Alþýðublaðið - 18.04.1950, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. apríl 1950
Úígefandi: Alþýffuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsíngar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiffslusími: 4900.
Affsetur: Alþýffuhúsiff.
Alþýffuprentsmiffjan h.f.
iiisi nfg
TÍMINN er yfirleitt þreyt-
andi aflestrar, en ritstjómar-
grein hans síðast liðinn
laugardag er einstaklega
skemmtileg. Höfundur hennar
reynir að vera fyndinn á kostn-
að Alþýðuflokksins, en hvort
tveggja er, að hann er reiður
og illa verki farinn, svo að les-
endur greinarinnar sjá þar
Framsóknarflokkinn í stórum
og glöggum spéspegli. Klauf-
inn, sem reiðir til höggs gegn
Alþýðuflokknum, ber óvart
vopn á sjálfan sig.
Höfundurinn líkir Alþýðu-
í'lokknum við drukkinn bíl-
stjóra, sem haíi ekið farkosti
sínum út í urð, brotið hann og
slarao fólk. Þegar aðrir eru
að koma farartækinu upp á
veginn á ný, hrópar bílstjórinn
að þeim hæðnisorðum, hvers
vegna þeir aki ekki eins greitt
og hann hafi gert. Og þegar
læknir er kominn til að gera að
sárum hinna slösuðu, hrópar
bílstjórinn: •— Sjáið bölvaðan
kvalarann! Það leynir sér svo
sem ekki, hver blessaður lækn-
irinn er. Hann er hinn frábæri
björgunaraðili íslenzkra stjórn-
mála, Framsóknarflokkurinn!
En svo bregst greinarhöf-
unainum heldur betur boga-
listin, því að skömmu síðar fer
hann að ræða um það, að Al-
þýðuflokknum fari illa að sví-
virða þá, sem standi í tvísýn-
um björgunaraðgerðum. Þá
hefur hann gleymt því, að
dæmisagan hljóðar um lækni,
sem er að gera að sárum bein-
brotinna farþega á slysstað.
Sannleikurinn um hið ömur-
lega hlutskipti Framsóknar-
flokksins er svo ríkur í huga
hans, að hann fer áður en var-
ir að ræða um tvísýnar björg-
unaraðgerðir flpkksins, sem
hann áður líkti við lækni.
❖
Þetta er eðlilegt. Framsókn-
arflokkurinn er enginn læknir
í ísienzkum stjórnmálum. En
hann var farþegi í bifreiðinni,
sem Tíminn ségir nú, að Al-
þýðuflokkurinn hafi ekið
drukkinn. Alþýðuflokkurinn ók
þeim farkosti ekki út í neina
urð. Hann stöðvaði hann þvert
á móti á sléttum og greiðfær-
um vegi, þegar Framsóknar-
flokkurinn hljóp út í fússi af
því að hann fékk ekki að stýra
og tók sér fyrir hendur ferða-
lag um torfæra fenjamýri. Þar
skreið hann um á höndum og
fótum og ataði sig upp fyrir
haus. Loks komst hann þó að
sama landi aftur. Þá samdi
hann um samfylgd við íhaldið,
þótt hann þættist yfirgefa far-
kostinn vegna nærveru þess
áður eti hann álpaðist út í fenja
mýrina. Framsóknarflokkurinn
settist meira að segja undir
stýri. Og hvernig hefur svo
þessi Öku-Þór íslenzkra stjórn-
mála rækt bílstjórastarfið? Er
það ekki einmitt nú fyrst, að
farkosturinn liggur á hvolfi úti
í urðinni?
Staðreyndirnar tala. Það er
búið að Iækka gengi krónunn- 1
ar um 42,6^. Hver nauðsynja-
varan af annarri, svo og hvers
konar þjónusta, hefur stór-
hækkað í verði, og er þar þó
aðeins um byrjun að ræða. En
sjávarútvegurinn, atvinnu-
greinin, sem gengislækkunin
átti fyrst og fremst að bjarga,
er í þann veginn að stöðvast.
Nú blasir við urð og grjót,
hvert sem litið er. En Fram-
sóknarflokkurinn virðist í-
mynda sér, að framundan liggi
beinn og breiður vegur og
æskudraumalöndin bíði hans
bak við næsta leiti. Hann hefur
varla tapa,ð dómgreindinni á á-
fengisdrykkju. En hann lifir í
sælii vímu. Það, sem gleður
hann, er að vita Steingrím,
Hermann og Eystein í framsæti
stjórnarbílsins og elsku vinina,
Ólaf, Björn og Bjarna, sem
farþega í aftursætinu.
Tírninn segir í umræddri rit-
stjórnargrein, að Framsókn-
arflokkurinn hafi slitið stjórn-
arsamvinnunni í fyrrahaust til
að knýja fram stefnubreytingu.
Stefnubreytingin er komin til
scgunnar. Hún birtist í mynd-
gengislækkunarinnar og verð-
hækkananna. Afleiðing hennar
er sú, að atvinnuvegirnir eru í
þann veginn að stöðvast, en
verðbólgan og dýrtíðin fer
upp úr öllu valdi. Það er svo
rem ekki ofsögum af því sagt,
þó að fullyrt sé, að Framsókn-
arflokkurinn standi í tvísýnum
björgunaraðgerðum. En Tíminn
lítur á hann sem lækni á slys-
stað og ímyndar sér sennilega,
að sjálfur sé hann lyfseðillinn.
Þvílíkt og annað eins! Og svona
íkrifa menn, sem hafa á sér
orð fyrir reglusemi!
S
s
s
s
S
VÓRUVÖNDUN er orð, sem
alltof sjaldan heyrist hér á
landi. Þjóðin lifir að veru-
legu leyti á útflutningi fisk-
afurða, sem eru þess eðlis,
að það getur miklu munað
um verð og vinsældir vörunn
ar, hversu vel hefur verið
með hana farið, hvernig
verkun hennar hefur verið og
hvernig umbúðir eru. Und-
anfarin ár, í styrjöldinni og
rétt eftir hana, var hægt að
selja svo til allan fisk góðu
verði, og þá hvarf umhugun
um meðferð fisksins, og var
öll áherzla á það lögð, að
veiða sem mest og koma því
á markaðinn.
NÚ ER ÞETTA tímabil liðið.
í markaðslöndum okkar, til
dæmis Bretlandi og Þýzka-
landi, er nú hægt að fá meira
af annarri matvöru, og fólk
er tekið að þreytast á illa
verkuðum og oft slæmum
fiski. Þegar eitthvað annað
er í boði, bíður fiskurinn
lægri hlut í samkeppninni.
Þetta er verule»t atriði í sam
bandi við rýrnun brezka
markaðarins, eins og vel má
sjá á skrifum sérfróðra
manna í f iskveiðitímarit
Breta. Þar má einnig sjá um-
mæli fjölda skipstjóra, fisk-
sala og annarra, sem við fisk
veiðar eða sölu fást, þess efn
is, að nú verði að vanda vör-
una og eina vonin um áfram-
haldandi fiskmarkað sé betri
fiskur, sem húsmæður fáist
til að kaupa.
HÉR Á ÍSLANDI haf. cpin-
berir aðilar nokkrum sinnum
Greinarhöfundur Tímans
hefur allt á hornum sér vegna
þess, að Alþýðublaðið birti
greinar um það, að nú þurfi að
sækja það fé, sem íslenzkir
gróðamenn hafi rakað saman á
verzlun, fluit úr landi og kom-
ið fyrir erlendis, meðan Al-
þýðuflokkurinn var í stjórn.
Það vantar svo sem ekki ónot-
in og derringinn. Alþýðublaðið
hefur þó ekki annað gert en
minna á það, að Hermann Jón-
asson fullyrti á opinberum
fundi, að hann vissi, hversu
hárri upphæð földu inneign-
irnar erlendis næmu, og fram-
bjóðendur Framsóknarflokks-
ins í fyrrahaust töldu einsýnt,
að Hermann fyndi þetta fé,
þegar hann væri orðinn ráð-
herra eftir kosningar. Nú er
Hermann kominn í stjórn og
ætti því að fara að spjara sig.
Námumálaráðherrann þykist
vita, hvar fjársjóðs fölau inn-
eignanna sé. að leita. Alþýðu-
blaðið hefur mælzt til þess, að
hann leiði Björn vin sinn Ól-
afsson á staðinn, þar sem sjóð-
urinn er fyrir, láti hann grafa
eftir honum og afhendi Ey-
steini Jónssyni hann til varð-
veizlu og ávöxtunar. Þessum
hógværu tilmælum hefur Tírn-
inn reiðzt. En Alþýðublaðinu
gekk hins vegar gott eitt til, og
það ímyndaði sér meira að
segja, að Herniann Jónásson
hefði valið sér embætti námu-
málaráðherrans með sérstöku
tilliti til þessa veglega hlut-
verks. En gremja Tímans
skyldi þó aldrei stafa af því,
að Hermann Jónasson hafi að-
eins dreymt þennan gullfund,
meðan Framsóknarflokkurinn
var á ferðalaginu úti í fenja-
mýrinni?
r*^r*
gefið út tilkynningar, þar
sem hvatt er til vandaðrar
verkunar á fiski. Hefur verið
frá því sagt, að íslenzki fisk-
urinn hafi þegar misst. mikið
af þeirri frægð, sem hann áð-
ur naut, og þyki nú hvergi
nærri svo góð vara, sem fyrir
stríð. Þegar samkeppnin um
markaðina eykst, verður
þetta að lagast. Þá geta gæði
fisksins ekki síður en verð
hans haft úrslitaáhrif á það,
hver heldur markaðinum.
HRAÐFRYSTI FISKURINN
okkar hefur ekki alltaf feng-
ið góðar móttökur, þegar
hann hefur loks komizt á
pönnuna. Hér hefur honum
verið pakkað í stóra pakka og
hann síðan sendur í geymsl-
ur í Bretlandi. Yfirvöldin þar
syðra hafa oft ekki sent hann
á markaðinn nema þegar
skortur hefur verið á nýjum
fiski, og þá hefur íslenzki
freðfiskurinn verið þýddur í
Verzlunum og seldur sem nýr
fiskur. Hér er að vísu ekki
skorti á vöruvöndun um að
kenna af íslendinga hálfu, en
þessi meðferð hefur senni-
Iega lítið aukið frægð ís-
lenzkra afurða erlendis. Nú
munu frystihúsin vera að
snúa sér að fullkomnari
pökkunaraðferðum og smærri
pökkum, svo að hraðfrysti
fiskurinn ætti að vera síór-
um seljanlegri og snotrari
vara.
HÉR VERÐUR EKKI RÆTT
um aðrar greinar framleiðsl-
unnar, til dæmis niðursuðu,
þar sem reynslan af vöru-
Feitmetisskortur í Reykjavík. — Ekki til, ekki til.
— Hvorki smjör, smjörlíki eða tólg. — Hafnar-
fjarSarvlgurirm. — Nokkrar fyrirspurnir 'frá
Hafnarfirði viðvíkiandi verzlun.
SEGJA MÁ, að bærinn liafi
verið viðbitslaus undanfarna
daga, Er því líkast sem aff styrj
aldarástand sé ao færast yfir
Reykjavík, því aff á stvrjald-
arárunum heyrffi maffur það oft
að það væri feitmetisskorturinn
rem aðallega þjakaffi þjóðunum
íivaff mataræði snerti. Tólg hef-
ur .ekki fengizt, ekki smjör
líki heldur ekki í nokkra daga.'
EFTIR AÐ HAFA lesið til-j
kynningar iðnrekenda skilur ^
maður að smjörlíkisskortur:
kunni að vera fyrir hendi vegna '
rkorts á hráefnum í smjörlíkið. !
Smjörskorturinn hefur alltaf
gert várt við sig við og við svo 1
að hann er varla tiltökumá!.
enda flytjum vio líka inn smjör
í stórum stíl. En hvers vegna
vantar tólg. Maður, sem kvaðst
hafa hringt í Sláturfélagið í
Cyrradag sagðist hafa fengið
þær fréttir að það stæði bara á
því að búa til tólgina. Það er
furðleg afsökun og ótrúleg núna
í þessum algera feitmetisskorti.
En ef til vill er það ein af hlið-
arráðstöfununum, að neyða fólk
til að borða búrrt.
•.v"*jr*y'«^"»^r*^*y"*y‘*>'.^r'V".
vöndun mun því miður ekki
vera öll sem skjddi. Nægir
að benda á þessi dæmi um
það, að hér þarf að hefja
miklu stórfelldari herferð til
þess að festa það í huga
hvers manns, sem við fram-
leiSsluna vinnur, að vöruna;
verði að vanda eins og fram-
ast er unnt, því að hver smá-
partur af fiskinum getur, þeg
ar hann er seldur erlendis,
ráðið því, hvort ein fjöl-
skylda kauþir meira af ís-
lenzkum fiski eða ekki.
VÖRUVÖNDUNIN er þó ekki
nema ein hlið málsins. ís-
lendingar eru orðnir of van-
ir því að ríkisstjórnin selji
öðrum ríkisstjórnum afurð-
irnar í stórum slöttum, ' án
þess að nokkuð sé hugsað um
neyt-gndann tilvonandi. Norð
menn hafa mikið gert til þess |
að vinna markað fyrir vöru
sína og auglýsa hana, gera
hana vinsæla. Slíkar vöru-
vinsældir eru langbezta
tryggingin fyrir góðum fram j
tíðar markaði, sem hægt er j
að fá. Bandaríkin eru eina
landið, þar sem Islendingar
hafa orðið að skapa sér mark
að með því að selja alþýð-
unni sjálfri vörur sínar, og
það starf hefur ekki borið
mikinn sjáanlegan árangur.
Þar þyrfti að gera meira til
að afla íslenzka fiskinum
vina og kaupenda, og verður
það ekki gert betur en að aug
lýsa og fá verzlanir til að
auglýsa vöru, sem sölumenn-
irnir eiga með góðri sam-
vizku að geta gefið hin
beztu meðmæii. Slíkt og
VEGFARANDI SKRIFAR:
Einu sinni ennþá er vegurinn
milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar orðinn ófær bifreiðum
og versnar nú dag frá degi.
Vegaryfirvöldin horfa á að-
gerðalaus. Nýlega fór ég í bíl
rnínum um veginn í myrkri, og
varð það á að detta með eitt
hjólið í djúpa holu og brjóta
augablað, sem hvergi fæst nú.
Nokkrum metrum sunnar á veg
ínum var bíll með þungt hlass,
hafði hann lent í einni gryfj-
unni, því þetta eru nú ekki hol-
ur lengur, heldur gryfjur, og
brotið einnig augablað. M. ö. o.,
dag hvern eru eyðilögð á þess-
um fjölfarnasta þjóðvegi lands-
ins verðmæti fyrir þúsundir eða
kannske tu| þúsundir luróna. ■
ÞAÐ MÁ VERA DÆMAFÁTT
hirðuleysi af vegamálastjóra, að
iáta þennan veg alloftast vera
ófæran. Hvers á hann .að
gjalda'j Það var beint ógeðs-
legt að sjá bíl og menn vera að
dreifa sandi og möl í stærstu
gryfjurnar um daginn. Nú er
þetta allt farið og gryfjurnar
gapa enn þá meiri gímöid en
nokkru sinni fyrr. Ég skora nú
á, og ef ekki það dugar, þá
hrópa ég á vegamálastjóra, að
láta nú fara að gera við veginn,
ekki með klastri, heldur endur-
bæta hann svo að hann dugi
eitthvað frekar en hingað til.
Ég treysti að vegamálastjóri
nvari nú, því að hvenær verður
byrjað á viðgerðinni.
HAFNFIRÐINGUR SKRIF-
AR: ,,Ég vil biðja þig að birta
fyrir rnig tvær fyrirspurnir, sem
6g vona að fá svör við frá hlutað
eiganai félögum. Fyrsta er til
Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga. Fá ekki öll kaupíélög',
sem eru í sambar.dinu, útbýtt
vörum þaðan, í hlutfalli við fé-
lagatölu sína t. d. vefnaðarvöru,
búsáhöld, skófatnað og fleira?
Ef s\o er, þá vil ég spyrja kaup-
félagsstjóra Hafnfirðinga hvað
verður af þessum vörum? Hvers
vegna getur Kaupfélag Hafnar-
fjarðar ekki selt félagsmönnum
sínum svipað magn af þessum
vörum og önnur kaupfélög?
EF MAÐUR KEMIJR í KRQN
í Reykjavík þá sér maður góðar
og nytsamar vörur, sem félags-
menn fá úthlutað út á vöru-
jöfnunarmiða sína, og oft heyr-
ir maður í útvarpinu auglýsing-
ar um . vörujöfnun, frá
kaupfélögum úti á landi, en
margt af þeim vörutegundum
kemur aldrei fram í búð í kaup-
félagsins hér“.
SÝNINGIN í Aðalstræti 6 á
eítirprentun af frægum mál-
verkum hefur verið opin frá
því fyrir páska, en lýkur í dag.
Heíur sýningin verið fjöl-
sótt og margar myndir hafa
selst.
hið sama þyrfti að gera víð-
ar en á ameríska markaðin-
um. Með því móti verða ís-
lenzkir markaðir bezt tryggð
ir.