Alþýðublaðið - 03.08.1950, Side 8
LEiTIÐ EKKI GÆF-
UNNA.Il langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðahapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
Fimn’tndagm1 3. ágúst 1950.
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLKI
Takið höndum saman vi®
unga jafnaðarmenn og að«
stoðið við sö'lu happdrættis
miða í bifreiðahappdrættí,
Sambands ungra jafnaðaí'a
manna.
Utanför lögreglukórsins.
Myndin er af Lögreglukór Reykjavíkur, sem kominn er heim
úr för sinni til Stokkhólms. í kórnum eru. talið frá vinstri:
Kristinn Óskarssoii, Garðar Guðmundsson, Gunnar Einars-
son, Kristján Jóhannesson, Ingólfur Sveinsson, Bogi Bjarna-
son, Páll Eiríksson, Þorleifur Jónsson og Magnús Aðalsteins-
'son. Fremri röð: Kjartan Bjarnason, Matthías Guðmundsson,
Mátthías Sveinbjörnsson, Friðjón Þórðarson, fararstjórinn,
Páll Kr. Pálsson, söngstjórinn, Guðbjörn Hansson, Ásmundur
Matthíasson og Elís Hannesson.
Lögreglukórinn kominn af nor-
æna söngmófinu í Sfokkhólmi.
*-------*—■— -——
Sjö kórar meö háft á hriðja hyndrað
möniuim tóku f)átt i mótinu
LOGREGLUKÓE REYKJAVÍKUR kom á sunnudags-
kvöldið frá Stokkhólmi af söngmóti norrænna lögreglukóra, er
l»ar var haldið dagana 26.—28. júlí. Á mótinu voru sjö kórar alls,
þrír frá Svíþjóð, en einn frá hverju hinna Noiðurlandanna. Alls
munu söngmennirnir hafa verið hátt á þriðja hundrað, en ís-
lendingarnir voru 16 auk söngstjóra.
Lögreglukórinn fór héðan * -----------
22. júlí til Óslóar, og þaðan
með lest til Stokkhólms. Farar-
stjóri var Friðjón Þórðarson
fulltrúi lögreglustjóra, en hann
skýrði blaðinu frá för kórsins í
viðtali í gær.
Kó.rarnir, sem tóku þátt í
mótinu auk íslendinganna
voru frá Stokkhólmi, Gauta-
borg og Norrköbing í Svíþjóð,
og svo frá höfuðborgum hinna
landanna: Osló, Kaupmanna-
höfn og Helsingfors. Hver kór
söng á mótinu nokkur lög, en
síðan allir saman eitt lag frá
hverju landi. Söngstjóri Lög-
veglukórs Reykjavíkur er Páll
Kr. Pálsson.
Lögreglukór Reykjavíkur
hafði ekki neinn styrk til far-
arinnar og fékk engan erlend-
an gjaldeyri. Kostaði lögreglu-
kórinn í Stokkhólmi dvolina
þar.
IIANNES Á HORNINU
Framhald af 4. síðu.
uð og skellótta veggi og flagn-
aða.
LAGLEG NAFNSJÖLD og
endingargóð eru nokkurs virði,
Dg því meira virði ef þau geta
orðið hvatning til bænda um
að keppa að aukinni umgengn-
Fyrsta síldin lögð
upp á Akureyri
í fyrrinéff.
Einkaskeyti til Alþýðubl.
AKUREYRI í gær.
FYRSTA SÍLDIN var lögð
upp á Akureyri í nótt af mót-
orskipinu Auði. 330 uppmæld-
ar tunnur voru saltaðar og 230
tunnur frystar, en skipið var
samtals með 1170 mál, og var
sú síld sett í bræðslu, sem ekki
var söltuð eða fryst. Söltunar-
stöð Snorra Sigfússonar keypti
síldina uppmælda, og þar var
hún söltuð. Skip veiddi síldina
á Axarfirði.
ismenningu í sveitum þessa
lands. Þá getur svo farið, að út-
iendingar, sem hingað koma,
hafi ekki lengur það markverð-
asta að segja, er heim kemur, að
trassamennska og hirðuieysi í
umgengni sé almennt einkenni
um_ menningarskort íslenzkra
bænda. Þetta hefur átt sér stað,
pað er staðreynd, enda verið
mælt á mælikvarða annarra
þjóða. Hrindum þessu ámæli og
látum nafnspjaldið sanna öra
þróun umgengnismenningar í ís-
tenzkum sveitum!“
Verzlunin Egill Jacobsen opnar a
ý í Áusturstræti 9 á morgun
Vildl geto sýot í hillunum það, sem
brann í verzluninni í brunanum 1915
GÖMLUM EEYKVÍKINGUM mun finnast það eins og
endurminning frá liðnum árum, er verzlun Egils Jacobsens
opnar á ný í Austurstræti 9 í fyrramálið. En nafnið eitt og útlit
byggingarinnar minnir á hina gömlu Jacobsensverzlun, því að
innbúið er allt nýtt og eftir nýjustu tízku. Frú Soffía Jacohsen,
sem nú er forstjóri verzlunarinnar, segir, að verziun Jacobsens
hafi ávalit kappkostað að vera til fyrirmyndar og hafi ákveðið
að verða það í framtíðinni, hvernig sem tímarnir verða.
Blaðamönnum var í gær *
gefinn kostur á að skoða hina
nýuppgerðu verzlun, sem er
hin fullkomnasta og vistlegasta
og hefur á boðstólum það, sem
fáanlegt er af karla- og kven-
fatnaði og öðrum skyldum vör-
um.
Skrifstofa verzlunarinnar er
innréttuð svo til alveg eins og
hún var fyrr á árum og frú
Soffía Jacobsen, sem stjórnar
fyrirtækinu með sonum sínum,
skýrði frá sögu verzlunarinn-
ar.
Verzlun Egils Jacobsens var
stofnuð 1906 og var fyrst til
húsa í Ingólfshvoli. Um skeið
flutti hún í Austurstræti, en
það húsnæði eyðilagðist í brun-
anum mikla 1915, og segir frú
Jacobsen, að hún hefði ekkert
á móti því að geta sýnt í hill-
unum þær vörur, sem þar
brunnu. Verzlunin fluttist aft-
ur í Ingólfshvol, en 1921 var
hið fagra verzlunarhús, sem
enn stendur í Austurstræti 9,
reist. Var verzlunin þar til
1937, er Búnaðarbankinn leigði
húsnæðið, og síðan hefur verzl-
unin verið á Laugavegi 23, þar
sem útibú hennar var áður.
Nú hefur húsnæðið verið
gert upp á hinn haganlegasta
hátt. Friðrik Þorsteinsson ann-
aðist innréttingu, Kjartan Sig-
urðsson -teiknaði, Stoð gerði
inngang, Hörður og Kjartan
máluðu, Sigurjón Fjaldsted sá
um hitalögn, Marteinn Davíðs-
son terrazzo, Guðmundur Krist
jánsson og Ólafur Ólafsson dúk
Íögðu.
Það einasta, sem við kvíðum
fyrir, sagði frú Jacobsen í gVr,
eru biðraðirnar og hvernig
fólkið kann að láta í fyrstu, ef
dæma má eftir sögusögnum.
En við munum reyna að sjá svo
um að sem flestir fái eitthvað,
en hinir fyrstu taki ekki allt.
Framhald af 1. síðu.
Þoka er á austurhluta veiði-
svæðisins og hamlar hún veið-
um þar.
Samkvæmt viðtali, sem
Alþýðublaðið átti við Siglu-
fjörð á miðnætti í nótt
voru skipin að byrja að
koma að landi þá. M. a. var
Andvari kominn með 500
mál og Rifsnes fullhlaðinn
á leiðinni. Búizt var þá við
mörgum skipum með ágæt-
an afla.
5. umferð á nor-
ræna skákmofinu.
5. UMFERÐ í norrænu
skákkeppninni fór fram £ gær-
kveldi. Úrslit urðu þessi:
Baldur Möller og Guð-
mundur Ágústsson gírðu jafn-
tefli. Öðrum skákum varð ekki
lokið. Guðjón M. Sigurðsson
á vinningsstöðu móti JuliUs
Nielsen, Danmörku, hafði 5
peð og riddara móti 3 peðum
og biskupi, þegar skákin fór í
bið. Skákir Sundbergs gegn
Herseth, Palle Nielsen gegn
Gilfer og Vestöl gegn Kinn-
mark urðu einnig biðskákir.
Efnahagssamvinnustjórnin í
Washington hefur tilkynnt
fyrstu framlög til Marshall-
landanna af fjárveitingu'arsins
1950/51. Var íslandi veitt
600 000 dollarar, sem jafngilda
9 780 000 krónum.
2. ágúst 1950.
FELIX GUÐMUNDSSON"
lézt í Landsspítalanum seint £
fyrrakvöld. í
Felix var fæddur 3. júlí 1884-
að Ægissíðu í Holtum, sonur
hjónanna Guðnýjar Jónsdóttur
og Guðmundar Felixsonar. Fel*
ix fluttist ungúr til Reykjavík-
ur og stundaði byggingarvinnu
og verkstjórn um nokkurra ára.
bil ,en var skipáður, umsjónar-.
rnaður kirkjugarðs Reykjavík-
ur 1919 og -gegndi því .Starfi tit .
dauðadags. Margvísleg irúnað-
arstþrf ,voru hopum falin.
Hann ý‘ár ötull og einlægur Al-
jyvðufiokksmaður o.g sat unx
nokkurt skeið í miðstjóm
flokksins, Einnig fórnaði hanti
bindindishreyfingunni miklu,
starfi. , . , ,
Felix var vel látinn maður
og vinsæll og mjög virtur fyrir
starfsáhuga sinn og ósér-
plægni. Hann var kvæntur Sig-
urþóru Þorbjörnsdóttur, og lif-
ir hún mann sinn.
ynimelur 13 kvikmyndaður
verður sýndur í Tjarnarbíó í ve
Kvikmyndatakan er að hefjast í Rúg-’
braiiðsgerðinni.
BYRJAÐ VERÐUR. INNAN SKAMMS að kvikmynáa
„Leynimel 13“ á rishæð Rúgbrauðsgerðarinnar, — og er það
Tjarnarbíó og kvikmyndafélagið Saga, sem standa að kvik-
mynd þessari og verður hún væntanlega tilbúin til sýningar
fyrir áramót.
Það eru nú um 7 ár síðan
„Leynimelur 13“ var leikinn
hér, en höfundar leiksihs eru
Emil Thoroddsen, Indriði
Waage og Haraldur Á. Sigurðs.
son, en flestir leikaranna, sem
þá komu fram í leiknum, verða
einnig í kvikmyndinni. Kvik-
myndatökuna annast Sören
Sörensen, en leikstjórar eru
þeir Indriði Waage og Gunnar
Robert Hansen, en hann var
fenginn hingað frá Danmörku
til þess að aðstoða við upptöku
myndarinnar. Hefur Hansen
um mörg ár verið sérfræðileg-
ur ráðunautur hjá „Dansk
kultur film“ í Kaupmannahöfn
og unnið sé rþar mikið álit.
Leikendur í kvikmyndinni
verða þessir: Alfreð AndréssonP
Inga Laxness, Emilía Jónas-
dóttir, Haraldur Á. Sigurðsson,
Áróra Halldórsdóttir, Anna
Guðmundsdóttir, Bryndís Pét-
ursdóttir, Inga Þórðardóttir,
Vilhelm Norðfjörð, Brynjólfur
Jóhannesson, Jón Aðils og
Guðjón Einarsson. Auk þess
koma fram í myndinni 13 böm
Sveinjóns skósmiðs og fleiri.
Hljómupptökuna annast þeir
Sveinbjörn Egilsson og Magn-
ús Jóhannesson. Kvikmyndint
verður að mestu leyti tekin í
Rúgbrauðsgerðinni, en þar
hefur verið komið fyrir stáss-
stofum og fleiri herbergjum.