Alþýðublaðið - 30.07.1950, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 30.07.1950, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Sunnudagur 30. júlí 1950. Flllpua Bessason hreppstjórl: AÐSENT BR'ÉF Heill og sæll, ritstjóri. það. Ekkert að frétta úr sveit það. Ekkert að frétt aúr sveit- inni; allt, sem fréttnæmt getur talizt, verður til í höfuðborg- inni. Hverjum myndi þykja það fréttnæmt, þótt farið væri að segja frá því, að komið hefði ofan í hjá mér í gær, og um það bil fimmtíu kaplar af flatri töðu liggi nú uiidir skemmdum á túninu hjá mér. Eða þótt ung- ur vinnupiltur hjá mér hefði veitt tíu punda lax í ánrti við túnið, ■— á veika silungsstöng! Nei, enginn mundi hlusta á slíka fréttafrásögn, sem ekki er von. Hjá ykkur gengur ekki á öðru en kurteisisheimsóknum, ferðamannahsimsóknum, íþrótta mannaheimsóknum, fundum og þingum með erlendum þátttak- endum og ég veit ekki hvað", að ógleymdri allri milliríkjakeppn inni í öllum hugsanlegum íþrótt um, frjálsum sem ófrjálsum. Og sjálfir eruð þið á eilífum þön- um utan lands og innar, ^með luxusbifreiðum, Iuxusskipum, luxusflugvélum (þú fyrirgefur, ef ég stafa orðið langt), já, og svo eruð þið á hvínandi kúp- unni mðe allt saman og sífellt : að berja ykkur. Við hérna í sveitinni sitjum hins vegar heima lon og don, berjum okk- ur að vísu og ekki að ástæðu- lausu, en höldum okkur við okkar starf, hvað sem raular og tautar. Að einu leyti eigum við líka ykkur hægara um vik, — við getum, og það með sanni kennt ykkur um alla óreiðuna og óspilsemina. Þið getið aftur á móti engum um kennt nema ykkur sjálfum. Hér eru alltaf á ílækingi ein- hverjir luxuserindrekar frá ykkur, okkur stritandi sveita- mönnum til uppbyggingar og örvunar. Hjón komu hingað um daginn, akandi í spegilvagni, sem endurvarpaði þessum fáu • sólargeislum, sem tekizt hafði að brjóta sér leið gegnum þoku- þykknið, og margfaldaði þá svo, að sjaldan hefur leikið meira sólskin um minn bæ. Kvaðst maður þessi ekki hafa annað er- ■ indi en það, að sýna konu sinni ■ „hvernig fólk lifði“ í sveitinni. Gat ég ekki fyllilega ráðið í, hvort heldur hann hug'ðist sýna konu sinni hvernig það fólk Væri, er í sveitinni lifði, eða hvernig það færi að því að tóra ób'æriíégtí‘þ'rátrt, sem því væri samfara, að búa í sveit. kurteis maður og góðgjarn í eðli mínu, kvað ég þeim mína eigirt persónu heimilt rannsókriarefni, svo og híbýli mín, hva.ð þaú góðfúslega þáðu. Raunar fannst mér rannsókn frúarinnar á minni persónu helzt til handa- hófsleg; þetta var ung og ang- andi kona og öll glæsileg, en hún lé tsér nægja að mæla mig með augunum, hefur sennilega í skjótu bragði séð hvaða skepnu flokki ég tilheyrði og lítinn á- huga haft á því fyrirbæri. Leiddi bóndi hennar hana síðan í bæinn; virtist hún hálfhrædd við að stíga inn fyrir þröskuld- inn og bað síðan þann almátt- uga og ýmsa fleiri að hjálpa sér við hvert spor, er hún steig, skotraði síðan felmtruðum aug- um um loft og þil og spurði mig nokkurra gáfulegra spurninga; hvort ekki væri agalega ein- manalegt í sveitinni, hvað við hefðum okkur helzt til skemmt- unar á veturna, hvort við döns- uðum ekki eftir útvarpinu um helgar, hvort við sótthreinsuð- um mjólkina ekki alltaf með því að sjóða hana, áður en við neyttum hennar, og hvort ekki væri hætta á því, að maður fengi einhverja fjósaveiki, ef það væri látið undir liöfuð leggj ast. Einnig spurði hún hvort við værum ekki agalega hrædd við minkana og hvort þeir dræpu ekki bæði hesta og kýr. Ekki spurði hún samt hvort þeir ætu traktora. Öllu þessu reyndi ég að svara eftir beztu getu og eins alvarlega og mér var unnt, Gengu þau ^íðan út í spegil- vagninn og kvöddu mig virðu- lega, eftir að bóndinn hafði boð- ið mér vindla og whisky, og rann vagninn mjúkt og hljóð- lega niður afleggjarann. — Það er eins og manni líði eitthvað betur, sé ánægðari með sitt hlutskipti, sitt strit og sína heimsku, efir slíka heimsókn. En lengi dags var annarlegur ilmur og angan eftir þessa heim sókn. Og snubbótt þótti mér það, að unga frúin skyldi ekki notfæra sér betur boð mitt; hefði hún gjarna mátt þukla á mér, þótt ekki væri til annars en þess að kontast að raun um hvort sveitakarlar'væru hrygg- 'dýr með heitu eða köldu blóði, og hef ég, þótt mér litist hún sjálf glæsileg, satt að segja hálf- gerða ótrú á henni sem nákvæm um vísindaiðkanda. Læt ég svo spjalli þessu lok- ið. Blessaður. Filipus Ressason hréppstjóri. Úfbreiðið Gin a K au s SYST hann -samt sem áður verða. kyrr hjá mér ;a£ því að Felix er. hjá mér. Það er engin kona í öll- um heiminum, sem getur tekið hann frá mér, meðan ég á Fel- ix.“ Hún elsk§.r ekki barnið vegna þess sjálfs, hugsaði ég. Barnið er aðeins verndargripur henn- ar. Hún elskar aðeins Alexand- er, og þó að það væri hennar eigiá barn, þá myndi þetta ekki vera öðru vísi. Um kvöld- ið reykti Alexander pípuna sína. Eg tók eftir því, áð það var ekki alltaf að deyja í henni glóðin. Hann hafði auð- sjáanlega lært að halda lif- andi eldinum í henni, rólegur og öruggur. Irene kom með stórt mynda albúm og fór að sýna mér allar teikningar manns síns frá síðustu árunum. Þetta voru teikningar að fögrum skrauthúsum, stórum leigu- húsum og af innréttingum. ,,I næstu viku á hann að fara að teikna riýja sjúkrahúsið,“ sagði hún stolt. „Hann vann í samkeppninni, en í henni tóku þátt samtals fjörutíu húsa- meistarar.“ „Það get ég ekki gert í næstu viku,“ sagði Alexander. „Eg verð að minnsta kosti hérna heima þangáð til í mán- aðarlokin. Fyrst þarf ég að búa til dúfnahús handa Felix. Eg er búinn að lofa honum því. Hann á að fá tólf hvítar dúf- ur.....“ Irene ljómaði af fögnuði. Eg átti dásamlega daga í Felixhof. Það var svo mikil frjósemistilfinning í þessum dögum. A hverjum morgni' var geislandi sólskin. Við ókum í vagninum með múldýrinu fyr- ir og sáum hvernig allt óx á ökrunum. Eftir miðdaginn lá Alexander með Felix í háu grasinu. Drengurinn svaf, en Alexander las. Við og við leit hann inn til drengsins o^. rak burtu flugu, sem vildi setjast á litla andlitið hans. Við Irene sátum í forsælunni og drukkum kaffi. Eg hugsa oft um það," sagði Irene, „hvers vegna hann skuli bókstaflega ekki geta séð af drengnum.“ „Það eru margir karlmenn svona,“ svaraði ég. Og hvað annað átti ég að segjá? Átti ég kannski að þegja. Þú þekkir yfir höfuð alls ekki manninn þinn, hann er allt öðru vísi en þú heldur. Hann skortir hvorki tilfinningu eða ástríð- ur, hann hefur stórt hjarta, en finnur til tómleika í því, og þráir ást og umhyggju, og hann finnur að barnið er það eina, sem hann getur elskað og hefur rétt til að elska. Margir karlmenn eru þannig. Stundum leysir lífið sjálft vandamálin á svona einfaldan hátt. En oft gerir það það ekki, og,þá fer illa. Eg fekk símskeyti frá Lo.ttu -þegar ég hafði verið ,tíu daga í Felixhof. Við vorum nýkom- in heim úr ökuferð og sátum umhverfis myndarlega eikar- borðið og drukkum te. Felix litli sat í kjöltu minni. í sím- skeytinu stóð: „Við komum snemma í fyrramálið til Mun- chen og fáum herbergi á „Jahreszeiten“. Kærar kveðj- ur. Lotta.“ Eg lagði símskeytið á borð- ið við hliðina á bollanum mín- um og sagði, að ég yrði að fara daginn eftir. Um leið og ég sagði þetta, strauk ég með söknuði um sítt og silkimjúkt hár drengsins. Hvað mundi líða langur tími þangað til ég fengi a,ítur tækifæri til að strjúka þetta hár aftur. Mér fannst erfitt að hugsa til þess að ef til vill mundi það verða langur tími. Það var eins og ég væri svipt einhverju, sem ég ætti fullkominn rétt á og ég vildi helzt ekki sleppa neina stund af bernsku hans og æsku.“ „Segðu við Eulu frænku, að hún eigi að vera kyrr hjá okkur,“ sagði Irene við dreng- inn. Og undir eins setti hann upp raunasvip og sagði á sínu barnamáli: ,,Eula frænka á að vera hjá Felix, ekki fara, ekki fara.“ „Eula frænka verður að fara,“ sagði ég. ',Hún verður að fara til Lottu frænku. — Manstu eftir Lottu frænku, Felix?“ Barnið horfði á mig stórum, dökkum og geislandi augum og hrissti höfuðið. „Finnst þér ekki stundum, að drengurinn sé líkur Lottu?“ spurði Alexander allt í einu. „Hann líkist henni meir en Irene.“ Eg varð hrædd, en mér datt það strax í hug, að það á sér oft stað, að barn líkist meir frænku sinni eða frænda en sjálfum foreldrum sínum. „Já, hann er alveg eins og Lotta var þegar ég Jkom fyrst til herra Kleh,“ sagði ég rólega. „En hann hefur minn munn- svip,“ sagði. Alexander hlæj- andi, „sérstaklega þegar hann hlær. Eg tók eftir því í spegl- inum nýlega.“ Við þögðum, Irene og ég. Alexander varð ergilegur. „O, ég skil ykkur báðar, allt 'af er kvenfólkið svona, það er fullt af ættardrambi. Vitan- lega á hann að vera hundrað prósent í ætt Irene. En hann er líka af Wagnersættinni, ætl,a ég að láta ykkur vita. Hann getur meira að segja nú þegar haldið betur á blýanti en nokkur annar krakki á hans aldri. Sjáið bara sjálfar.“ Hann. rétti drengnum blýant. „Héfna, Felix, JJejÁnaðu nú hús fyrir pabba.“ jJá, .guð kom.i tiL Svona er í- myndunin, datt mér í 'liug. Þarna situr þessi stóri og vel gefni maður, fullur á trúna á það, að hann sé faðir, sem hann ekki er. Alexander var að leita að pappírsblaði handa Felix og hafði gripið smískeytið frá Lottu. Hann las það um leið og spurði síðan um leið og hann hleypti brúnum: „Hver er það sem Lotta hefur ferðast með til Munchen?" „Það er starfsfélagi hennar. Mjög frægur starfsfélagi, — sjálfur Klaus Rittner.“ Irene hafði tekið stóra tepp- ið sitt upp úr kistunni og nú breiddi hún úr því. Alexand- er var þungt hugsi, eins ög ó- sjálfrátt greip hann í eitt horn teppisins og skoðaði það. ,,Er Lotta kannske trúlof- uð honum?“ spurði hann. „Nei, hann er bara starfs- bróðir hennar, ■— og góður vinur.“ Irene beigði sig lengra yfir teppið og saumaði af kappi. •Hún vissi þegar allt, sem hægt var að segja um Lottu og Ritt- ner, en það var auðséð að hún hafði ekki talað um þ&5 við Alexander. Það hafði drepizt í pípunni hans, hann leitaði óðslega í öllum vösum sínum og á borð- inu ’ að eldspítum, en eld- spítnastokkurinn lá beint fj'rir framan hann á borðinu hjá cskubakkanum. „Jæja. Og það virðist sem þú hafir ekkert að athuga við það þó að hún fari á hótel með . . .... með þessum vini sínum, Eula?“ Eg yppti öxlum. „Og auk þess er þetta eftir því, sem ég bezt veit, nýr vin- ur. í fyrra heyrðum við sagt frá allt öðrum manni, sem hún dragi á eftir sér. Kannske að hún hafi líka verið með hálfri eða jafnvel heilli tylft af karl- mönnum frá því að hún hætti við hann og þangað til að hún tók þennan?“ Og nú hegðaði hann sér ná- kvæmlega á sama hátt og hann gerði kvöldið, sem hann ætlaði að leggja af stað til vígstöðv- anna og Lotta var ekki heima. En það gat varla átt sér stað, að hann væri enn ástfanginn í Lottu. Hann hafði ekki séð hana árum saman. Gat bann ekki unnt neinum öðrum að hljóta hana? Það, sem mér þótti þó einkennilegast, var að svo virtist sem Irene væri ekkert hissa á því, hvernig hann hegðaði sér. „Já, en kæri Alexander,“ sagði ég. „í fyrsta lagi hef ég ekkert vald yfir Lottu, og í GOL' IA T ■O. ÞA,- I i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.