Alþýðublaðið - 14.07.1950, Blaðsíða 8
t
4
LEITIÐ EKKI GÆF-
UXNAR langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðaliapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
Föstudagur 14. júlí 1950
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK!
Takið höndum saman viS
unga jafnaðarmenn og að-
stoðið við sölu happdrættis-
miða í bifreiðahappdrætti
Sambands ungra jafnaðar-
manna. J
Tíminn kvartar undan að bændur
vanti hjólbarða á jeppa sína af því,
aÓ líran fæst ekki skráð.
TIMINN gerði í gær athyglisverða árás á ríkisstjórn-
ina. Kvartar b’aöjð sáran yfir því, að hjólbarðar á jeppa
bændanna hafi ekki fengizí lengi, en stór sending af þeim
hafi komið til landsins fyrir 9 vikum. Hafi sendingin ekki
fengizt leyst út,. þótt gjaldeyrir sé til fyrir henni, vegna
deilunnar um gengi lírunnar, sem Aiþýðublaðið hefur
oft skýrt frá, en deila stendur um það. hvort lækka cigi
aftur gengi krónunnar gagnvart líru, eða ekki. «
Tíminn segir það von manna, að lausn finnist á þess-
ari „deilu valdhafanna og innflytjenda“ og finnst blað-
inu deilan að vonuni „einkennileg“. Það mætti máske
minna Tímann á það, hverjir eru forsætis-, fjármála- og
landbúnaðaróðherrai- í núverandi ríkisstjórn! Eru ekki
hæg heimatökin hjá framsóknarmönnum að leiðrétta
þetta hneyksli, eða eru þeir Steingrímur, Eysteinn og
Hermann gersamlega valdalausir menn, þótt þeir sitji í
ráðherrastójum? Skyldi bændum landsins ekki þykja
Htið gagn i þessum fínu herrum, er þeir geta ekki fengið
því ráðið, að líran sé skráð lögum samkvæmt, svo að
bændur geti fengið hjólbarða á jeppa sína tafarlítið og
án stórkostlegrar verðhækkunar, sem leiða myndi af
nýrri lækkun krónunnar ijagnvart lírunni?
Sumarleyfi í ReykjaSondi:
Gesfir dveljasf þar meðan
mmir vislmaniia eru s bssrfú
MikSar jarðræktarframkvæmdir í sum-
ar á laodi vionuheimilisins.
—.—----<>---—-
UM ÞESSAR MUNDIR standa yfir sumarleyfi hjá vist-
fólkinu á Reykjalundi, en það fær tveggja vikna sumarleyfi
eins og aðrir á fullum launurn. Sumt af fólkinu hefur farið í
burtu, en við það hefur losnað pláss í heimilinu, og er það á
meðan rekið sem nokkurs konar sumarhótel, ög dvelja þar nú
um 20 manns í sumarle.yfi sínu.
Þegar það vitnaðist, að
þarna yrði .um tveggja vikna
skeið tekið á móti gestum til
dvalar, bárust þegar fjöldi um-
sókna, frá fólki, er sjálft var
að fara í sumarfrí og vildi
eyða því á þessum kyrrláta og
góða stað, en þeir einir kom-,
ast, að sem einhvern tíma hafa
verið berklaveikir. Síðustu
daga hafa dvalizt um 20 að-
komumenn á Reykjalundi, og
dveljast sumir í eina viku, en
aðrir í hálfan mánuð, eða all-
an tímann, sem sumarleyfi
standa yfir hjá vistfólkinu.
MIKLAR JARÐABÆTUR
Á REYKJALUNDI.
í sumar hefur mikið verið
unnið við jarðabætur í Reykja
lundi, landið verið sléttað og
ræst fram, og enn fremur hef-
ur verið þar nokkur garðrækt,
,cn þetta er svo að segja fyrsta
sumarið, sem nokkuð að ráöi
hefur verið unnið í landinu.
Þá er nú að fullu lokið við
stóru bygginguna, en eftir að
hún var tekin í notkun í vet-
ur, hefur verið gengið frá
ýmsu, sem ógert var, svo sem
’málningu og öðru slíku. Þó
vantar enn nokkuð af hús-
munum.
Ætlun SÍBS, var að byrja á
byggingu vinnuskálanna á
þessu ári, en úr því mun ekki
geta orðið vegna þess, að enn
hefur ekki fengizt fyrir þeim
fjárfestingarleyfi.
----------■■■»— • ■ ■ ■ -■ ■■ ■
Verkföllin gegn Leo
pold hefjasl á ný.
ALÞÝÐUSAMBAND
BELGÍU, sem er undir stjórn
jafnaðarmanna, boðaði í gær
allsherjarverkfall í hinum vall
ónska hluta landsins til þess að
mótmæla fyrirhugaðri heim-
köllun Leopolds konungs.
Allsherjarverkfallið á að
Það eru „OIympíudagarnir“, er eiga að
verða fastir liðir í íþróttum þjóðarinnar.
Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG fer fram liér í Reykja
vík, sem og viðar á landinu, fjölbrevtt íþrottakeppni með þatt-
töku flestra beztu íþróttamanna landsins. Verður þessi keppni
helguð þátítöku ísiands í ólympíuleikjunum, og verður tekj-
um hennar vari'3 til þátttöku íslands í þeim.
Hafa þessir dagar hlotið
nafnið ,,01ympiudagar“ og er
ætlunin að þeir verði fastir lið
ir í íþróttalífi framtíðarinnar.
Þykja slíkir dagar orðnir sjálf
sagðir meðal allra þeirra þjóða,
sem afskipti hafa af, olympiu-
leikjunum og kynna vilja hina
fögru olympiuhugsjón.
SUNDKEPPNIN.
Á laugardaginn kl. 4.30 e. h.
fer fram sundkeppni og verður
hún í Nauthólsvík. Þar er hent
ugt um vik til slíkrar keppni í
góðu veðri og ekki síður þægi-
legt fyrir áhorfendur að sitja í
hinum grasi grónu brekkum
kringum baðstaðinn.
Meðal þátttakenda verða
flestir beztu sundmenn lands-
ins. f 100 m. bringusundi
keppa m. a. nafnarnir Sigurður
Jónsson Þingeyingur og Sig-
urður Jónsson K.R. svo og Atli
Steinarsson. í 100 m. skrið-
sundi keppa Ari Guðmundsson,
Ólafur Diðriksson og Theódór
Diðriksson, Pétur Kristjáns-
son í 50 m. skriðsundi drengja,
Hörður Jóhannesson í 100 m.
baksundi og Þórdís Árnadóttir
í 100 m. bringusundi kvenna.
Einnig verður keppt í stakka-
sundi o. fl.
Ferðir að sundkeppninni
verða frá Ferðaskrifstofu rík-
isins og verða aðgöngumiðar
seldir við innkeyrsluna á
Reykj avíkurflugvöllinn.
FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNI
OG KNATTSPYRNA
Á sunnudaginn kl. 3 hefst
svo keppni á íþróttávellinum
og verður þar bæði frjálsarí-
þróttir og knattspyrna.
í kringlukasti er meðal
keppenda Gunnar Huseby og
mun marga fýsa að sjá hvern-
ig honum tekst upp, en eins og
kunnugt er/ er Gunnar í mjög
góðri þjálfun nú. 400 m. hlaup
ið verður eigi síður skemmti-
legt, en þar eru m. a. Guð-
mundur Lárusson, Magnús
Jónsson og Reynir Sigurðsson.
í stangarstökkinu verður gam-
an að sjá hvað Torfa tekst að
fara langt yfir 4 metra, og í
1500 m. hlaupinu er m. a. Pét-
ur Einarsson. í 100 m. hlaupi
kvenna keppnir Hafdís Ragn-
arsdóttir K.R., auk fleiri efni-
legra stúlkna. Enn fremur er
ekki ósennilegt að nokkrir
beztu íþróttamenn í nágrenni
Reykjavíkur verði með í mót-
inu.
Að síðustu fer svo fram knatt
hefjast í dag og standa í tvo
daga.
spyrnukeppni „Old Boys“
milli Austur og Vesturbæjar og
eigast þar við margir gamlir
knattspyrnumenn, sem fyrir 7
—10 árum og lengra síðan, voru
aðal „stjörnurnar11 á vellinum.
Meðan leikhlé verður á kapp-
leiknum fer fram skemmti-
leg boðhlaupskeppni í 5x200
m. hlaupi karla og 4x100 m.
hlaupi kvenna, þannig að áhorf
endum verður séð fyrir stöð-
ugri skemmtun.
Ætti þetta því að verða hin
ánægjulegasta skemmtun yfir
helgina og vonandi verður af
þessu fjárhagslegur ágóði því
allir mun sammála um ágæti
málefnisins, sem verið er að
vinna fyrir.
Merki Olympiudagsins verða
seld á báðum mótsstöðunum svo
og á götunum og er þess vænzt
að þau beri sem flestir.
Ármann Snævarr
skipaÖHr prófess-
or vlð háskólann.
Frá ríkisráðsritara:
Á RÍKISRÁÐEFUNDI í DAG
13. júlí skipaði forseti íslands
Ármann Snævarr prófessor í
laga- og hagfræðideild Há-
skóla íslands og Gunnlaug Pét
ursson sendiráðunaut við sendi
ráð íslands í London.
Staðfestar voi-u skipanir
Þorgeirs Gestssonar héraðs-
læknis í Húsavíkurhéraði og
Jóns Gunnlaugssonar héraðs-
læknis í Reykhólahéraði.
Enn fremur fullgilti forseti
íslands, fyrir íslands hönd, al-
þjóðasamþykkt um félaga-
frelsi og verndun þess.
Ferð F.UJ. í Heið-i
mörk um helgina.i
SVO sem auglýst er íl
blaðinu í dag efnir F.U. J. í;
Reykjavík til vinnu- og*
skemmtiferðar að Heiðmörkj
nú um helgina. Verður far-I
ið af stað kl. 3 síðd. á laug-;
ardag og komið á sunnudags;
kvöld. Á laugardagskvöld«
verður kvöldvaka. I
F.U.J.-félagar notið þetta;
tækifæri.
Jón Sfeingrímsson {
farinn á síld. !
m
■j
TOGARINN JÓN STEIN-:
GRÍMSSON, sem áður hétjj
Barmen, lagði af stað frá»
Reykjavík laust eftir há-"
degi í gær áleiðis norður fyr ;
ir land og verður gerður út »
á síldveiðar í sumar. Barm- ”
en var þýzkur togari, sem;
strandaði við Suðurland i ■;
fyrra og eignuðust íslending »
ar hann eftir strandið.
Núverandi eigendur skips *
ins eru Bergur Lárusson frá i
Kirkjubæjarklaustri og;
fleiri, bæði Skaftfellingar og ■
Reykvíkingar. Það er nú í
skráð í Reykjavík. ;
Skipverjar á togaranum;
voru 15, er hann strandaði •
1. maí í fyrra við Eldvatns-
ós á Meðallandssandi. Var þá
ofsaveður um Suðurland.»
Vindur s\íð af hafi, svo að»
tiltölulega auðvelt varð að;
bjarga öllum skipverjum.
Ekki hefur skipið verið»
gert út síðan það strandaðií
fyrr en nú. Það er 298 tonn.;:
Björgun flugvélar-
innar feksf.
SAMKVÆMT frétt, sem blað
inu barst seint í gærkveldi frá
Þinðvöllum, eru nú taldar mikl
ar líkur til að takast muni að
bjarga flugvél þeirri, sem sökk
á vatninu þar um helgina síð-
ustu. Nokkur alda hefur verið
á vatninu og í gær var þar auk
þess úrhellisrigning með köfi-
um og tafði þetta hvort tveggja
starf björgunarleiðangursins.
Svo var þó komið á tólfta tím.
anum í gær að búið var að
rétta flugvélina við og koma
henni hálfa leið til lands, og yf-
ir versta hluta leiðarinnar, að
því er formaður leiðangursins
taldi. ítit
Hekla kemur frá
Skoflandi á morgun.
HEKLA er væntanleg úr
þriðju Skotlandsferðinni um
hádegi á morgun, og mun hún
vera fullskipuð farþegum. Þar
af eru milli 60 og 70 útlend-
ingar.
Skipið hefur hér viðdvöl í
fjóra daga, en fer aftur miðviku
daginn 19. júlí, og verður
hvert farþegarúm fullskipað, og
eru nokkrir á biðlista, sem ekki
komast með í þessari ferð.
FLEST SKIP, sem gera á út
á síld úr Reykjavík í sumaiy
eru nú farin norður. Eftir eru
þó þrír bátar hér, sem fara
munu norður, þar af tveir reyk
vískir. Eru það Heimaklettur
og Nanna og Jón Valgeir frá
Súðavík. Forseti er eihn eftir af
togurunum, s/m fara eiga á
síldveiðar.
%
m