Alþýðublaðið - 14.10.1950, Blaðsíða 8
Börn og ungílngar.
i Komið og seljið
Alþýðubiaðið.
Allir vilja kaupa
Albýðubiaðið.
Laugardagur 14, okíóber 1950
Gerízt askrifendur
að Albýðublaðinu. .
Alþýðublaðið inn á
bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4906J
joriis-
eriasafsi eflir Bes
Bók dr. Becks flytiur ræður um b«óðern-
ísm^Í og ritgerðir um skáld og rithöfunda
fil Honolulu
Mun hitta Mac-
Arthur í dag.
TBUMAN Bandaríkjafor-
seti kom í gærkvöidi flug-
íei&is til Honolulu. höfuð-
horgar Hawaii, og mun hann
hitta MacArthur hershöfð-
ingja í dag. Er búizt við, að
fundur þeirra fari fram á
smáeyju skammt frá Haw-
aii, en ekkert er enn vitað
um, hvað hann muni standa
lengi.
I fylgd með Truman er
' Omar Bradley, formaður
herforingjaráðs Bandaríkj
anna. og ýmsir háttsettir
herforingjar og ráðunautar.
BÓKAÚTGÁFAN NORÐKI sendi. á bókamarkaðinn í gær
uýja skáldsögu eftir Jón Bjjirnsson, og nefnir höfundurinn liana
, Oagur fagur prýðir veiröld a!:a”. svo og safn af ræðum og rit-
gerðum. eftir dr. Kichard Beck, íiinn ötula og kunna forustu-
mami þjóðernisbarátta Isiendinga i Vesturheimi, Nefnist bók
Bfecks „Ættland og erfðir4- og skiptist í tvo meginflokka, ann-
aœs vegar ræður um þjóðræknis- og menningarmál, hins vegar
ritgerðir og erindi um fflenzk skald og rithöfunda.
, „Dagur fagur prýðir veröld
alla“ er fimmta skáldsaga Jóns
Björnssonar, en önnur skáld-
sagan, sem hann frumsemur á
íslenzku, en Jón dvaldist lengi
erlendis og gat sér góðan rit-
höíundarorðstír í Danmörku á
ófi'iðarárunum. Fvrri skáld-
sögur Jóns eru: „Heiður ætt-
arinnar“, ,,Jón Gerreksson“,
.,Búddhamyndin“ og „Máttur
jarðar“.
Bók Richards Becks, „Ætt-
land og erfðir“, flytur annars
vegar sextán ræður um þjóð-
ernis- og menningarmál, en
hins vegar fimmtán ritgerðir
og erindi um íslenzk skáld og
rithöfunda.
Þá hefur Norðri enn fremur
gefíð út bækurnar „Gyðingár
koma heim“, eftir dr. jur.
Björn Þórðarson, og „Skamm-
degisgestir“ eftir Magnús F.
Jónsson. Fjallar hin fyrri um
Palestínumálið, en hin síðari
flytur þjóðlegan fróðleik.
Rautt Ijós" yfir
anddyri þjóð-
leikhússins i dag
RAUTT LJÓS logaði yfir
anddyri þjóðleikhúsgins í
fyrsta sinn í gær, og, mun
gera það aftur í dag. Þetta
rauða ljós er merki þess, að
uppselt sé á leiksýningu
kvöldsins. og var í gær upp-
selt á sýninguna á „Pabba“
og er aftur í dag.
Það er alþjóða leikhússið-
ur, að láta rautt ljós lcfga vf-
ir anddyrum leikhúsanna,
þegar uppselt er á sýningar,
svo að menn þurfi ekki að
ónáða sig inn í leikhúsið,
þegar miðar eru ekki til, og
geti séð, hversu oft er rautt
ljós, þegar eitthvert ákveðið
leikrit er sýnt. Slík ljós hafa
ekki tíðkazt hér á landi fyrr
en nú.
íðnnsóknin á Raufarhöfn hef-
engan árangur borið enn
--------*--------
Hver maöur úr þorpinu rannsakaðor.
---------------------«--------
KANNSÓKN heldur stöðugt áfram út af þjófnaðarmál-
jinu á Eaufarhöfn og má segja að unnið sé að henni nótt og
dag. Ekki hefur rannsóknin þó enn ’eitt neitt í ljós, og ákveð-
inn grunur hefur ekki failið á neinn, að því er hreppstjórinn
á Kaufarhöfn skýrði biaðinu frá í viðtali í gærkvöldi.
-----------------------♦ Að rannsókninni vinnur full
trúi sýslumanns Þingeyinga,
Ari Kristinsson, ásamt rann-
sóknarlögreglumönnununi frá
Reykjavík, þeim Sveini Sæ-
mundssyni og Axel Helgasyni.
Fjöldi fólks í þorpinu hefur
verið yfirheyrður, og leit hefur
verið gerð í bátum og gert er
ráð fyrir umfangsmikilli hús-
rannsókn á staðnum, ef réttar-
höldin leiða ekkert í Ijós, sem
upplýst getur þjófnaðinn.
Strangt eftirlit er haft með
öllum, sem úr þorpinu fara,
hvort helaur er á sjó eða landi,
og er allur farangur rannsakað
ur, sem fluttur er burtu frá
Raufarhöfn.
Vaxandi aðsókn
að ameríska
bókasafninu
Veirarstarf Alþýðu-
flokksféiaganna
. á Akureyri hafið
AÐSÓKN að ameríska bóka-
safninu á Laugavegi 24 fer
mjög vaxandi, og sóttu 1499
manns safnið í septembermán-
uði, en 750 manns fengu tíma-
rit að láni hjá því. Um 137
manns hafa sótt safnið það
eina kvöld vikununar, sem það
hefur verið opið, og verður það
því framvegis opið tvö kvöld í
viku, þriðjudaga og fimmtu-
daga. Tímaritin, sem lánuð
eru, eru mörg frá starfsfólki á
Keflavíkurvelli, sem sendir
þau fyrir atbeina flugvallar-
blaðsins, sem nefnist Miðnæt-
ursólin.
Menningarfulltrúinn, sem
safninu stjórnar, hefur með að
stoð blaðafulltrúa utanríkis-
ráðuneytisins og ferðaskrifstof
unnar undirbúið ferðalag til
bæja norðan lands og hefur í
hyggju að lána þangað bækur í
vetur.
AKUREYRI.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN
hófu vetrarstarfið síðast liðinn
föstudag rneð fjölrnennri sam-
fcomu að Hótel Norðurlandi.
Steindór Steindórsson flutti
ávarp. Spiluð var félagsvist og
oo lokum dansað.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
hélt fund á þriðjúdaginn og
Aibýðufiokksfélagið í gær, og
kaus fúndurinn fulltrúa á al-
þýðuflokksþingið. Kosnir voru
þeii Steindór Steindórsson,
Þersteinn Svanlaugsson og
Bragi Sigurjónsson, og vara-
menn: Stefán Snæbjörnsson,
Hafsteinn Halidórssoir og Er-
lingur Friðjónsson.
FIAFR.
Tilraun gerð fil að
komast út í Bjarnarey
í GÆRDAG lögfSu menn af
stað frá Vopnafirði og ætluðu
að gera tilraun til þess að kom-
ast út í Bjarnarey, þar sem á-
litið er að róðrarbáturinn, sem
týndist á dögunum, hafi brotn-
að við, en ekki er talið óhugs-
andi að maðurinn, sem í bátn-
um var, hafi kunnað að komast
lifandi upp í eyna.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk frá slysavarna
félaginu, voru komnar fréttir
um það, að tekizt hefði að kom
ast út í Bjarnarey, en leit leið-
angursmanna reynst árangurs-
?aus. »
Um 50 menn vinna nú vil
Laxárvirkjunina nýju
------*-----
Unnið að sprengingum, vegargerð og
öðrum undirbúningsframkvæmdiim,
UM 50 manns vinna um þessar mundir við undirbúnings-
framkvæmdir við nýju Laxárvirkjunina fyrir norðan og mið-
ar verkinu vel áfram. Verið er nú að vinna víð vegargerð og:
sprengingar. Verkfræðingurinn, sem stjórnar verkinu, er Ey-
vindur Valdimarsson.
Síðla sumars gerði Akureyr-* *
arbær samning við byggingar-
félagið Stoð um framkvæmdir
við Laxárvirkjunina, en eftir-
litsmaður af hálfu bæjarins er
Rögnvaldur Rögnvaldsson verk
fræðingur.
Er nú að mestu lokið við að
sprengja fyrir vatnspípu, sem
á að koma úr háum vatnsturni
að stöðvarhúsinu. Verður píp-
an frá uppistöðunni svo víð og
hallinn svo mikill, að nauðsyn
er talin á því að byggja háan
stálturn til þess að taka á móíi
þrýstingnum. Enn fremur er
um þessar mundir verið r.ð
sprengja fyrir sjálfu stöðvar-
húsinu. Þá er og verið að gera
bráðabirgðastíflu til þess að
undirbúa aðalstífluna. Loks er
unnið að vegargerð og öðrum
undirbúningi.
Vetrarhörkur byrjað-
ar fyrir norðan
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
AKUREYRI
VETUR virðist vera lagstur
að hér nyrðra. Snjór er yfir
öllu hátt og lágt. Enn þá er
Ley bænda úti í stórum stíl
—■ jafnvel yfir 100 hestar á
sumum bæjum. Víða eru kar-
töflur niðri í görðum. *;
Fénaðarfækkun sýnist óhjá-
kvæmileg sums staðar.
HAFR.
Leikfélag Reykja-
víkur í fullu fjöri
LEIKFELAG REYKJAVÍK-
UR mun á næstunni hefja
leiksýningar í Iðnó og hefur
blaðið fregnað að fyrsta leik-
ritið, sem félagið sýni á þess-
um vetri, sé bandaríski sjón-
leikurinn „Elsku Rut“, en leik
rit þetta hefur víða verið sýnt
við miklar vinsældir.
Æfingar standa nú yfir á
leikritinu, og munu sýningar
hefjast innan skamms. Leik-
stjóri við þetta leikrit verður
Gunnar Hansen, danski kvik-
myndastjórinn, sem hér er nú
staddur til þess að stjórna kvik
myndun Leynimels 13, sem
kvikmyndafélagið Saga og
Tjarnarbíó eru að láta gera.
Ekki er blaðinu fullkunnugt
um hvaða lefkarar leika í
„Elsku Rut“, en meðal þeirra
munu vera Sigrún Magnús-
dóttir og Gunnar Eyjólfsson.
Alexander Jóhann-
esson og Pálmi
Hannesson komnii
úr Ameríkuför
ÞEIR Alexander Jóhannés-
son, rektor háskólans, og Pálmi
Hannesson, rektor mennta-
skólans, komu í fyrrakvöld!
heim úr för um Bandaríkin,,
sem þeir hafa farið hvor í síma
lagi í boði Bandaríkjastjórnar..
Hafa þeir báðir ferðazt víðap
um Bandaríkin og kynnt sér
sérstaklega skólafyrirkomuiag,,
en einnig þjóðlíf allt, svo og
annað, er þeir hafa áhuga á.
Dr. Alexander heimsótti
fjölmarga háskóla, og gérðí
hann sér sérstaklega far um að>
kynnast stjórn skólanna, skipu
lagi þeirra, skipulagi skóla-
bókasafna, stúdentalífi og öðru
viðkomandi þessum mennta-
stofnunum. Rektor flutti tvo>
fyrirlestra í ferð sinni, við há-
skólann í Winnipeg og í Har-
vard, og fjölluðu þeir um upp-
runa turrgumála.
Pálmi Hannesson var fyrst
fulltrúi Islands á landnámshá-
tíð Vestur-íslendinga, en íór
að því loknu til Bandaríkj-
anna. Hann heimsótti einnig
marga skóla, en fór svo all-
mikla ferð vestur að Kyrrahafi
og skoðaði vesturhluta lands-
ins, sem er merkastur frá jarð-
fræðilegu sjónarmiði. Fór hanns
allt frá Seattle í norðri suður
undir mexíkönsku landamær-
in.
Báðir ljúka þeir lofsorði á
alla fyrirgreiðslu af hálfu.
bandarískra yfirvalda. sem
buðu þeim í kynnisferðir þess-
ar.
Slysavamafélaginu
berst gjöf írá
sjötugum sjómanni
EYJÓLFUR VILHELMS-
SON sjónríaður, Hverfisgötu
90, Reykjavík, færði Slysa-
varnafélaginu 1000 krónur að>
gjöf í gær til minningar umi
fyrri konu sína, Þóru Bjarna-
dóttur, og seinni konu sína,
Kamelu Sigríði Valdemars-
dóttur. Sjálfur átti Eyjólfur
sjötugsafmæli í gær.