Tíminn - 07.03.1964, Qupperneq 3

Tíminn - 07.03.1964, Qupperneq 3
ANttA ÁSLAUG AUTJAN ARA A SINFÖNIUPALLI Á æskulýðstónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands á dögunum, lék 17 ára stúlka einleik með hljómsveitinni .tilbrigði eftir Cop- in við stef eftir Mozart, Anna Ás- laug Ragnarsdóttir á fernum tón- leiikum, við mikla hrifningu hinna ungu áheyrenda, meðal þeirra voru skólasystkin hennar í Mennta skólanum í Reykjavík, þar sem hún hóf nám í haust. Þegar óg bað Önnu um smávið- tal hahda Tímamim, var henni um og ó, sagði að einhver blaðamaður hefði hitt hana að máli á æfingu í Háskólabíói, síðan hefði blaðið lagt henni i munn eitt og annað, sem hún hefði aldrei sagt við piltinn. Hún vildi alls ekki ræða við blöð nema með samþykki pí- anókennara síns, Árna Kristjáns- sonar píanóleikara. Ég hafði einmitt hringt í Árna og spurt um Önnu, þeirra erinda að leggja fyrir hana nokkrar spurn ingar. Árni kvaðst yfirleitt hættur kennslu, hefði sárafáa nemendur í einkatímum af sérstökum ástæð- um og nemendur eins og Anna Ás laug væru ekki á hverju strái. Þeg ar ég svo hitti Önnu, átti hún ekki nóg lofsyrði um Árna sem kenn- ara, sem hún fór fyrst að sækja tíma hjá i haust, um leið og hún kom suður og settist í menntaskól- ann. En þá var hún búin að sitja margar stundir við píanóið, sem faðir hennar byrjaði að kenna henni á, þegar hún var sjö ára og hefur gert síðan — í tíu vetur. En faðir hennar er Ragnar H. Ragnar, sem nú í rúm fimmtán ár hefur verið potturinn og pannan í tón- listarlífi á ísafirði, en þá fluttist hann heim frá Ameríku, þar sem hann hafði kennt á píanó og æft söng í nærri tuttugu ár í íslend- inga og Norðmannabyggðum í Norður-Dakota og Minnesota, ef ekki víðar, og vann maðurinn af óhemju dugnaði, sögðu mér þar- lendir menn. Hann kvæntist Sig- ríði Jónsdóttur frá Gautlöndum, og þau fluttust til íslands með Önnu Áslaugu ársgamla. Síðan hef ur Ragnai kennt á ísafirði söng í öllum skólum þar, verið orgelleik- ari kirkjunnar, söngstjóri tveggja kóra bæjaiins, skólastjóri og aðal- kennari tónlistarskólans, kennt börnum sínum píanóleik. Eigin- lega er óll fjölskyldan á kafi í músík, því að frúin kvað kenna tónfræði ! tónlistarskólanum. Þetta hef ég eftir ýmsum, og ekki Önnu Ásiaugu, hún er svo hógvær og yfirlætislaus stúlka. En ég spurði hana um tónleikahald á ísafirði. Hún segist fyrst hafa heyrt og séð Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum á ísafirði fyr- ir fáum árum. Hins vegar hafi pí- anóleikarar komið þangað nýlega, vegna þess að þar hafi ekki A FÖRNUM VEGI Nýlega heyrði ég sagt frá því, að eldri maður hér í borg héldl því fram, að veturinn 1881 hefði verið álíka mildur og yfirstand- andi vetur. Þá hefðu frosthörkur ekki byrjað fyrr en með vordög- um. í útvarpinu að kvöldi 2. þ. m. var sagt, að samkvæmt skýrsium um veðurfar hérlendis væri þetta annar mildasti febrúarmánuður, sem kumið hefði hér á landi, frá því að byrjað var að skrá veður- far fyrir 80 árum. En í Árbókum Reykjavíkur, eftir dr. Jón Helgason biskup, stendur þetta um vcðurfar þenn an vetur: „Ár þetta varð eitt hið mesta harðindaár og vetur- inn frá nýári einn hinn frosta- mesti í manna minnum. Frá 10. janúar til mánaðarloka vjr grimmdarfrost dag eftir dag með bálroki suma dagaa. Komst frost upp í 14° R á hádegi. Um miðjan janúar var „genglð af Akranesi til Reykjavíkur". (Þ. Thor.). Höfnin var ein samfelld isbreiða langt út fyrir eyjar. (1. febr. drógu Engeyingar lík a sleða til lands, og 4. febr. var riðið út í Viðey, líklega þó að- eins yfir Viðeyjarsundl). Um miðjan febrúar kom asahláka, er stóð í nokkra daga . . . en brátt sóttl aftur í sama horfið. Dag eftir dag kyngdi niður snjó með hörkufrostum og illviðrum, og héizt það veðráttufar til marz- loka (24. marz var hér í bæ -z- 13° R á hádegi). Mundu ekki elztu menn annan eins jökul á jörðu. Með aprílmánuði fór tið- arfarið að batna, og héldust góð- viðri alit til maíloka, nema um hvítasunnuleytlð, þá gerði norð- anhríðarkast með frostl, er setti kyrklng í allan grasvöxt. Sumar- ið var bæði kait og þurrt . . ." Hinn 19. febrúar þennan sama vetur stíflaðlst lækurlnn i mik- illi þorraleysingu. Tjörnin flóði yfir bakka sína, svo að fara mátti á bátum um götur austast í mið- bænum (einkum um Lækjargötu, sem varð elns og fljót yfir að líta — en þar fóru allir húsgrunnar i kaf og kjallarar fylltust vatm) segir í Árbókum Reykjavíkur. — Enn fremur segir að Matthías Jochumsson, sem þá var búsett ur i Reykjavfk, hafi ort gaman kvæðið „Þorralok eða vatnsflóð- ið í Reykjavik 18811" í því hati verið m. a. þessi erindi: Æddi hrönn, en hræddist þjóð, hús og stræti flóa; Sást ei þvílikt syndaflóð sfðan á dögum Nóa. Húsin sýndust selasker sukku strætamörkin, fólkið vildi forða sér fannst þó hvergi örkin. Ríklsfrúr með rúmfjölum reyndu að stöðva æglnn; „séni" tólf með suðvestum syntu þveran bæinn. Æpti þjóð með andköfum: „Ólán vort vér kennum sumpart leiðu syndunum, sumpart slæmum rennum". Hvað er nú hlð rétta um veð- urfarið þennan vetur? Vill Rikis- útvarpið leiðrétta frásögn sina um veðurfarlð, sem skýrt var frá að kvöldl 2. þ. m.? Getur veðurstofan skýrt frá hinu rétta um veðurfarið þenn- an vetur, ef ekkl má treysta Ár- bókum Reykjavfkur? Af þvi sem hér er sagt, virðlst liggja Ijóst fyrir, að frásögn hlns aldraða borgara sé ekki óskeikul. Með fyrlr fram þökk fyrlr góð og greið svör. Jón Þórðarson. T 'í M ?> W N, laugardagur 7. marz 1964. — verið til konsertflygill, en það breytist á næstunni, því að tónlist- arfélagið þar fái nýjan, stóran flygil innan skamms. En heima hjá sér hefur Anna hlustað mikið á músík af plötum og útvarpi. Og aðspurð um eftirlætispíanóleikara sína á plötum, nefnir hún fyrst Artur Rubinstein og Svjatoslav Richter, og eftirlætistónskáldin eru Bach og Beethoven, þar næst Chophin. Síðan Anna Áslaug kom til Reykjavíkur, hefur hún sótt alla þá tónleika, sem hún hefur getað komið við. Hún varð mjög hrifin af Proinnsias ’Duinn sem hljóm- sveitarstjóra, og þótti skemmtilegt að leika undir stjórn hans. Það var að vonum mesta ævintýr hennar hingað til á tónleikasviði. En fyrst lék hún opinberlega á nemenda- vortónleikum á ísafirði, sjö ára; einnig nokkrum sinnum um ferm- ingaraldur á samkomum í Sjólu- brekk í Mývatnssveit, þar sem hún hefur oft verið í sveit. BORGARFUNÐUR MENNINGAR og friðarsamband íslenzkra kvenna gengst fyrir al- mennum borgarafundi á sunnudag inn kemur, en það er alþjóða kvennadagurinn. Fundurinn verð- ur haldinn í Þingholtsstræti 27 og hefst kl. 15,30. Sverrir Kristj- ánsson sagnfræðingur flytur ræðu og Thor VilhjáJmsson rithöfundur les upp frumsamið efni. Þá verð- ur kvikmyndasýning 2100 KR. HURFU KJ-Reykjavík, 5. marz. í NÓTT var brotizt inn hjá benz ínafgreiðslu Skeljungs h.f. við Reykjanesbraut. Var brotin þarna upp hurð, og peningaskápur rif- inn upp. Tvö þúsund og eitt hundr að króna er saknað úr skápnum. Trúlofunar- hringar afgreiddir samdægurs Senuum um allt land. HALLDOR SkólavörSustig 2 Við seljum Volkswagen ’64 — '63, — ’62. N.S.U. Prinz ’64 — ’63. Opel Caravan ’60. Mercedcs-Benz 190 — ’57 — fyrsta flokks bfll, ný influtt- ur, skipti á minni bfl. Ford '59- 55. Chevrolet ’57 í skiptum Chevrolet ’56 — ’55 — ’53. Gipsy '63. Chevrolet 3100 — ’59 sendi- ferðabfll með stöðvarplássi. Látið bílinn standa hjá okkur og hann selst. ^/gamla bílasaiahY RAUOARÍ SKÚLAGATA 55—~SÍMl 15112 ■mnT' \ í „Magna" á Akranesi segir þetta m. a.: „Þeir stjórnarliðar gáfu stefnu sinni í efnahagsmálum heitið ,viðreisn“. Stefnuskrá þessa birtu þeir þjóðinni i hvítri bók, er þeir sendu lands- mönnurn á kostnað ríkisins í ársbyrjun 1960. Þar var sá boðskapur fluttur, að fram- leiðslunni skyld: skapaður „traustari. varanlegri og heil- brigðari grundvölluir en verið hefur*' Síðan hafa þeir stjórn- arliðar verið óþreytandi tsls menn þess, að .„viðreisnin" hafi heppnazt. Hámarki sírju náði lofsöngur þeirra um hana við kosningar á s.l. vori. Þá votru góð aflabrögð, meira að segja „viðreisninni" að þakka, og því haldið fram, að tekizt hefði að leggja svo varanlegan og traustan grundvöll atvinnu- og viðskiptalífs landsmanna, að t'ramundan væri tímabil framkvæmda og framfara. Til að undirstrika þetta var gefin út framkvæmdaáætlun, og það jafnframt auglýst, að útlendir kepptust um að vilja lána okk- f ur fé, og lán tekið hjá Bretum, sem hlaut nafnið framkvæmda lán. Eyðsluián höfðu stjórnar- Iiðar hins vegar kallað Iánið Itil Sementsverksmiðjunnar og Sogsvirkjunarinnar o.fl. Stór- framkvæmdir, frjálsræði í við- skiptum og framkvæmdum er tryggt, ef „viðreisnin“ fær i i notið sín áfram. Ekkert skyldi fjarri en uppbóta- og styrkja- , kerfi atvinnuvegunum til ■ handa, ef „viðreisnin“ ræður Í, ríkjum. Þessi var boðskapur i stjórnarliða s.l. vor. Þessi auglýsingaherferð dugði. Stjórnarliðar héldu meirihluta, þó að naumur væri. Viðreisnin lifði af.“ Staðreyndirnar Ráðherrarnir, sem höfðu lagt í það mikla vinnu, að telja þjóðinni trú um ágæti „við- reisnarinnar" höfðu jafnvel fest trúnað á þetta að ein- hverju Ieyti sjálfir. Þeir tóku sér a'lgert frí frá störfum og voru allt sumarið að liðnum kosningum á ferðalögum út um heim. svo að þjóðin vissi tæplega, hvert þeir voru að koma eða fara, þegar hún heyrði ti! þeirra. Er sumarið leið, dró úr ferðalögum ráð- herra i bili. Haustið tók við, staðreyndirnar fóru að segja til sín aftuir. „Viðreisnin" rið- aði ti) falls, dýrtíð stóð sem skessa við hvers manns dyr. Atvinnuvegirnir boðuðu stöðv- un. Kjaradómur hefði metið kaupgja'ld opinberra starfs- manna. Almenningur vildi fá kjör sín leiðrétt eitthvað til samræmis við niðurstöður þess dóms Þegair þar var komið sögu sá ríkisstjórnin, að við- reisnin var hvorki „örugg né traust". Hún tók því til að smíða henni hækjur. Þessi brast Fyrsi var gerð tilraun til að banna þeim tekjulægstu að hækka iaun sín. Frumvarp vair flutt um það efni, er skyldi hafa iagagildi þegar það birt- ist. Fyrir harðsnúna andstöðu á Alþingi og i stéttarfélögum gafst stjórnin upp. Hækjan brast. áður en hún var full- gerð Frumvarpið varð aldrei að lögum Nú voru góð ráð dýr. Leita varð að öðru efni hald- Framhald á 13. slðu. 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.