Alþýðublaðið - 23.07.1950, Síða 8
LEITIÐ EKKI GÆF-
UNNAR langí yfir skammf;
kaupið miða í bifreiðahapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
Sunnudagur 23. júlí 1950
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK!
Takið höndum saman við
unga jafnaðarmenn og að-
stoðið við sölu happdrættis
miða í bifreiðahappdrætt|
Sambands ungra jafnaðai j
manna.
Þrjú síór saltíiskþurrkunarhús eru
Leopold kominn heim - undir vopnavernd.
Saltfiakor er nú sóIHurrkaSur á mðrg*
v.m strVðum á iaocftraij.
HÉR I EEYKJAVIX er nú verio a3 koma saltfiskþurrk-
unarvélum fyrrr í bremur húsum, hiáj Tryggva Ófeigssyni, en
þar verða vélakerfin 7, og mun þa-5 verSa stærsta saltfiskverk-
unarstöðin í fcænurx Þá er bæjarútgerðin að láta byggia nýtt
fiskþurrkunarhús, og rr.uru þar verða fjc-gur kerfi, og loks er
verið að setja upp vé’þurrkunartsski í íiskhúsi Sambands ís-
'lenzkra fiskframieiðenda.
qraú! i samxeppni
Aðrir staðir á landir.u, þar
sem slíkar framkvæmdir
standa yfir, eru þessir:
um
umarsms
ÍSLENZK STÚLKA, Eilen
Guðnason að nafni, hefur ný-
lega unnið fyrstu verðlaun í
kjólasamkeppni, sem Dansk
Familie Blad efndi til.
Alls bárust 30 kjólateikn-
ingar í samkeppnina, en sú,
sem talin var taka öllum fram,
var eftir Ellen og hlaut við-
urkenningartitilinn ,,Kjóll
sumarsins“.
í Hafnayfirði: Hjá bæjarút-
yerSinni, Hrímfaxa, Venusi og
Jóni Gísiasvni. í Vestmanna-
eyjum, Kefla\'ík, á Akranesi:
Hjá ,,Fiskiveri“, „Heimaskaga"
og ,,Ásmundi“. Á Akureyri hjá
Útgerðarfélagi Akureyrar. Á
niglufirði hjá Rauðku og Al-
fons Jónssyni. Á Norðfirði hjá
Samvinnufél. útgerðarmanna
og hiá Oliver Grímssyni. Á fsa-
firði hjá Fiskiðjusamlagi út-
vegsmanna, ísfirðingi h.f. og
ólafi Guðmundssyni. Á Seyð-
isfirði hjá Bjólf h.f.
smíðuð innanlands, og mun
smíði þeirra hjá íslenzkum
vélsmiðjum fara í vöxt. Lands-
smiðjan, Héðinn og Stálsmiðj-
an smíða tækin.
Allmikið er nú farið að sól-
þurrka af fiski, sérstaklega 1
Reykjavík, í Hafnarfirði og á
Suðurnesinu.
Kórea...
Grasaferð nátfóru-
lækningafélags-
ins á Hveravelii
NÁTTÚRULÆKNINGA-
FÉLAG REYKJAVÍKUR efndi
til grasaferðar um síðustu helgi
upp í Hveravelli. Var lagt af
stað eftir hádegi á laugard. 15.
júlí, gist í skála Ferðafelagsins
um nóttina og þá næstu. Á
sunnudaginn var gengið til
grasa. Veður var fremur óhag
stæft, þurrt og nokkuð hvasst,
en eigi að síður var grasatekian
góð, og komu margir með rífleg
an vetrarforða heim með sér aí
þessum gamla og góða og nær-
ingarmikla íslenzka mat, sern er
í senn hollur og Ijúffensur. —-
Á mánudag var haldið beimleið
is og komið við á nokkrum stöð-
um til að sjá sig um. — Þátt-
takendur í förinni vorr 22.
þeirra á meðal Jónas læknir
Kristjánsson. Fararstjór* var
Steindór Björnsson frá G1'öf.
•— Um verzlunarmannahe’gina
efnir félagið til skemmtiferðar
inn á Þórsmörk.
Auk þessara staða er svo
verið að undirbúa vélþurrkun
í ýmsum smærri kauptúnum,
svo sem Ólafsvík, Stvkkis-
hólmi, Flateyri, Suðureyri og
víðar.
Fyrstu saltfiskþurrkunar-
húsin munu innan skamms
verða tilbúin, og má svo búast
við þeim æ fleirum fram á
haustið. Voru þurrkunartækin
í upphafi flutt inn frá Amer-
íku, en eru nú að mestu léyti
Framhald af 1. síðu.
menn án efa að búa um sig í
íjöllunum og verjast þar.
í dag er réttur mánuður lið-
inn síðan kommúnistar hófu
ínrirás sína í Suður-Kóreu, og
hafa þeir á þessum tíma sótt
fram yfir hálfa Suður-Kóreu.
Er þetta því ekki ieiftursókn
á borð við það, sem þekktist í
síðustu styrjöld, enda þótt
sókn þeirra hafi gengið jafnt
-og þétt.
Lögreglukór Reykjavíkur sækir nor
rænt lögreglusöngmót í Svíþjóð.
—-----«-------
Kóriíin fór utan f gær, en söngmótið
stendor yfir frá 26.-28. júlí.
■ -———■—♦—------
SEXTÁN MANNA LÖGREGLUKÓR úr Reykjavík fór
flugleiðis í gær áleiðis til Stokkhólms, en þar mun kórinn syngja
á norrænu lögreglukórasöngmóti dagana 26.—28. júlí. Þetta er
f.yrsta norræna söngmótið, sem lögreglukórarnir halda, og
munu kórarnir allir syngja sameiginlega og einnig hver ein-
stakur.
i Svar S.I.F.
i -----
ÞEGAR blaðið var að fara
í pressuna í gær, barst því
grein frá S. í. F. um saltfisk-
söluna til Ítalíu, og hefur sú
grein inni að halda ýmsar at-
hugasemdir við fréttagrein þá,
sem Alþýðublaðið flutti ný-
lega um árangurslausar til-
raunir ítalsks innflutningsam-
bands til þess að fá saltfisk
keyptan héðan.
Grein S. í. F. mun birtast í
blaðinu strax eftir helgina.
Lögreglukórinn fór héðan
með Gullfaxa til Osló, en þar
ífiun kórinn dveljast í svo daga
í boði lögreglumanna í Oslo, en
dðan verður farið með járn-
braut til Stokkhólms.
Fyrir alllöngum tíma var
lögreglukórnum hér boðið að
sækja söngmót þetta, en horf-
ur voru á til síðustu stundar,
að kórinn kæmist ekki vegna#
fjárskorts, en kostnaður við
slíka för er að sjálfsögðu mik-
ill. Sótti kórinn til bæjarstjórn
ar um nkokurn styrk til farar-
innar, en var hafnað.
Eftir þá synjun skrifaði
kórinn til Stokkhólms og taldi
engar hcyfur á að hann gæti
orðið með á þessu fyrsta söng-
móti norrænna lögreglumanna,
bæði vegna gjaldeyriserfiðleika
hér og svo hins, að styrkurinn
til fararinnar hefði brugðizt.
Svíarnir buðu þá kórnum ó-
keypis uppihald meðan hann
dveldi í Svíþjóð, og varð þetta
höfðinglega boð til þess, að
kórinn sá sér fært að sækja
mótið. Kórinn mun koma aftur
heim 30. júlí.
Formaður lögreglumanna-
kórsins er Friðjón Þórðarson
fulltrúi, en söngstjóri er Páll
Pálsson. i-..
Öflugur hervörður, en fátt fólk á göt»
unum, er hann kom heim.
LEOPOLD konungur kom til konungsbifreiðinni fór röð
Belgíu snemma í gærmorgun,
og er þá lokið útlegð hans, sem
staðið hefur síðan á stríðsárun-
um. Kom konungur flugleiðis
frá Sviss og lenti flugvél hans.
á einum af flugvöllum belg-
íska hersins skammt frá Brús-
sel.
Mikill viðbúnaður hafðí ver-
ið til þess að koma í veg fyrir,
að konungi yrði gert nokkuð
mein við heimkomuna. Sterk-
ur lögreglu- og hervörður var
meðfram leiðinni frá flugvell-
inum til konungshallarinnar,
allar hliðargötur lokaðar. Fyrir
brynvarinna bifreiða, og í peim
var fjöldi lögreglumanna búínn,
vélbyssum. Á eftir konungsbrf-
reiðinni kom einnig röð bryn-
varinna bifreiða.
Fátt fólk var á götunum og
því engin fagnaðarlæti — eða.
mótmæli. Þó höfðu andstæðing
ar konungs máláð slagorð gegn
konungi á göturnar, og fóru:
verkamenn á undan könur.gs-
Liðinu til að má út svívirðmgar
um hann.
Stjórnin kom í gær saman &
fund og sat*konungur fundinn.
Bræðslusíldaraflinn orðinn M
þúsund mál um hádegi í gærdag
Veður batnandi og bátar á mlðurn„
-------------- » -......—
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. SIGLUFIRÐL
HEILDARBRÆÐSLUSÍLDARAFLINN nam á hádegi í.
gær milli 50—60 þúsund mál, og búið er að salt í 2184 tunnur.
Veður fór batnandi á .miðunum í gærmorgun, og voru bátarnir
lagðir af sta’ð út á miðin, en engar aflaféttir höfðu borizt.
Bræðslusíldin skiptist þann-^
ig milli verksmiðjanna: í
síldarverksmiðjur ríkisins á
Raufarhöfn var í gær búið að
landa um 42 701 mál, en 3000
biðu í skipum, Á Siglufirði
hafa ríkisverksmiðjurnar tekið
á móti 1068 málum og Rauðka
3598 málum. Ekki er vitað um
nákvæmar tölur frá verksmiðj -
ununn á Hjalteyri eða Dagverð-
areyri, en þær munu báðar
vera búnar að taka á móti
nærri 10 þúsund málum, þann-
ig að heildar bræðslusíldin
nemur nú um 60 þús. málum.
Um hádegi í gær var búið að
salta í 2184 tunnur. Þar af hafa
verið saltaðar á Raufarhöfn
1410, á Siglufirði 268, á Akur-
eyri og þar í grennd 43 og á
Þórshöfn 440 tunnur og er bað
í fyrsta skipti í sögunni, sem
síid er söltuð á Þórshöfn.
SIGURJÓN.
Norræni ferða-
mannahópurinn
fer á morgun
NORRÆNI ferðamannahóp-
urinn, sem að undanförnu hef
ur ferðast hér um landið, kom
til bæjarins í gærkveldi úr
Norðurlandsförinni. í kvöld
verður samsæti fyrir ferðafólk-
ið í Flugvallarhótelinu, en á
morgun fer það flugleiðis til
Stokkhólms. íslenzki hópurinn,
sem dvalið hefur úti á meðan
Svíarnir og Norðmennirnir
dvöldust hér, mun koma heirn
á þriðjudaginn með flugvél-
inni, er flytur hinn hópinn til
Stokkhólms.
Halsveinar og veif-
ingaþjónar hoða
verkfail á ikipum
SMF, Samband matreiðslu-
og framreiðslumanna, hefur
boðað verkfall 31. þessa mán-
aðar á skipum Eimskipafélags-
ins og Ríkisskip.
Stýrimenn og vélstjórar eru
búnir að semja við bæði fé-
lögin.
Framh. af 1. síðu.
hafin, en þar se'm lögreglunni
er ekki kunnugt um neitt
mannshvarf undanfarnar vik-
ur, hefur hún ekki enn getað
komizt að því, hvaða mann er
hér um að ræða. Ef einhverjir
gætu gefið upplýsingar í þessu
sambandi, eru þeir beðnir að
snúa sér til rannsóknarlög-
reglunnar.
■— ---—»- .....—
ifalur vann KFUM
í Kaupmannahðfn
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
keppti Valur við KFUM í
Kaupmannahöfn og sigraði
með 3 mörkum gegn 1. Ellert
Sölvason skoraði tvö mörkin,
en Sveinn Helgason eitt.
Frá Kaupmannahöfn fara
Valsmenn til Noregs, en þar
eiga þeir að keppa fimm leiki.