Alþýðublaðið - 15.06.1950, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.06.1950, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. júní 1950. ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 í DAG er finimtudagurimi 15. júní. Þennan clag árið 1215 var frelsisskrá Englendinga, Magna Carta, veiít . gildi. Fæddur Edward Grie gárið 1843. Sólarupprás var kl. 2.58, Sól arlag verður kl. 23.59. Sól er liæst á lofti í Reykjavík kl. 13, 28. Næturvörður er í Laugavegs apóteki, sími 1616. Flogferðir FLUGFÉLAG ÍSLANDS: Gull- faxi er í Reykjavík. LOFTLEIÐIR: Geysir kom í gær frá Kaupmannahöfn. AOA: Frá New York, Boston, Gantíer um Keflavík til.Oslo, Stokkhólms og Helsingfors. ákipafréftir Laxíoss fer til Akraness kl. 8 og til Reykjavíkur kl. 9.30. Skip ið fer aftur til Akraness kl. 13, frá Borgarensi kl. 18 og frá Akranesi kl. 20. Brúarfoss fer frá Reykjavík 15/5. til ívotterdam. Dettifoss átti að fara frá Kotka 13.6. til Raumö í Finnlandi. Fjallfoss fór frá Gautaborg 10/6. til Siglu- fjarðar. Goðafoss kom til Amst erdam 10/6, fer þaðan 15.6. til Hamborgar, Antwerpen og Rott erdam. Gullfoss er væntanleg- ur til Reykjavíkur um kl. 1 f. h. á morgun 15.6. frá Kaup- jnannahöfn og Leith. Lagarfoss er í Reykjavík. Selfoss fór frá Reyðarfirði 9.6. til Gdynia og Gautaborgar. Tröllafoss fór frá Reykjavík 13.6. til New York Vatnajökull fór frá New York 6.6. til Reykjavíkur. Hekla er í Glasgow og fer það an á morgun áleiðis til Reykja- víkur. Esja er á Austfjörðúm á suðurleið.' Herðubreið er á Aust fjörðum á norðurleið. Skjald- hreið fór frá Reykjavík í .gær- kvöld til Snæfellsnesshafna, Gils fjarðar og Flateyjar. Þyrill er í Reykjavík. Ármann er væntan legur til Rvíkur í dag frá Vest ínannaeyjum. Arnarfell er á Hólmavík. Fer þaðan í dag til Siglufjarðar. Hvassafell er í Kotka. Katla er á leið til Hamborg. Söfe ©g sýningar Landsbókasafnið er opið yfir sumarmánuðina sem hér segir: Alla virka daga frá kl. 10—12, 1—7 og 8—10; á laugardögum þó aðeins frá kl. 10—12. Þjóðskjalasafnið er opið frá kl. 10—12 og 2—7. Á laugardög um yfir sumarmánuðina þó að- eins írá kl. 10—12. . Skemsntanir ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: í kvöld kl. 19.30 Tónleikar: Danslög (plöt- ur). 20.30 Einsöngur: Patrice Muns- sel syngur (plötur). 20.45 Erindi: Hugur og heimur. (Grétar Fells rithöfund- ur). 21.10 Tónleikar (plötur). 21.15 Dagskrá Kvem’éttindafé- lags íslands. •— Erindi: Úr Ameríkuför (Sigríður J. Magnússon). 21.40 Tónleikar (plötur). 21.45 Þýtt og endursagt( Ólaf- ur Friðriksson). 20: „Brúðkaup Figarós.“ Uppselt. Á morgun kl. 20: „Brúðkaup Figarós.“ Upp- selt. SAMKOMUHÚS: Austurbæiarbió (sími 1384): „G-menn að verki. (amerísk). Charles Bickford og Ann Dvor- ak. Sýnd kl. 7 og 9. „Silfur í syndabæli“ Sýiid kl. 5. Gamla Bíó (sími 1475:) — „Æskan á þingi“ (rússnesk). Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó (sími 6444): — „Snabbi“. Rellys, Jean Tissier og Josette Daydé. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Nýja Bíó (sími 1544): — „Eiginkona á valdi. Bakkusar". (amerísk) Susan Hayward, og Lee Bowman. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Stjörnubíó (sími 81936): — „Varvara Vasiljevna" (rúss- nesk). Vera Maretskajá. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tjarnarbíó (sími 6485): — „Glitra daggir, grær fold“ (saensk). Mai Zetterling, Alf Kjellin. Sýnd kl. 9. „Sagan af A1 Jolson“. Sýnd kl. 5. Tripolibíó (sími 1182): — ,,Ungherjar“ (rússnesk). S. Gurzo, Imakowa og V. Inavow. Sýnd kl. 5 og 9. Bæjai’bíó, Hafnarfirði (sími 9184): „Spánskar nætur“ Sýnd kl. 7 og 9. Hafnarfjarðarbíó (sími 9249): „Kósakkaforinginn" (frönsk). Harry Baur, Jean-Pierre Au- mont. Sýnd kl. 7 og 9. 0r öilum £tti*m Hjólreiðamenn: Gefið jafnan merki með bendinni, ef þér ætl ið að breyta um stefnu eða þurf ið að stanza. Réttið út hægri handlegg, ef þér ætlið að beygja til hægri, en vinstri handlegg, ef þér þurfið að sveigja til vinstri. Ef þér nemið staðar, þá réttið annan hvorn handlegginn beint upp. Frá íþróttavellinum: Vegna undirbúnings hátíðahalda og í- þrótta á íþróttavellinum 17. júní verður völlurinn alveg lok aður næstkomandi fostudag 16. júní. Kvenréttinclafélag íslands. Farið verður í Heiðmörk í kvöld, ef ekki verður rigning, annars annað kvöld. Lagt upp frá Ferða skrifstofunni kl. 7,30. Félagskon úr fjölmennið. f tilefni af 92. ára aímælisdegi sænska konungsins verður tek- ig á móti gestum í sænska sendi ráðinu föstudaginn 16. júní kl. 4—6. Allir Svíar og vinir Sví- þjóðar eru velkomnir m i ófí verfíðin sé þar sfufí Siómenn hafa fengiS allt að 10'000 dfoil ara fyrir eins mánaðar vértíð! LÚÐUVEIÐAR á Kyrrahafsströnd Kanada og Bandaríkj- anna eru stundaðar á vori hverju, en þó aðcins um takmark- aðan tíma, venjulega röskan mánuð. Á þessari stuttu vertíð veiddust í fyrra 55 000 000 Ibs. af l,úðu, og var verðmæti þessa afla 13 000 000 dollarar kanadiskir, eða 191 920 000 krónur ís- jenzkar! Sjómenn vinrxa af kappi, meðan vertíðin stendur yfir, og eru dæmi til um það, að einstakir fiskimcnn hafi haft í tekjur allt að 10 000 dollurum, eða 150 000 krónum, á þessum eia mánuði! Það er því von, að þeim finn'jst lúðuveiðarnar „gullnáma", þótt erfiðar séu. Það er brezka tímari,tið Fish- íng News, sem frá þessu skýrir. Segir blaðiS frá því, að lúðu- veiðar þarna séu takmarkaðar samkvæmt alþjóðasámkomu- lagi. Var ’farið að verða lítið um lúðuna um 1930, er Banda- ríkjamenn og Kanadamenn tóku höndum saman og á- kváðu að takmarka veioina. Var veiðin til dæmis í fyrra bundin við 55 millj. lbs. og mátti veiðin hefjast 1. maí. Veiddi svo hver sem bétur gat, þar til takmarkinu Var náð. Á þennan hátt hefur stofninn náð sér mjög vel, og er aflinn orð- inn álíka mikill á rösklega mánuði og áður var á langri vertíð án alls skipulags. Kanadamenn stunda veiðar þessar mikið, þótt hlutur Banda ríkjamanna í þeim sé enn stærri. í British Columbia, á Kyrrahafsströnd Kanada, stunda um 700 sjómenn þessar veiðar á bátum, sem sagðir eru vera allt frá opnum fleytum upp í 80 feta mótorbáta. Mestu verstöðvarnar eru Prince Ru- pert og Vancouver, en hjá Bandaríkjamönnum Seattle. Alþjóðanefnd stjórnar lúðu- veiðum þessum, og akveður hún árlega, hvenær veiðar mega hefjast og hve mikið má veiða. Er þeim fyrirmælum uHfoss" stranglega fylgt, enda munu sjómenn hafa sannfærzt um gildi þeirra friðunarráðatafana. sem gerðar hafa verið. Mest er veiðin á svæðinu milli Vancou- vereyjar og Queen Charlotte eyjaklasans. Mestallur aflinn er hrað- írystur og sendur á markaði í Austur-Kanada og Austur- Bandaríkjunum. Segja fisk- kaupmenh, að markaðurinn sé „cruggur“, enda er luðan mik- ils metin í báðum löndum. fer frá Reykjavík laugai’dag- inn 17. júní kl. 12 á hádegi til Leith og Kaupmannahafnar. Farþegar verða að vera komn- ir um boð eigi síðar en kl. 11 f. h. Það skal tekið fram, að far- angur farþega verður skoðað- ur í vöruskoðun tollgæzlunnar í Hafnarhúsinu, kl. 9—11 f. h. og verða farþegar að vera bún- ir að láta skoða farangur simi þar, áður en þeir fara um bórð. H.F. Eimskipafélag íslands. III mt Baldursgöíu 30. Lesið Alþýðublaðlð „FUNDUR í Verkmannafé- laginu Daagsbrún, haldinn 13. júní 1950, telur að ástand og horfur í atvinnumáum verka- manna séu nú uggvænlegri en verið hefur um sama leyti árs í nærri heilan áratug. Fundurinn vill leiða athygli allra hugsandi manna að þeim voða, sem er 'fyr ir dyrum, ef atvinnuleysi verð ur hlutskipti verkalýðsins í þeirrri geigvænlegu og vaxandi dýrtío, sem nú er í landinu. Fundurinn telur, að valdhafar þjóðarinnar, sem tekið hafa að sér að stjórn málefnum hennar, séu ábyrgir fyrir því að hver vinnufær maður hafi næga at- vinnu. Til að ráða bóta á atvinnu- ástandinu samþykkir fundur- inn eftirfarandi: 1. Að skora á ríkisstjórnina, að leyfa mun meiri bygginga- framkvæmdir en nú er og beita sér fyrir slíkum fram- kvæmdum og stuðla að því að lánastofnanir þjóðarinnar styðji þær með hagkvæmum lánum. Enn fremur að öðrum at- vinnugreinum verði séð fyrir (Frh. á 4. síðu.) frá húsaleigunefnd Reykjavíkur. Samkvæmt 6. gr. laga um húsaleigu nr. 39, frá 7. apríl 1943 er óheimilt að hækka húsaleigu eftir húsnæði frá því, sem goldið og umsamið var hinn 14. maí 1940, nema samkvæmt þar greindum ákvæðum. — Grein þessari var ekki breytt með lögum nr. 56 frá 25. maí 1950, um breyting á nefndum lög- um nr. 39. 1943. Húsaleigunefnd getur því ekki samþykkt leiguhækkun í húsum sem byggð voru fyrir 14. maí 1940, nema samkvæmt húsaleiguvísitölu þeirri er gilt hefur undanfarið og nú er 160 stig. Leigusölum, er óska að hækka húsaleigu í húsum, byggðum eftir 14., maí 1940, ber að snúa sér þar um til húsaleigunefndar. — Reykjavík, 14. júní 1950. Húsaleigunefnd Reykjavíkur. Augiýsið í Alþýðublaðlnu! hefur ávalt til leigu í lengri og skemmri ferðir 7, 10, 15, 22, 26, og 30 farþegabifreiðir. Ferðaskrifstofa ríkisins. Sími 1540. vanir rafsuðu geta fengið atvinnu á Keflavíkurflugvelli. Upplýsingar á skrifstofu flugvallastjóra ríkisins, Keflavíkurflugvelli.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.