Tíminn - 06.02.1964, Blaðsíða 1
VORUR
BRAGÐAST
BEZT
30. tbl. — Fimmtudagur 6. febrúar 1964 — 48. árg.
ALMNGIMOH ÞEGAfi STEFNU STðRIDJUMAlA
TK-Reykjavík, 5. febrúar. — Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins, krafðist þess á Alþingi í gær eftir upplýsingar iðnaðarmálaráðherra
um viðræður við erlenda aðila um byggingu alúmíníumvers og olíuhreinsunarstöðvar hér á landi, að Alþingi væru þegar fengin þessi mál til athugun-
ar og þingið mótaði stefnuna í þessum málum áður en lengra væri haldið. Umfram allt yrði að leita samvinnu og samstöðu um þessi mál, sem væru
einhver þau mikilvægustu fyrir framtíð þjóðarinnar.
Fúsir að
reisa hér
olíuhreins-
unarstöð
JÓHANN HAFSTEIN, ifínaðar-
tnálaráðherra, svaraði einnig fyr-
irspurn um hugsanlegan rekstur
nlíuhreinsunarstöðvar hér á landi.
Upplýsti hann að bandarískt fjár-
festingarfyrirtæki, J. H. Whitney
i New York hefði lýst sig fúst að
reisa hér á landi olíuhreinsunar-
Stöð og útvega fjármagn til henn-
ar, en reiknað er með að stöðin
muni kosta 300 til 350 milljóntr
króna. Viðræður hafa átt sér stað
við einkaaðila og er gert ráð fyr-
ir, að íslendingar eigi stöðina að
meirihluta til og jafnvel, að hinn
trlendi aðili selji fsiendingum
sinn hlut eftir nokkur ár.
100 manna starfslið myndi verða
við slíka stöð og miðað við, að
greiða stöðina niður á 10 árum
enyndi gjaldeyrissparnaður þjóðar-
innar af rekstri stöðvarinnar nema
75 milljónum króna á fyrsta ári,
112 milljónum eftir 10 ár og 116
eftir 15 ár.
Eysteinn Jónsson 'lagði áherzlu
á það, að hann teldi, að slík stöð
yrði að vera undir fullkomnum
Vilja reisa
alúmínium
iðjuver hér
TVÖ erlend stórfyrirtæki, Swiss
Aluminium og American Metal
Climax, hafa hug á að reisa , eiga
og reka hér á landi í sameiningu
aluminiumiðjuver og standa nú yf-
ir könnunarviðræður stóriðju-
nefndar og raforkumálastjórnarinn
ar við stjórnendur þessara fyrir-
tækja. Jafnframt standa yfir við-
ræður við Alþjóðabankann vegna
hugsanlegrar lántöku til að reisa
105 þús. kílóvatta raforkuver í
Þjórsá við Búrfelll, sem er skil-
yrðið til þess að aluminiumiðju-
verið geti starfað. Orkuverið er á-
ætlað að muni kosta um 1110 mill-
jónir króna og er hugsunin sú, að
fjárútvegun til þess verði byggð
á orkusölusamningi til langs tíma
við aluminiumverið. Reiknað er
með 30 þús. tonna aluminium-
bræðslu í þessu sambandi og
myndi hún nota um helming raf-
orkunnar frá orkuverinu en um-
framorkan myndi fullnægja hinni
almennu raforkuþörf í landinu um
langa framtíð.
Frá þessum stórtíðindum skýrði
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráð-
herra, á Alþingi í gær, er hánn
svaraði fyrirspurn hér að lútandi.
Eysteinn Jónsson, foirnaður Fram-
sóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs
og markaði afstöðu Framsóknar-
flokksins til þessara mála og er
hennar getið hér að ofan, en all-
ýtarleg frásögn af umræðunum
um þetta mál á Alþingi í gær er
á þingsíðu blaðsins, bls. 6.
Aluminiumverið myndi kosta
um 1100 milljónir króna og veita
FramhalO á 15 síðu
MYNDIN er tekln af goslnu i fyrrlnótt — úr Eyjum.
(Ljósm.: Ásmundur).
L0GAR
Landbúnað-
ur í Lídó
Landbúnaðarmál eru mikið á
dagskrá núna og til marks um það,
hefur Stúdentafélag Reykjavíkur
boðað til almenns umræðufundar
í Lídó á laugardaginn. Fundurinn
hefst kl. 2 e.h. og er öllum heim-
ilJ aðgangur og þátttaka í umræð
um. Umræðuefnið er „Áptandið í
íslenzkum landbúnaði“. Frummæl-
endur verða þeir Stefán Aðal-
steinsson, búfjárfræðingur og
Gunnar Bjarnason, kennari á
Hvanneyri. Þeir voru báðir á fundi
um landbúnaðarmál í Borgarnesi
s.l. laugardag og birtir blaðið úr-
drátt úr umræðunum á þeim fundi
á bls. 8 i blaðinu í dag. Ekki er
að efa að umræður munu verða
fjörugar, en blaðaskrif frummæl-
enda að undanförnu hafa vakið
athygli.
FB-IGÞ-Reykjavík, 5. febr.
,,ÉG Á ENGIN ORÐ til
þess að lýsa því, hvað gosið
í Surti var stórkostlegt í
dag," sagði Atli, fréttaritari
Tímans í Vestmannaeyjum,
sem fór út að eyjunni í dag
á bátnum Ilaraldi.
— Við fórum út á Har
aldi klukkan eitt í dag. Með
bátnum voru tveir vísinda-
menn frá Lundúna-háskóla,
annar þeirra er einn af yf
irmönnum jarðfræðideildar
skólans. Þá var þarna Banda
ríkjamaður frá Veðurfræði-
félagi Bandaríkjanna, og er
hann hér sérstaklega til þess
að rannsaka þrumur og eld-
ingar, og svo var þarna ann-
ar Bandaríkjamaður og einn
frá Suður-Rhodesiu. Auk
þessa voru á Haraldi íslenzk-
ir vísindamenn, fréttamenn
og áhugaimenn héðan úr
Eyjum.
— Við sigldum út að
Surtsey og vorum komnir
þangað um þrjú-leytið og
það eru engin lýsingarorð
til til þess að lýsa gosinu.
Það sló á það öllum litum
og eldsúlan hefur verið um
200 metra há. Við lögðum
síðan af stað aftur til Vest-
mannaeyja kl. um 6,30, og
þegar við vorum að leggja ,if
stað urðu skyndilega umbrot
niðri í gígunum tveiimur,
sem eru nýbyrjaðir að gjósa
Framhald á 15. sfðu.
og eru á vestanverðri eyj-
unni og allt var upp ljómað
af eldinum sem stóð upp úr
gígunum. Það koma fljúg-
andi stórir, glóandi steinar
upp úr gígunum, og svo
velta þeir glitrandi eins og
demantar niður hlíðarnar,
það er ekki hægt að lýsa
þessu með orðum það er svo
stórkostlegt.
Tíminn náði tali af Sig-
urði Þórarinssyni, er hann
kom til Reykjavíkur um eil-
efu-leytið í kvöld úr
ferð sinni til Surtseyjar. —
Hann sagði að gosið hefði
verið með fallegasta móti í
dag- Undir miðnætti laug-
ardaginn 1. febrúar hefði
orðið sú breyting á, að þá
hefði myndazt nýr gígur á
eyjunni vestanverðri. sem
spýr eldleðju með alveg
sama hætti og Askja. Eini
mismunurinn á Öskjugosinu
og gosinu í Surtsey, eins og
Framhald á 15. sfSu.