Alþýðublaðið - 25.02.1951, Page 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðubfaðinu.
Aliþýðublaðið inn á
hvert heimili. Hring-
ið í sími 4900 og 4906
Sunnudagur 25. febrúar 1051
Börn og unglingat*
Komið og se'ljið
Alfjýðublaðið
Allir vilja haupa
A I þ ý ð u b I a ð i ð
íogaranum, lem ral
á land í Eiðiivík,
náS út ígær
TOGARINN HELGAFELL,
sem rak á land í Eiðisvík fyrír
nokkrum dögum, náðist á flot
um sjöleytið í gærmorgun, en
þá var flæður.
Dráttarbáturinn Magni ,náði
skipinu á flot og dró það til
Iteykjavíkur, en þar verður bað
tekið upp í slipp og gert að
skemmdura. Ekki eru þær þó
taldar miklar.
AÐEINS EINN LISTI kom
fram til kjörs stjórnar og trún-
aðarmanna.ráðs í Verkalýðsfé-
lagi Vestmannaeyja, og urðu
því þeir, er á listanum voru,
sjálfkjörnir í trúnaðarstöður fé-
lagsins.
Fráfarandi stjórn og trúriað-
armannaráð báru listann fram
og voru á honum’lýðræðíssinn-
ar eingöngu. Kommúnistar
treystu sér ekki til að bera fram
lista.
Hina nýju stjórn skipa þess-
ir menn:
Pétur Guðjónsson Kirkju-
bæ, formaður, Jón Stefánsson
Bárustíg 11, varaformaður, Ást
bjartur Sæmundsson Heiðar-
vegi 57, ritari, Jón Magnússon
Kirkjuveg 64, gjaldkeri, Árni
Stefánsson Faxastígt fjármála-
ritari. Varastjórn skipa, Sig-
urður Magnússon Vesturveg
19, ritari, Bjarni Bjarnason
Vestmannabraut 52, gjaldkeri
og Gunnlaugur Gunnlaugsson
Hörpugötu fjármálaritari.'
Elías Sigfússon.- fyrrverandi
formaður félagsins baðst mjög
eindregið undan endurkosn-
ingu. _________
Lélegasta línuver-
líð, seni menn
muna íjyjum
Frá fréttaritara Albýðubl.
VESTMANNAEY JUM.
LÍNUVERTÍÐIN í Vest-
mannaeyjum er sú lélegasta,
sem menn muna eftir hér, og
eru bátar nú sem óðast að bú-
ast á netaveíðar.
Mótorbáturinn Lundi lagði
þorskanet sín í fyrsta sinn í
fyrradag og fékk þá ekki nema
750 stykki, mest ufsa. í gær
aflaði hann hins vegar um 2600
stykki og var um helmingur af
því þorskur og hinn helming-
urinn ufsi.
Aðrir bátar eru nú sem óðast
að búast á netaveiðar.
Ægir er nú kominn til Vest-
mannaeyja og á að annast þar
eftirlit á vertíðinni.
PÁLL.
Keiscirabrúðkaupið í Iran
Mobamed Reza Pahlevi, shah eða keisari í Iran, kvæntist fyrir
nokkrum dögum í annað sinn og gekk að eiga Soraya Efandi-
arri, hefðarmey, sem er persnesk í föðurætt, en þýzk í móður-
ætt. Það er sagt, að það hafi ekki verið r.ein smáræðisviðhöfn,
en brúðkaupið fór fram í Teheran; sérstaklega var brúðar-
kjólnum við brugðið og öðru skarti brúðarinnar, sem meðal
annars bar hring, er kostaði um 200 þúsund krónur. — Hér
sjást þau keisarahjónin saman á myndinni. Hann er 31 árs,
hún 19 ára. Hann skildi við fyrstu konu sína, systur Farouks
Egiptalandskonungs, 1948.
Yörn Kínverja á miðvígsföðv-
unum fer affur harðnandi
--------------»------
FranrivarÖasveitir, sem komust inn í Ho*
engsong í gær, urðu að hörfa þaðan aftur
HERSVEITIR KÍNVERJA veittu aftur harðvítugt viðnám
á miðvígstöðvunum í Kóreu í gær; og framvarðasveitir sam-
einúðu þjóðanna, sem brutust inn í Hoengsong, án þess að
verða varar við nokkurn her í borginni, urðu a'ð hörfa þaðan
aftur fyrir stórskotahríð Kínverja af hæðunum umhveríis.
Hvengsong er borgin, sem
mest var barizt um og Kínverj
ar tóku í byrjun gagnsóknar
sinnar á dögunum. Undanfarna
daga hafa hersveitir sameinuðu
þjóðanna aftur verið að nálgast
hana og kom í gær í ljós að Kín
verjar eru farnir úr borginni
sjálfri ,en hafa búizt vel fyrir
á hæðunum umhverfis hana.
FJÓRÐI HERSHÖFÐINGINN,
SEM BÍÐUR BANA
Moore hershöfðingi, hinn
ameríski yfirmaður hersveita
sameinuðu þjóðanna á miðvíg-
stöðvunum í Kóreu, beið bana
í gær, er þyrilflugvél hans
hrapaði niður í Hanfljótið.
Moore hafði fyrir skömmu
síðan verið skipaður yfirmað-
ur hersins á miðvígstöðvunum.
Hann er fjórði hershöfðinginn
í liði sameinuðu þjóðanna, sem
bíður bana í Kóreu.
Sfjómarfcjörið í Iðju
Framhald af 1. síðu.
manns kjörstjórnarinnar, Þor
steins Péturssonar, að hann
bryti í bága við reglur og
venjur.
Þessi tilmæli hafði binn
kommúnistíski meirihluti
kjörstjórnarinnar að engu, og
hélt stjórnarkosningin því á-
fram tilsettan tínta í gær, og
mun vera ætlunin að Ijuka
henni í kvöld eins og auglýst
var.
. Efu allir lýðræðissinnar í
Iðju hvattir til þess að láta,
þrátt fyrir holabrögð komm-
únista og lögleysur, ekki und
ir höfuð leggjast að koma á
ÚmmæSi efengisvarnaoefodars
Seyíi til að selja vín á samkomum
-------------#----—.
ÚíHokað aÖ féíögio fái framvegis vínveit-
ingaleyfi, eftir yfirlýsingy nema
reg^Iugerðarbrot komi til.
---------------•--------
ÁFENGISVARNANEFND telur nú, að lögreglustjóri hafi
ekki gefið út vínveitingaleyfi í þeim tilgangi a’ð einstakir menn
eða félög græddu á þeim, —• það hafi þeir, sem Ceyfin fengu,
tekið upp hjá sjálfum sér. Þessi ummæli áfengisvarnanefndar
eru fram komin vegna yfirlýsingarinnar á þingi j.B.R., þar
sem vínveitingar íþróttafélaganna eru réttlæítar með því, a$
félögin verði að afla sér fjár til starísemi sinnar með því aS
hafa vínveitingar á opinberum samkomum, er þau lialda.
Þet'ta telur áfengisvarna-
nefnd skýlaus lagabrci, og varp
ar fram þeirri spurningu, hvað
myndi t. d. gert við bílstjóra,
sem auglýsti hvað eftir annað,
að hann seldi áfengi til þess
að hafa ofanaf fyrir sér.
Fara hér á eftir ummæli á-
fengisvarnanefndarinnar:
„Birt hefur verið ályktun frá
ársþingi ÍBR „vegna þeirra al-
varlegu og ómaklegu árása, sem
íþróttahreyfing höfuðstaðarins
hefur orðið fyrir af hálfu Á-
fengisvarnarnefndar Reykja-
víkur“, eins og það er orðað.
Þar til er því að svara, að á-
fengisvarnarnefnd hefur ekki
gert neinar árásir á íþrótta-
hreyfinguna, heldur á það ó-
sæmilega framferði sumra í-
þróttafélaga að hafa vínveit-
ingar á skemmtunum og sam-
komum sírium, en það hljóta
allir heiðvirðir menn að for-
dæma.
Áfengisvarnanefnd aðvaraði
forráðamenn íþróttanna í tíma,
og vænti þess að þeir mundu
sjálfir kippa þessu í lag. En er
það varð ekki, varð áfengis-
varnanefndin, skyldu sinni sam
kvæmt, að benda yfirvöldun-
um á þennan ósóma.
Þá er því borið við að á-
kvæði reglugerðar um undan-
bágur til vínveitinga séu mjög
óljós — og var við sat.
En nú hefst nýr þáttur í
þessu máli, og að honum stend
ur ekki Áfengisvarnanefnd
Reykjavíkur, heldur íþrótta-
mennirnir sjálfir. Þ>eir lýsa því
yfir hiklaust, bæði í blaði sínu
„Sport“ og þessari ályktun ÍBR,
að íþróttafélögin hafi haft þess
ar vínveitingar til þess að
græða á þeim fé.
Hvað sem sagt verður um
reglugerðar ákvæðin viðvíkj-
andi útgáfu vínveitingaleyfa,
þá orkar varla tvímælis hvað
átt er við í 16. grein reglu-
gerðarinnar:
þ.Lögreglustjórar geta ekki
neytt heimildar þeirrar, til að
leyfa að áfengi sé um hönd haft
í félagsskap, sem ræðir um í 17.
gr. 2. mgr. áfengislaganna,
nema í veizlum, samsætum, og
öðrum slíkum samkvæmum,
þar sem sýnt er, að félagskap-
urinn í heild eða einstakir þátt
kjörstað og krefjast þar rétt-
ar síiis til að kjósa, hvort sem
þeir hafa verið strikaðir út af
kjörskrá eða ekki.
takendur í honum hafa ekki
fjárhagslegan hagnað af. Slík
íeyfi til vínnautnar í sam-
kvæmum, sem haldin eru á veit
ingastöðum, ef ætla má, að til
þeirra sé stofnað í tekjuskynl
fyrir veitingahúsið11.
Lögreglustjóri hefur ekkl
gefið út vínveitingaleyfi tií
bess að einstakir menn eða fé-
lög græddu á heim. Það hafa
þeir, sem leyfin fengu, tekið
upp hjá sjálfum sér.
Vér vit.um ekki hvað gert
vrði við bílstjóra, sem auglýsti
hvað eftir annað. að hann seldi
áfengi til þess að hafa ofan af
fyrir sér.
Vér vitum heldur ekki hvað
gert verður við íþróttafélögin
eftir þessar yfirlýsingar beirra.
En mikið er frjálsræðið í því
landi, þar sem menn þykjast að
ósek.ju geta lýst á hendur sér
verknað, sem varðar refsingu
samkvæmt lögum eða öðruí®
fyrirmælum.“
18 000 þrýsfilofls-
hreyflar á mánuðl
og 35 000 skrlð-
drekar á ári
CHARLES E. WILSON,
forseti hergagnaframleiðslu-
ráðsins í Bandaríkjunum, lét
svo um mælt í gær, að Banda-
ríkin yrðu að verja 150 millj-
örðum dollara til vígbúnaðar á
næstu tveimur árum til þess
að búa her sinn betri vopnuna
en nokkurt annað ríki í heim-
inum.
Wilson sagði að markið væri
meðal annars að framleiða 1S
þúsund þrýstiloftshreyfla á
mánuði og 35 þúsund skrið-
dreka á ári.
Sllérnarkosning i
Miraraféfafi
Reykjavíkur
SJÓRNARKJÖR stendur yf-
ir í Múrai'afélagi Reykjavíkur
að viðhafðri allsherjaratkvæða
greiðslu. Kosið er í dag frá
kl. 1—9 síðd. og er kosningu þá
lokið. Kosningin fer fram í
Kirkjuhvoli.