Tíminn - 08.02.1964, Síða 2
FÖSTUDAGUR, 7. febrúai.
NTB-Leopoldville. — Stjórn
Kongó hefur sent öflugan lier
til höfuðs hryðjuverkamönnun-
»im í Kwilu-héraðinu í Kongó.
NTB-Stokkhólmi. — Norski
fingrafarasérfræðingurinn Jo-
han Hafnor sagði í réttinum í
Stokkhólmi í dag, að fingraför-
in á einu bréfanna umdeildu í
Helandermálinu hefðu ekkert
sönnunargildi.
NTB-Saigon. — Um 115 Suð-
ur-Vietnam-hermenn voru
drepnir, og um 30 særðir, í sjö
tíma löngum bardaga við skæru
liða kommúnista í nokkruni
þorpum í nánd við landamæri
Kamhodsjíu.
NTB-Wasihington. — Samtök
Ameríkuríkja (OAS) ákváðu í
dag að skipa nefnd til þess að
rannsaka og leysa dailu USA
og Panama-
NTB-París. — Frakkar munu
selja 300 vörubila til Kúbu
bráðlega. Þeir verða greiddir á
þrem árum.
NTB-Bangkok. — Þrívelda-
ráðstefnan í Bangkok hefur á-
kveðið að skipa nefnd til að
rannsaka þróunina í Malaysíu-
deilunni síðan Manila-ráðstefn-
an var haldin í ágúst s. 1.
NTB-Washington- — Banda-
ríkin, Danmörk og Noregur
munu í sameiningu skjóta upp
þrem Nike-Apacjie eldflaugum
frá Andöya við strönd Noregs
til rannsóknar á útvarpsbylgj-
um o. fl.
NTB-Oslo. — Um 400.000
norskir launþegar munu fá
nýja samninga á þessu ári, þar
af um 246.500 launþegar nú í
vor.
NTB-Bodö. — 31 norskur sjó
maður drukknaði f janúarmán-
uði s. 1.
NTB-Oslo. — Norðmenn
munu líklega gefa út silfurpen-
ing að upphæð 10 kr. norskar i
sambandi við 150 ára afmæli
norsku stjórnarskrárinnar 17.
maí n. k-
NTB-París. — Líklegt er tal-
ið, að de Gaulle komi í opin-
bera heimsókn til Noregs og
Svíþjóðar á næsta ári.
NTB-Dar-Es-Salaam. — Ut-
anríkis- og varnarmálaráðherr-
ar meðlimaríkja Einingarbanda
lags Afríku koma saman til
fundar í Dar-Es-Salaam 12.
febrúar n. k. Þeir munu ræða
upprejsnirnar f A.-Afríku.
NTB-París. — Gríska stytt-
an af Venusi frá Milo verðnr
send til Tokío í lok mánaðar-
ins. Henni yerður stillt upp þar
í sambandi við Olympíuleikana
þar í sumar.
NTB-Cairo. — 20 ára gömul
flugfreyja lét lífið, er hún sog-
aðist út um dyr flugvélar í
8500 feta hæð-
BRETAR 0G FRAKKAR ERU SAMMÁIA UM AÐ BVGGJA GÖNG UNDIR ERMARSUND:
GÖNGIN TILBOlN 1970
NTB-París, 6. febrúar.
Ríkisstjórnir Bretlands og Frakklands hafa komizt að sam-
komulagi um að byggja járnbrautargöng undir Ermasundið
fyrir árið 1970, að því er tilkynnt var opinberlega í dag.
Göngin, sem verða 52,45 km. löng, eiga að ná frá Calais í
Frakkiandi til brezku strandarinnar suðvestur af Folkestone.
Bretar telja, að það taki um 6 ár að byggja göngin.
Göngin verða 52,45 kílómetrar
að lengd, og þar af eru 36,4 km.
neðansjávar. Byggingartíminn
verður 5—6 ár, og áætlaður kostn
aður við göngin er um 450 millj.
dollara, eða um 20,2 milljarðar
íslenzkra króna. Brezka og franska
ríkið munu útvega 25% kostnaðar
fjársins hvort um sig, en hin 50%
verða fengið hjá hópi bandariskra
fjármálamanna.
Göngin verða úr tveim aðskild-
um rörum, sem hvort um sig verð
uf 6,5 metrar í þvermál. Auk þess
verða byggð minni göng, sem not
uð verða fyrir síma- og rafmagns
leiðslur og fleira þess háttar. Fjar-
lægðin milli endastöðvanna verður
69,45 km. Franska stöðin -erður
byggð suðvestur af Calais, en sú
brezka suðvestur af Folkestone.
Áætlað er, að járnbrautarlest-
irnar noti göngin vel, því að 3—4
farþegalestir eiga að fara í gegn-
um þau á hverri klukkustund, auk
þess, sem sórstakar bílaflutninga
lestir munu fara um göngin sex
sinnum á klukkustund. Hver bíla-
Skuggamyndir tíl kennsiu
FB-Reykjavík, 7. febrúar.
FRÆÐSLUMYNDASAFN ríkis-
ins hóf á síðasta hausti útgáfu lit-
skuggamynda til notkunar við
kennslu í skólum landsins og til
fræðslu og skenuntunar fyrir ai-
menning. Þegar eru komnir út f jór
ir flokkar um Árnessýslu, Borgar-
fjörð, fslenzkar jurtir og íslenzka
fugla. Þá eru væntanlegir flokk-
ar um Skagafjörð, Eyjafjörð, Múla
sýslurnar báðar og að lokum flokk
ur um starfsíþróttir.
Fræðslumyndasafnið ætlar sér
að gefa út myndaflokka úr öllum
sýslum landsins, og í hverjura
flokki eru myndir af sögustöðum,
sérstæðum náttúrufyrirbrigðum,
þorpum, kaupstöðum og yfirlits-
myndir af landslagi.
Jafnhliða landafræði- og sögu-
flokkunum er hafin útgáfa á mynd-
um úr náttúrufræði og verður
þfeirri útgáfu haldið áfram, eftir
því, sem ástæður frekast leyfa. í
október kcm út flokkurinn íslenzk
ir fuglar og eru í honum 27 mynd
ir, en nú er að koma út flokkur-
inn íslenzkar jurtir, og er þetta
viðamesti flokkurinn, sem enn hef
ur komið á markaðinn, en í honum
eru samtals 60 myndir.
Myndaflokkunum fylgja litlir
lextapésar brotnir saman og eru
þeir í sömu stærð og myndirnar
og falla vel við hlið litskuggamynd
anna í öskjunum. Fjölmargir ljós-
myndarar hafa tekið myndirnar,
FramhalO é 15 siðo
lest ber um 300 bíla, og farþeg-
arnir fá að sitja í bílunum á leið-
inni yfir, sem einungis tekur um
45 mínútur. Ferðin frá London
til Parísar mun því einungis taka
fjóra tíma og 20 mínútur með
lest, en nú tekur sú ferð 7 tíma og
20 mínútur vegna ýmissa tafa í
sambandi við ferjurnar.
Umferðargjaldið gegnum göng-
in er áætlað um 700 íslenzkar krón
ur fyrir bílinn og 90 krónur fyrir
manninn. Þetta gjald mun borga
allan kostnað við býggingu gang-
anna á 30 árum. Tæknifraaðingar
hafa reiknað út, að bygging brúar
yfir Ermarsund yrði helmingi
dýrari, og auk þess hindra sigl-
ingar yfir sundið. Einnig hefur
verið hætt við hugmyndina um
göng, sem væru bæði fyrir bíla-
umferð og lestir .
Stjórnir Bretlands og Frakk-
lands munu nú ræða ýmis lögfræði
leg vandamál í sambandi við þessa
byggingu, og einnig, hvenær haf-
izt skuli handa. Ekki er enn þá
ákveðið, hversu miklu einkafjár-
magni verði hleypt inn í fram-
kvæmdir þessar, en víst er talið
að ríkisstjórnir viðkomandi landa
muni hafa meirihlutann í því fé-
[ lagi, sem stofnað verður til þess
að sjá um bygginguna.
Bílnum í
brekkunni
bjurguð
ÞJ-Húsavík, 7. febrúar.
BIFREIÐINNI, sem lenti í snjó
flóðinu í Auðbjargarstaðabrekkum
á Tjörnesi síðastliðið þriðjudags-
kvöld, var bjargað í gær úr gilinu,
þar sem hún Iá á hliðinni um 50
metra neðan vegar.
Skarphéðinn Jónasson, Halldór
Bárðarson, Húsavík stjórnuðu verk
inu, sem tókst mjög giftusamlega
og án þess að bifreiðin skemmdist
nokkuð, til viðbótar því, sem varð.
við hrapið og afleiðingar þess.
Bifreiðin virðist furðu lítið
skemmd. Vélarhús og stýrishús
hafa þó laskazt nokkuð, framrúðan
og önnur afturrúðan höfðu brotn-
og vélin er úrbrædd.
Við björgunina var notuð ein
ýta og þrír trukkar. Ýtan var lát-
in grafa sig niður og tengd með
vírum við trukkana, til þess að
halda þeim föstum, en trukkarn-
ir voru síðan látnir draga bifreið-
ina upp á veginn með spilum og
blökkum eftir að búið var að reisa
hana upp á hjólin. Ekki varð því
við komið, að draga bifreiðina
stytztu og beinustu leið upp á veg-
inn heldur varð að fara með hana
um 70 metra leið upp mikinn
bratta.
Bruni í Kóoavogi
KJ-Reykjavík, 6. febrúar.
KLUKKAN 17,40 var slökkvilið-
ið í Reykjavík kvatt að Holtagerði
54 í Kópavogi. Var eldur laus á
efri hæð hússins. Slökkviliðinu
tókst fljótlega að ráða niðurlögum
eldsins, en töluverðar skemmdir
munu hafa hlotizt af honum. Hús
þetta er ekki fullfrágengið, en bú-
ið í því samt.
Haraldur Björnsson (lengst til hægrl) stjórnar æfingu á ímyndunarveikinni.
ÍMYNDUNARVEIKIN A HERRANÚTT
BÓ-Reykjayík, 7. febrúar.
HERRANÓTT Menntaskólans
KVIKMYNDA-
SÝNING HJÁ
VARÐBERGI
NÆSTKOMANDI laugardag kl.
2 e. h. efnir félagið Varðberg til
kvikmyndasýningar í Nýja Bíói,
Reykjavík. Sýndar verða þrjár
eftirtaldar kvikmyndir:
Um loftin blá, fjallar sú mynd
vm samstarf V.-Evrópu þjóða á
sviði loftferðartiála og flugöryggis.
Leiðtoginn Ulbricht, greinir
myndin frá nokkrum æviatriðum
þessa foringja A -þýzkra kommún-
ista.
Kafbátavarnir mynd þessi er
tekin af upplýsingaþjónustu NATO
— og sýnir varnir Atlantshafsrík.i-
anna gegn hinum ógnvekjandi
kafbátaflota Soyétríkjanna.
Aðgangur að þessari kvikmynria
sýningu er ókeypis, og öllum hejm
j!l, börnum þó aðeins í fylgd með
fullorðnum.
býður að þessu sinni upp á hinn
velkunna gamanleik ímyndunar-
veikina eftir Moliére. Leikurinn
verður frumsýndur í Iðnó n. k.
mánudagskvöld, kl. 20,30. Leikstj.
er Haraldur Björnsson.
Fréttamenn ræddu í dag við
Jóhann Guðmundsson, formann
leiknefndar, og Einar Magnússon,
menntaskólakennara, og sögðu
þeir, að æfingar án leikstjóra
hefðu byrjað í október. Haraldur
Björnsson var þá erlendis, en um
jólaleytið tók hann stjórnina í
sínar hendur.
ímyndunarveikin var sýnd í
Þjóðleikhúsinu 1952, en Haraldur
lék þá Diafoirus lækni. LR sýndi
leikinn 1931- Hlutverkin eru 15,
en auk þess leikur 5 manna hljóm-
sveit úr Menntaskólanum. Jón Þór
arinsson útsetti lögin og æfði
hljómsveitina-
Fjórar fyrstu sýningarnar verða
fyrir menntaskólanemendur og
boðsgesti, en vepja er að flytja
ieikinn um það bil 10 sinnum. Þá
bafa Menntaskólanemar sýnt
Herranóttipa utan Reykjavíkur, en
að þessu sinni er óráðið um ferða
lag.
Búningar og húsgögn eru fengin
að láni hjá Þjóðleikhúsinu, en nem
endur hafa sjálfir gert leiktjöld-
in.
Á mánudaginn, 10. febrúar, eru
291 ár liðið síðan ímyndunarveikin
var fyrst sýnd í París.
AKRANES
FRAMSÓKNARFÉLAG Akraness
heldur skemmtifund í félagsheimili
sínu að Sunnubraut 21 n. k. sunnu-
dag kl. 20,30. Spiluð verður fram-
sóknarvist og sýnd kvikmynd. —
Ölium er helmill aðgangur.
REYKJANES-
KJÖRDÆMI
FUNDUR verður haldinn í stjórn
kjördæmissambands Framsóknar-
manna í Reykjaneskjördæmi
þriðjudaginn 11. febrúar n- k. og
hefst kl. 30,30 í félagsheimilinu,
Tjarnargötu 26. Formenn flokks-
félaganna í kjördæminu mæti á
fundinum.
2
TÍMINN, laugardaginn 8. febróar 1964