Alþýðublaðið - 15.06.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 15.06.1950, Page 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 15. júní 1950. SLÁTTULOK Á BAKKA Framhald. Gísli. Nú, — ef þetta á að fara í hart, þá væri kannske ekki úr vegi að athuga, hvor ykkar á nieiri sök á því, að högum okk- ar er nú komið eins og raun ber vitni...... Eiríkur. Hvað áttu við, bróð- ir? Helgi. Já, hvað áttu við, bróð- ir? Gísli. Eg á bara við það, hvor ykkar hafi gengið betur fram í því, að sóa og eyða allri uen- ingafálgunni, sem við unnum í happdrættinu...... Helgi. Já, einmitt það. Já, það væri ef til vill ekki úr vegi að rifja upp þá reikninga..... Eiríkur. Nei, nú ætti einmitt að vera tilvalið tækifæri til þess. Það er að segja .... ef þú endilega vilt, Gísli bróðir. Gísli. Jæja, jæja, .... við skulum ekkert vera að rífast um það. Eg bara sló þessu svona fram í gamni. En ef þið endilega viljið..... Eiríkur og Helgi. Nei, nei, nei, nei, við bara slógum því svona fram í gmani. Gísli. En þið verðið þó að játa, að það voruð þið, sem yild. uð endilega kaupa þessa vél- knúnu sláttuvél. .... Eiríkur. Eg held nú síður. — Það varst þú. Annars man ég ekki betur, en við vildum allir eiga heiðurinn af þeim kaupum, meðan við vorum að slá bakk- ana með henni. .. Gísli og Helgi. Já, satt er það. Eiríkur. Heyrið þið. . . Nú kemur mér ráð í hug. . . Hvern- ig væri að við yrðum allir yfir- formenn....... hagnýta sér hana. . . Og það erum við.... Gísli. Já, við erum jafngáfað- ir, Bakkabræður....Skál. . . Flæði nú skömmin hún gamla Bakltaá eins hátt og hún vill.. . Gudda. (Kemur inn). Já, og það gerir hún, án þess ykkar leyfi komi til, armingjanna. Hún flæðir nú þegar yfir alla bakka .... er búin að sópa burtu allri ljánni.....Hvað ætlið þið nú að hafa handa skepnunum í vetur.....Ann- að eins indælishey og er þarna af bökkunum. Og strákurinn situr í fýlu úti á fjósvegg ag tautar og tautar, að þeir hefðu ekki varið lengi þarna fyrir aust an fjörðinn að snúa ánni við og láta hana, renna aftur upp á jökul......Eg held, að þið ætt- uð að kalla á hann inn til ykkar, svo að samkundan væri full- skipuð..... Gísli. Láttu ekki svona, Guddutetur. Við erum einmitt einmitt að enda við að sam- þykkja .... Gudda. Og skrattinn sjálfur hafi allar ykkar samþykktir.. . Eiríkur. Nú, — ef ekkert dugar, þá setjumst við aftur upp í sláttuvélina og sláum einhvers staðar annars staðar þegar flóð- inu linnir. . . . Gudda. Sláttuvélina......Já, einmitt það. Eg sá ekki betur en áin hrifi hana með sér á brott. Þið held ég setjist upp í hana, brotna og beyglaða í flæðarmálinu....... Allir bræðurnir. Tók ár- skrattinn sláttuvélina. Gísli. (Eftir stundarþögn). Þá verða skepnurnar á Bakka að sjá sjálfar fyrir fóðri í vet- ur...... Tjaldið. Gísli og- Helgi. Húrra, elsku bróðir.....Þarna kom það. .. Helgi. Já, segi Gudda gamla nú, að við séum ekki menn til annars en þrímenna á trakt- ornum um allar jarðir....... Eiríkur. Já, og segi hver sem vill, að við séum ekki menn til annars en vinna fjárfúlgur í happdrætti og eyða þeim. .. Gísli. Nú fáum við okkur ær- lega í krúsirnar, bræður. . . ., (Þegar þeir skrúfa frá kranan- um). Mikið þing er þessi þvotta- vél. Helgi. Hvað er að tala um tæknina, bróðir. .... Eiríkur. Tæknin ér því aðeins góð, að menn séu menn til að Einstakar r af ýmsum stærðum til sölu. — Eignaskipti oft möguleg. SALA & SAMNINGAR. , Aðalstræti 18. Sími 6916. W--■ Wi* 1 &$$•$$$ j Leslð álbýðublaðlð! G in a K ciu s með að hlusta á þakklæti þess- arar konu. Enn þann dag í dag finnst mér það dálítið undarlegt, að baróninn skyldi ekki finna til afbrýðisemi gagnvart Martin. Ég hef alltaf heyrt það, að gamlir menn, sem hafa orðið fyrir því óhappi að verða mjög ástfangnir af stúlkum, sem væru miklu yngri en þeir, liðu af mjög mikilli afbrýðisemi, tortryggni og kvíða fyrir því, E,ð allt færi út um þúfur. Mér heíur verið sagt, að þetta nálg aðist sjúkleika og að þeir gerðu sér alls konar hugmynd ir. En það hlýtur að hafa ver- ið þannig, að sjálfsþótti og sjálfstraust barónsins hafi valdið því, að hann gleymdi alveg sínum gráu hárum. Hann var bersýnilega sarth- færður um það, að Lotta elsk- aði hann af því að hann væri svo þýðingarmikil persóna í opinberu lífi og nafntogaður maður, og að hún myndi ekki sjá annað í Martin en unggæð islegan pilt, sem ef til vill væri hægt að gera sér vonir um að eitthvað yrði úr með vaxandi reynslu. „Það mundi áreiðanlega gleðja mig mjög, ef þér tækist að binda hann dálítið við heim ilið okkar, eftir að hann kemur heim úr stríðinu", sagði hann. „Og ef þér tækist líka að draga úr áhuga Helmuts á næturklúbbum og spilavítum þá . . .“ Já, baróninn gerði augsýnilega ráð fyrir einkenni legu fjölskyldulífi. Um miðjan aprílmánuð kom bréf frá Irene. Það var rugl- ingslegt og óljóst. Hún skýrði frá því, að Alexander ætti nú að fara öðru sinni til vígvaU- anna. Hann var farinn og ætl- aði að sameinast flugsveit, sinni einhvers staðar í Suður- Bayern. Okkur féll þetta mjög illa. Hann hafði særst svo mjög, að l ann myndi aldrei bíða þess bætur. Læknarnir höfðu sagt, að vinstra lunga hans mundi alltaf verða að nokkru óvirkt. Við höfum því gert ráð fyrir, að hann væri talinn algerlega óhæfur til að berjast. Lisbeth hafði líka fengið bréf og í því voru sömu frétt- irnar. Móðir hennar hafði skrif að henni. Hún sýndi mér ekki þetta bréf og ég gerði því ráð fyrir, að í því væru einhverjar ásakanir á hendur Irene, en hún sagði við mig: „Ég er al- \ eg viss um að Alexander hef- ur gerzt sjálfboðaliði, að hann hefur sjálfur óskað eindregið eftir því að fara aftur í stríð- ið. Eftir öllum þeim fré+tum, sem ég hef haft af honum upp á síðkastið, hef ég búizt við | að til einhvers slíks mundi koma þá og þegar“. Þetta leiðindamál batt enda á umræðuefni sem við höfðum hugsað og talað um síðustu þrjá mánuðina, en bað var, hver ætti að fara með herra Kleh á hressingarhæli í Pysti- an. Hann var orðinn svo bratt- ur, að hann gat farið á fætur og staulast um heima með staf i hendi, en hjartað var ekki heilbrigt og læknirinn hafði látið þá skoðun í ljós, að nauð synlegt væri fyrir hann að fara' í heilsuhæli og njóta leirbaða og nudds í einn mánuð eða svo. Herra Kleh vildi ekki fara einn, baróninn vildi helzt ekki sJeppa hendinni af Lottu, og það kom heldur ekki til mála að ég færi með honum og léti Lottu eina eítir heima. Við samþykktum því að skrifa Ir- ene og segja henni að hún gæti farið með föður sínum. Og ekki liðu nema tveir dagar þangað til okkur barst sím- skeyti frá henni þar sem hún tilkynnti komu sína. Strax þegar hún kom heim fannst okkur öllum að hún liti miklu betur út en áður. Hún var orðin allmiklu -bústnari en hún hafði verið og litarháttur hennar bar vott um hreysti. En litarraftið breyttist eftir að hún hafði farið í bað, og þa sýndi það si". að hún var orð- iri föl og undir augunum pok- ar eins og á svefnvana raann- eskju. „Ég er orðin svo löt“, sagði hún. „Ég geri bókstafiega aldrei nokkurn skapaðan hlut. Og iðjuleysið er fitandi. Tengdamóðir mín segir að ég verði að nota andlitssmyrsl, það tilheyri og sé nauðsynlegt. Nú leit hún út fyrir að vera fimrntán árum eldri en Lotta. Systurnar höfðu sameigin- legt herbergi alveg eins og þær höfðu haft í gamla daga. Ég sá ljósrönd undir hurðinni á herbergi þeirra, en þær töluðu í lágum hljóðum, svo að ég heyrði ekki eitt. Ég hélt að það væri Lotta, sem væri að segja Irene frá því er á dag- ana hefði drifið alveg eins og áður fyrr, en allt í einu, undir miðnætti, heyrði ég að Trene var farin að gráta. Ég fór hljóð- lega fram úr rúmir.u og lagði eyrað. að hurðimv, „Hann kérnur ald ei framar til mín“, stundi hún. „Fg veit það, ég er sannfærð um það . . . Og þó að hann komizt heim heill á húfi, þá kemur hann ekki heim til mín. Ég finn það á mér, og ég veit það. Lotta talaði í mjög lágum hljóðum, ég heyrði ekki orða- skil, vissi ekki hvað húii sagði til þess að sefa grát systur sinnar. „Já, bara að ég gæti eignazt barn með honum. Ég held að ég sé búinn að fara til tuttugu lækná“. «1 Um morguninn var Lotta næstum því eins föl og Irene. Það má næstum því segja að systurnar hafi haldizt í hend- ur allan morguninn, en svo fóru þær niður í borgina, ætl- uðu að líta inn í búðir og kaupa eitthvað til ferðarinnar. Eftir að búið var að borða, reyndu þær að spila, g.n það kom í ljós, að Irene hafði misst niður kunnáttu sína, hún hafði alls ekkert æft sig. „Ég hef aldrei spilað ein eins og þið vitið“, sagði hún afsakandi og fór hjá sér. „Og í Munehen er engin, sem ég get æft mig með“. Blærinn í rödd hennar var þungur, hæg- ur ,eins og fætur dregnir eftir gólfi, það var eins og hún væri orðin gömul og lífsþreytt kcna. Baron Ried bauð okkur ’ í samkvæmi heima hjá sér og var það gert af tilefni. heim- sóknar Irene. Ég hef enn ekki sagí neitt frá gl££ihýsi hans, og verð því að bæta úr þeim galla nú. Hann bjó í höll, sém stóð við Marokkanerstræti. það var þriggja hæða liátt. Á fyrstu hæð voru allir sam- kvæmissalirnir. Ég kann eng- in skil á listasögu, svo að ég get ekki íullyrt neitt um það í hvaða stíl þessir salir höfðu verið gjörðir, ég man bara eft- ir stórum og miklum glitvefn- aði og stórfenglegum málverk um í gylltum römmum. Þessi málverk litu alveg eins .út og málverkin á söfnunum. En Alexander hafði sagt Ir- ene margt um slíka hluti og þess vegna kunni hún skil á þeim. „Ég get ekki hugað mér neitt, sem hæfir þér betur“, sagði hún við Lottu. Hún var yfirleitt ákaflega ánægð með það, að Lotta giftist af skýn- semiástæðum.' Það eitt sýndi það Ijóslega, hve óhamingju- söm hún sjálf var í hjónaband- inu með þeim manni, sem hún elskaði þó af öllu hjarta. Hvað Lotía hefur sagt við hna um nóttina, þegar þær töl- uðu saman í trúnaði, veit ég ekki. En þegar ég nefndi Mar- tin eitt sinn að Irene við- staddri, sagði hún ótrúlega hörkulega: „Það er gott að hann á að fara bráðum". Irene varð hjá okkur alls í átta daga. Tvisvar sinnum á meðan fékk hún bréfkort frá Alexander. í bæði skiptin sagði hann, að sér liði vel, að það væri að vísu mikið erfiði

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.