Alþýðublaðið - 05.07.1951, Síða 7

Alþýðublaðið - 05.07.1951, Síða 7
Fimmtudagur 5. júlí 1951 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Félagslíf. FIMLEIKADEILD ÁRMANNS. Sjálfboðavinna á íþróttasvæði Ármanns í Höfðatúni á hverju fimmtudagskvöldi kl. 8. í kvöld fá stúlkur tilsögn i málaralist og piltar læra að halda á spöðunum. S K i ^AVTGCRÐ RiKISINS rrfií' rr austur um land til Siglufjarðar hinn 9. þ. m. Tekið á móti flutningi til Hornafjarðar, *Djúpavogs', Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarð- ar, Mjóafjarðar, Borgarfjarð- ar, Vopnafjarðar, Bakkafjarð- ar og Flateyjar á Skjálfanda í dag og á morgun. Farseðlar seldir árdegis á laugardaginn. r Armann Tekið á móti flutningi til Vestmannaeyja daglega. Framhald af 1. sxðu. upp háttu vora. Eigi leitumst vér heldur við að auka auð vorn á kostnað annarra. Vér höfum heitið því að starfa með öðrum frjálsum og fullvalda þjóðum að því að koma á og viðhalda friði í heim inum, er byggist á lögum og al- þjóðlegu samstarfi. Vér erum þess fullvissir, að sameiginleg átök allra frjálsra þjóða muni færi heiminum frið. Vér munum standa fast gegn öllum þeim öflum, er skerða frelsi mannkynsins, á sama hátt og vér höfum áður fyrr risið gegn ofbeldi. Þetta er hlutverk allra frjálsra manna, hvar sem er í heiminum.“ Brezka stjórnin ræðir úriausn oiíuflufninga FULLTRÚAR Anglo Iranian olíufélagsins ásamt brezku stjórninni og forustumönnum st j ór nar andstöðu nnar héldu fund í London í gær til þess að ræða hvernig hægt myndi að komast að samkomulagi um út- skipun á olíu frá höfninni í Aba dan án þess að skipum þeim, er þar er nú haldið, verði gert það að afhenda olíuna til írönsku stjórnarinnar. Mikil hætta er á því að olíuvinnslan stöðvist ef flutningar frá Abadan stöðvast, en talið er að innan viku muni olíuvinnslan af þessum ástæð- um minnka um einn fjórða og svo algerlega ef ekki verður úr þessu bætt. Fréltir frá Fiateyri Frá fréttaritara Alþýðublaðsins FLATEYRI, 3. júlí. TÍÐ hefur verið allgóð í júní mánuði hér í Önundarfirði og gæftir góðar til sjávar. Hefur verið hér ágætur afli á hand- færum, enda hafa margir notað sér það. Bestu fiskimenn munu hafa dregið fyrir um og yfir 5000 kr. yfir mánuðinn. Atvinna í landi hefur aftur á móti verið mjög stopul, því auk báta þeirra, sem stundað hafa hand færaveiðarnar, hafa aðeins 2 dragnótabátar lagt hér upp afla. Togarinn Ákurey kom hingað í vor og lagði hér upp nokkra túra og var þá atvinna góð á meðan, enda virðist svo sem togveiðar fyrir hraðfrysti- húsin hér sé það eina, sem tryggt getur nokkuð stöðugan rekstur þeirar og atvinnu land verkafólks. Síðustu vikuna í júní bárust hingað um 1000 mál síldar til fiskimjölsverk- smiðju h.f. ísfells. Síldin veidd ist á ísafjarðardjúpi og var stór og falleg. 2000 SUNDGESTÍR Á MÁN- UÐI. Sundnámskeið var haldið hér í júnímánuði í sundlaug íþrótta félagsins Grettis, og var það fjölsótt. Taldist svo til að 2000 sundgestir hefðu sótt laugina í mánuðinum. Áhugi manna fyrir samnor- rænu sundkeppninni mun nokk uð hafa ýtt undir aðsókn, því ýrnsir komu nú, íem, ekki hafa mætt árum saman. M. a. hóf 82 ára gamall maður sundiðk- anir að nýju, og hafði þá ekki komið í vatn að heitið gæti í fuT 40 ár. Ekki mun hann þó geta lokið keppni, en hefur á orði að láta hér ekki staðar numið með sundið fyrst hann sé farinn að iðka það á ný. SLÁTTUR HEFST UM MIÐJAN JÚLÍ. Spretta er hér fremur léleg enn, en hefur farið mikið fram síðustu daga, því þá brá til rigninga. ' Sláttur mun þó ekki byrja alment fyrr en 1—2 vikur af júlí. H. H. stjérni Framhald af 3. síðu. Og víst er það, að Eðvarð Sig urðsson sagði ekki Dagsbrúnar samningnum upp fyrr en for- menn tveggja iðnfélaga hér í bænum, þei-r Óskar Flal'gríms- son og Sigurjón Jónsson, sögð- ust ekki mundu bíða lengur en til 18. maí eftir samfloti Dags- brúnar. Þá fyrst, þegar Eðvarð var orðið fullkomlega ljóst, að svik semi har.s myndi leiða til þess að Dagsbrún einangi-aðist og málið ynnist án þátttöku Dagsbrúnar, lét hann segja upp samningunum 18. maí eða 48 dögum eftir að hægt var að fá vísitöluna leiðrétta. Þetta kostaði okkur Dagsbrúnar- menn vísitö'umismuninn í tvo rnánuði, eða 260 350 kr. Þegar samningaumleitanir hófust, var Eðvarð fulltrúi okkar í samninganefndinni. Það vakti undrun og reiði okk- ar Dagsbrúnarmanna, þegar við frétíum, að Eðvarð hefði kallað saman 100 manna ráðið og borið undir það tillögu um að samið væri um að vísitalan breyttist á 6 mánaða fresti, og ekki minnkaði rei'ði okkar í garð þessa huglausa manns, þegar við fréttum, að hann hefði ymprað á þessari tillögu í samninganefndinni. Góðu helli hafði 100 manna ráðið vit fyrir Eðvarð og fyrirbauð Iionum að iáta þessa tillögu heyrast framar. Við Dagsbrúnarmenn höfum orðið að búa lengi við marg- i háttað misrétti, sem við vonuð um að leiðrétt yi'ði í hinum nýja sanmingi. En ful!trúi okkar gleymdi því algjörlega, að óska eftir end- urskoðun á þeim liðum samn- ingsins, sem eru úreltir. Þann- ig höfum við, sem vinnum fyr- ir tímakaup, hvorki uppsagn- arfrest eða veikindadaga, þótt við höfum verið mörg ár og !áratugi hjá sama atvinnurek- enda, en það hafa þeir, sem vinna fyrir mánaðarkaupi. Við vonuðum að þessu yrði kippt í lag' og spurðum Eðvarð um það á fé'agsfundinum, sem lofiröingabuo Þaðf setn oss dreymir Framh. af 5. síðu. Og hér er ég kominn að því atriði, sem einna mikilsverðast er til rétts skilnings á draum- um: í langflestum draumum er allt það, sem fyrir oss ber, al- gerlega ókunnugt. Þessir menn og hlutir og staðir, sem vér þykjumst þekkja í draumun- um, eru í rauninni frábi'ugðn- ir þeim, sem vér þýðum þá fyr ir, sé nógu vel að gáð. Oft er hægt að gera sér grein fyrir þessu óbeint. T. d. dreymdi mig fyrir nokkru mann sem mér þótti vera Gísli nokkur. En þessi maður var miklu lávaxn ari en sá Gísli sem ég þýddi hann fyrir. í einum draumi þótti mér að siglt væri í suðaust ur frá Boi’garnesi, án þess að nokkursstaðar yrði land fyrir. í enn öðrum draumi þótti mér ég ganga eftir hellulögðum stíg, sem lægi yfir samfelldan gras- völl frá Háskólanum yfir að Barónsstíg. Slíka ósamkvæmni draumanna víð veruleikann má athuga á hverjum einasta morgni, og sýnir hún að ekki er þarna í draumunum um að ræða lireina uppriíjun endur- minninga, heldur aðfengnar skynjanir, sem svo náttúrlega1 ýta við þeim minningum, sem dreymandinn á. — Það mun sönnu nær, að ókunnugir séu 99.9 prósent þeirra manna, sem vér sjáum í draumum, né nógu vel að gætt, en ekki 43% eins og draumsögumönnum Calvins Halls sýndist. Hitt mun hafa verið missýningar, því að það er sjaldgæft að menn fái ná- granna sína að draumgjöfum. Þetta læt ég nægja um daum ana að sinni, þótt nokkuð sé það slitið úr samhengi, að fjalla aðeins um þann þátt draumrannsókna, sem snýr að missýningum. En það er þó einna mest áríðandi, ef menn vilja skilja drauma, að gera sér grein fyrir hvað missýn- ingar eru þar ríkur þáttur. Hitt mun vera mönnum ekki ókunnugt, að höfundur drauma fræðinnar, Helgi Pjeturss, setti draumana í samband við stjörn urnar. Eklci relc ég þá sögu hér að sinni, en rakin hefur hún verið annars staðar, og' verður það vafalaust víða gert, þegar fram líða stundir. samþykkti samningana, hvort þetta fengizt lagfært. Hann sagðist hafa borið þessar kröf- ur fram og umræður héldu á- fram um þær. Nú spvr ég, hvað líður þeim umræðum? Eða er hitt sannleikurinn, að Eðvarð bar þessar kröfur aldrei fram á meðan á samningaum- leitunum stóð og að hann sagði ósatt á fundinum, þegar hann var krafinn sagna? Kommúnistar vita allt þetta og sjálfsagt meira um afstöðu Dagsbrúnarstjórnarinnar og Eðvarðs til kaupdeilunnar. Þegar þeir sáu, að ekki myndi takast að eyðileggja málstað verkafólksins, og að baktjalda makkið við viðskiptamálaráð- herrann og atvinnurekendur var runnið út í sandinn, þurftu þeir að ti-yggja undanhaldið og það skyldi gert með því að auglýsa Eðvarð Sigurðsson sem sigurvegarann í deilunni. Þess vegna vorum við látnir hylla hann sérstaklega á Dagsbrún- arfundinum og stórar ínyndir birtar af honum í Þjóoviljan- um. Eðvarð, maðurinn, sem dró kjarabæturnar á langinn, og æt'aoi að semja um sex mánaðalega vísitölu, gleymdi öllum kröfum okkar við sarnn- ingaborðið og makkaði við aft- urhaldið á bak við tjöldin á meðan i'eynt var að leysa mál- ið. Hann var maðurinn, sem kommúnistar vildu láta hylla að leikslokum. Þannig er bar- átta þeirra fyrir málstað okk- ar og heilindi í stefnu og starfs aðferðum, Ðagsbrúnarmaöur. 13. iðnbingi íslend- inga lauk á föstudag ÞRETTÁNDA iðnþingi ís- lendinga lauk á Akranesi s.l. föstudagskvöld. Úr stjórn Landssambands iðn aðarmanna áttu að ganga: For- seti landssambandsins, Helgi Hermann Eiríksson skólastjóri, og Tómas Vigfússon bygginga- meistari, og voru þeir báðir endurkjörnir með samhljóða at kvæðum. Samþykkt var einróma að sæma forseta landssambands- ins, Helga H. Eiríksson skóla- stjóra, heiðursmerki Landssam bands iðnaðarmanna úr gulli. Hann hefur verið forseti Lands sambands iðnaðarmanna allt frá stofnun þess, en það verður 20 ára nú á þessu ári. Þá var einnig samþykkt einróma að sæma Jóhann Guðnason bygg- ingarfulltrúa, Akranesi, heið- ursmerki landssambandsins úr silfri, en Jóhann hefur um langt skeið verið ötull og áhuga samur þátttakandi í samtökum iðnaðarmanna. Á föstudag sátu þingfulltrúar kaffiboð Iðnaðarmannafélags Akraness. Á laugardag bauð bæjarstjórn Akraness þingfull- trúum til skemmtiferðar um Borgarfjörð. Var þá komið til Borgarness og snæddur þar Um 160 norsk síldveiðaskip við ísland í sumar Meiri áherzla lögð á þorskveiðar við Grænland en áður hefur verið. FÆRRI norsk skip verða á síldveiðum við ísland í sumar en undanfarin sumur og mun tala þeirra verð'a um 160 að því er Rögnvald Svinö fiskifræð- ingur með norska eftirlitsskip- inu Soroy tjáði fréttamanni Al- þýðublaðsins í gær. Sagði Svinö, að mörg þeirra skipa, sem verið hefðu að síld- veiðum við ísland. í fyrra sum- ar, væru nú á þorskveiðum við Grænland, þar sem vart hefði þótt .treystandi á Íslandssíldina, þar sem hún hefur að mikíu leyti brugðizt undanfarin ár. Nokkur hluti hinna norsku sxldveiðiskipa eru þegar komin til Norðurlandsiixs, en önnur voru ekki lögð af stað frá Nor- egi. Einnig var í Noregi allstór finnskur síldveiðifloti á leið til íslandsmiða. Mikið hefur verið rætt um það í nox’skum blöðum, að Norð menn legðu áherzlu á síldarút- gei'ð frá Jan Mayen, en Svínö taldi að ekki vrði gert mikið sp því að auka útgerð þaðan í ár, nema ef síldin brygðist hér við land. Rögnvald Svinö hefur venð með norskum eftirlitsskipum hér við land í fjögur undanfai’- in ár. Sagði hann að útlit vær'i fyrir góða síldarvertíð ef tíðar- farið yrði gott. Yfirmaður eftirlitsskipsins Soroy er Bruskor ýfirforingi'. er dvaldi hér í byrjun síðustú heimsstyrjaldar. Höfðingleg gjöf til slysavarnafélagsins HELGI JÓNSSON húsgagna smiður, Grettisgötu 43, afhentí í gær Slysavarnafélagi íslands 2000 krónur frá honum og öðr- um aðstandendum til minn- ingar um son hans Jón Magnús Helgason, sem fórst af botn- vörpungnum- Hallveigu Fróða- dóttur síðast liðinn vetur. Stjórn Slysavai'nafélags "ís- lands hefur beðið blaðið að bera þakkir fyrir hina rausn- arlegu gjöf. morgunverður í boði Iðnaðar- mannafélags Borgarness. Aðrir áfangastaðir voru: Hvanneyri, Reykholt og Andakílsárvirkj- un. Um kvöldið sátu þingfull- trúar síðan veizlu í boði bæjar- stjornar Alvraness.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.