Alþýðublaðið - 17.08.1950, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 17.08.1950, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. ágúst 1950. Fillpus Bessason hreppstjóri: NOKKRAR HUGLEIÐINGAR OG HUGÐETTUR UM SLYSA- VARNAMÁL OG ANNAÐ. Samkvæmt þeirri reglu, ætti að athuga og rannsaka vandlega, við hvaða störf og af hverju írverjum og einum sé mest hætta búin, og draga síðan sem mest ýr hættunni, eða útiloka hana algerlega. Að lauslega athuguðu máli, geri ég ráð fyrir því, að framleiðslustörfin séu hættu- legust, og fiskiveiðarnar þó hættulegastar. Mörg sú hætta, er slíkum störfum fylgir, er hins vegar þess eðlis, að hún verður aldrei útilokuð, meðan sjálft starfið er stundað, og liggur þá beinast við að hæt.ta að stunda þær starfsgreinar með öllu, eða þá að stunda þær aðeins að sem allra minnstu leyti. Hvað þetta snertir, erum við þegar vel á veg komnir; þarf ekki annað en benda á kaupin á nýsköpunar- togurunum því til sönnunar, og starfrækslu þeirra stórvirku at- vinnutækja, eins og henni er nú háttað*. En betur má, ef duga skal. Við verðum að setja okkur það takmark, að leggja öll fram- leiðslustörf niður, nema kannski ícartöfluræktina, sem virðist til- íölulega hættulaus, en fá hins- vegar öllum landslýðnum starfa í upphituðum og dúklögðum skrifstofum, eða í verzlunum, kvikmyndahúsum, veitingahús- um og þjóðleikhúsum. Og þá, sem ekki hafa þroska eða hæfi- leika til að gegna einföldustu skrifstofu eða afgreiðslustörf- um, eigum við að gera að þing- mönnum, forstjórum eða ein- hverjum nefndarmönnum. Ætti ©á öll venjuleg slysahætta að ’*Vera útilokuð, einkum ef þess væri gætt, að hafa stöðugt lyft *ur í gangi í öllum þeim skrif- stofubyggingum, sem " væru tvær hæðir eða meira, sömu- Ieiðis að hafa mjúkar ábreiður á gólfum, svo að enginn hlyti meiðsli af, þótt svo færi að hann ylíi sofandi úr stól sínum, því alltaf getur mönnum runnið í brjóst. Þegar þannig væri málum komið, væri að vísu unnin hálf- ur sigur, en ekki allur. Enda þótt slysahættan sé lítil í skrif- stofum og verzlunum, verður hún aldrei fyrirbyggð með öllu. Fólk getur msitt sig á skærum, stungið sig á pennum og blý- öntum. Úr þessari litlu hættu mætti enn draga, með því að j 3V fækká starfsdögunum til'rauiíÉíJ tóg.aúka'. hæðl LSwgcij^gyfÞ og stéttarfrídaga, unz svo væri kom ið, að af þeim ca: þrjú hundruð dögum ársins, sem enn teljast virkir, færu tvö hundruð í sum- ar og vetrarleyfi, en hundr- að.í stéttarfrídaga. Þá fyrst væri hinu mikla takmarki náð, sem sagt að girða fyrir það, að nokk ur maður yrði fyrir slysi við vinnu sína. En á hverju á þá þjóðin að lifa? Óttizt þið kannski að ein- hver kynni að spyrja. Nei, þið þurfið ekkert að óttast að sú spurning verði fram borin, ef einhverjum léki forvitni á að vita það, mundi hann hafa spurt fyrir löngu. Ég gat þess áðan, að þessari gæfulegu og gætilegu þróun væri þegar alllangt á veg komið, og við virðumst hafa það bara gott. Við getum ferðast út um öll lönd og endasenzt um um allt landið, hoppað og híað og drukkið brennivín. Nú, — ef eitthvað færi að harðna í ári, getum við alltaf lækkað krón- una, — og síðan efnt til fegurð- arsamkeppni. Við höfum þegar, að ég heyri, efnt til feguröar- samkeppni meðal ungra kvenna. Þetta er ekki nema sjálfsagí, og einhversstaðar varð að- byrja fyrst við brugðum þeim vana okkar, að miða fegurðarsam- keppni eingöngu við hross oklc- ar, sauðkindur og nautgripi, eins og við höfum gert til þessa. Næst er svo að efna til fegurð- arsamkeppni ungra manna. Því næst gætum við auglýst.fegurð- samkeppni eldri kvenna, svor.a bara til þess, að þær gætu ekki sagt, að fram hjá sér hefði ver- ið gengið, enda þótt fyrirfrain megi vita, að engin kvenmaður þættist nógu gamall, til þass, að taka þátt í henni. Og síðast yrði svo fegurðarsamkeppni gamalla manna, — og þá ætla ég að biðja ykkur að gera mér aðvart, því að hvorki skal þurrkur né rosi aftra mér frá að taka þátt i þeirri samkeppni, því að bæði er það, að ég þykist vera heldur snotur öldungur og svo hitt, að þá finndist mér, sem ekkert myndi skorta í eftirmælagrein- arnar í blöðunum,, þegar þar að kemur, ef þar væri að síðustu upptalið, að ég hefði hlotið fyrsíu verðlaun í fegurðarsam- keppni, órið sem verzlunarjöf n- uðurinn við útlönd var sem ó- hagstæðastur og krónan stóð i eitthvað tæpum ssytján aurum að verðgildi. Bið ég ykkur svo að skila kærri kveðju til samkomunnar, og mættuð þið gjarna senda mér dálítinn þurrk á heyið með næstu ferð, ef þiö fáið afgang af því, sem þið þurfið, til þess að geta dansað úti, þarna í Tívoli. Virðingarfyllst. Filippus Bessason, Gin a K au s n.n í<Ái «BS5íTTI honum . . . Og nú vissi ég, hvað svo hafði borið við. Á einni sekúndu skildi ég nú allt, sem ég hafði brotið heilann um ár- um saman. Martin hafði í raun og veru farið beina leið heim, eftír að hafa kvatt Lottu. En Alexander hafði ekki vakið dyravörðinn. Ilann hafði beðið í fordyrinu eftir Lottu. Hún hafði farið með honum út í borg ina og síðan út í skóg. Hann var hermaðurinn, sem Helmut og vinir hans höfðu séð á ferð með henni í skóginum. „Þú hefur líkast til gleymt þeirri nótt“, sagði Lotta í lágum hljóðum, „nóttina áður en þú fórst öðru sinni til vígvall- anna.“ Það heyrðist stuna eins og frá þjökuðu brjósti. Hugsuðu þau ekkert um Irane? „Hvernig gaztu fengið það af þér?“ spurði hún. „Alexander, hvernig gaztu gert þetta?“ Og allt í einu fór hún að tala með þreytulegri rödd gamallar upp gefinnar konu. Ég kannaðist aftur við þetta hljóm_fall frá því þegar hún hélt að Alexander væri að yfirgefa hana fyrir fullt og allt. „Ég hef leyft þér allt óg fyrirgefið þér allt. Þú hefur kannske haldið, að ég vissi ekki neitt, hvorki um dans mærina, né um skrifstofustúlk- una. Ég vissi um það allt sam- an — og fyrirgaf það. En ég vissi ekki um mína eigin syst- ur •— og hún var ung og sak- laus stúlka í þá daga.“ „Ég elskaði hana,“ svaraði Alexander. „Ég hef alltaf elsk- að hana frá því fyrsta, er ég sa hana — og þangað til .... Veslings Irene — það getur þú líkast til aldrei fyrirgefið mér.“ Nei, þau spöruðu ekki hvert annað. I hálfa klukkusfund höfðu þau ekki .skeytt neinu, ekki tekið neitt tillit til neins. En nú voru þau aftur að kom- ast til meðvitundar um ástand- ið. Það var eins -og haglél hefði riðið yfir landið. Hversu mikið hafði það eyðilagt? Enginn hafði nokkra hugmynd um það. En eitt vissu þau með vissu, og það var, að Irene leið mest. Þau höfðu ráðizt hvort á annað eins og rándýr, Alexander og Lotta — og þau höfðu sært Irene svo, að það gekk ’á hol. En þegar þeim varð það ljóst, var það orðið of seint. Þau gengu til hennar. Lotta kraup á kné fyrir framan hana og lagði höfuðið í kjöltu hennar, og Alexander strauk um hár hennar. — Irene brosti. Hún var stórfengleg á þessu augnabliki. Kvölin hgfði gert hana mikla, látið hana vaxa út úr sjálfri sér. Hún brosti. „Það er orðið framorðið,“ sagði hún. „Lotta, þú getur ekki farið til Eibsee í kvöld. Alexehder þína niður í þorpið. Ég ætla að , búa um þig í gestaherberginu j Við skulum láta þetta nægja.“ Hún stóð á fætur og losaði sig við Lottu, sem hafði lagt höfuðið á kné hennar, um leið ýtti hún Alexander frá sér. i Djúp örvænting var í aúgum hennar og svip. „Við skulum bíða og vita hvernig nóttin fer að .... við skulum bíða eftir nýjum degi......“ „Nei, ég fer,“ sagði Lotta og sleit húfuna sína af snaganum. Villt hryggð og alger örvænt- ing var einnig í svip hennar. Ef hún hefði farið þá þegar um kvöldið, þá er mjög vafasamt, að hún hefði komizt alla leið lieil á húfi. „En þú getur ekki farið núna, svaraði Irene og þreif af henni húfuna. „Það er ekki hægt að neita því, að við heyr- um hvor annarri til .... Þetta allt er ekki svo æinfalt, að þú getir farið og þar með sé þessu öllu lokið.“ „Hvers vegna ekki?“ spurði Iiotta. „Vegna þess, að mér þykir svo vænt um þig, þráfrt fyrir allt.“ Irene gekk brosandi út úr herberginu. Hún var eins og helg kona, hugsaði ég. Alex- ander fór á eftir henni. Lotta gekk út að glugganum og opnaði hann. Loftið var saggafullt eftir óveðrið. Það steig upp ilmur frá skóginum og af blómunum í litlá garðin- um fyrir framan húsið. Fyrir utan girðinguna var svartur skuggi, sem bar við fjalhð. Það var bifreið Lottu. Ljósbliki frá fyrir á himninum. Var þetta elding langt í burtu? Alex- ander hafði sagt, að óveðrið mundi skella á aftur.; „Slæmur leikstjóri, hann,“ sagði Lotta og horfði upp í him- ininn. „Lífið hefði getað orðið svo .einfalt og hamingjusamt." „Hefurðu elskað hann öll þessi ár?“ spurði ég. Hún ypti öxlum. „Já, líkast til hef ég gert það.“ Alexander og Irene gengu yfir grasflötina að bifreiðinni. Alexander hélt um herðarnar á henni; það var eins og hann vildi vernda hana gegn kvöld- kulinu. Ég hafði aldrei séð hann svona góðan við hana. „Heldur þú . .. Getur nokkru sinni aftur orðið gott á milli Irene og Alexanders?" spurði Lotta. „Óskar þú þess?“ Hún dró svarið við sig. „Er nokkur munur á því að óska og vilja?“ spurði hún. En svo sváraði hún sér sjálf. „Það hlýt- ur það að vera, því að ég veit ekki hvers ég óska. Hins vegar veit ég, að ég vil að Irene geti aftur o.rðið hamingjusöm." voru kveikt á-Buiek- bifreiðinni. Alexander hafðii tekið ferðatösku Lottu út.. úr henni og borið hana inn í húsið.1 Irene gekk alltaf við hliðina á' honum, fylgdi honum eftir Svo heyrðum við þungt íótatak Alexanders í stiganum. Hann bar töskuna upp í herbergið. . . . . Nokkrum mínútum síðar var hann aftur kominn út að bifreiðinni. Vélin var sett í gang og bifreiðin hvarf út í myrkrið. „Heldurðu að ég megi nú fara til Felixar?“ spurði Lotta. Ég fór með henni fram í eld- húsið. Eldhússtúlkan hafði haft ofan af fyrir Felix litla. Hann sat á háum stóli og var að hýða grænar baunir. „Má ég ekki hjálpa þér svo- lítið?“ spurði Lotta. Jú, hann leyfði henni það. Hún hýddi eina baun og fór klaufalega að því. Til að byrja með gat hún ekki fundið sam- skeytin á hýðinu og svo hrukku baunirnar úr lófa hennar og niður á gólfið. Hún lagðist á hnén og reyndi að týna upp baunirnar, um leið skammað- ist hún og reifst við þær. Felix skellihló, „Af hverju ertu að hlæja að mér?“ sagði hún og lézt ætla að fara að gráta. En drengur- inn hló þá énn meir. Ég tók eftir því, að nú var hún orðin róleg. „Nú verður Felix að fara að hátta,“ sagði ég! „Ef þig lang- ar til að hátta hann, þá er ég •að hugsa um að fara til Irene og hjálpa henni.“ „Hvort mig langar til þess!“ Irene var í gestaherberginu. Ferðataska Lottu stóð uppi á borðinu. Hún var næstum tóm. Ég hafði tekið með mér sæng- urföt og fór þegjandi áð búa um rúmið. „Það verður að líta eftir und- irfötunum hennar,“ 'sagði Irene. „Hún hefur mikið með sér, en það er eitthvað að þeim næstum því öllum.“ Skyndilega lagði hún hend- urnar í skaut sér og sagði lág- róma: „Þú hefur vitað um þetta, Eula? — Hvað lengi hef- ur þú vitað, að þau elskuðu hvort annað?“ „Fyrir tíu árum . . . . “ sagði ég. „Þeg. . . . þegar þið voruð enn ekki gift, þá tók ég fyrst eftir því. En ég hélt, að' það væri fyrri löngu búið.“ „Hvers vegna sagðir þú mér ekk ifrá því? Ég hefði gefið hann frjálsan.“ , „Ég hélt, að Lotta væri sterkari en þú og staðfastari. Ég hélt að hún væri meira á yfirborðinu en þú, og að hún mundi gleyma þessu ævintýri.“ „Ég hefði gefið hann frjáls- an,“ endurtók Irene, alveg eins og hún hefði ekki heyrt hvað ég GOL- IAT •**?*» fp’/. W",

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.