Tíminn - 06.02.1964, Qupperneq 2

Tíminn - 06.02.1964, Qupperneq 2
MIÐVIUDAGUR, 5. febr. NTB-Brussel. — Hörkudeilur hafa risið innan EBE, vegna þeirrar ákvörðunar V.-Þýzka- lands að banna innflutning á eggjum. Það er cinkum Holl., sem mótmælir þeirri ákvörðun. NTB-Bankok. — Utanríkis- ráðherrar Malaysíu, Indónesíu og Filippseyja komu saman til fundar i dag um Malaysíudeil- una. NTB-Porsgrunn. — Kaupmað ur einn í Porsgrunn í Noregi hefur ákveðið að hætta að selja vindlinga í verzlun sinni, því að hann vill ekki freista ann- arra. NTB-Saigon. — Líklegt er tal ið, að nýi leiðtoginn í S.-Viet- nam, Nguyen Khanh, muni gera grein fyrir hinni nýju stjóm landsins á morgun- NTB-Washington. — Banda- ríska stjómin hefur ákært stjómina í Ghana fyrir að hafa hvatt til mótmælaaðgerðanna gegn USA í Acera í gær. NTB-París. — Gaston Deff- erre, forsetaefni franskra jafn- aðarmanna, hefur boðið þeim W. Brandt, borgarstjóra i V.- Berlín, og H. Wilson, form. brezkra jafnaðarmanna, til fundar við sig bráðlega. NTB-Stokkhólmi. — Viðræð- ur SAS og brezku yfirvaldanna um löndunarréttindi SAS í Prfestwick, Skotlandi, hefjast að r.ýju 17. febrúar n- k. NTB-Kmh. — R. Butler, ut- anríkisráðherra Breta, sagði í Kaupmannahöfn í dag, að de Gaulle skyldi varast að nálgast Rauða-Kína á eigin spýtur. — Butler er í opinberri heimsókn í Danmörku. NTB-London. — Valentina Teresjkova, sovézka geimkonan fræga, var mjög vel fagnað i London í dag. Hún fékk áheyrn drottningarinnar, og var sæmd heiðursmerkjum. NTB-Oslo. — Fyrstu viðræð- ur norsku bændasamtakanna og ríkisins um endurskoðun verðs á landbúnaðarvörum verða á morgun. Samningurinn rennur út 1. júlí. NTB-Mineola. — Lögreglan í Mineola í New York-ríki stend- ur í mikilli herferð gegn gleði- konuim bæjarins, og hefur þeg- ar fangelsað 13 stykki. NTB-Tuskegee. — Sex negr- um var í dag neitað um inn- aöngu í æðri skólann í bænum Notasulga í Alabama. NTB-Lima. — 8000 perúskir bændur, sem allir eru jarðlaus- ir, hófu mótmælaaðgerðir í gær. Lögreglan skaut á þá, og létust 12, þar af 5 konur. NTB-Buenos Aires. — 1000 manns misstu heimili sín, þeg- ar um 200 skúrar í fátækra- hverfi, rétt utan við borgina, brunnu í gær. ÍSKYGGILEGT Á KÝPUR Bandarískir borgarar fluttir frá Kýpur — málið fyrir Öryggisráð SÞ? NTB-Nicosíu og London, 5. febrúar. Bandaríkjamenn flytja nú bandarískar konur og börn frá Kýpur, eftir að nokkrar sprengingar urSu við bandaríska sendiráðið í Nicósíu í gær. Bandaríkjamenn segja, að rekin sé á Kýpur skipulögð áróðursherferð gegn Bandaríkjunum. U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur frest- að Afríkuferð sinni vegna ískyggilegs ástands í Kýpurdeil- unni, og mun Öryggisráðið líklega ræða málið innan skamms. Fyrsti hópurinn. sem fluttur var frá Kýpur í dag, var eingöngu konur og börn, 135 talsins. Litlu seinna fór önnur flugvél frá Nicosíu með 128 manns. Báðar flugvélarnar stefndu til Beirut í Libanon. Bandaríski sendiherrann á Kýpur, Fraser Wilkins, gaf leyfi til flutninganna seint í gærkvöld, eftir að tvær sprengjur voru sprengdar fyrir utan sendiráðs- bygginguna í Nicósíu. Alls eru um 1800 Bandaríkjamenn á Kýpur. Wilkins sagði í dag, skömínu áður en fyrsta flugvélin flaug frá Nicósíu, að svo virtist, sem grísk- ættaðir Kýpurbúar væru ekki vel viljaðir Bandaríkjunum, en benti á, að svo væri alls ekki um ríkis- stjórn Kýpur farið. — í tilkynn- ingu frá sendiráðinu í dag er sagt, að sett hafi verið af stað vel skipu lögð herferð gegn bandaríska sendiráðinu, og að þeirri herferð sé haldið áfram, þrátt fyrir mót- mæli sendiráðsins við stjórn Kýp- ur. í gærkvöldi voru tveir bílar sem Bandaríkjamenn áttu, brennd ir. Seinna í dag tilkynnti U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, að hann myndi fresta ferð sinni til ýmissra Afríku-ríkja og halda heim til New York á morgun. Mun U Thant sem var staddur í Túnis hafa frestað ferð sinni vegna þess, að ástandið á Kýpur verður nú ískyggilegra, og er talið að Öryggisráðið verði kall að saman til fundar bráðlega, þar sem Makarios erkibiskup, forseti Kýpur, heldur fast við fyrri kröfu sína um, að ef alþjóðlegt lögreglu lið verði sent til Kýpur, þá verði það í einhverjum tengslum við Sameinuðu þjóðirnar. Kyprianous, utanríkisráðherra Kýpur, ræddi í dag á nýjan leik við Duncan Sandys, samveldismála ráðherra Breta, og gaf honum nán ari skýringu á ýmsum atriðum í svari Makaríosar við tillögu Breta og Bandaríkjamanna um lög reglulið Nato-ríkja. Mótmælagöngur voru í Aþenu í gær til þess að andmæla tillög- unni um lögreglulið Nato-ríkjanna og var bandaríska sendiráðinu í Aþenu afhent mótmælaskjal. NONA FÉKK VÍRAVIRKI GB-Reykjavík, 5. febrúar í gærkvöldi hélt Skáksamband íslands kveðjuhóf í Þjóðleikhús- kjallaranum fyrir keppendur í hinu nýlokna alþjóðlega skákmóti, og þá einkum fyrir hina crlendu gesti. Afhenti forseti skáksam- bandsins, Ásgeir Þór Ásgeirsson, verðlaun sjö efstu keppendum, en það eru langhæstu verðlaun, er hér hafa nokkurn tíma verið veitt á skákmóti, námu samtals 1200 dollurum. Þar af hlaut sigurveg- arinn Tal þriðjunginn. í þessum hópi var ekki kvennaheimsmeist- arinn Nona Gabrindasvili, en Iiún hlaut að gjöf frá skáksambandinu hálsmen og festi úr víravirki sem þakklætis og viðurkenningarvott fyrir komuna og þátttökuna, en hún var eini kvenþátttakandi í mót inu. Fyrstu verðlaun hlaut Tal með 12%,vinning, önnur Gligoric með lli/2, þriðju til fjórðu Friðrik og Johannessen með 9 hvor, fimmtu Wade með 7V2, sjöttu Guðmundur Pálmason með 7 og sjöundu Ingi R. með 6 vinninga. (Næst í röðinni varð Nona með 5 vinninga). Áður en Ásgeir Þór afhenti verð launin, þakkaði hann þátttakend- um öllum fyrir góða og drengilega framkomu, ríki og borgarstjórn fyr ir örlæti til stuðnings mótinu. Kvað hann það vaka fyrir honum og öðrum í sambandsstjórn að mót sem þetta yrði haldið á tveggja ára fresti í framtíðinni, réttindamót, það skyldi hafa rétt indi til að gera þeim sem engan tit il hafa, að verða alþjóðlegur meist ari og einnig að alþjóðlegur meist ari gæti hækkað í stórmeistara Hefði sambandstjórn farið á stúf- ana í haust og þá boðið til hins fyrsta slíks móts hér þeim Szabo frá Ungverjalandi, Larsen frá Dan- mörku og Böök frá Finnlandi. — Einnig hefði Guðmundi Arnlaugs- syni, er þá hefði verið á ferð um Bandaríkin verið falið að leita til einhvers þarlends meistara og bjóða hingað. Þessi fyrsta tilraun hefði farið út um þúfur, af fjár- hagsástæðum og öðrum. Kvaðst Ásgeir Þór ekki hafa viljað gef- ast upp við svo búið, og þá hefði verið sent boð til þeirra fimm, er hér væri nú verið að kveðja og mundi þeirra koma hingað lengi í minnum höfð. Ekki hefði sízt verið fengur að fá hingað .jhpims- meistara kvenha, Nonu Gabrinda- svili, og vonaðist Ásgéir til að. koma hennar yrði til að auka á- huga íslenzku kvenþjóðarinnar á skáklistinni og yrði þess vonandi ekki langt að bíða, að konur sigr- uðu eiginmenn sína við taflborð- ið. Þá hafði Ásgeir það eftir Gligor ic, sem á sæti í nefnd þeirri, er metur réttindi keppenda til meist aranafnbóta, að Guðmundur Pálma son hefði ekki vantað nema herzlu muninn til að verða alþjóðlegur meistari. Hann hefði fengið sjö vinninga, en það sem þarf, er 7,1 sem síðan hækkast í 7,5 og gefur hálfan titil. Taldi Gliðoric þetta áreiðanlega verða metið í ljósi fjarlægðarinnar af nefndinni Guð mundi til tekna, er hann tæki næst þátt í alþjóðlegu móti og yrði heldur fengsælli svo að það nægði til heils titils. í veizlufagnaði þessum _voru nærri hundrað gestir, keppendur, skáksambandsstjórn, eiginkonur og borgarstjórahjónin. Fyrr um daginn hafði menntamálaráðherra boð inni fyrir þátttakendur móts- ins og forustumenn skákhreyfing- arinnar. Þrír hinna erlendu gesta fóru Framhald á 15 síJo 16 að taka atvinnu- fíugprófhjá Flugsýn FB-Reykjavík, 5. febrúar. Sextán menn eru um þessar mundir á námskeiði hjá Flugsýn og búa sig undir B-próf, sem veitir þeim réttindi atvinnuflugmanna. Nýlega lauk öðru námskeiði, þar sem 20 menn tóku A-próf, og hafa þeir nú réttindi sem einkaflug- menn, og mega fljúga með far- þega án ehdurgjalds. Þetta eru fyrstu námskeið Flug sýnar, og að sögn forstöðumanns- ins Magnúsar Stefánssonar stóð- ust A-prófið 20 menn með góða meðaleinkunn, 80 stigum. B-prófsnámskeiðið er nýbyrjað og mun það standa fram í apríl. Ásgeir Þór afhendir NONU hálsmen úr íslenzku víravirki. Lét fallerast í eplagarði IGÞ-Reykjavík, 5. febr. í gær og í morgun birtist frétt í Vísi og Mbl. eftir enskum heim- ildum, um konu, sem hafði verið rænd í London. Hún heitir Christ- ine Bungay. Þetta munu hafa þótt fréttir hér, vegna þess að sögunni fylgdi að um íslenzk-ættaða konu væri að ræða. 1 morgun ótti svo Vísir tal við Christine Bungay, og virðist sem vel hafi farið á með hinni ræridu konu og Vísi framan af í viðtalinu. Gerir hún grein fyrir ætt sinni og uppruna, sem allt er nú heldur óljóst samt, íslenzkur faðir sem flutti til Þýzkalands. En þar kem ur í þessu símviðtali að stúlkan lætur fallerast. Segir hún að afi sinn íslenzkur hafi sagt að þau hefðu búið í húsi í Reykjavík, sem var steinsteypt að neðan en timb- urhús að ofan og svo hefði verið fallegur eplagarður í kringum hús ið Virtist Vísi nóg boðið. Setti blaðið fyrirsögn á fréttina „Er frú Bungay svikakvendi?" og sagði að konan seldi hunda o. s. frv. Eru það ill eftirmæli við þann sem ekk ert hefur af sér geít annað en missa sem svarar einni milljón í hendur ránsmanna. Starfsemi F.í. evkst HF-Reykjavík. 5. febrúar í ljós hefur komið, að á síðasta ári hafa flogið alls með Flugfélagi íslands 103.615 manns, en á árinu þar áður voru þeir 104.043. í því sambandi verður að minnast þess að tvö verkföl) voru á síðasta ári, sem óhjákvæmileg áhrif höfðu á farþegafjöldann og afkomu félags ins í heild. Farþegar í millilandaflugi Flug félags íslands voru 28,937 á síð- asta ári, Fra msók na rvistin FRAMSÓKNARVISTIN í Súlnasal Hótel Sög'u hefst stundvíslega kl. 8,30 í kvöld. Húsið verður opn- hð kl. 8. Aðsóknin er mikil. Upp- lýsingar og aðgöngumiðar, með- an til eru, fást í félagsheimilinu, Tjarnargötu 26, sími 1 55 64. — Vigfús Guðmundsson gestgjafi stjórnar vistinni. T í M I N N , fimmtudaginn 6. febrúar 1964 _ 2

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.