MAÐUR KEMIJR í KRQN í Reykjavík þá sér maður góðar og nytsamar vörur, sem félags- menn fá úthlutað út á vöru- jöfnunarmiða sína, og oft heyr- ir maður í útvarpinu auglýsing- ar um . vörujöfnun, frá kaupfélögum úti á landi, en margt af þeim vörutegundum kemur aldrei fram í búð í kaup- félagsins hér“. SÝNINGIN í Aðalstræti 6 á eítirprentun af frægum mál- verkum hefur verið opin frá því fyrir páska, en lýkur í dag. Heíur sýningin verið fjöl- sótt og margar myndir hafa selst. hið sama þyrfti að gera víð- ar en á ameríska markaðin- um. Með því móti verða ís- lenzkir markaðir bezt tryggð ir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.