Alþýðublaðið - 05.07.1951, Side 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðublaðinu.
í Alþýðublaðið inn á
f hvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4906
A I þ ý ð u b I a ð i ð
Fimmtudagur 5. júlí 1951
Börn og unglingar,
Komið og seljið 1
ALÞÝÐUBLAÐÍÐ
Allir vilja kaupa 1
Alþýðublaðið
Dr. Koch fer me5108 manna leið-
angur til blýnámanna á Grænlandi
---------------------*--------
Loftleiðir flytja leiðangurinn héðan og
byrja flutningarnir um miðjan mánuð.
HINGAÐ TIL REYKJAVÍKUR er nýlega kominn danski
landkönnuðurinn dr. Lauge Koch, ásamt ritara sínuitn og sex
mönnum, sem ætia að taka hátt í Græn'andsleiðangri heim, sem
clr, Koch hefur skipulagt og stjórnar nú, en það er 16. Jeiðang-
urinn til Grænlands, sem hann veitir forstöðu. Alls verða 100
raanns í Grænlandslei'ðangri Kochs i sumar og flytja flugvélar
Loftleiða leiðangursmenn til Grænlands.
Dr. Koch fór í fvrstu Græn- ins ásamt nokkrum leiðangurs-
iandsför sína árið 1913 og mönnum. 10. júlí munu rúm-
dvaldi hann þá á vesturströnd , lega 40 koma hingað frá Kaup-
iandsins. Síðar var hann lang- mannahöfn með leiguflugvél
’dvölum í Thule, nyrztu byggð ( Loftleiða, 12. þ. m. koma rúm-
Jandsins, og vann við norður-i lega 40 með Dronning Alexan-
1088 ferkm. klæddir skógi og kjarri;
508 þús. plöntur gróðurseftar í vor
-------4.------
42 félög hafa gróðursett 130 þús. trjá-
plöntur í Heiðmörk í vor og í fyrravor,
-------*-------
UM 1000 FERKÍLÓMETRAR LANDS eru nú klæddir
skógi og kjarri, að því er Skógrækt ríkisins hc.fur tjáð blaðinu,
Síðustu árin hefur skógræktin aukizt mjög, og voru í ár gróð-
ursettar nálega fjórum sinnum fleiri plöntur en fyrir þremur til
fjórum árum síðán. í Heiðmörk einni hafa vérið gróðursettar
130 þúsund trjáplöntur í vor og fyrravor, þar af 80 þúsund á
þessu vori, en alls liafa nú 42 félög fengið þar land til skóg-
ræktar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Alþýðublaðið fékk í gær
hjá Baldri Þorsteinssyni hjá
Skógrækt ríkisins, eru nú sam-
tals 1000 frekílómetrar af land-
inu klæddir skógi og kjarri, en
þar af er ekki nema lítill hluti
friðaður. Til þess að fullnægja
viðarþörf landsmanna mun
þurfa 50 þúsund hektara rækt-
aðs skóglendis.
Á undanförnum árum hefur
skógræktin aukizt mjög og má
segja að lyin hafi um það bil
fjórfaldazt þrjú til fjögur síð-
ustu árin. T. d. hafa í vor verið
gróðursettar samtals 500 þús-
und trjáplöntur á öllu landinu,
en til samanburðar má geta
þess, að fyrir fjórum árum voru
aðeins gróðursettar 100 þúsund
plöntur að jafnaði á ári. Hins
vegar hafa ,300—400 þúsund
plöntur verið gróðursettar að
jafnaði síðustu þrjú árin. Tún
og annað ræktað land er sam-
tals 50—60 þúsund hektarar á
öllu landinu.
130 ÞIJSUND PLÖNTUR
I HEIÐMÖRK
Alþýðublaðið átti enn frem-
ur viðtal við Einar Sæmunds-
son skógarvörð og spurði hann
um skógræktina í Heiðmörk.
Sagði hann að frá því byrjað
var að planta þar, en það var í
fyrravor, hefðu verið gróður-
settar 130 þúsund trjáplöntur.
Þar af voru 50 þúsund gróður-
settar í fyrravor og 80 þúsund
á þessu vori. Taldi Einar að ár-
angurinn væri mjög góður, þeg
ar miðað væri við það, að mest-
megnis óvant fólk hefði unnið
við plöntun trjánna. Að vísu
sagði hann, að ekki yrði ennþá
séður árangurinn af gróðursetn
ingunni í vor, en það, sem gróð
ursett hefði verið í fyrra, hefði
lítið misfarizt. Um 80% af
plöntunum, sem settar hefðu
verið niður, lifðu, en um 20%
hefðu ekki komið upp, en það
taldi hann ekki mikil vanhöld.
Sagði Einar að áhugi alrnenn
ings fyrir skógræktinni væri
mjög mikill og væri ánægjulegt
að vinna með fólkinu, sem kora
ið hefði í Heiðmörkina til þess
að gróðursetja. Alls sagði hanrn
að 42 félög hefðu nú fengið þar
útmælt land til skógræktar, þar
af hefðu 12 félög bætzt við í
vor.
»
Baldur Johnsen skip-
aður héraðslæknir!
í Vesfmannaeyjum t
Á RÍKISRÁÐSFUNDI hinn
3. þ. m. voru afgreidd þessi mál:
1) Baldur Johnsen skipaður
héraðslæknir í Vestmannaeyj-
um frá 1. júlí s.l. að telja.
2) Pétur Benediktsson skip-
aður sendiherra íslands í ír-
landi.
3) Karl Frederick skipaður
vararæðismaður íslands £
Seattle í Bandaríkjunum.
4) Staðfest útgáfa bráða-
birgðalaga um breytingu á lög-
um nr. 117/195, um breyting á
lögum nr. 22/1950, um gengis-
skráningu* launabreytingar,
stóreignaskatt, framleiðslu-
gjald o. fl.
5) Staðfest útgáfa bráða-
birgðalaga um breyting á lög-
um nr. 120/1950, um aðstoð til
útvegsmanna.
Finnskir bióðdansar
FINNSKI þj óðdansaf1 okkur-
inn, sem hingað er kominn á
vegum Ungmennafélags Reykja
víkur, sýnir þjóðdansa í Lista-
mannaskálanum í dag kl. 6-7.
Síðasti leikur Svíanna hér er
í kvöld klukkan 8.30
ströndina að gerð landabréfa yf
ir þau svæði, sem eigi höfðu áð-
ur verið könnuð. 25 ár eru nú
síðan honum var fyrst falin yf-
irstjórn Grænlandsleiðangurs
og hafa á þeim árum, sem liðin
eru síðan, um 1000 manns tek-
ið þátt í Grænlandsferðum und-
ir stjórn hans.
Sumarið 1948 fann Dr. Lauge
Koeh biýnámur við Mestersvig,
sem er um 100 mílum sunnan
víð Ellaey, þar sem hann hefur
haft aðalstöðvar undanfarin
sumur. Árið eftir vann 60
manna hópur undir stjórn hans
að rannsókn námanna og í
fyrra um 80 manns. Komið hef-
ur í Ijós að námurnar eru mjög
auðugar, eigi aðeins að blýi,
heldur einnig zinki og öðrum
málmum. Hefur nú verið ákveð
ið í Danmörku og hefja námu-
rekstur við Mestersvig og er
Per Kampmann, sem áður var
forstióri sambands skandinav-
isku flugfélaganna, ráðinn for-
Stjóri námufélagsins. Er hann
væntaniegur til íslands 15. þ.
m. ásamt nokkrum sérfræðing-
um, og mun hann fara héðan
til Grænlands og dvejlast þar
um hríð. Blýið verður hreinsað
á Grænlandi, en flutt að öðru
leyti óunnið burt. í sumar gerir
Dr. Koch ráð fyrir að um 80
leiðangursmenn vinni undir
stjórn hans að frekari rannsókn
um á námusvæðunum.
Eins og fyrr segir er Dr.
Koch kominn hingað til bæjar-
drine og auk þess nokkrir, sem
| koma eftir öðrum leiðum, en
| alls munu rúmlega 100 manns
taka þátt í Grænlandsleiðangri
Dr. Koch að þesu sinrii.
Eins og að undanförnu munu
Loftleiðir annast Grænlands-
flug héðan vegna þessa og sjá
um flutning leiðangursmanna
aftur til Kaupmannahafnar.
Héðan verða leiðangursmenn
fluttir til Grænlands með Cata-
linavélum Loftleiða og er gert
ráð fyrir að farnar vérði a. m.
k. 6 ferðir héðan í þessum mán.
uði til Ellaeyjar, þar sem Dr.
Koch hefur aðalstöðvar, en
þangað er um 5 klst. flug héð-
an. Gert er ráð fyrir að ferðirn-
ar hef jist um 10. þ. m. Einhvern
tíma í septembermánuði munu
flugvélar Loftleiða æskja Dr.
Koch og leiðangursmenn hans
til Ellaeyjar og flytja þá til
Reykjavíkur.
Bifreiðaáreksfur á
mófum Pósfhússfræt-
is og Ausfurstræfis
í FYRRADAG varð árekstur
á milli jeppbifreiðarinnar R
4126 og fólksbifreiðarinnar R
1922 á mótum Pósthússtrætis
og Austurstrætis.
Rannsókn á brenni-
steinsnámunum í
Námufjalli við Mývatn
í SUMAR mun fara fram all-
ítarleg rannsokn á möguloikum
til arðsamrar brennisteins-
vinnslu við Reykiahiíð í Mý-
vatrasveit. Mnnu verðá gerðar
jarðboranir í Námafialli. því að
öllu vænlegra þykir að vinna
brennisteininn úr jarðgufunum
þar, ef nægilegar reynast, held-
Ur en taka brennistein þann,
sem þarna hefur safnazt smátt
og smátt. en er ekki nema til-
töiulega lítið magn.
Við þessar rannsóknir verður
Baldur Líndal efa’aust og mun
ríkisstjórnin leggja fé til
þeirra, en líka hefur heyrzt, að
brezkir menn muni hafa áhuga
á þessum málum.
----------+----------
Norræn símamála-
ráðstefna hefsf í
Rvík á mánudag
NORRÆN símamálaráðstefna
hefst í Reykjavík næstkom-
andi mánudag, en ráðstefnuna
sækja fulltrúar frá öllum norð
urlöndunum. Frá Svíþjóð koma
6 fulltrúar; frá Noregi 3; frá
Danmörku 2 og Finnlandi 1.
Tveir af fulltrúunum koma
með Gullfossi í dag, en hinir
eru væntanlegir með flugvél á
sunnudaginn.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaði,ð fékk í gær hjá skrif
stofustjóra landssímans mun
ráðstefnan standa yfir frá 9.
til 12 þessa mánaðar.
Þetta er í fyrsta sinn eftir
stríð, sem norræn símamanna-
ráðstefna er haldin hér á landi,
en slíkar ráðstefnur hafa ár-
lega verið haldnar til skiptis
í löndunum. Síðasta ráðstefn-
an var haldin í Osló í fyrra og
sótti Guðmundur Hlíðdal, póst-
og símamálastjóri, hana.
Beinar flugferðir
milli Reykjavíkur
og Siglufjarðar
í GÆR hófu Loftleiðir fyrsta
áætiunarflugið til Siglufjarð-
ar, samkvæmt hinni nýju áætl
un félagsins. Flogið er beina
leið milli Siglufjarðar og
Reykjavíkur.
Bæði sökum þess að veður
og sjávarlag á Siglufirði haml-
ar stundum flugferðum þangað
og vegna þrengslanna, sem eru
oft af síldarskipum á höfninni
þar á sumrin, hafa Loftleiðir
nú tekið upp þá nýbreytni að
hafa bækistöið félagsins á
Miklavatni til vara vegna Siglu
fjarðarferðanna og mun verða
flogið þangað þegar lending-
arskilyrði þar eru góð, en ó-
fært til Siglufjarðar, og mun i
flugfarþegum þá ekið yfir
Siglufj arðarskar ð.
SÍÐASTI LEIKUR sænska
landsliðsins fer fram í kvöld,
en þá keppa Svíarnir við úrval
úr Reykjavíkurfélögunum. —
Leikurinn hefst klukkan 8,30.
Dómari verSur Guðjón Einars-
son.
Reykvíska úrvalsliðið verð-
ur þannig skipað:
Bergur Bergsson, KR, Karl
Guðmundsson, Fram, Haukur
Bjarnason, Fram, Sæmundur
Gíslason, Fram, Einar Hall-
dórsson, Val, Hafsteinn Guð-
mundsson, Val, Ólafur Hann-
esson, KR, Halldór Halldórs-
son, Val, Bjarni Guðnason,
Gunnlaugur Lárusson og Reyn.
ir Þórðarson allir úr Víkingi.
Benzínlífrinn hækkar um 3 aura
FJÁRHAGSRÁÐ hefux• enn ákveðið nýtt hámarks-
verð á benzíni og hækkar hver lítri um 3 aura, eða úr
kr. 1,51 í kr. 1,54. Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
má benzínverðið vera 7 aurum hærra vegna flutnings-
kostnaðai-.
Síðasta verðhækkun á benzíni var gerð 6. janúar
síðast liðinn. Nokkru siðar eða 31. maí hækkaði verð á
Ijósaoiíu og hiáolíu, og er það kr. 1135,00 tonnið af ljósa-
olíunni, en 66% eyrir lítrinn af hráolíunni. Utan Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar er verðið á Ijósaolíu 70 krónum
hærra fyrir hvert tonn og 3%—4% eyrir hærra fyrir
hvern lítra af hráolíu.
f